Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Gaddavírsbykkja græðginnar og íslenskir thatcheristar

VargurinnÞað sannast á kerlinganæpunni Margréti Thatsher, að sá lifir lengst sem lýðum er leiðastur.

Auðvitað hefði átt að loka þessa óþrifnaðarskjátu inni á viðeigandi stofnun fyrir mörgum áratugum og koma þannig í veg fyrir þau spjöll sem henni tókst að vinna á hroðalegum stjórnmálaferli sínum.

Það geta allir verið sammála um að umrædd Margrét var tvímælalaust einhver öfgafyllsti þjóðarleiðtogi heimsins á síðustu öld, og er þá engan hallað. Það var t.d. gaddavírsrbykkjan Margrét Thatcher sem lét útúr sér óþverran um, að nauðsynlegt væri að ,,virkja græðgina" í fólk. Í mínu ungdæmi hefði sá sem látið þessháttar andstyggð sér um munn fara verið sleginn utanaundir með blautum sjóvetlingi og kjafurinn á honum verið skrubbaður vel og vandlega að innan uppúr grænsápu.

 Hér á landi á kerlingarskjátan sér undarlega marga aðdáendur, sem flestir, ef ekki allir, eru kunnir af últra hægriöfgum og öðrum skringilegheitum af sama meiði. Þó verður að telja hlálegt með afbrigðum, að hinir ötulustu í hópi íslensku thatcheristana skuli alla sína hunds og kattartíð verið á framfæri hins opinbera; sogið ríkisspenann af slíkri gríðar áfergju að makalaust má telja.

Því miður hagaði ólán Íslands og óhamingja hlutunum þannig, að öfgapólitík Margrétar Thatcher var leidd til önvegis hér á Íslandi. Græðgin var virkjuð og undir hana blásið af slíkum fítónsanda að vart stendur steinn yfir steini hvert sem litið er. Og enn eru hinir heilaþvegnu thatcheristar að; eftir að hafa rænt þjóðina fiskimiðunum, Landssímanum og tveimur bönkum, ásamt mörgu öðru, er röðin komin að því að siga einkavæðingarvargnum á heilbrigðis- og menntakerfið.

Eftir margra ára græðgisvæðingu og græðgisfyllirí er afleiðing veislunnar að koma í heldur betur í ljós þessa dagana: Það er semsé að koma á daginn að íslenska þjóðin er sú skuldugasta á byggðu bóli, skakkaföll blasa við eða jafnvel hrun. Það er komið að skuldardögunum og ekkert eftir annað en þakka hinum ósvífnu thatcheristum, að verðleikum, fyrir trakteringarnar .  


mbl.is Thatcher laus af sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Losum okkur við svikular afætur

Rauður hnefiSkúli þessi Thorodsen, sem titlaður er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, er fyrst og fremst málpipa og kjaftatík Kristjáns Gunnarssonar starfsgreinaformanns og ber að skoða kjaftavaðalinn í manninum í því ljósi.

Og fyrst minnst er á Starfsgreinasambandið, er nauðsynlegt að minna fórnarlömb höfðingjanna á þeim bæ, að muna eftir að greiða atkvæði á móti kjarasamningunum sem þessir hvítflibbuðu hálaunamenn skrifuðu uppá fyrir skemmstu. Það er ekki hægt að samþykkja kjarasamninga sem gera ráð fyrir að verkafólk vinni ekki fyrir sér með 40 stunda vinnuviku.

Verkafólk verður að fara losa sig við þessa krypplinga sem það er með á framfæri og kallar sig ,,verkalýðsforustu"!!!  


mbl.is SGS segjast skilja bændur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrípaganga úrkynjaðrar borgarastéttar

peningar4Það er alveg makalaust þegar borgarastéttin tekur uppá að vekja athygli á ofbeldi gegn konum í þróunarlöndum og á stríðsþjáðum svæðum. Það vill nefnilega svo illa til að svæði eru stríðsþjáð einmitt vegna þessarar sömu hræsnisfullu borgarastéttar.
mbl.is Fiðrildaganga í þágu kvenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krataeðlið og dóttir hans Guðmundar í rafmagninu

30 silfurAð dóttir hans Guðmundar rafmagninu skuli styðja sjálfstæðisbaráttu tíbeta og kósóvóa, grænlendinga og færeyinga er svo sem góðra gjalda vert.

Hinsvegar leiðir það hugann að öðru og nærtækara máli sem snertir sjálfstæði íslendinga beint og milliliðalaust. Þar á ég að sjálfsögðu við harkalega baráttu Samfylkingarinnar fyrir að selja sjáfstæði íslensku þjóðarinnar í hendur ESB fyrir 30 silfuraura. Nú er það enginn nýr sannleikur að krötum hér á landi þyki sjáfstæði þjóðarinnar minna en skítsvirði; þessi lítilmennska virðist þeim í blóð borin enda er krataeðlið byggt á takmarkalausum undirlægjuhætti við auð og völd. Í þessu sambandi er vert að minnast, að þessi þokkafénaðaður studdi ekki lýðveldisstofnunina 1944 og gekk hart fram í stuðningi við inngöngu Íslands í NATO og veru bandaríska herliðsins hér á landi.

En það skulu landssöluódrættir KrataSamfylkingarinnar vita, ,,að hefnist þeim sem svíkur sína huldumey, honum verður erfiður dauðinn" svo vitnað sé í skáldið Guðmund Böðvarsson.

Ég geri fastlega ráð fyrir að á næstu tónleikum Bjarkar, hér á landi, muni hún bregast til varnar fyrir sjálfstæði þjóðar sinnar gegn landssöluáformum krataeðlisins, eða öllu heldur: krataóeðlisins.     


mbl.is Yfirlýsing frá Björk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sprotafyrirtæki í bændagistinu í burðarliðnum

GJHÁ meðan rígmontnir hvítflibbabændur funda í gríð og erg í Bændahöllinni Suðrá Melum, ásamt pólitískum plebbum og pappakössum, situr Jón bóndi heima og ræðir vanda landbúnaðarins í heildarlausnum á víðum grundvelli við hvern þann sem heyra vill, sem því miður eru þó næsta fáir.

Um þessar mundir er Jón bóndi, sem betur er þekktur undir nafninu GJH, í óðaönn að skipuleggja bændaferðir til Hamborgar í Þjóðverjalandi í því skyni að kynna bændum ákveðna tegund af ferðaþjónustu, sem ýmsir málsmetandi áhættufjárfestar hafa áhuga á að styrkja bændur í að koma upp í sveitum landsins. Munu hinir ferðaglöðu þáttakendur í hamborgarförinni sitja hálfs mánaðar námskeið í því plássi, sem heitir í Herbertsstrasse þar í Hamborg, og læra þar hvernig best sé að byggja upp og starfrækja þá viðbót í bændagistingu sem þeir hyggjast bjóða gestum og gangandi uppá í framtíðinni.

Meðfylgjandi mynd er af Jóni Bónda (GJH) þar sem hann er að leggja á ráðin varðandi nýmæli í sprotafyrirtækjarekstri í sveitum Íslands.     


mbl.is Bændur þinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voða-voða stórkostleg skemmtun

FyllikrakkiÞað áreiðanlega dagsatt hjá henni Gvendu Stefáns að verklegu æfingarnar við að ,,reyna" að eignast barn, eru víst voða-voða stórkostleg skemmtun. Það væri nú annað hvort - andskotinn hafi það. Og ef svo kostulega vill til, að barn verður úr gamaninu, þá er nauðsynlegt að venja það strax á að totta pelann; og um að gera að hafa eitthvað annað og meira hressandi á pelanum en hundleiðinlegt mjólkurhland.
mbl.is Gaman að reyna að eignast barn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. styður rányrkju af manna völdum

imagesÞað telst varla til tíðinda þó íhaldsjálkur á borð við Einar Kr. Guðfinnsson lýsi yfir stuðningi við áframhaldandi stóriðjuframkvæmdasukk. Þeir sem á annað borð hafa ánetjast stóriðjufíkninni losna ekki svo glatt við þá meinsemd, nema þeir geri eitthvað í sínum málum,eins og það er kallað.

Hitt fannst mér öllu ískyggilegra, í Silfri Egils áðan, þegar félagi Steingrímur J. Sigfússon reif sig uppí hæðir af gleði yfir að Einar Kr. gefið út leyfi fyrir áframhaldandi loðnuveiðum. Ég hélt nefnilega í barnaskap mínum, að formaður umhverfissinnaðs stjórnmálaflokks, græns framboðs, tæki alltaf og undantekningarlaust afstöðu með lífríkinu og náttúrunni gegn rányrkju og umhverfisspjöllum af manna völdum. Það er engum blöðum um það að fletta, að loðnuveiðar við þær aðstæður sem uppi eru geta með engu móti flokkast undir annað en stór varhugaverð inngrip í lífríkið umhverfis landið. Enda kvað einn af reyndari fiskifræðingum landsins uppúr með það fyrir skömmu, að loðnuveiðar ætti yfirleitt ekki að stunda nema í sérstökum undantekningartilfellum.

Það væri fróðlegt að vita hvað öðrum þingmönnum VG, og þá ekki síður almennum félagum í flokki Steingríms J., finnst um gleðilæti formannsins yfir áframhaldandi rányrkju á loðnustofninum. Og þó að Steingrímur J. hafi notað mikilvægi loðnuveiða fyrir nokkur byggðarlög sem rök fyrir gleði sinni, þá má hann ekki gleyma, í hita leiksins, að loðnan er ekki síður mikilvæg fyrir vöxt og viðgang fleiri fisktegunda, t.d. þorsks, sem eru mikilvægari mun fleiri sjávarbyggðum en loðnan og að sama skapi mikið verðmætari. Eða þora félagar í VG, eins og venjulega, ekki að hreyfa andmælum þegar skoðanir og yfirlýsingar félaga Steingríms formanns eiga í hlut?  


mbl.is Styður áframhaldandi stóriðjuframkvæmdir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átta fórnfúsir og óeigingjarnir.

Það  er ánægjulegt að átta manns skuli, af óeigingirni og fórnfýsi, hafa tekið að sér að hafa ofanaf fyrir fangavörðum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fangaverðir vita það best sjálfir hversu skelfilegt er að sitja á sínum stað, einir og yfirgefnir, allt kvöldið og alla nóttina, án félagsskapar af nokkru tagi. Ég þekkti einusinni mann sem var fangavörður. Fimm nætur í beit beið hann einn og yfirgefinn í fangelsinu eftir viðskiptavini, svo hann hefði nú einhvern til að spjalla við, en án árangurs; ekki nokkur lifandi sála gaf sig fram til að til að stytta honum stundir. Sjöttu nóttina varð ástandið svo aðvarlegt að hann gekk af vitinu og var fluttur á Klepp þar sem hann braut allt og bramlaði.
mbl.is Átta gistu fangageymslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband