Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008
15.7.2008 | 13:35
Hjáróma veimiltítur sitja dauðlamaðar frammi fyrir 600 milljonum

![]() |
Stúkan fór úr 300 milljónum í 870 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2008 | 12:59
Hobbystuldur, Abramovic og L. S. Jones
Ósköp er það nú mikill hégómi að barma sér undan hvarfi á einun hjólhýsisræfli á sama tíma og til stendur að taka á móti miljarðaþjófnum Abramovic með pompi og pragt hér uppi á Íslandi. Og ekki veit ég til að neitt veður hafi verið gert útaf þeim einbeittu rummungum sem hafa vaðið hafa landið þvert og endilangt og sölsað undir sig sameiginlegar eignir almennings. Með réttu ætti það óþurftarhyski að fylla herbergi fangelsana í stað Lárusar Svavarssonar Jones og hans félaga.
Annars eiga hjónin Ragnhildur og Birgir að prísa sig sæl að vera laus við déskotans skuldahalann Hobby Exclusive því nú losna þau við kosnaðinn af að drösla þessari ófreskju á eftir sér í fyrirhugaðri sólarleit þeirra. Þau geta svo sem rúllað sér til og frá um landið á hjólhestum til að grenslast fyrir um hjólhýsið, en mér finnst samt þau ættu að láta það eiga sig því hjólreiðar eru hættuleg iðja, svo sem sjá má á myndinni hér fyrir ofan.
![]() |
Sjaldgæfur stuldur: Sumarhús á hjólum horfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.7.2008 | 08:06
Ákölluðu heilagan Ragnar skjálfta
Ég hefi nú aldrei vitað annað eins helvítis kjaftæði. Hvað er það sem þessi hr. G. Blöndall kallar ,,stóíska ró?" Mínar góðu og trúverðugu heimildir segja, að Íslendingarnir sem lentu í jarðskjálftanum á Ródos í morgun, hafi hlaupið um, fram og til baka, eins og hjartveikir apakettir þegar fór að skjálfa undir þeim. Og allmargir þeirra hafi verið komnir með blautan botninn þegar hrynunni lauk. Þó var kyndugast, segja mínar heimildir, að þegar neyðin var stærst og ringulreiðin mest, þá hafi Íslendingarnir gleymt Guði algjörlega, en þess í stað ákallað Ragnar jarðskjálftafræðing Stefánsson sér til hjálpar. Meira að segja harðsvíruðust Sjálfstæðismenn hafi í angist sinni veinað hvað eftir annað upp nafn heilags Ragnars skjálfta og beðið hann, í fullkomri trúarvissu, að stöðva jarðhræringarnar á Ródos tafarlaust og strax.
Auðvitað bænheyrði Ragnar, sá góði maður og sósíalisti, fólkið og stöðvaði jarðskjálftann.
![]() |
Tóku þessu með stóískri ró" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.7.2008 | 07:44
Innræti pólitískra óberma

![]() |
Skopteikning veldur uppnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.7.2008 | 07:19
Farnir að hnusa af afturendanum á henni
Æ hvað það er gott að Britney sé hreinlega farin að blómstra eftir velheppnaða dvöl að géðveikrahælinu og byrjuð að hlægja með mömmu sinni og að henni. Það má víst nærri geta, að géðveikralæknarnir hafi soðið saman góða og áhrifaríka stöffblöndu oní hina sturluðu söngkvinnu, með þeim árangri að nú eru farin að vaxa saklaus, litskrúðug blóm uppúr hausnum á henni í stað valmúa og berserkjasveppa. Og samkvæmt fréttamyndinni af Britney í sjónum, eru vaskir karlmenn aftur farnir að snuðra í kringum hana og hnusa af afturendanum á henni.
Ójá, það er af sem áður var þegar Britney vesalingurinn óð um geggjuð af dópi og dýrum veigum, eða lá spíritusönduð í eigin ælu á ókunnum skítugum salernum.
![]() |
Britney blómstrar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2008 | 23:11
Á Íslandi fara fjörudólgar á geðveikrahæli

![]() |
Dónaskapur" á baðströndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2008 | 21:00
Úrkynjuð gamalkvikindi verða greddunni að bráð
Það má með sanni segja að allstaðar megi sjá stórfelld menningarleg og félagsleg hnignunarmerki í því samfélagi sem við búum við í dag. Öll þekkjum við úrkynjunarathafnir fólks á besta aldri, í stóru sem smáu, sem kristallast í óseðjandi peningagræðgi, útlitsdýrkun, kynlífsfíkn, eiturefnanautn, neyslutrylling, yfirgang og fíflsku. Í öllum þessum rottugangi nútímans hafa sjónir heiðarlegara manna, já og kvenna, beinst að hinum öldruðu; þar megi finna þá fyrirmynd sem ein kunni að verða mannkyninu til bjargar.
En svo bregðast krosstré sem aðrir raftar. Nú hefur, því miður, komi í ljós, að bölvuð gamalmennin hafa í æ ríkara mæli verið að færa sig uppá skaftið í allskyns ósóma og úrkynjuðum dónaskap. Sú nöturlega staðreynd, að karlaskrattar og kerlingarskrukkur yfir sjötugt iðki lostafullt athæfi, hafi á gamalsaldri orðið greddunni að bráð, er þyngra hverri heilbrigðri sál en tárum taki. Hvenær hinir ,,virðulegu" eldri borgarar fóru að þróa með sér kynlífsfíkn svo um munar, má fjandinn einn vita. En það skulu þessi skammarlega kynóðu gamalkvikindi vita, að úrkynjun og perraskapur á efri árum mun ekki gagnast þeim vel þegar þau í fyllingu tímans mæta við hlið Hymmnaríkis og beiða Drottinn sjálfan Alsherjar um húsaskjól. Þá mun Drottinn ekki hafa neinar vöflur á og skipa hinum gröðu gamlingjum til Helvítis.
![]() |
Meira kynlíf og oftar fullnæging |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.7.2008 | 20:05
Þegar þeir krossfestu Gvend - án árangurs
Jahh, mikið helvíti var Gvendur karlinn í orkunni séður að taka með sér fullan kassa af ,,trúnaðarupplýsingum" þegar honum var fórnað eins og hverjum öðrum kleprahvolpi í friðþægingarathöfn apakattanna í Sjálfstæðisflokknum vegna REI-hátíðarhaldana alræmdu. Með örum orðum: Gvendur var krossfestur til að bæta fyrir syndir afglapana í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna.
Nú hefur sem sé komið á daginn, að Sjálfstæðishetjurnar hafa ekki unnið nægilega vel á fórnarlambinu því, samkvæmt féttum, komst það undan á flótta með allrahanda viðkæmar upplýsingar í kassa. Hverjar þessar trúnaðarupplýsingar eru, hefur ekki verið tíundað opinberlega, en búast má við, að innanum og samanvið megi finna í kassanaum góða ýmsar kynlegar upplýsingar um athafnir gegnheilla Sjálfstæðismanna þegar þeir stigu REI-dansinn hvað hraðst og með sem mestum rassaköstunum. Það geta allir séð, að þessháttar sannleikur á nákvæmlega ekkert erindi við almenning í Reykjavík, eigendur OR.
Þegar upp er staðið, er ljóst, að íhaldsapakettirnir í Reykjavík hafa fórnað röngum manni í viðleitni sinni til að friðþægja fyrir REI-ósköpin. Á meðan situr Gvendur heima í stofu, með kassann í fanginu, og hugsar fornvinum sínum úr REIinu þegjandi þörfina.
![]() |
Guðmundur tók gögn með sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2008 | 20:15
Sauðdrukknar á golfmóti
Ég man eins og gerst hafi í gær þegar Frú Ingveldur var á sínum yngri árum send til útlanda, ásamt fleiri kvendum af sama sauðarhúsi, til að keppa í golfi fyrir Íslands hönd; það var einmitt líka í Skotlandi. Skipti engum togum að þær höfnuðu í neðsta sæti og var lengi haft á orði að þær hefðu með frammistöðu sinni orðið bæði landi og þjóð til skammar. Þegar farið var að grenslast fyrir hvernig stæði á svo frámunalega slökum árangri golfstúlknanna, kom í ljós að þær höfðu, allar sem ein, þar með talin frú Ingveldur, verið sauðdrukknar alla keppnina.
Myndin hér til hægri er tekin af golfstúlkunum á öðrum degi mótsins. Frú Ingveldur er næst okkur á myndinni.
Ég er ekki með þessari upprifjun á keppnisferðalagi frú Ingveldar og hennar meðreiðarmeyja, að gefa í skyn að Íslenska kvennalandsliðið sem nú iðkar kúlubarning í Skotlandi sé á generalfylliríi og sé af þeim sökum fyrirmunað að koma kúlufjöndunum ofaní holurnar. Öðru nær, stúlkurnar sem að þessu sinni berjast fyrir Íslands hönd eru annálaðar fyrir bindindissemi og góða reglu í hvívetna.
![]() |
Íslensku stúlkurnar neðarlega í Skotlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2008 | 18:03
Ábyrgðarlaus úrþvætti og skrípalingar
Mikið held ég nú að frjálshyggjuskrípin gleðjist þegar venjulegt verkafólk fer að missa atvinnu í stórum stíl, enda þjónar verkafólk sama tilgangi og vélar, eða öllu heldur vélarhlutar, í hugarheimi vatnsgreiddu skrípana í jakkafötunum. Það er blóðugt að ekki sé hægt að draga þessi úrþvætti til ábyrgðar fyrir stórbrotna fjárglæframennsku og annan viðbjóð sem þau hafa framið í nafni peningahyggjunnar.
Það sem almenningur vill í raun og veru er: Sósíalísk Alheimsbylting !
![]() |
Þúsundir án atvinnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- Meðan ábyrgir leiðtogar fagna í Moskvu flaðra krataeigirnar u...
- Einelti gegn útgerðarmanni og eitthvað fleira
- Það er hamingja vor og lán að eiga ígildi kóngs
- Þá hefir frú Sæland fallið á léttasta prófi allra prófa. Aumi...
- Renturnar á Hjáleigunni
- Nýfrjálshyggjubyltingin étur börnin sín
- Litaforsetar nútímans á Íslandi og í Bandaríkjunum
- Mjög vond tíðindi af frú Ingveldi og hennar fjölskyldu
- Hrunistar, afturgöngur og krataeðlisauðvaldsstúss út um móa o...
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.5.): 28
- Sl. sólarhring: 49
- Sl. viku: 676
- Frá upphafi: 1548439
Annað
- Innlit í dag: 26
- Innlit sl. viku: 608
- Gestir í dag: 26
- IP-tölur í dag: 26
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007