Leita í fréttum mbl.is

Duglegla veiðimenn á að verðlauna í stað þess að hreyta í þá ónotum

Ekki veit ég hvern fjandann sjálfann er verið að amast við duglegum mönnum og kappsömum sem kunna að bjarga sér, eins og skotmönnunum vígreifu, sem þeytasta yfir holt og hæðir, hóla og urðir til að fella rjúpur og annann smáfénað. Nær væri að verðlauna þessháttar menn á einhvern sómasamlegan hátt í stað þess að klaga þá í fjölmiðla og jafnvel sekta og svipta veiðileyfi og skotfærum þegar lögregluforsmáninni tekst að hafa höndur í hári þeirra. Eða halda menn ef til vill, að það sé þægilegt að elta blóðstygga fugla á tveimur jafnfljótum, sem kanske eru orðnir fúnir og útbíaðir í æðahnútum? Í slíkum tilfellum eru fjórhjól einstakt þarfaþing og rjúpurnar hafa gott af því að vera skotnar af veiðmanni á fjórhjóli, það er margsannað.
mbl.is Rjúpnaskyttur sem kunna sig ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Pétursson

einmitt ... vera jákvæður og hvetjandi - það er rétti  andinn

Kristinn Pétursson, 2.11.2009 kl. 11:12

2 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Góður!! Húmor í þessu: "fúnir og útbíaðir í æðahnútum?" He, he.

Sjálfum finns mér að við eigum að skrönglast upp á lappirnar þó fúnar séu, eða sleppa þessu annars alveg.

Viðar Friðgeirsson, 2.11.2009 kl. 12:22

3 Smámynd: Sigurður Helgason

Fór á rjúpu á snæfellsnesið, á degi eitt, landið var útkeyrt af fjórhjólum, mér varð það að orði, ekki er þetta eftir rjúpnaskyttur,

Nei sagði kunnugur á svæðinu, þetta er eftir smalamennina,

eru þeir ekki að brjóta lög og aka utan vega eða á þetta einungis um rjúpnaveiðimenn, eða eru smalar orðnir svona hrjáðir af æðahnútum  

Sigurður Helgason, 2.11.2009 kl. 18:19

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mér er því miður alls ókunnugt um fótaheilsu smala á Snæfellsnesi eða hvort þeir nota fjórhjól til að elta þessar fáu skjátur sem eftir eru á Nesinu.

Hinu get ég trúað þér fyrir, Sigurður, að rjúpur hér vestra eru einstaklega grimmar og illskeyttar. Því ræð ég þér frá að frama með vopn á hendur þeim. Í fyrrahaust réðust rjúpur undir Jökli á tvo veiðimenn og misþyrmdu þeim svo hroðalega að þeir voru hálfdauðir þegar þeir skiluðu sér til byggða beinbrotnir, alblóðugir, rifnir og tættir - og að sjálfsögðu rjúpulausir. 

Jóhannes Ragnarsson, 2.11.2009 kl. 19:48

5 Smámynd: Sigurður Helgason

Rjúpan á nesinu var sérlega almennileg við mig, Hef gengið á rjúpu í mörg ár og einungis fellt eina, þegar ég hélt á henni og spurði mig um tilganginn með þessu drápi, og komst að því að ég borðaði ekki rjúpu og hafði aldrei gert, lagði ég byssunni og tók upp myndavélina,

félagarnir gera stundum grín að mér, en mín fyrsta rjúpa er uppstoppuð í stofunni til að minna mig á

rjúpurnar á nesinu voru, jafnokar fallegustu  fyrirsætum heims, og ekki skemmdi landslagið fyrir,

Sigurður Helgason, 2.11.2009 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband