Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Sauðnaut hins sálaða holds opinberar heimsku sína

naut2.jpgÞað er ljóti fuglinn þessi Símon Manijakk, eiginmaður þess sálaða holds Brittany Mörfí, og heimskt naut er hann áreiðanlega og það með afbrigðum. Mannfjandinn ku hafa opinberað sauðnautseðli sitt með því að halda blákalt fram, ,,að heimurinn hafi lagst í rúst í gær." Þetta er náttúrulega algjör þvættingur, því að heimurinn stendur enn og virðist bara við dágóða heilsu. Og mikið óskaplega hefur Brittany verið ólánssöm að eiga þennan garm fyrir mann. Sennilega hefur hún dáið úr leiðindum útaf þessum karli sínum. Annað eins hefur víst gerst áður - meira að segja í sturtu. En nú er hún sem sé önduð og þar með laus við Símon Manijakk, að minnsta kosti í bili.

Afturámóti hrundi frjálshyggjukapítalismi Friedmans og Hannesar til grunna fyrir rúmu ári síðan, flestum til gleði og ánægju. En það er nú önnur saga og óhugnarlegri.


mbl.is Segir að Murphy hafi þjáðst af barkabólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin fagra og sanna fyrirmynd reyndist brjálaður giljagaur

jol1Hafi ég orðið fyrir vonbrigðum með nokkurn mann, þá er það Tígur Woods. Árum saman hélt ég í barnslegu sakleysi mínu, að Tígur væri hin fagra og sanna fyrirmynd allra manna, næst á eftir Jesú Kristi og Karli Marx. En svo kemur allt í einu uppúr dúrnum, að Tígur vinur okkar, er eitthvert ódannaðast graðkvikindi sem skriðið hefur á jörðinni. Fyrr má nú gagn gera, en að þjóta útum allar þorpagrundir eins og brjálaður giljagaur á eftir hvaða kvenmansstéli sem fyrir augu ber, meðan svenska eiginkonan duðraði grandalaus heima við uppvask og barnauppeldi. Tígur Woods á hiklaust að bannfæra og berja eins og hund á almannfæri, honum og hans líkum til varnaðar.
mbl.is Tiger og Elin aðskilin um jólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ærlegir kvenmenn vilja saltstorkna sjóara en ekki roðhænsni

sjoJa, ófétislegir erum vér karlmenn, ef þetta skoffín er okkar fallegastur í veröldinni. En sennilega hafa kannabispæklaðir hómósexúalistar verið að verki við að velja þennan draumaprins heimsins. Svoleiðis náungar eru ekki vandir að meðulunum þegar þeir hafa sig á kreik. Nú má satt vel vera, að þótt drengstaulinn Brunó falli í kramið hjá stöku kallgægsni með sérþarfir, þá lítur ekki nokkur ærlegur kvenmaður við svona hænsni. Ærlegir kvenmenn vilja saltstorkna sjóara, sem ekki hafa komið nálægt sápu eða rakvél í að minnsta kosti mánuðuð, drekka ákavíti eins og aðrir menn vatn við þorsta og keyra um á þýskum lúxuskerrum. Þessháttar naglar eru heldur ekkert blávatn þegar bólfarir eru annarsvegar, byltast um eins og ólgandi úthaf en samt ákveðnir og brennandi eins og eldspúandi drekar og geta bókstaflega vakið steindauðar og vitanáttúrulausar piparjúnkur upp frá dauðum þannig að blóðið fer að fossa um æðar þeirra eins og stórfljót í asahláku. En Brúnó þessi drepur eflaust, að sama skapi, hverja einustu kvensu úr leiðindum, sem hann hefur rænu á að skríða uppí hjá. En það þarf nú varla að óttast að hann hafi rænu á að standa í stórræðum af því tagi. 


mbl.is Fallegasti maður í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungfrú Dekker er af íslenskum ættum

bóndiÞað vita flestir sem vita vilja, að ungfrú Dekker af Hollandi er einhver mestur sjósóknari nú um stundir, þó hún sé rétt rétt nýfermd. Hitt vita eflaust færri, að hún er dótturdóttir hins fræga hafgamms, Þorgarðs Þorgarðssonar skipstjóra og aflakóngs, sem er svo mikill Íslendingur, að íslenskar getur ekki nokkur maður orðið.

Svo er mál með vexti, að Þorgarður skipstjóri kynntist ömmu Dekker siglingakappa á knæpu einni í Bremerhaven þegar hann stundaði síldveiðar í Norðursjó fyrir fjörutíu árum. Tókust miklar skyndiástir með Þorgarði og ömmu Dekker þetta kvöld, sem lauk með því að móðir ungfrúarinnar kom undir, síðla nætur, í skipstjóraklefa Þorgarðs um borð í alflaskipinu mb. Molduxa.

Það þarf því engan að undra þó fermingarstúlknunni Dekker þyrsti ákaft í að bjóða Ægi konungi byrginn, þegar tillit er tekið til ætternis hennar, og vilji umfram allt sigla kringum jarðarhnöttinn í einni striklotu, án tilllitst til veðra og vinda.


mbl.is Dekker fannst á St. Martin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brittany og Oddur sauðaþjófur

Það hlaut að koma að því, að færi eins fyrir Brittany Murpy, aumingjanum svorna, og Oddi sauðaþjófi. Nú er bara að vona að góðskáld yrki fagurt erfiljóð um Brittany í svipaðri tóntegund eftirmælin um fyrrnefndan Odd, en þau hljóða svo:

Fjallaskauða foringinn,

fantur nauða grófur.

 er nú dauður afi minn,

Oddur sauðaþjófur.

Blessuð sé minning Odds og Brittany.

 


mbl.is Brittany Murphy látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úníform stjörnusýslumannsins Stones í bráðri hættu?

jagger og óliÞeir láta ekki deigann síga, fremur en fyrridaginn, glæpamennirnir í umdæmi stjörnusýslumannsins Stones. Og nú eru þeir farnir að leggja kirkjurán fyrir sig og brjóta upp söfnunarbauka. Þegar fagaðilar í innbrotsþjófnuðum eru farnir að ræna heilögum kaleikum úr guðshúsum, er stutt í að þeir spenni upp húsakynni sýslumannsembættisins á Selfossi og ræni úníformi sjálfs stjörnusýslumannsins og fari að spóka sig í því á grímudansleikjum um áramótin eða nota það fyrir lúðrasveitarbúning.

Ég vona innilega, að Drottinn vor forði Stonesstjörnusýslumanninum Stones frá þvílíkri hneysu.


mbl.is Brotist inn í tvær kirkjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grenjuskjóður og frekjudollur sýna af sér moldarkofafordild

grenjEkkisens moldarkofafoldild er það af þingmannsnefnunum að ganga ekki eins og menn í að hækka hjá sér launin. Að banna sjálfum sér að bjarga sér, er skammarleg ómennska og engum til eftirbreytni.

En þessi vesaldómur ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart. Í morgun hjó ég eftir í útvarpinu, að ástandið í þinginu væri svo hræðilegt, að iðulega væru þingmenn grátandi undan hverjum öðrum. Þessi ósköp voru, að ég held, höfð eftir hipp og kúl-kerlingunni, Birgittu Jónsdóttur, sem kunn er fyrir flest annað en kalla allt ömmu sína.

Ef það er rétt, að stór hluti alþingismanna séu grenjuskjóður og vælukjóar, er einungis við vondu að búast. Og þegar við bætist, að umræddar grenjuskjóður eru í þokkabót hamslausar frekjudollur, er útlitið sannarlega svart.

Manni hreinlega fallast hendur gagnvart þessum sí-grenjandi þokkafénaði, ódöngun hans og uppskafningslátum.


mbl.is Banna launahækkun þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinlegur forseti er frjálshyggjustúfum verri

fleng0.jpgÞað hefur svo sem lengi verið vitað, að frú Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, nú um stundir kölluð forseti Alþingis, væri ekki húmorískarin en sem svarar mjög slöku meðallagi. Með þá staðreynd í huga, er skiljanlegt að kerling hafi rumskað á sínu forsetapriki þegar frjálshyggjurstúfurinn Tryggvi Þór fór að fimbulfamba um djók í sjálfu ræðupúlti Alþingis.

Við þetta tækifæri átti frú forseti ekki að láta eftir sér að rísa uppá afturlappirnar og skamma frjálshyggjustúfinn blóðugum skömmum; hún hefði aðeins átt að segja stundarhátt við djókarann: ,,Það vild ég, að ég mætti segja yður að halda kjafti, háttvirti þingmaður."

En eins og áður sagði, þá er frú Ásta Ragnheiður lítið fyrir gamanmál og gálaust götuhjal en leggur þeim mun meiri áherslu á að vera leiðinleg eins og hofmóðug miðaldafrauka. Nú er það svo, að þingheimur Alþingis á aldrei að velja sér leiðinlega persónu fyrir forseta þings, þessháttar ráðslag verður aldrei barn í brók. Raunar ætti að festa í lög, að leiðinlegt fólk og stúrið, njóti ekki kjörgengis við kjör forseta Alþingis og þannig útilokað að slíkt fólk geti smitað sínum hörmulegu leiðindum yfir þingmenn í tíma og ótíma.   


mbl.is Bannað að segja „djók“ á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kérlíngarstráið hrátt og soðið í skúffaðri gleði sinni

flokkseigendur_786424.jpgSkelfilega er gott, að kerlíngarstráið hún Swandees sé bæði ánæggð og vonsvikin með kaupmannahafnardvölina. Það hefur náttúrlega átt vel við þessa virðingarverðu maddömu, að fá að vera undir sama þaki og stórhöfðingjar því hún er að sjálfsögðu stórhöfðingi á sína vísu.

En eitt veit ég að Swandees er sáróánæggð með, en það sú hörmung að hún fékk ekki að verða sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í síðastliðið vor. Eins og kunnugt er, þá er Swandees mikill útvegsbóndi, gerir út sumarhús í Flatey og rær þangað á flóabátnum Baldri, oft í vondum veðrum með stóru brimi og kröppum straumhnútum. Svo er blessunin stór og voldugur hluthafi í Vinstrihreyfingunni grænu framboði, sem dugði þó ekki til þegar kom að úthlutun ráðherraembætta eftir síðustu kosningar því þá var hún niðurlægð með því að vera gerð að umhverfisráðherra, sem telst ekki til raunverulegs ráðherraembættis.

En það er víst  hlutskipti Swandeesar kerlingar, vera hrá og soðin, ánæggð og vonsvikin, á móti Sjálfstæðisflokknum en vinkona Hönnu Birnu, vera í hópi meirihlutaeigenda í VG og fá bara Umhverfisráðuneytið.

Er nema von, að kérlíngarstráið sé skúffað í gleði sinni? 

Meðfylgjandi mynd var tekin á fundi meirihluta hlutabréfaeigenda í VG.


mbl.is Framför í loftslagsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lét kné fylgja kviði og gerði sig örlætislega í framan

herra3Það er ekki ónýtt fyrir Hönnu Birnu hreppsstjóra, að fá að úthluta eins og jólasveinn, styrkjum uppá 9 milljooonir úr einhverjum sjóði, sem íbúar Reykjavíkur eiga. Og Hanna Birna lét kné fylgja kviði, kallaði myndasmiði fjölmiðlana á staðinn, gerði sig örlætislega í framan, eins og hún væri að gefa aurana úr eigin vasa, og lét þá mynda sig þannig, svo fólkið í landinu gæti séð svart á hvítu hvað hún er góðgjarn hreppsstjóri. Ekki veit ég fyrir víst hvar Hanna Birna lært svona fallegt vinsældartrix, en þó minnist ég þess, að hún vann um skeið baki brotnu með dáindismanninum Kjartani Gunnarssyni á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Eflaust hefur hún numið margt göfugt og fallegt í þeirri vist, sem kemur henni nú til góða. 


mbl.is Borgin úthlutar úr forvarnasjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband