Leita í fréttum mbl.is

Einelti er ofbeldisglæpur sem Ólafur F. verður að vísa til lögreglu.

með lögumÞað var aldrei að Ólafur F. lenti í sínum elsku vinum, Sjálfstæðismönnum. Nú kemur uppúr dúrnum, seint og síðarmeir, að villidýrahjörð Sjálfstæðisflokksins misbrúkaði svívirti Ólaf F. á afar grófan og svívirðilegan hátt. Ekki er nóg með fyrrum stórvinir og flokksfélagar læknisins hafi gert sér að leik að svíkja hann trekk í trekk, heldur beittu þeir hann einelti, sem er glæpsamlegt athæfi og varðar við landsins lög. Úr því framkoma Sjálfstæðisflokkshjarðarinnar var með þessum hætti, liggur í augum uppi að Ólafur F. Magnússon verður að kæra eineltið til lögreglunnar. Eftir að kæran hefur verið lögð fram mun lögreglan eflaust taka hina ákærðu og setja þá í gæsluvaðrhald meðan rannsókn fer fram. Kæri Ólafur F. ekki ofbeldisruddana, sem brutu á honum með níðingslegu einelti, er hann að bregðast fólkinu í landinu og baráttunni gegn ofbeldi og lögbrotum, og sendir í leiðinni út skilaboð þess efnis að einelti sé sjálfsagður hlutur sem ekki þarf að gera veður útaf.   
mbl.is Borgarstjóri mætir í Ráðhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband