Leita í fréttum mbl.is

Djöfullegt innrćti og tvíelleft skemmdarvargafýsn

maln1Ţađ ţarf meira en djöfullegt innrćti og tvíellftan skammt af skemmdarvargafýsn ađ leggjast svo lágt ađ ráđast ađ hýbýlum guđsengla eins og Wernersbrćđra og útata allt og fordjarfa međ rauđri málningu, máske skipalakki eđa botnfarva. Guđsenglar á borđ viđ brćđurnar Wernersson eiga annađ og betra skiliđ af almúgahyskinu, sem ţeir af einstakri fórnfýsi hafa reynt hvađ ţeir geta ađ gera bjargálna.

Svona skemmdarvarga, sem vađa um borg og bý og eyđileggja eignir góđra manna, ađ verđur ađ upprćta og í eldsofninn kasta, svo notađ sé hákristilegt orđalag úr sjálfri Biflíunni. Ég man eftir drenghelvíti einu, ţrettán ára gömlu, sem tók uppá ţeim ljóta siđ ađ dćla tjöru úr einhverskonar vatnsbyssu, sem fađir hans hafđi keypt í útlöndum og gefiđ honum, innum glugga hjá saklausu fólki, einkum innum svefnherbergisglugga ađ nćturţeli. Ţessi drengur var upprćttur. Og ţađ var til ţess tekiđ ađ hvađ sóknarprestinum var ljúft ađ jarđsyngja ţennan pilt - enda var taliđ ađ sóknarpresturinn sjálfur hafi átt hvađ drýgstan ţátt í ađ upprćta óbermiđ.

Ég legg ađ minnsta kosti til, svo ađ ég leggi nú eitthvađ til, ađ Stjörnusýslumanninum Stones á Selfossi og hans vösku varđsveit verđi faliđ ađ leggja til atlögu viđ hina málningarglöđu skemmdarvarga og ganga milli bols og höfuđs á ţeim áđur en ţeir hćtta ađ láta sér nćgja ađ útsvína veggi góđra manna og fara ađ mála Wernersbrćđur sjálfa uppúr hárauđu vélarlakki. 


mbl.is Hús Wernerssona máluđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snćbjörnsson

Tryggingarfélög ćttu kanski ađ skođa verđskránna hjá sér og búa til nýjan hóp manna sem telja sig vera í sérstökum "áhćttuhóp" og greiđa ţví sérstök gjöld sem fyrir "tjón" sem ţetta - ţá ţarf ég allavegana ekki ađ blćđa meira fyrir ţessa viđskiptaspútnikasérfrćđinga

Jón Snćbjörnsson, 16.9.2009 kl. 10:03

2 Smámynd: Adda Guđrún Sigurjónsdóttir

Annađhvort ertu ađ djóka eđa ţú ert kolruglađur Jóhannes.

Ég myndi sjálf kaupa málningu til ađ skvetta á hús ţessara óberma eins og ţú orđar svo snyrtilega...kannski ég láti verđa af ţví!

Adda Guđrún Sigurjónsdóttir, 16.9.2009 kl. 10:07

3 identicon

Svona grjót%%%%%%i.  Ţessir menn eru eru ekki af guđi.  Nema ţú.  Ţú myndir ekki skylja ţađ.  ţannig ađ ég bendi ţér á www.krossinn.is

Örn Úlriksson (IP-tala skráđ) 16.9.2009 kl. 10:13

4 identicon

Ađ skemma málningu, eđa skemma samfélag, er tvennt ólíkt. Ţú stendur greinilega međ ţeim er rústa samfélaginu, Jóhannes. Gott ađ vita...

Skorrdal (IP-tala skráđ) 16.9.2009 kl. 11:42

5 Smámynd: Níels A. Ársćlsson.

Kemur nú einn prelátinn hoppandi á öđrum fćti úr skilnađarkirkjuni Krossinum gaggandi eins og miđaldra siđvönd prestmaddama !

Níels A. Ársćlsson., 16.9.2009 kl. 23:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband