Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Frænka frú Ingveldar gefur kost á sér

less_892530.jpgÞað veit ég að allur þorri Hafnarfjarðsbúa hefur hoppað í loft upp af gleði þegar það spurðist út, að Rósa Guðbjartsdóttir gæfi kost á sér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Rósu reiknast það helst til tekna, að vera náfrænka skörungsins frú Ingveldar, sem gaf kost á sér í 2. sæti sjálfstæðislistans í Reykjavík. Ef Rósa hefur til að bera, þó ekki væri nema helminginn af skörungsskap frænku sinnar og viljafestu, eru Hafnfirðingar algjörlega hólpnir með hreppsnefndarmál sín næstu fjögur árin.

Þess má og geta, að Rósu og frú Ingveldi sinnaðist fyrir nokkrum árum á ættarmóti og varð að kalla til fjölmennt lögreglulið til að ganga á milli þeirra frænkna svo ekki yrðu vígaferli. Reyndar fór Rósa mjög halloka fyrir frænku sinni í bardaganum, sem ekki er að undra, þar sem frú Ingveldur er fullra tveggjamanna maki að burðum og harðskeytt eftir því, svo sem Kolbeinn eiginmaður hennar hefur margsinnis mátt reyna á eigin skinni eins og kunnugt er. 


mbl.is Rósa gefur kost á sér í 1. sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar lögreglan handtók Kolbein Kolbeinsson í misgripum

pol2Ef fólk heldur að mistök lögreglunnar gagnvart meindýraeyðinum með vasaljósið sé algjört einsdæmi, er það hinn mesti misskilningur.

Fyrr á þessu ári var lögreglan kölluð að heimili heiðurshjónanna, frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssona, vegna neyðarópa og skarkala sem bárust frá húsinu. Lögregluþjónarnir voru furðufljótir á staðinn, einir fimm saman, óðu rakleitt inn á heimili frú Ingveldar og Kolbeins, án þess að berja að dyrum fyrst, og handtóku Kolbein orðalaust og báru hann hlekkjaðan á höndum og fótum út í lögreglubílinn og óku með hann á lögreglustöðina og stungu honum þar inní fangaklefa þar sem hann fékk að dúsa í tvo sólarhringa.

Eftirá sögðu lögregluþjónarnir, að þeir hefðu álitið að Kolbeinn Kolbeinsson væri óður og ætlaði að aflífa konu sína. En þar fóru lögregluþjónarnir aldeilis villir vega, því málsatvikum var nefnilega þveröfugt farið. Það var sem sé frú Ingveldur, sem hafði hjólað í eiginmann sinn með þann ásetning í huga að vega hann, eða í það minnsta stórslasa. Það sem Kolbeinn hafði til sakar unnið, að mati frú Ingveldar, var að hann hafði neitað að ganga daglangt í nærbuxum af eiginkonu sinni. Þegar frú Ingveldi varð ljóst, að Kolbeinn myndi ekki láta af mótþróanum við nærbuxurnar, ákvað hún í skyndingu að við svo búið mætti ekki standa og hófst handa við framja á honum þá refsingu, sem hann hafði sannarlega til unnið. 


mbl.is Byssumaður reyndist meindýraeyðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kistubúar í frjálshyggjugrafreitnum veina uppúr gröfum sínum.

draugar1.jpgÆtli færi ekki best á, að skrípalingarnir hjá Viðskiptaráði héldu tröntunum á sér saman um ríkisfjármál, sem og fjármál yfirleitt. Þessir delar verða að fra að skilja, að frjálshyggjukapítalisminn þeirra er hrunin til grunna, einnig hið ógeðfellda dekur við hálauna- og stóreignafólk.

Það má ljóst vera að súrþefjandi auðvaldsfyrirbrigði eins og Viðskiptaráð og Verslunarráð, og aðrir slíkir óþrifapakkar, eru steinrunnar ófreskjur, sem heyra fortíðinni til. Uppvakningarnir, sem eru að burðast við að veina í nafni þessara útbrunnu ráða eiga að halda kyrru fyrir í kistum sínum í frjálshyggjugrafreitnum og láta aldrei framar á sér kræla meir.


mbl.is Misráðin stefna í ríkisfjármálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óbermin og tíkarsynirnir úr veislum ,,ríka fólksins"

fokkGera þeir í tollgæslunni sér ekki grein fyrir því, að með því að taka þetta hálfa kíló af kókaíni af rúmenska burðardýrinu, eru þeir að svipta allnokkurn hóp ,,betri borgara" jólahressingunni, sem þeir höfðu hlakkað til að soga uppí trýnin á sér, jésúbarninu og nýju ári til dýrðar?

Fram að þessu hefur kókaín fyrst og fremst verið hið guðdómlega hressingarmeðal svokallaðrar yfirstéttar, enda er kókaín það dýrt að ekki er á allra færi að veita sér slíkan munað. Sagt er, að þegar darraðardans hrunalýðsins stóð hvað hæst, á árunum fyrir hrun, hafi þetta ógeðfellda fólk haldið margar veislur og krassandi þar sem helstu gleðigjafarinr voru kókaín og hvítvín.

En þegar veislunum var lokið, hvítvínið og kókaínið búið, þjóðin komin á bakið eins og afvelta sauðkind, þá varð allt fólkið í landinu að taka út timburmennina, fráhvörfin og deleríum tremensinn fyrir óbermin og tíkarsynina úr veislum ,,ríka fólksins." 

Hverskonar fólk er það, sem hafnar því, að byltingar sé þörf?


mbl.is Tekinn með kókaín í Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa aumingjarnir ekkert samviskubit?

Auðvaldssví 2Firnagóður árangur frjálshyggjutilraunarinnar á Íslandi kemur ákaflega vel fram í stórfjölgun í skjólstæðingahópi hjálparsamtaka eins og Mæðrastyrksnefndar. Mér verður alltaf hugað til þeirra ólánsmanna, sem stóðu fyrir innrás hins óhefta frjálshyggjukapítalisma, þegar ég heyri eða les fréttir af fólki, sem fyrir fátæktarsakir verður hópum saman að stíga þau þungu spor að leita á náðir hjálparsamtaka. Hvað ætli þessir ódámar hugsi þegar þeir heyra fréttirnar af bláfátæka fólkinu sem á ekki til hnífs og skeiðar? Skulu þeir ekki finna fyrir samviskubiti vegna þeirra gjörða sinna sem leitt hefur örbirgð yfir fjöldann allan af fólki? Eða eru þetta ef til vill upp til hópa samviskulausir aumingjar, sem finna enga sök hjá sjálfum sér á ástandinu í þjóðfélaginu?

Að minnsta kosti hefi ég ekki heyrt af iðrun af neinu tagi hjá þessu liði.

 


mbl.is Margir biðja um hjálp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Braskarar ræða fjárlög

Ekki þarf að efa að braskaralýður Sjálfstæðisflokksins þurfi að ræða fjárlagafrumvarpið, þeir hafa svo óskaplegt vit á slíku. Þá þarf heldur ekki að efa, að braskaralýðurinn í Sjálfstæðisflokknum hafi margt og merkilegt fram að færa í þeirri umræðu því það fólk kann svo undur vel til verka, eins og dæmin sanna, í kúlulánabransanum og öðrum merkilegum peningavísindum.
mbl.is Rætt um fjárlög fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Háskólann í Reykjavík á að legga niður sem fyrst

fool4Fyrir það fyrsta á að leggja þennan svokallaða Háskóla í Reykjavík niður og það strax um næstu mánaðarmót. Ríkið, þ.e. fólkið í landinu, hefur engin efni á að fjármagna einhverskonar háskólafyrirbrigði fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ef Sjálfstæðisflokkurinn vill endilega reka ,,háskóla" þá skal hann gera það algjörlega fyrir eigin reikning en ekki blanda almennum skattgreiðendum inní það drullumall.

Svo má alltaf deila um, hvort réttlætanlegt sé, að afgreiða útúr háskólum ómenntað prófgráðufólk í hundraða tonna tali á hverju ári. Ómenntað prófgráðufólk úr háskólum, er einhver hættlulegasta plága sem steðjað getur að einu þjóðfélagi. Hrunið og undanfari þess var einkar góður prófsteinn á umrædda prófgráðutossa og kom uppum hina blindu og skefjalausu menntadýrkun, þar sem aðaláherslan er magn en ekki gæði.

En eitt er víst: Háskólinn í Reykjavík er dæmi um óþarfa og bruðl, sem nauðsynlegt er að leggja niður sem fyrst.

 


mbl.is Eigum að fjárfesta í nýsköpun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En frú Ingveldur ætlar í prófkjör

full kona5Allt eins er búist við því að frú Ingveldur, eiginkona Kolbeins Kolbeinssonar, muni tilkynna þáttöku sína í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á morgun. Frú Ingveldur nýtur sem kunnugt er mikils fylgis flokksmanna Sjálfstæðisflokksins, einkum þeirra sem eiga mikið undir sér í Flokknum og stundum eru kallaðir þungavigtarmenn. Meðal helstu stuðningsmanna frú Ingveldar má nefna Davíð Oddsson, Gjeir Haaarde, Hannes Hólmstein, Hönnu Birnu Krisjáns, Hrein Loftsson og Illuga Gunnarsson. Sagt er að frú Ingveldur stefni á 2. sæti listans, og að það muni verða henni létt verk að ná settu marki.

Helstu baráttumál frú Ingveldar eru, eins og allir vita, fjölskyldumál,rýmri opnunartími verslana og skemmtistaða, ÁTVR verði lagt niður og kaupmönnum falið að selja áfengið, grunnskólarnir verði einkavæddir, sem leikskólar, kirkjan og lögreglan.


mbl.is Vilhjálmur ekki í prófkjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef Heimdellingur ætlaði að kýla Jóhönnu Sig ...

kona2_875429.jpgMikið óskaplega varð ég glaður þegar ég frétti, að ungur Ítali hafi lagt þorparann Berlúskóna að velli með tæknilegu rothöggi. Þetta glæsilega afrek hins unga manns, þar suðrá Ítalíu, minnir á fátt annað en frægðarverk Rómverja til forna, þegar að minnsta kosti ein hetja var þar á hverjum bæ. Er nú von okkar, að upp sé að renna ný gullöld hjá Rómverjum, fyrst ungir menn af þeim kynstofni víla ekki lengur fyrir sér, að slá forætisráðherra sinn í öngvit úti á víðavangi.

Samt ætla ég að vona, að einhver skítugur og græðgissjúkur Heimdellingur taki ekki uppá, að reyna að rétta Íslenska forsætisráðherranum einn á ranann á förnum vegi. Nú, ef svo illa tækist til, að einhver Heimdellingurinn léti til skarar skríða og æddi með hnefann á lofti að Jóhönnu okkar Sig, er ég hræddur um að gamla konan væri fljót að jafna um helvískan íhaldsungann. Vafalaust myndi hún slá hann svo hressilega utanundir, að það eina sem eftir væri af krypplingnum væri ógeðsleg skítaklessa uppi á næsta vegg.  


mbl.is Sló Berlusconi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins sósíalísk bylting getur frelsað okkur frá auðvaldshyskinu

rev5Mikið þó djöfull er blóðugt að horfa uppá auðvaldshyskið spígspora fram og aftur um lífeyrissjóðina okkar, rétt eins og það eigi þar hvern einasta eyri og hafi sjálft unnið fyrir þeim með eigin höndum. Hvað ætli prumhænsni eins og Ágúst Einarsson og Guðfinna Bjarnadóttir hafi greitt margar krónur í lífeyissjóði verkafólks? Eða Ragnar Önundarson eða Þorkell Sigurlaugsson? Hvað á svona hroðaleg ósvífni að þýða, sem birst hefur í misnotkun auðvaldsins á lífeyrissjóðunum okkar?

Og hvenær eigum við, sem eigum og unnið höfum fyrir peningunum sem eru í lífeyrissjóðunum, að rísa upp og steypa drottnunarsjúklingum auðvaldsins af stóli?; reka hinn gráðuga og þjófótta afætulýð borgarstéttarinnar af höndum okkar? Eigum við að bíða til eilífðarnóns með að gera skyldu okkar gagnvart yfirgangsöflunum? Mega börnin okkar, barnabörnin og þeirra börn bíta í það gallsúra og óæta epli, að standa frammi fyrir því að við höfum verið upp til hópa þeir endemis aumingjar, að hafa ekki drullast til að gera upp við auðvaldið með tveimur hrútshornum, eftir að það siglt þjóðinni fyrir björg?

rev8Það ætti að vera hverjum manni ljóst, að smáskammta-hrossalækningar núverandi auðvaldsflokkakerfis á Íslandi eru og verða einungis til vandræða og stórskaða. Aðeins sósíalísk bylting, sem á rót sína að rekja til verkalýðsstéttarinnar, er líkleg til að reisa Ísland úr rústunum svo sómi sé að. 

 


mbl.is Ágúst Einarsson stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband