Leita í fréttum mbl.is

Faðir nútíma femínisma

assHvernig má það vera að 82 ára karlódráttur, sem fyrir löngu er farinn að vega salt á grafarbakkanum, skuli vera þriggjakvenna maki? Það hefur svo sem ekki farið framhjá neinum, að Hugh þessi Hefner hefur löngum verið í miklum metum hjá fémínískum kvenréttindasamtökum um allan heim, enda af mörgum álitinn faðir nútíma-fémínísma. Hver man t.d. ekki eftir þegar Hugh var heiðursgestur landsfundar Kvennalistans sáluga? Þar flutti sá gamli slíkan tímamótafyrirlestur að gjörvallur Kvennalistinn varð að gjalti. Í fyrirlestrinum brýndi hann m.a. kvennalistakonur til að gefa sig auðhyggjunni á vald, giftast óhræddar til fjár, sækjast eftir sætum í stjórnum auðvaldsfyrirtækja, og yfirleitt að sleikja sig upp við auðvaldsfyrirkomulagið með öllum ráðum naktar sem ónaktar.

En vel á minnst: Hvað átti 82 ára karluglan að gera við súkkulaði rassinn með krossfiskinn í miðjunni? Varla hefur verið ætlast til að hann æti þessa forsmán í kökulíki? 


mbl.is Súkkulaðirass í afmælisgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Hva, kaka er kaka hvernig sem hún er í laginu, er það ekki?

Vésteinn Valgarðsson, 11.6.2008 kl. 09:24

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, ég veit ekki hvernig hvernig ég myndi bregðast við ef svona hefnerísk raskatskaka væri borin á borð fyrir mig.

Jóhannes Ragnarsson, 11.6.2008 kl. 09:37

3 identicon

Já kaka er kaka

Annars fékk ég svona köku að gjöf frá einni vinkonu minni nema það var efrilýking af framhlutanum listug og lostafull kaka og smakkaðist mjög vel

Mr;Magoo (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 10:02

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvað ætli það sé sem kemur fólki til að baka ósiðlegar kökur? Mér hefir aldreigi geðjast að klámfengnu bakkelsi, t.d. eru kleinur illa séðar af minni hálfu.

Jóhannes Ragnarsson, 11.6.2008 kl. 10:58

5 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

"Hvernig má það vera að 82 ára karlódráttur, sem fyrir löngu er farinn að vega salt á grafarbakkanum, skuli vera þriggjakvenna maki?"

peningar og Viagra :D 

Árni Sigurður Pétursson, 11.6.2008 kl. 11:29

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ertu nokkuð að tala um kindapíkur Jóhannes?  Eða kannski ærlávur?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.6.2008 kl. 13:15

7 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Tja... hafandi horft á þáttinn 'Girls of the Playboy Mansion' og séð formið sem stúlkurnar eru í...

...held ég að þetta hafi bara verið girnilegt.

*heheheh*

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 11.6.2008 kl. 15:33

8 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Held að karlinn geti ekkert og hafi ekki heldur lyst á köku. Stelpurnar sem gista í húsinu hans finnst mér vera bjánar.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 13.6.2008 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband