Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
28.2.2008 | 07:58
Friðarferli með báli og brandi
Sko bara, Kondólessa Ræs hefur áhyggjur af ,,öryggi óbreyttra borgara" á Gasa-svæðinu eftir að hafa látið Olmert ísraelsforseta lofa sér því að herða sig í að berja á mannfólkinu með báli og brandi á þessu sama Gasa-svæði. Þó er huggun harmi gegn, að frú Ræs er alveg í þann veginn að skella sér til Miðausturlanda til að ýta á eftir ,,friðarferlinu" í Ísrael og Palestinu. Ekki ónýt ýting það!
Já, þeir geta verið gamansamir brennuvargarnir í Wasington þegar vel liggur á þeim.
Ísraelar gera loftárásir á Gasa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2008 | 18:39
Náttúrspjöll
Ætli það sé meiningin að fólk eigi að trúa þessum loðnumælingarsjónhverfingum? Svona stærðfræðikúnstir minna mann á meistara Sölva Helgason þegar hann sínu alkunna lítillæti reiknaði hvít barn í svarta konu suðrí Afríku! En hvað um það, eigendur loðnuskipanna höfðu sitt fram, eins og fyrri daginn. Eftir stendur geðlaus og glataður sjávarútvegsráðherra sem ætti að segja tafarlaust af sér.
Áframhaldandi loðnuveiðar er ekki hægt að flokka undir annað en náttúrspjöll; hættuleg inngrip í lífkeðjuna, sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér til lengri tíma. Á þessum punkti á náttúran að njóta þess vafa sem uppi er um stofnstærð loðnunnar, allt annað er ókræsilegur sambreyskingur af skammtímahagsmunum, græðgi og heimsku.
Einar: Mjög ánægjulegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2008 | 13:51
Jénífera gyrðir ærlega uppum sig
Ósköp er nú mikið í það varið hjá henni Jéníferu að vera búin að leggja allt kynferðislíf á hilluna því þetta tiltekna ,,líf" er náttúrlega eins og hver annar subbuskapur og öllum til hnjóðs sem það stunda. Það er því mikið gleðiefni, að vitsmunavera eins og Jénífera, skuli hafa séð ljósið í myrkri frumskógarflækju eðlunarfýsnarinnar, og í framhaldi af því gyrt ærlega uppum sig í eitt skipti fyrir öll. Afturámóti fipast henni illilega þegar hún fellur í það forað að tala um ,,sanna ást." Sönn ást er að sjálfsögðu ekki til, aðeins girnd eða gredda, eða hvað menn og konur vilja kalla það.
Svo er bara að vona að fleiri konur taki Jéníferu sér til fyrirmyndar með því að gyrða sig myndarlega í brók. Geri þær það ekki, eiga þær á hættu að fá á sig nafnbótina ,,brókarsóttargemlingur."
Ekkert kynlíf í hálft ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2008 | 08:49
Að raska fölskvalausri íhaldsró
Ætli íhaldið á Álftanesi hafi ekki, eftir 20 ára slímusetu í meirihluta, verið búið að sanka að sér eintómum sauðtryggum sjálfstæðisflokks-jáurum inn á bæjarskrifstofuna? Ég býst við því. Það eru alkunn vinnubrögð þessa einræðissinnaða stjórnmálaflokks.
Ég geri ráð fyrir að félagi Sigurður Magnússon bæjarstjóri hafi náð að raska hinni fölskvalausu íhaldsró á bæjarskrifstofunni og flokksráðnu starfsmennirnir hrokkið upp af værum blundi eftir 20 ára íhaldssvefn. Og það er heldur enginn glæpur, nema í augum sjálfstæðismanna, að vekja fólk upp af íhaldsdái; slíkur gjörningur flokkast fyrst og fremst undir góðverk sem ber að þakka. En sem betur fer er til fleira hæft fólk til skrifstofustarfa en staurblindur íhaldslýður.
Það er svo kapítuli út af fyrir sig að blaðamenn 24 stunda skuli ekki hafa náð á félaga Sigurð Magnússon áður en ,,fréttin" fór í vinnslu. Ætli þeir hafi hringt í skakkt númer?
Bæjarskrifstofan: Starfsfólk á flótta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2008 | 07:54
Morgunbæn
Okrarans höfuð, hrokkið og grátt,
hvimaði´ um syllur og snaga.
Melrakka-augað var flóttaflátt,
flærðin rist í hvern andlitsdrátt
og glottið ein glæpasaga.
Hann hafði ævinnar löngu leið
leikið sér frjáls að tárum og neyð
og óheftur ginið við gróðans veið,
geymdur helvítis aga.
(Einar Benediktsson)
Og ég leit til: og sjá: Þér höfðuð syndgað móti Drottni, Guði yðar, þér höfðuð gjört yður steyptan kálf (hér er átt við gullkálf þann er lýðurinn dansaði kringum) og höfðuð þannig skjótt vikið af þeim vegi, sem Drottinn hafði boðið yður (5. Mós. 9.16) En synd yðar, kálfinn, sem þér höfðuð gjört, tók ég og brenndi í eldi og muldi hann vandlega í smátt, uns hann varð að fínu dufti, og duftinu kastaði ég í lækinn, sem rann þar ofan af fjallinu. (5. mós. 9.21)
Þeir komu til Jerúsalem, og hann gekk í helgidóminn og tók að reka út þá, sem voru að selja þar og kaupa, og hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna. Og engum leyfði hann að bera neitt um helgidóminn. Og hann kenndi þeim og sagði: ,,Er ekki ritað: ,Hús mitt á að vera bænahús fyrir allar þjóðir?´ En þér hafið gjört það að ræningjabæli.Æðstu prestarnir og fræðimennirnir heyrðu þetta og leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum. Þeim stóð ótti af honum, því allur lýðurinn hreyfst mjög af kenningu hans. (Mark. 11. 15-19)
Undirrót allra lasta
ágirndin kölluð er.
Frómleika frá sér kasta
fjárplógsmenn ágjarnir
sem freklega elska féð.
Auði með okri safna,
andlegri blessun hafna
en setja sál í veð.
(16. passísálmur)
Obama og Clinton harðorð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2008 | 06:37
Stórstíg og höfðingjadjörf
Þau gjörast nú skemmtilega stórstíg og höfðingjadjörf þessa dagana þau Ingibjörg Sólrún og Gjeir Haaarde; hún fundaði með Bankamún yfirkontórista Sameinuðu þjóðanna en Haaarde með Jopp Hopp framkvæmdastýru NATÓ.
Og ekki var víst töluð vitleysan á þessum velheppnuðu fundum og árangurinn eftir því enda ekki við öðru að búast. Frú I. Sólrún fékk t.d. Bankamún til að lofa því að fjölga konum í leiðandi stöðum innan SÞ, en Haarde fékk gott klapp á bakið frá Jopp Hopp fyrir vasklega friðarframgöngu íslendinga í Afganistan og mátti skilja á orðum Jopps að íslensku friðardátarnir, austur þar, væru alveg til friðs á ópíumökrum Afganistan.
Það er alltaf jafn framúrskarandi dásamlegt þegar íslenskir ráðamenn ganga fyrir kónga og keisara hndan atlandsála og hljóta að launum klapp á kollinn.
Ræddi við Ban Ki-moon | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2008 | 21:26
Eiður Smári í Víking Ólafsvík í vor
Eiður Smári ekki valinn í hópinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2008 | 21:18
Þjófafélag eða þjóðfélag ?
Ójá, þau eru mörg ránin sem framin eru í heiminum. Það vantar nú ekki. Eða segir ekki einhversstaðar á góðri bók, að við búum í þjófafélagi en ekki þjóðfélagi?
Hvaða munur er t.d. á að ræna banka með því að grafa 80 metra göng til að komast að því allra helgasta, sjálfri peningeymslunni, og hafa á brott með sér álitlega peningaupphæð, eða að gera sér lítið fyrir og sölsa undir sig heilli náttúruauðlind eftir pólitískum spillingarleiðum? Eða hafa með sér olíusamráð? Eða selja sameignir landsmanna á spottprís? Og þannig mætti eflaust lengi telja. En svona háttalag er nú einusinni kapítalisminn í framkvæmd og svo sem ekkert um það að segja ...
Munið svo, elskulegu lesendur, að kaupa bókina sem út kom í gær sem hann Hanniz okkar hérna Holmstone ritstýði. Það held ég sé upplífgandi lesmál, ekki síst fyrir öryrkja og gamalmenni.
Leiðtogi þjófagengis handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2008 | 16:42
Æsingur íslenskra fíkla ...
Skólastúlkan var 39 ára karl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.2.2008 | 15:21
Frjálshyggjudrengirnir Ágúst Óláfur og Mángi Stef
Það var fróðlegt að fylgjast með stuttbuxnadeild Sjálfstæðisflokksins við upphaf þingfundar Alþingis í dag. Þar fóru fremstir flokki frjálhyggjubörnin Birgir Ármannsson og Sigurður Kári Kristjánsson, en þeirra erindi í ræðustól var að vekja athygli á nýútkominni frjálhyggjuskræðu, sem mér skilst að sé ,,ritstýrt" af spjátrungnum og vandræðagemlingnum Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, sem eins og allir vita er ríkisrekinn frjálshyggjuspámaður. Ekki gátu stuttbuxnapésarnir Birgir og Siguður Kári gengið hreint til verks og auglýst herverki ríkisrekna frjálhyggjumannsins beint og milliliðalaust, heldur notuðu þeir ályktun flokksráðsfundar VG frá síðustu helgi til að vekja athygli á framtaki meistara þeirra.
Þó verður að segjast eins og er, að þó að stuttbuxaðir vikapiltar ríkisrekna frjálhyggjuspámannsins hafi staðið sig með prýði í koma umræddu helgiriti peningageðsýkinnar á framfæri, þá stóðu stuttbuxnadrengirnir Ágúst Óláfur frá Samfylkingunni og Magnús Stefánsson framsóknarmaður sig enn betur í stykkinu með heiðskýrum stuðningi sínum við auðvalds- og braskshugmyndafræði hinna ríku og voldugu.
Ég er satt að segja stórundrandi á að stuttbuxnafyrirbærin Ágúst Óláfur og Mángi Stef skuli ekki hafa þann frómleik, hugrekki og manndóm sem uppá vantar að stíga skrefið til fulls og ganga formlega til liðs við hugsjónabræður sína í frjálshyggjudeild Sjálfstæðisflokksins. Ég er viss um að þessum flokksvilltu páfuglum myndi líða fjarskalega vel við fótskör ríkisrekna frjálshyggjumeistarns Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar.
Ályktanir flokksráðsfundar Vinstri grænna í febrúar 2008 há lesa í heild sinni á heimasíðu flokksnis, vg.is http://www.vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/3173
Tekist á um skattamál á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 5
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 129
- Frá upphafi: 1545298
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 119
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007