Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
31.1.2008 | 22:03
Miskunsami samverjinn með þjófagrímu
Jahérna. Það vantar ekki bölvaða hræsnina og yfirdrepsháttinn í ófétin hjá HB Granda. Og nú á að fegra sig útávið, með aðstoð Vinnumálastofnunnar, og troða snuði uppí Skagamenn með því fremja ,,góðverk" á verkafólkinu á Akranesi sem þetta ófyrirleitna fyrirtæki er að svipta störfum. Halda þessar fígúrur sem stjórna HB Granda að einhver námskeið fyrir þá sem þeir eru að gera atvinnulausa vegi uppá móti kvótanum sem þeir eru að ræna af Akurnesingum? Þvílíkt andskotans pakk og aumingjar!
Boðskapur hinna góðgjörnu HB-grandverja hljóma í mínum eyrum á líkan veg og biskupinn tæki uppá að kenna, að miskunsami samverjinn, sem frá er sagt í Biblíunni, hafi verið með þjófagrímu fyrir andlitinu og kúbein í rassvasanum þegar hann framdi góðverkið á náunga sínum.
HB Grandi og Vinnumálastofnun í samstarf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.1.2008 | 17:47
Það saknar þeirra enginn
Gott hjá gömlu skörunum, John Baldwin og Bryndíssi Sckhramm, að láta sig hverfa úr landi og setjast að í Spanía. Svo kemur á daginn, sem aungvann heilvita mann hafði grunað, að sú gamla Bryndíss er svona hroðalega déskoti berdreymin; hana var búið að dreyma nótt eftir nótt, lengi lengi, lítið hús á Miðjarðarhafsströnd með þessu líka ruddaútsýni yfir nytjajarðir og nektarnýlendur. Og nú hefur draumur hennar ræst! Og ekki mun John Baldwin láta sitt eftir liggja í draumförum og mun, ef að líkum lætur, láta sig dreyma dægrin löng um dýrðardagana þegar hann leiddi Davíð Oddsson, frjálshyggjuna og græðgisvæðinguna til öndvegis á Íslandi.
Nú er bara að vona að fleiri krataskjátur hafi rænu á að snáfa úr landi fyrir fullt og allt. Því það er náttúrlega allsendis óboðlegt fyrir heilbrigt fólk burðast með slíkar krónískar íhaldsskækjur og höfuðsóttargemlinga, sem maður veit aldrei hvar maður hefur, með í farangrinum áratug eftir áratug. En sem kunnugt er þá er ruslatunnumatur eins og Samfylkingin að sjálfsögðu best geymd í góðri fjarlægð frá Íslands ströndum. Og það myndi aunginn sakna þeirra þegar til kastanna kæmi.
Jón Baldvin og Bryndís Schram láta gamlan draum rætast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2008 | 22:22
Saddam Hólmsteinn Ásgrímsson Bush
Yfir milljón Íraka hefur látið lífið af völdum stríðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2008 | 17:21
Fyrirmyndar viðskiptahættir
Það held ég Hannes Hómsteinn og hans aftúrúrkreistingar séu aldeilis ánægðir með þýska prófessorinn sem hækkaði einkunnir nemenda sinna á markaðs- og kaupsýslugrundvelli, öllum til heilla. En samkvæmt kenningum frjálsyggjupostula er afar heilbrigt í öllum tilfellum að tveir aðilar kaupi og selji hvor af öðrum ef báðir hagnast nokkuð á viðskiptunum eins og gerðist hjá þýska frjálhyggjuprófessornum og nemendum hans. Hann fékk péninga eða drátt en nemendurnir hærri einkunnir og allir græddu.
Á meðfylgjandi mynd, sem er í svarthvítu, má sjá hina bláu hönd íhaldsins strjúka varlega um nauðaberan frjálshyggjurass.
Hækkaði einkunnir gegn greiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.1.2008 | 13:12
Dýrategundin kaupsýslumenn
Það ljóta andskotans dýrategundin þessir ,,kaupsýslumenn." Það var ekki nóg fyrir þessa skepnu að drepa strákinn fyrir Iriondofjölskyldunni heldur heimtar heimtar hún bætur af fjölskyldunni fyrir skemmdir skemmdir á lúxusbílnum! En þarna er há-kristilegri græðgishyggju kapítalismans rétt lýst.
Það er sem ég segi: Kaupsýslumenn á fortakslaust að vista uppi á afrétti innan skepnuheldrar girðingar til að fyrirbyggja að þessir ódámar geti gert nokkuð af sér.
Ökumaður krefur fjölskyldu látins reiðhjólamanns um bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2008 | 10:48
Öskra og veina: gaman, gaman !
Hlutabréf hækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2008 | 08:40
Kóngsins járn og arbeið
Það var nú svosem óþarfi að setja hinn danska ferðalang í járn fyrir að fá sér örlítið neðaníðí í flugvélinni og svala tóbaksfýsn sinni inni á klósetti. Og ekki lái ég honum þó hann hafi, frekar en ekkert, reynt að ná fram hefndum, þó í litlu væri, með því að bregða fæti fyrir lögregluþjón sem ætlaði stinga honum í svartholið. Auðvitað hefur maðurinn orðið reiður þegar honum varð ljóst að hann mætti þola kóngsins járn og arbeið, eins og það var kallað hér áður og fyrr, fyrir ekki meira smáræði en að reykja sér einn vindling inni á klósetti.
Svo getum við líka velt fyrir okkur hvað stjörnusýslumaðurinn Stones á Selfossi myndi taka til bragðs ef einhver þegna hans, sem uppvís yrði af reyktóbaksnotkun inni á veitingastað, setti fyrir hann fótinn þegar hann væri að draga kauða úr húsi. Ekki búum við íslendingar svo vel að eiga nein kóngsins járn og arbeið og þrælakistan á Bessastöðum er löngu fyrir bí, en hýðingar og Stóridómur aflögð. Hvað er þá til ráða fyrir einn djarfan stjörnusýslumann sem þarf að hegna reykspúandi uppivöðslusegg sem brotið hefur landsins lög um bann við reykingum á veitngahúsum?
Reykti í flugvél og slasaði lögregluþjón. | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2008 | 17:46
Morðin ríma við ...
Sæljónum slátrað á Galapagoseyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2008 | 17:15
Ósvífnar strengjabrúður
Ósköp var nú aumkunarvert að heyra strengjabrúðuna Einar K. Guðfinnson, sjávarútvegsráðherra, berjast um á hæl og hnakka við að gera sem minnst úr aðsteðjandi vanda byggðarlaga sem eiga allt sitt undir fiskveiðum og fiskvinnslu og takast í leiðinni á einhvern yfirnáttúrlegan hátt að sneiða framhjá að ræða höfuðmeinsemdina sjálfa: kvótakerfið alræmda. En auðvitað eru sorglega mörg dæmi um hvað menn hafa getað lagst lágt til að þjónusta húsbændur sína og eigendur. Og málflutningur Einars K. ráðherra minnti líka á þá knýjandi nauðsyn að Sjálfstæðisflokknum verði vikið útí horn íslenskra stjónmála á sem flestum sviðum.
En víkjum nú örlítið að garminum honum Katli:
Í morgun las ég grein á bloggsíðu hins ríkisrekna frjálshyggjufyrirbæris Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, sem að sjálfsögðu var skrifuð til varnar gráðugu auðvaldi, yfirgangshundum auðhyggjunnar, ójöfuði og ómennsku. Í þetta sinn var viðfangsefnið dýrð kvótakerfisins og að gera úrskurð Mannréttindanefndar Sameinuðuþjóðanna um mannréttindabrot íslenskra stjórnvalda í framkvæmd fisveiðistjórnunarlaganna tortryggilegan. Nú má ríkisrekna frjálshyggjufyrirbærið Hannes Hólmsteinn Gissurarson velta sér eins og hann vill uppúr drullu ójafnaðar og óréttlætis eins og honum lystir, en þar kom þó að við lestur greinar hins ríkisrekna, að ég staldraði við. Og er nú best að gefa Hannesi sjálfum orðið:
,,Þá vaknar auðvitað spurning, sem borin var upp við mannréttindanefndina: Hvað um þá, sem ekki höfðu stundað veiðar á upphaflega viðmiðunartímanum, en vilja nú hefja veiðar? Svarið er, að enginn bannar þeim að hefja veiðar. Þeir verða aðeins að kaupa sér aflaheimildir. Til er orðinn verðmætur réttur, einmitt vegna þess að hann er takmarkaður. Hann var áður verðlaus, af því að hann var ótakmarkaður. Það var erfiðara og ósanngjarnara að banna mönnum að halda áfram veiðum, sem þeir höfðu stundað lengi, en að banna öðrum mönnum að hefja veiðar, sem þeir höfðu aldrei stundað. HHG Fréttablaðið 29. janúar 2008."
Það var einkum síðasta setningin í ofangreindri tilvitnun í Hannes sem mér finnst hvorttveggja í senn: heimskuleg og ósvífin. Og mér varð hugsað til míns gamla vinar og skipsfélaga Arnar Sveinssonar, sem er annar tveggja sem sigruðu íslenska ríkið fyrir Mannréttindanefnd Sameinuðuþjóðanna. Það er nefnilega ekki hægt að skilja orð Hannesar öðruvísi en, að það sé auðvelt að banna Erni Sveinssyni að veiða fisk af því að hann hafi aldrei gert það áður! Nú er það svo að minn gamli skipsfélagi, Örn Sveinsson, var árum saman stýrimaður og skipstjóri á aflaskipum Hrafrystihúss Tálknafjarðar, m.a. á viðmiðunarárunum frægu sem notuð voru þegar aflaheimildinum var upphaflega úthlutað, svo ekki er hægt að bera honum á brýn að hann hafi ,,aldrei veitt fisk áður."
Ég get alveg lofað Hannesi Hólmsteini því, að honum hefði verið ósegjanlega holt að vera með okkur Erni, og fleiri góðum mönnum, í eins og mánaðartíma um borð í Tálknfirðingi hér á árum áður. Þar hefði hefði þessi ríkisrekni spjátrungur örugglega fengið þannig meðhöndlun og kennslu að hann hefði aldrei þorað, hvorki fyrr nér síðar, að opna á sér þverrifuna til varnar kvótakerfinu og kvótabröskurunum. En því miður varð það hlutskipti Hannesar að verða svo óheppinn að verða af nauðsynlegri kennslu um lífið og tilveruna um borð í Tálknfirðingi BA 325, sem hefði komið honum til góða það sem eftir var ævinnar. Þess í stað lennti Hannes í þeirri ógæfu að verða hvefsinn rakki við hirð auðvaldsgræðginnar.
Uppsagnir í bolfiskvinnslu ná til 300 starfsmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2008 | 09:45
Þjófar og þýfi - lambhúshettur og Armani jakkaföt
Ekki botna ég nokkurn skapaðan hlut í hvað þessi Þór Sigfússon, sem sagður er forstjóri Sjóvá, er fara í meðfylgjandi viðtali á mbl.is. Skilur manngarmurinn ekki, að starfsemi þeirra manna, sem hann á svo undursmekklegan hátt kallar ,,glæpagengi" skapar þjóð vorri dýrmætan gjaldeyri sem er afar nauðsynlegur á tímum kvótaskerðingar og minni útflutning á fiski. Þá segir Þór þessi að hann hafi hjólað í lögreglu, tollgæslu og meira að segja fjármálaráðuneytið og farið fram á að umræddir aðilar leggi höfuðið í bleyti til að finna upp ráð gegn því að ,,þýfi" sé flutt úr landi.
Það sem er hörmulegast í málflutningi mannsins, sem sagður er forstjóri heilmikils tryggingafélags, að hann skuli falla í þá gryfju að að beina orðum sínum að starfstétt sem sérhæfir sig í að taka eitt og annað sér til handargagns þegar eigendur eru víðsfjarri og koma því í verð á erlendum mörkuðum. Hefði ekki verið hyggilegra fyrir ,,forstjórann" að heimta af yfirvöldum landsins að þau beittu sér fyrir, á breiðum grundvelli, að reyna að koma í veg fyrir alla höndlun þýfis í hvaða mynd sem það kann að vera? Það er nefnilega margur þjófurinn og margt þýfið ef út í þann sálm er farið. Því þegar öllu er á botninn hvolft skiptir litlu máli hvort þjófurinn stundar vinnu sína með lambhúshettu á hausnum eða í dýrum jakkafötum frá Armani.
Þjófagengi í útrás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007