Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Að lækna sjúklinga með fangelsisvist.

Getur verið, að það sé fólk með fullu viti sem dæmir 15 ára krakka í tveggja og hálfs árs fangelsi? Mér sýnist á öllu, að drengurinn, sem dómsvaldinu dettur í hug að þjónusta með þessum hætti, eigi við einhver veikindi, trúlega alvarleg, að stríða. Að mínu mati er algjörlega fráleitt að dæma sjúklinga, sem að auk eru lítt þroskaðir fyrir æsku sakir, til fangelsisvistar. Má ef til vill túlka þessi heimskupör Héraðsdóms Reykjavíkur á þá leið, að skilvirk lækning fyrir börn sé fólgin í því að læsa þau inni í eins og tvö og hálft ár?
mbl.is Fimmtán ára síbrotapiltur dæmdur í 2 ½ árs fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Englar frá Írak í heimsókn hjá Noregsprinsessu?

Ég er að velta fyrir mér, hvort litlu börnin sem fallið hafa í árásarstríði Bandaríkjanna og þeirra tíkarsona á hendur Írökum, komi ekki fram sem englar í skóla Mörtu prinsessu. Það held ég verði dægilegar stundir fyrir evrópska krakka og kóngaslektið í Noregi að fá slíka engla í heimsókn.
mbl.is Fyrsti skóladagurinn í „englaskóla“ Mörtu Lovísu prinsessu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjörnulögreglustjóranum skrikar fótur í forræðissvaðinu.

Samvæmt orðum Sveins Eiríkssonar stjörnulögeglustjóra, má ætla að um nætur geysi stríðsástand í miðborg Reykjavíkur. Nú geri ég fastlega ráð fyrir að stjörnulögreglustjóranum sé farið að förlast, enda erfitt og lýjandi að gegna stafi stjörnulögreglustjóra í meira en 10 daga í einu. Ástandið sem Stefán lögreglustjóri er að vola undan, er ekkert helvítis ,,ástand," heldur er þarna á ferðinni ósköp venjuleg vínmenning og sem ekkert til að gera veður út af, eins og allt heilvita fólk sér. Mín skoðun er sú, að stjörnulögreglustjórinn, og aðrir af hans kalíberi, ætti að sjá sig um hönd og hætta þessari ekkesens forræðishyggju og leyfa vínmenningunni að þróast í friði. Því sannleikurinn er sá að vínmennig hefur verið í öflugri þróunn upp á við og til betri vegar í a.m.k. síðastliðin 20 ár. 


mbl.is Sammála um að bæta þurfi ástandið í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjan Hugo Chavez býður stórauðvaldinu birginn.

Auðvitað er það hárrétt ákvörðun hjá Hugo Chavez og hans fólki, alþýðunni í Venusúela, að lengja kjörgengi hans til forseta landsins, og að auka völd forseta yfir borgar- og fylkisstjórum. Chavez er greinilega full ljóst að það þarf að grípa til skilvirkra aðgerða til að efla stöðugleika með þjóðinni í baráttu hennar til sjálfstæðis undan járnhæl Bandaríkjamanna og auðvaldsins í heiminum og vera í leiðinn glæsilegt fordæmi annarra þjóða í Suður-Amiríku.


mbl.is Chavez boðar stjórnarskrárbreytingar sjálfum sér í hag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanbæjarlýður, upptjúnaður af fryggðarlosta.

Við þessa frétt er svo að bæta, að hinir þrír glæpsamlegu menn sem teknir voru í sólarhringsversluninni (skrítið orð ,,sólarhringsverslun) á Akureyri voru að sjálfsögðu utanbæjarmenn; aðkominn trantaralýður einhversstaðar úr afdölum Skagafjarðar- eða Þingeyarsýslu eða Guð veit hvaðan. Og auðvitað var þetta illþýði búið að láta að sér kveða svo um munaði þegar lögreglunni á Akureyri hugkvæmdist að taka það úr umferð. Mest höfðu þó utanbæjarmennirnir brúkað stuðbyssurnar á aumingja mannfólkið á Akureyri, einkum kvenfólkið sem kunni, merkilegt nokk, að meta hina aðkomnu stuðbolta, sem voru satt að segja upptjúnaðir og rafmagnaðir af fryggðarlosta, enda frumstæðir eins og Norðlendingum er títt.
mbl.is Þrír handteknir í verslun á Akureyri; einn með barefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð forði kvótafíklunum okkar frá Calabríumönnum.

Það vona ég, að Guð forði Íslensku kvótafíklamafíunni frá að lenda í átökum við annað hvort eða bæði mafíugengin frá Calabriu á Ítalíu. Eins og fram hefur komið í fréttum virðast calabriumenn andskoti vaskir í viðskiptum og tiltektum og hefi ég einhvernveginn enga trú á að okkar ástsælu kvótafíklar hafi nokkuð í mafíuhöndur hinna ítölsku að gera. Þeir eru nefnilega ekki þesslega merkir, piltarnir okkar.
mbl.is Morðin í Duisburg sögð tengjast mafíuátökum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlinn undir klöppunum ...

Arinbjörn hafði um langt skeið þá sérstöðu í samfélaginu, að laumast niður fyrir bakkana í húminu og baula þaðan á eftir börnum sem áttu þar leið um. Fyrir vikið var hann stimplaður úrkynjaður öfuguggi af almenningsálitinu. Þar utan var Arinbjörn mikill hagleiksmaður á tré og járn. Við smíðar henti hann eitt sinn það óhapp, en jafnframt gleði Andskotans, að missa rafdrifna hjólsög oná fætur sér, með þeim afleiðingum að af sniðust allar tær hægri fótar. Í staðinn smíðaði Arinbjörn sér járnklær, sem komu í táa stað, en tálaus gat Aribjörn ekki verið því hann klóraði sér með löppunum.

Fundaði framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins í Kaupmannahöfn?

Og fyrst ég er farinn að skrifa um málefni samtaka verkafólks á Íslandi, er ekki úr vegi að minnast á orðróm sem er í gangi innan verkalýðshreyfingarinnar. En heimildir innan úr hreyfingunni segja, að  fyrir ekki all löngu síðan hafi framkvæmdastjórn Starfsgreinafélags Íslands gert sér hægt um vik og haldið framkvæmdastjórnarfund úti í Kaupmannahöfn og fylgir sögunni, að mökum framkvæmdastjórnarmanna hafi verið boðið með til Hafnar.

Nú veit ég ekki hvort umræddur fundur í Kaupmannahöfn var haldinn í raun og veru, eða hvort hér er um uppspuna eða misskilning er að ræða, sem ég vona svo sannarlega að þarna sé á ferðinni.

Hinsvegar óska ég eftir, sem verkamaður og félagi í aðildarfélagi Starfsgreinasambandsins, að einhver í forustusveit sambandsins svari, hér á þessum vettvangi, hvað hæft er í sögusögunum um framkvæmdastjórnarfundinn í Köben.

Ég fór inn á heimasíðu Starfsgreinasambandsins og kannaði málið, en varð ekkert ágengt. Það eina sem ég fann varðandi fundargerðir var eftirfarandi setning: Fundargerðir framkvæmdastjórnar SGS eru ekki birtar almenningi, en formenn aðildarfélaga geta óskað þeirra sérstaklega. 


Frú Pálína og skoðanasystkyni hennar á Íslandi.

Það er nú ansans ári grunnt á sama hugsunarhætti og fram fer í kollinum á öfgahægrikonunni Pálínu Hanson, hjá liðsmönnum í vissum stjórnmálaflokki á Íslandi. Eini munurinn á þeim og frú Pálínu, er að þeir hafa, enn sem komið er, haft vit á að þegja um þessar skoðanir sínar á opinberum vettvangi.


mbl.is Fyrst voru það asískir innflytjendur nú múslimar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinir úrkynjuðu forustusauðir Starfsgreinasambandsins.

Það eru heldur betur vond tíðindi fyrir almenna félaga Starfsgreinasambandsins, þ.e. verkafólkið í landinu, að Kristján Gunnarsson muni gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku í Starfsgreinasambandinu. Fyrirfram er vitað að Kristján þessi nýtur stuðnings bræðrabandsins sem starfrækir svo kallað Flóabandalag sem og hinnar hægri sinnuðu og litlausu krataelítu, sem hreiðrað hefur um sig í verkalýðshreyfingunni. Eins og þeir sem eitthvað þekkja til innan samtaka verkafólks, þá hefur núverandi formaður SGS, Kristján Gunnarsson unnið sér það helst til frægðar, að hafa verið í fylkingarbrjósti þeirra ólánssmanna sem staðið hafa að einbeittri klofningingsiðju innan SGS. Það eru til dæmis varla liðnir nema nokkrir dagar síðan þessi makalausi formaður lýsti því yfir í fjölmiðlum, að vel væri hugsanlegt að flóabandalagsfélögin segðu sig úr Starfsgreinasambandinu og þá væntanlega með hann sjálfann í fararbroddi. Þessi hroðalega yfirlýsing Kristjáns kemur þó ekki í veg fyrir, að hann gefi kost á sér til áframhaldandi formennsku í landssambandi sem hann vill kljúfa með formlegum hætti!!! Hvað er eiginlega að þessum manni? Kann hann ekki að skammast sín, eða hefur hann ekki vit til þess. Þá gefur Björn Snæbjörnsson Akureyringur kost á sér til áframhaldandi varaformennsku í SGS, en hann er álíka góður kostur til starfa fyrir verkafólk og Kristján Gunnarsson.

Frá mínum bæjardyrum séð, er það lifandi staðreynd, að samtök verkafólks á Íslandi hafa búið við samfelldt, óviðunandi niðurlægingarskeið síðan Björn Grétar Sveinsson var hrakinn á sóðalegann hátt af stóli formanns Verkamannasambandsins fyrir tilstuðlan manna eins og Kristjáns Gunnarssonar, Björns Snæbjörnssonar og fleiri hottintotta úr úrkynjaðasta hluta Verkamannasambandsins. Í kjölfarið var Verkamannasambandið lagt niður en Starfsgreinasamband Íslands síðan reist á rústum þess.

Ég bara trúi því ekki, að þing SGS, sem haldið verður í október næst komandi, láti það viðgangast að núverandi formaður og varaformaður sambandsins verði endurkjörnir, eins þrifalega og þeir hafa staðið sig fram að þessu. Ég sem óbreyttur félgi í Starfgreinasambandi Íslands krefst þess, að núverandi forustmönnum SGS verði steypt af stóli og endi bundinn á margra ára niðurlægingartímabil samtaka verkafólks. Verkafólk á það einfaldlega ekki skilið, að samtök þess séu niðurlægð ár eftir ár eins og raun ber vitni.     


mbl.is Kristján gefur kost á sér áfram sem formaður Starfsgreinasambandsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband