Leita í fréttum mbl.is

Sjóræningjar á leið til Íslands

Fyrst sómalíusjóræningjarir eru farnir að skjóta á noersk herskip, er varla langt að bíða þess, að hinir vösku sjóræningjar frá Afríku komi stormandi á íslandsmið þeirra erinda að ræna sægreifa vora skipum og afla. Þó væri verst ef ruddamennin frá Sómalíu rændu sægreifunum sjálfum og gerðu þá að þrælum og leiguliðum heima hjá sér. Missir sægreifanna væri fimmfalt verri fyrir þjóðina en Móðuharðindin og Stórabóla til samans. Hugsið ykkur viss stórmenni í kvótamálum í snjáðri mittisskýlu einni fata að moka hænsnataði í 40 stiga hita. Tilhugsunin ein skelfir mig meir en hægt er að tjá með orðum. Guð veri sægreifum vorum líknsamur í bráð og lengd.
mbl.is Skotið á norskt herskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband