Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Lengi lifi félagi Fídel.

Það er sannarlega ástæða til að fagna því að félagi Fídel Castro skuli enn vera á meðal vor á áttugasta og fyrsta afmælisdegi sínum. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að félagi Fídel er einn af mestu stórmennum sögunnar, byltingarforingi og mannvinur. Á þessum tímamótum væri vel við eigandi, að ríkisstjórn hins Íslenska lýðveldis lýsti yfir eindregnum stuðningi við stefnu og markmið byltingar ríkisstjórnar Fídels Castro á Kúbu.
mbl.is Kastró fagnar 81s árs afmæli sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beiðni um innilega fyrirgefningu.

Að þessu sinni vil ég biðja lesendur bloggsíðu minnar innilegrar fyrirgefningar á, að hafa skrifað stafkrók á bloggið í líklega eina fimm daga. Mér til afsökunnar hef ég harðla fátt, nema ef til vill tölvuleysi, en þær tvær tölvur sem ég hef yfir að ráða voru bilaðar og er önnur þeirra meira að segja biluð enn. En þetta er auðvitað snautleg afsökun og ekki til annars en að hlægja að.

Ég geri mér grein fyrir, að þessi bloggþurrð hefur komið illa við lesendur mína, sem hafa sumir hverjir brugðist við með því að hringja í mig með óbótaskömmum og beðið mig aldrei þrífast. Einn hringdi í mig í fyrrinótt, viti sínu fjær og hafði í hótunum. Reyndar gekk mér ekki sem best að heyra orðaskil, svo mikið óð á manninum. Um síðir skildist mér þó, að þessi fantur vað ekki að skamma mig fyrir að hafa ekki skrifað einn einasta staf í nokkra daga, heldur fyrir að skrifa það sem ég hef skrifað. Þegar betur vað að gáð, gerði ég mér grein fyrir, að þessi vanstillti herra var bara pöddufullur kvótakerfissinni, einn af þessum sem kunnur er fyrir að gera endrum og sinnum bragð úr ellefta boðorðinu og braska soldið með kvóta og brjóta fiskveiðistjórnunarlögin duggunarlítið þegar hann heldur að enginn sjái til.

En nú tölvuheilsa á mikilli uppleið á heimili mínu, þannig að mér er ekkert að vanbúnaði, að halda áfram þar sem frá var horfið á bloggvellinum.


Blekkingarleikurinn með Hjallastefnuna og braskarastéttin.

Hvað er það sem gerir þessa svokölluðu Hjallastefnu svo merkilega, að farið er að láta þetta fyrirbrigði stunda leikskólarekstur og nú grunnskólarekstur í stórum stíl? Ég hef ekki heyrt þess getið að innan Hjallastefnunnar farið nokkuð það fram sem réttlætir á einn eða neinn hátt vaxandi umsvif hennar á sviði uppeldis- og kennslu. Eða vill svo ólíklega til, að enn einu sinni hafi hjólið verið fundið upp og í þetta sinn af Margréti Pálu og Sjálfstæðisflokknum?

Ónei, Hjallastefnan er enginn frelsandi kraftaverkaboðskapur, öðru nær. Aftur á móti er Hjallastefnan eitt af þeim tækjum sem auðvaldsslektið, sem starfrækir Sjálfstæðisflokkinn, ætlar að nota til að brjóta skörð í samfélagsrekstur landsmanna í uppeldis- og skólamálum og ryðja brautina fyrir einkavæðingu skólakerfisins og gera þar með grunnnám að féþúfu braskarlýðsins. Stigamennsku af þessu tagi ber að stöðva sem fyrst með öllum tiltækum ráðum.   


mbl.is Hjallastefnan opnar leik- og grunnskóla á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feilspor Ingveldar.

Frú Ingveldur, sem að öllu jöfnu er afar vönd að virðingu sinni, lenti eitt sinn í þeim hremmingum, eftir að hafa tekið þátt í dálítilli jólaglöggveislu á vinnustað sínum, að vakna upp í framandi skítugri herbergiskompu með viðbjóðslegan, hrjótandi róna við hliðina á sér. Hvernig sem á því stóð, þá fann frú Ingveldur ekki nema um það bil helming fata sinna og varð að neyðast til að stela frakka rónans til að hylja það sem upp á vantaði af nekt hennar. Þegar hún kom heim, var Kolbeinn sem betur fer sofnaður fram á eldhúsborðið frá því að bíða eftir henni. Frú Ingveldur gat því klætt sig uppá að nýju, troðið frakka rónans í ruslatunnuna og keypt þrjár flöskur af vodka á svörtu af leigubílstjóra. Flöskunum stillti hún upp á eldhúsborið fyrir framan sofandi andlit Kolbeins, því hún vissi að þegar hann vaknaði og kæmi auga á flöskunar yrði hann svo hrifinn, að hann gleymdi öllum grunsemdum og þar með væri þetta leiðindaspor hennar úr sögunni.

Sóley Tomm fílí-bomm-bomm-bomm

Get ekki á mér setið að benda lesendum á þessa síðu http://soley.blog.is/blog/soley/entry/281024/#comments. En þarna er að finna frábær viðskipti Sóleyjar Tómasdóttur við ,,ómálefnalega kommentara." Þetta er eiginlega sýnikennsla á því hvernig fémínísti tuskar til og afgreiðir leiðinlega karla á málefnalegan hátt. 

Skemmtileg uppátæki kyndugra karla.

Skemmtilegt uppátæki hjá helvískum körlunum, að úða rauðum lit yfir merkingar flugvélarinnar sem þeir voru búnir að stranda. Sennilega hafa þeir verið drullufullir bölvaðir ódámarnir og haldið að þeir gætu falið sig með svona stórbrotnu trikki. Þessi vinnubrögð minna í aðra röndina á athafnir sægreifahjarðarinnar og þeirra alkunnu attaníossa. Þeir telja sér trú um, að enginn sjái í gegnum þeirra brotlendingu, með því að láta kauða eins og Einsa Kr. Gvuðfinnsson og Þórð Fiskistofu skrifa upp á heibrigðisvottorð á ensku .í beinni sjónvarpsútsendingu, þess efnis að allt sé til einstakrar fyrirmyndar í eyðibyggða- og brottkastsstefnu hins alræmda kvótakerfis.
mbl.is Úðuðu yfir merkingar á flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipulögð glæpastarfsemi á Ítalíu, hvað?

Við íslendingar þurfum ekkert að fara til Ítalíu til að finna skipulagða glæpastarfsemi. Það er alveg nóg fyrir okkur að svipast um á okkar eigin landi og í fiskveiðilögsögunni umhverfis það. Það geðugasta við einbeittann brotavilja á Íslandi er, að hann nýtur gjarnan fulltingis ríkisvaldsins. Sem er afar gott að mati ýmissa málsmetandi borgara. 
mbl.is Skipulögð glæpastarfsemi að baki skógareldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgir strengjasveinar kvótaauðvaldsins.

Það er hreint með endemum hvað varðhundasveit kvótakerfisins í sjávarútvegi getur dottið í hug í viðleitni sinni til að hvítþvo aðfarirnar sem viðgengist hafa í Íslenskum sjávarútvegi síðasta aldafjórðuniginn, ránsskapinn, ránykrjuna, brottkastið og eyðibyggðastefnuna. Það var því ekki laust við að maður fengi óbragð í munninn og velgju, þegar fjórir strengjasveinar kvótaauðvaldsins birtust útbelgdir og með skítaglott á vör á sjónvarpsskjám landsmanna í kvöld, með penna að vopni og kváðust vera að skrifa uppá, sem ábyrgir menn, fyrir hönd þjóðarinnar, plagg þar sem þeir væru að bregast við auknum kröfum á erlendum fiskmörkuðum um staðfestingu þess að nýting íslenskra fiskistofna sé með ábyrgum hætti og í samræmi við afrakstursgetu þeirra.

Ja, þvílíkt og annað eins ...

... og ekki nema nokkrar vikur síðan tveir af þessum þokkapiltum urðu sér til skammar og háðungar í frægum Kompásþætti á Stöð 2, sem fjallaði um það sem hefur raunverulega verið að gerast í útgerðarbransanum frá því auðvaldið ákvað að hrifsa fiskveiðiauðlindina af alþýðunni á Íslandi. Þá vafðist þeim tunga um tönn og sveittir og stamandi stömuðu þeir út úr sér, að þeir vissu bara ekki um neitt misjafnt sem tengdist kvótakerfinu. Og ekki hafa þeir lært mikið síðan þeir voru kompásaðir, þeir Einar Kr. Guðfinnsson og Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri. En eins og menn vita þjónar Fiskistofa hlutverki hvítþvottastofnunar kvótakerfisins.


mbl.is Umhverfislýsing fyrir íslenskar fiskveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnadrykkja og vöffluát á Menningarnótt.

Fyrir tveimur árum álpaðist ég í hugsunarleysi niður í miðbæ að kvöldi menningarnætur. Og sem betur fer varð ég aldeilis ekki fyrir vonbrigðum með menninguna sem við blasti í hjarta 101. með gríðarlegt barnafyllirí fremst allra menningaratburða. Þarna var ægileg mannþröng út af einhverju, sem ég hef ekki enn komist að um hvað snérist - kringum sennilega ekki neitt held ég. En nú ætlar hið mikla menningarfólk sem býr í 101 nýlendunni, að auka enn á menningu menningarnætur og bjóða gestum og gangandi inn á heimili sín til kaffidrykkju og vöffluáts. Ég segi fyrir mig, að ég dáist ósjórnlega að alþýðlegheitum, gestristni og hugrekki menningarelítunnar í 101, að opna heimili sín upp á gátt fyrir þeirri tegund fénaðar sem fremstur fór í menningarflokki fyrir tveimur árum og ég sá til, það er að segja, öskublindfullra barna og unglinga. Nú, ég geri ráð fyrir því, að viðkomandi ungmenni séu nú þegar komin í startholurnar fyrir menningarnótt, þess albúin að veifa brennivínsflöskum og bjórdunkum framan í vöfflubakandi menningarvita í Þingholtunum og þar um kring. Það held ég verði nú meiri ,,kósýheitin," eins og talskona menningarnætur kallaði yfirvofandi huggulegheit.
mbl.is Heimilisleg menningarhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Lessudrotningin smitaði Jónasínu.

Lessudrotningin var alveg að steindrepast úr kvefi. Það kraumaði í henni þegar hún dró andann og það lak stanslaust viðurstyggilegur hor úr nasaborunum á henni. - Öhh-höhh-höhh-höjjj, heyrðist í henni þegar hún hóstaði og hún átti fullt í fangi með að halda slefunni upp í sér. Þegar snótin Jónasína kom í heimsókn, fylltist andlit hennar af sorg og hún felldi tár þegar hún leit ásigkomulag drotningarinnar. Lessudrotningunni rann í skap er hún skynjaði afstöðu Jónasínu, svo að hún hnerraði á hana trilljón bakteríum, með það fyrir augum að smita hana af sjúkdómnum. Þegar Jónasína kvaddi skömmu síðar, var hún í þann veginn að bugast af depurð. Hún leið inn í næsta strætisvagn sem á vegi hennar varð og hlammaði sér þar niður í öftustu sætaröð, út við glugga, hægra megin. Hún hafði ekki lengi setið þegar kvefsóttarbakteríurnar, sem drotningin hafði hnerrað á hana, náðu valdi á henni; henni sortnaði fyrir augum, varð ofursljó og glataði allri tilfinningu fyrir stað og stund. Þegar akstri strætisvangsins var hætt klukkan að ganga tvö um nóttina, var snótin Jónasína búin að sitja látlaust, út við glugga hægra megin í öftustu sætaröð, í níu klukkustundir og tuttugu og fjórar mínútur. Það var ekki fyrr en vagnstjórinn kom aftur í til hennar og sagði henni að snáfa út, því hann hélt að þetta væri útigangskvendi, að Jónasína rankaði við sér og hljóp kiðfætt inn í Voga þar sem hún bjó með móður sinni.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband