Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Góður árangur kunnáttulausra fasteignaprangara.

Það má vel vera, að meirihluti þeirra. sem starfar á fasteignasölum hér á landi hafi litla sem enga reynslu eða kunnáttu í fasteignabraski og fasteignaprangi, en samt ekki svo litla að þeir geti ekki kjaftað fasteignaverð upp í hæstu hæðir, með þeim snjalla árangri mikill fjöldi fólks lendir í ánauð, sumir ævilangt, vegna þess að þeir álpuðust til að kaupa sér þak yfir höfuðið.

Að sjálfsögðu færi best á, að gróðasóttarfyrirbæri eins og einkareknar fasteignasölur verði lagðar niður að öllu leyti, en ríkið, fyrir hönd fólksins í landinu, tæki að sér þá þjónustu sem fram fer á þessum svo kölluðu fasteignasölum.


mbl.is Reynslu- og menntunarskortur í fasteignasölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægri öfgamenn myrða tvo menn í Rússlandi.

Hvernig ætli hægri mönnum á Íslandi, sem sumir hverjir eru afar öfgafullir, lítist á framtak skoðanabræðra sinna Rússneskra, að kála mönnum með köldu blóði og taka það upp á myndband? Því miður eiga Íslenskir hægrigaurar óhægt um vik, að kenna Jósef Stalín um óþrifnaðinn að þessu sinni, þar eð nefndur Jósef Stalín á í fórum sínum fullgilt dánarvottorð þar sem fram kemur að hann hafi andast árið 1953.
mbl.is Rannsaka myndband er virðist sýna aftöku í Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin íslensk/amerísku merarhjörtu.

Því verður ekki á Rudy þennann Giuliani logið, að hann kunni ekki að bregða fyrir sig hitlerískum áróðursstíl. Ekki er heldur að efa, að Íslenskir auðvaldsbelgir, og annað íhaldsdinglumdangl í Sjálfstæðisflokknum, séu ekki hjartanlega sammála flokksbróður sínum amrískum og geri ekki sitt til að éta fóðrið upp eftir meistaranum. Mannfjandsamlegur kjaftháttur fáráðlingsins Rudy Giuliani er meira að segja vel brúklegur hinum íslensk/amrísku merarhjörtum í umræðunni um nauðsyn heræfinga á Ískandi og NATO þátttöku.
mbl.is Giuliani kveðst mótfallinn stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleyptu ratsjárstöð með hófum og hala.

Það fór svo sem eins og vænta mátti, að Ingibjörg Sórún og Geir Haarde gleyptu ratsjárstöðina, í boði Georgs Bush, með hófum og hala og liggja nú eins og makráðir fresskettir á meltunni. Það er auðvitað óstjórnlega gaman, að sjá frú Ingibjörgu Sólrúnu í hlutverki yfirboðara í hernámi hugarfarsins, einkum í ljósi þess, að í eina tíð þjónaði það athyglissýkishagsmunum frú Ingibjargar að vera hernaðarandstæðingur. En nú er þessi geðuga hnáta loks komin á rétta íhaldshillu í lífinu, því þrátt fyrir allt hefur hún alltaf verið trú íhaldsuppruna sínum, þó svo hún hafi stund og stund brugðið sér í hin og þessi gerfi fyrir gerfi-vinstrimennina, sem skálduðu Samfylkinguna saman fyrir nokkrum árum og reyndu þar til í vor, að telja fólki trú um að hún væri vinstriflokkur.
mbl.is Öllum starfsmönnum Ratsjárstofnunar sagt upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menningarviðleitni Rótarúklúbbsins Fjallafjölnis.

Um haustið stakk samkynhneigð sér niður í Rótarýklúbbnum Fjallafjölni, þannig að um vorið var þar ástunduð þróttmikil kynvilla. Fyrst í stað tókst félögunum, að leyna þessari fyrirtaksnýjung í starfsemi klúbbsins. En svo foru að leka sögusagnir um athafnir í Fjallafjölni, sem vöktu kvíða, ugg og ráðaleysi í brjóstum bæjarbúa. Loks vissi enginn sitt rjúkandi ráð lengur, uns samfélagið riðaði til falls, því ekki lögðu glaðbeittir félagsmenn í Fjallafjölni af þann hinn nýja sið er þeir höfðu upp tekið. En síðast þegar til spurðist, hafði starfsemi Fjallafjölnis samt náð þeim hæðum, að merkjanleg peningahyggjufagurfræði væri á byltingarkenndri uppleið á starfssvæði klúbbsins, og um það væri víðtæk sátt í bæjarfélaginu.  

Bruddi úr sér náttúrunna með verkjadópi.

Auðvitað er ekkert hæft í því að geldingurinn Cólin Farrell hafi barnað telpuna Mjúirean Makk Donnell. Ískaldur sannleikurinn er sá, að Cólin bruddi úr sér alla náttúru til kvenna og karla með skefjalausu verkjalyfjaáti sínu.
mbl.is Colin Farrel neitar orðrómi um þungun unnustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin stórbrotnu afrek Fiskistofu og eigenda hennar.

Það er aldeilis uppi typpið á Þórði Fiskistofustjóra þessa stundina. Nú á að sýna landslýð að þar fer ábyrg, óhlutdræg og öflug stofnun þar sem Fiskistofa er. Það ber að óska Þórði Fiskistofu innilega til hamingju með, að hafa fundið sökudólg til að réttlæta einkennilega starfsemi stofnunarinnar sem karlinn er látinn stjórna. Og glæpurinn, víst er hann mikill og ófyrirgefanlegur. Heil sexhundruð kílógrömm af þorski voru viktuð sem hlýri. Ekki var lakara að með í ódæðinu var hafnarvigarmaður, en svo skemmtilega vill til að Hafnarsamband íslenskra sveitarfélaga er alveg rétt nýbúið að senda frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur, að hafnarvigarmenn hafi aldrei og muni aldrei taka þátt í kvótasvindli. Og fiskistofustjóri veður elginn í viðtali við mbl.is: "Þetta var fiskur sem fór í útflutning. Við berum alltaf saman sölutölur erlendis frá og þegar tölurnar komu var enginn hlýri skráður í þeim, enda ekki hægt að plata svona á mörkuðunum því við erum með eftirlitsmenn þar sem telja upp úr gámunum," segir hann sigri hrósandi og heldur eflaust að heimskur lýðurinn trúi kræsingunum sem hann ber á borð og líti þannig á og trúi að eftirlitsmenn Fiskistofu skoði til botns í hverju einasta fiskikari sem sem er með gámum til kaupenda í útlöndum.

En því miður er hinn hversdagslegi sannleikur um starfsemi Fiskistofu heldur betur á annann veg en að þar fari stofnun sem taki á öllum vandamálum tengdum kvótasvindli og brottkasti. Fiskistofa er nenfnilega apparat sem þjónar því hlutverki að hvítþvo stórútgerðina í landinu af kvótasvindli og brottkasti. Hinsvegar eiga Þórður Fiskistofu og starfsmenn hans það til, fyrir hönd eigenda sinna, að hjóla í trillukarla og aðra smærri einyrkja og kæra þá fyrir svindl. Eða hefur einhver heyrt um að Fiskistofa hafi kært stórfyrirtæki um brot á framkvæmd fiskveiðistjórnunarlaga?  


mbl.is Skráðu þorsk sem hlýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klósettkerlingin.

Það er þokkalegur andskoti ef stelpuhænsnið hefur ekki meira upp úr tveggja milljóna meðferð en að verða klósettkerling. En máske getur hún þrifið heima hjá sér í framtíðinni, sem er náttúrlega ekki ásættanlegt fyrir svo ríkann og félegann kvenmann.
mbl.is Lindsay Lohan þrífur klósettið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert hernaðarklám takk.

Miklir dauðans vesalingar eru Íslendingar, að geta ekki hrist hernaðarviðbjóðinn, sem Bandaríkjamenn hafa boðið þeim upp á, endanlega af sér. Það var að sönnu fagnaðarefni þegar hinn glæpum prýddi og blóði drifni bandaríski her kom sér loks af landi brott. En betur má ef duga skal. Ég sé fyrir mér, að sá dagur renni upp, að Íslendingar sýni þá reisn að vísa NATO-aðildinni út í hafsauga, færi ratsjárstöðvadraslið í Sorpu og banni heræfingar af öllu tagi í íslenskri lögsögu um aldur og ævi. Þann dag verður áreiðanlega nokkuð notalegt að vera Íslendingur. 
mbl.is Loftvarnir og aðgerðir gegn hryðjuverkum æfðar á Norðurvíkingnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugnasaladið.

Þau ósköp komu yfir Kolbein eitt vorið, að hann fór að éta flugur. Þetta byrjaði með því að hann fór að tína húsflugur úr stofuglugganum og hræra þær saman við mayones og hafa ofan á brauð. Svo færði hann út kvíarnar og fór að fanga maðkaflugur, feitar og gljáandi. Stundum sleit hann vængi og lappir af kvikindunum áður en hann varpaði þeim í mayoneskviksyndið. Það kallaði hann, að éta lappalaust og/eða vængjalaust. Best þókti Kolbeini að brúka flugnasaladið ofan á brauð, eins og fyrr segir, en ekki síður sem viðbit með tekexi eða harðfiski og drekka pilsnér með eða gott kaffi. Og þegar hann var fullur, en það kom einstaka sinnum fyrir, þá át hann flugurnar eintómar og var þá ekki frítt við að hann gengi fram af fólki. Frú Ingveldur var alveg rasandi yfir þessu einkennilega uppátæki bónda síns og neyddi hann með ofbeldi í geðrannsókn. Þegar sálar- og geðvísindamenn höfðu skoðað og skilgreint Kolbein, gáfu þeir út eftirfarindi tilkynningu: ,,Eftir nákvæma og ítarlega rannsókn á hr. Kolbeini Kolbeinssyni höfum við komist að þeirri niðurstöðu, að hr. Kolbeinn Kolbeinsson sé alheill á geði og í alveg einstalega góðu sálarjafnvægi. Það eina sem vera má að sé aðfinnsluvert í hans fari er, að honum þykja flugur góðar til átu, en það er frá okkar bæjardyrum séð, ekkert frábrugðið því að finnast aðrar fæðutegundir ljúffengar, til dæmis hangikjöt eða framskar kartöflur."  

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband