Leita í fréttum mbl.is

Staðfest að Angelína lagðist með Pútín

fool2Ekki kemur mér á óvart þó drenghróið líkist rússanum Pútín endar er hann undan honum og engum öðrum. Það er vitað að frá barnæsku hefur Vladímír Pútin verið frábærlega slóttugur og komið víða við. Hann veit til dæmis uppá hár hvernig kvikmyndaleikonur skulu legnar með fyrirtaksárangri, svo sem sjá má á litla Pútín sem skaust úr kviði Angelínu Jólí þann 12. júlí 2008.

Á þessari stundu minnist ég allt í einu Málhildar Másdóttur, en hún eignaðist líka tvíbura eins og Angelína. Og Málhildi varð ekki skotskuld úr að fá ungunum sínum tveimur eina sjö feður. Og það sem meira er: Tvíburarnir líkjast feðrum sínum sjö svo mikið að undrun sætir þrátt fyrir að þeir séu svo að segja allir sinn úr hvorri áttinni. 


mbl.is Segir soninn hafa líkst Pútín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Gaman að hitta hér bloggara sem hefur ekki kastað trúnni. En hvernig getur kommúnisti búið í Ólafsvík?

En í öllu falli, þér vaski kappi: Lifi byltingin!

Sigurður Sigurðsson, 4.8.2008 kl. 17:22

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Góður kommúnisti getur búið hvar sem er, ef útí það er farið, meira að segja í Ólafsvík!

Og auðvitað tek ég undir: Lifi byltingin!

Jóhannes Ragnarsson, 4.8.2008 kl. 20:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband