Leita í fréttum mbl.is

Heiðarlegur maður eða frjálshyggjukapítalisti ?

Það liggur í augum uppi hvað fulla kallinum á Selfossi gekk til með því að sparka upp hurðinni á kránni og leika síðan sama leik við heimahúsið. Vaflaust braut hann sér leið inn á kránna til að fá sér brjóstbirtu sér til gleðiauka og inn í heimahúsið vildi hann fara til að leggja sig; hvíla lúin bein og njóta vímunnar af kráarölinu. En því miður var hin fróma fyrirætlun kallsins eyðilögð með smásálarlegum og óvinveittum viðbrögðum samborgara hans, lögregluárás, handtöku og fangelsi.

Svo má vel vera að þarna hafi venjulegur frjálshyggjukapítalisti verið á ferð þeirra erinda að mótmæla því að kráin væri lokuð og dyr heimahússins læstar þegar hann ætlaði þar inn. Og hvaða afrek hann ætlaði sér að starfa að inni í heimahúsinu er ekki gott að vita, en sem kunnugt er dettur frjálshyggjukapítalistum sitthvað í hug þegar þeir eru í stuði.


mbl.is Sparkaði upp tveimur hurðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband