Leita í fréttum mbl.is

Amy á að fá sér íslenskan sjómann til bólfara

sex5Það þarf mikinn karakter til að skilja við Amy Winehouse og feykna sjálfsafneitun. Nú er ljóst að eiginmaður Amyar hefur til að bera sálrstyrk í hæstu hæðum því hann vill víst ólmur losna við þann glaðsinna kvenkost sem hann kvæntist af einni saman ást, ásamt óbilandi trú á fagurt mannlíf. Auðvitað vill Amy ekki skilja við svo kostum prýddann mann og blæs eins og fýsibelgur á fangelsisóra Bleik Fílder, sem ku sitja í steininum um þessar mundir.

Mín skoðun á þessu máli er ljós: Amy á að láta helvískan tukthúsliminn Bleik Fílder lönd og leið og fá sér öflugan íslenskan sjómann til að sinna holdlegum hvötum sínum. Íslenskir sjómenn eru sem kunnugt er snjöllustu og úthaldsbestu bólfélagar sem fyrirfinnast í veröldinni. Beri Amy gæfu til að ná sér í einn slíkann er eins víst að þeim manni takist að ríða sönkonunni góða að fullu á undraskömmum tíma. 


mbl.is Vill ekki skilja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband