Leita í fréttum mbl.is

Þegar Ingimundur frjálshyggjuunglingur var handtekinn

Þegar ég las fréttina um innbrotin í bílana í dag kom mér í hug nýlegt afrek frjálshyggjuunglingsins Ingimundar. Ingimundur þessi ku býsna dáður í öllum frjálshyggjufélögum og mikið gert með það sem hann segir og hugsar á fundum frjálshyggjumanna. Svo var Ingimundur hantekinn síðastliðið vor þegar hann var að bisa við að bjótast inn í íbúð í austurbæ Reykjavíkur. Í kjölfarið var gerð árangursrík húsrannsókn hjá drenghænsninu, því auk rita eftir Milton Friedmann og Hannes Hólmstein Gissurarson, fundust hjá Ingimundi byrgðir af kókaíni í neytendaumbúðum, ætlað til sölu, og fúlgur fjár sem piltur hafði krækt í með innherjaupplýsingum varðandi peningaspilakassa og önnur fjárhættuspil.

Hvar Ingimundur er niðurkominn þessa dagana má Fjandinn einn vita, enda eru strákar eins og hann dottnir úr tísku og þykir orðið skömm að, að láta sjá sig með þessháttar labbakútum á götum og á kaffihúsum.  


mbl.is Innbrot í tvo bíla í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það er víst búið að reka Ingimund tímabundið úr varastjórn Heimdallar.

Árni Gunnarsson, 24.10.2009 kl. 22:35

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ja, ljótt er ef satt er, Árni.

Jóhannes Ragnarsson, 24.10.2009 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband