Leita í fréttum mbl.is

Útglennt og klæðalaus

Henni var nær, stelpuandskotanum, að láta ekki fyrrum unnusta sinn taka af sér soramyndir, útglenntri og klæðalausri. Það er annars makalaust hvað fólki dettur í hug, nú til dags, til að gera sé til ævarandi forsmánar. Og leki fyrrum unnustinn berrassínumyndum af Önnu inná netið getur hún sjálfri sér um kennt - varla hefur hún verið neydd til að sitja fyrir hjá honum í dónalegu ástandi. Svo virðist sem þessi fyrrum unnustanefna sé bölvuð glæpakind að upplagi fyrst hann tók þátt í fjármálahneyksli. Hann er sennilega uppfullur af afbrotagenum og munar eflaust ekki um að dæla klámfengnum myndum af fyrrverandi unnustu sinni inná netið. En hvernig ætli það sé: Á Anna þá ekki í fórum sínum samsvarandi myndefni af sínum gamla kunningja, Raffaelló, og svarað honum með þeim í sömu mynt á netinu?
mbl.is Óttast að djarfar myndir af sér leki á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Þú ert alvöru maður greinilega. Við kommúnísku klámkjaftarnir verðum að vernda rétt okkar til að taka þetta íhalds- og framsóknarspillta auðvaldsþjóðfélag í þverrifuna af og til.

Sigurður Sigurðsson, 6.8.2008 kl. 10:21

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ójá, Sigurður minn, það kemur ekki til greina af hálfu okkar kommúnistana að láta deigan síga þrátt fyrir þennan sífellda og bölvaða framsóknar- og íhaldsstorm í fangið.

Jóhannes Ragnarsson, 6.8.2008 kl. 10:40

3 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Þetta hlýtur að jaðra við almenn hegningarlög að svívirða svona fólk fyrir skoðanir þess, og ofan í hýruna kemur það úr fasistatúla.

En Stalín er dauður hann er ekki hér. Ég kaus nú Samfylku sósíalista síðast og geri næst vegna hennar Ingibjargar. Hún ein getur hreinsað framsóknarfjósið og vonandi með dyggri hjálp Steingríms og Ögmundar.

Hvaða réttlæti er í því að þessir bankarockenfellarar séu með 60 milljónir á mánuði meðan aldraðir og öryrkjar eiga hvorki fyrir almennilegu fylleríi né góðum drætti? Svo ekki sé talað um salti í graut eða sár.

Og þessi Hippókrates er greinilega auðmaður. Meira pakkið.

Sigurður Sigurðsson, 6.8.2008 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband