Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011
15.1.2011 | 09:34
Kolbeinn Kolbeinsson boðaður til yfirheyrslu
Kolbeinn Kolbeinsson, skrifstofustjóri hefur verið boðaður til yfirheyrslu í húsakynnum sérstaks saksóknara í dag, grunaður um að hafa átt vingott við alræmt fjárglæfrakvendi. Í gær undirbjó Kolbeinn sig fyrir yfirheyrsluna með því að kaupa 12 flösku kassa af stalínískum vodka um leið og ríkið opnaði. Um miðjan dag var hann orðinn svo vel undirbúin að hann söng hástöfum blautleg afmorskvæði, en þá höfðu líka frú Ingveldur, eiginkona hans, og sambýlingarnir, Indriði handreður og Máría borgargagn, bæst í hópinn til að aðstoða Kolbein við undirbúninginn. Um kvöldmatarleytið var lögreglan kölluð að heimili Kolbeins og frú Ingveldar til að stilla til friðar, því kastast hafði í kekki hjá undibúningsnefndinni. Klukkan 22:00 var lögreglan kölluð öðru sinni á staðinn, en þá höfðu Kolbeinn og Máría borgargagn læst sig inná klósetti og harðneituðu að opna, en frú Ingveldur og Indrið handreður orðin svo drukkin að þau höfðu ekki afl til að sprengja upp hurðina. Um miðnætti trompaðist Kolbeinn algjörlega þegar Indriði handreður fór að bjástra við að gyrða niðrum hann, en skömmu áður höfðu frú Ingveldur og Máría borgargagn látið sig hverfa saman inní fataskáp.
Litlu síðar lauk undirbúningsprógramminu með því að lögreglan leiddi fjórmenningana úr húsi og kom þeim fyrir á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Eftir hálftíma, kl.10:00, verður Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri færður til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara og þá mun koma í ljós hvort undirbúningurinn í gær muni skila Kolbeini þeim fádæma góða árangri sem hann ætlast til.
Einsýnt að fleiri verði yfirheyrðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2011 | 01:12
Á Hrauninu, - með gati
hoppaði eins og kengúra.
Hann vildi bara húka í horninu,
svo þeir létu hann í kriglóttan gúmmíklefa,
- með gati.
Á Hraunið eftir yfirheyrslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.1.2011 | 13:32
Þegar þarfanautið Napóleon var gerður að heimilisdýrlingi
Hið kátlega uppátæki kattólikkanna, að gera Jóhannes páfagauk II. að dýrlingi minnir mann einna helst á þegar fólkið á Varmastöðum gerði þarfanautið Napóleón að heimilisdýrlingi eftir að hafa skotið hann til bana og étið hann eins og soltnir úlfar.
Hafi hinn burtsofnaði páfagaukur gert einhver kraftaverk þá hafa þau verið framin á vettvangi spilagaldra og pókersvindls, lengra hefur sá góði pólski páfagaukur ekki náð á sviði kraftaverka.
En peðfullir kattóskir kirkjuhöfingjar eru glaðsinna menn; þegar þá langar í fleiri dýrlinga þá búa þeir til fleiri dýrlinga og halda uppá það með hressilegri svallveislu þar sem áfengi og kvenfólk er haft við hönd.
Páfi gerður að dýrlingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2011 | 12:49
Hvað eru þessi gerpi að kenna sig við alþýðu ?
Það er ótrúlegt, og um leið forkastanlegt, að skítseyðin sem hreiðrað hafa um sig á kontórum ASÍ og aðildarfélaga þess, skuli voga sér að kvarta og kveina undan því að alþýðan á Íslandi skuli ekki vera látin borga Icesaveglæpinn orðalaust í stað þess að fá að komast upp með að neita að taka ábyrgð á gjörðum nokkurra kapítalískra glæpamanna. Ekki veit ég hvernig verkalýðsforstjórinn, Gylfi Arnbjörnsson og hans nótar, hafa komist að því að íslensk alþýða hafi skaðað ímynd Íslands og stöðu þess á alþjóðavettvangi með því að standa í lappirnar gagnvart fullkominni glæpamennsku. Það má vel vera að Gylfi og félagar taki ólund einhverra hákapítalískra ESB-siðleysingja fram yfir reisn alþýðufólks á Íslandi, en þeir ættu þá að hafa vit á að halda kjafti yfir þeirri ómennsku sinni á opinberum vettvangi.
Það er ljóst að ruslið, sem tekið hefur almennu verkalýðshreyfinguna í gíslingu, óhikað að því að endurreisa Gamla Ísland í samvinnu við atvinnurekendur, fjármagnseigendur, Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn og ríkisstjórnina, þvert ofaní vilja alðýðunnar sem brauðfæðir þessa aumingja.
ASÍ: Stefnan í Icesave hefur skaðað stöðu Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2011 | 11:30
Sá stutti gnarraður fyrir að ætla að fá allt fyrir ekkert
Það má með sanni segja að sá stutti með skólatöskuna hafi verið gnarraður þegar hann reyndi að ryðjast inní strætisvagninn án þess að eiga fyrir fargjaldinu. Þetta ljota athæfi stráksins minnir einna helst á 2007 þegar spjátrungarnir fengu allt fyrir ekkert og þegar Jón Baldvin hélt því fram á túnda áratug síðustu aldar að með EES smaningnum fengju Íslendingar allt fyrir ekkert. Nú, þetta ,,allt fyrir ekkert" hjá Jóni Baldvini og frjálshyggjuspjátrungunum endaði eins og það endaði: við fengum efnahagshrun, fjármálafyrirtækin fóru til andskotans og öllu var stolið sem hægt var að stela, þar á meðal rjálfsvirðingu og reisn íslensku þjóðarinnar. Það kallar maður sko, að fá allt fyrir ekkert !
En þar gott til þess að vita, sannkallað ljós í stórhríð og myrkri, að gnörrin í bæjarstjórn Reykjavíkur hafi ákveðið að taka á grunnskólapiltum sem ætlast til þess að fá far með strætisvagni fyrir 100 kall.
Níu ára barni með skólatösku vísað úr strætó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.1.2011 | 10:33
Sérstakur saksóknari braut barnaverndarlög. Hvað gerir hann næst ?
Hann er grobbin í dag þessi sérstaki saksóknari, enda hefur hann fengið útrás ómennsku sinnar með því að ráðast á saklausan fyrrverandi bankastjóra með óbótaskömmum og frelsissviptingu. Okkur er enn í fersku minni þegar þessi ,,sérstaki" veittist að litlum dreng, Hreiðari Má Sigurðarsyni, síðastliðið sumar á álíka fólskulegan hátt og lét loka hann inni á Litla-Hrauni í viku. En hinum ,,sérstaka" virðist leyfast allt, meira að segja kemst hann upp með að brjóta barnaverndarlög eins og gerðist í tilfelli Hreiðars Más.
Mér kæmi ekki á óvart þó Ólafur Þór léti handtaka Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra í dag og hneppti þau í gæsluvarðhald vegna áráttu þeirra í að láta almenning borga Icesave, selja Ísland til Brussel, gæla við botninn á AGS, verja kvótabófana og fleygja milljörðum í gjaldþrota fjármálafyrirtæki og tryggingafélög.
Gæsluvarðhaldskrafa tekin fyrir í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2011 | 09:37
Mótmælastaða og aðgerðir til að frelsa Sigurjón fyrrverandi bankastjóra
Eflaust er mikið spáð og spekúlerað þessa stundina um handtöku Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra. Og satt að segja kemur þessi handtaka eins og reiðarslag yfir þjóðina, þó svo að eflaust séu til illa innrættir menn sem fyllast innilegri þórðargleði við að heyra þessa frétt og í framhaldi af því að fimbulfamba í heimskuþrunginni illgirni sínni um réttlæti og vel unnið verk sérstaks saksóknara.
Ekki veit ég hvað unnið er með því að siga lögreglunni á jafn myndarlegan og gáfaðan mann eins og Sigurjón Þ. fyrrverandi bankastjóra, nema ef vera skyldi að skemmta Skrattanum og litlu skröttunum sem þrífast á andstyggilegum kjaftasögum og óförum annarra.
Nú ríður á að fólk standi saman og mótmæli handtöku Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra. Ég heimta að boðað verði til útifundar í hádeginu í dag fyrir framan lögreglustöðina við Hverfisgötu og fólk mæti þar þúsundum saman með barefli, axir og helst skotvopn, geri árás og frelsi Sigurjón.
Lögregla flutti Sigurjón brott | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.1.2011 | 17:42
Góða Konan auglýsir ótakmarkaða hjartagæsku sína
Hún veit hvernig hún á að auglýsa sig, blessuð Góða Konan í Fjölskylduhjálpinni, enda er góðmennsku hennar engin takmörk sett og varla verra að gera útá fátæklinga en annað í dýrðarríki frjálshyggjunnar. Það er auðvitað gráupplagt og alveg nauðsynlegt, þrátt fyrir að það sé í blóra við kenningar litla sóíalistans frá Nasaret, að láta alla vita um ótakmarkaða gjafmildi sína, góðan hug; það gerðu Björgólfur og Jóhannes í Bónus og þeirra líkar með frábærum árangri á meðan þeir skófu og sleiktu banka og fyrirtæki að innan þangað til minna en ekki neitt var eftir.
Og nú er Góða Konan í Fjölskylduhjálpinni farin að bjástra við útrás eins og Bjöggarnir, Bakkabræður og Hannes Smára, og ætlar að opna góðgerðarstöð, sjálfri sér til dýrðar, í Grundarfirði. Reyndar botna bæjarstjórar, bæjarstjórnarmenn, prestar og félagsþjónustan á Snæfellsnesi ekkert í innrás Góðu Konunnar á Snæfellsnes og hafa á orði að segja af sér ef rétt reynist að Góða Konan hafi rétt fyrir sér með að á Snæfellsnesi búi tötrum klæddir íbúarnir við hugursneyð.
En þó að Góðu Konunni liggi mikið á að básúna umhyggju sína fyrir efnalitlu fólki, er svo komið að varla verður undan vikist að rannsaka stafsemi hennar. Of yfirvöld á Snæfellsnesi verða að bretta upp ermar og kanna ofaní kjölinn hvort ástandið á Nesinu sé með þeim hætti að bráðnauðsynlegt sé að starfrækja ölmusugjafaþjónustu í Grundarfirði.
Segir áform Fjölskylduhjálpar undarleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.1.2011 kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.1.2011 | 10:19
Í embættisskrúða frá Dressmann
Okkar ástkæri stjörnusýslumaður, Stones á Selfossi, var ekki seinn á sér, þegar spurðist út að Mick Jagger og félagar væru farnir að auglýsa föt fyrir Dressmann, að láta Dressmennina sauma á sig sýslumannsskrúða með gullslegnum hnöppum, strípum, snúrum og skúfum. Það er mál manna sem til þekkja, að stjörnusýslumaðurinn hafi allur færst í aukanna við að uppræta glæpamenn í Árnessýslu eftir að hann fékk dressmannúníformið og var hann þó vel virkur fyrir á þeim vettvangi. Síðast í gær elti hann uppi konu á Selfossi, sem hann hugði að hefði verið að stunda búðahnupl, og rassskellti hana svo verklega á bert rassgatið úti á miðri götu að hún gat með naumindum skriðið heim til sín á eftir. Og vitanlega var stjörnusýslumaðurinn í fullum skrúða frá Dressmann þegar hann embættaði konuna þarna úti á miðju stræti.
Það er nú von allra velmeinandi manna, að glæpajúðar allrahanda hugsi sig tvisvar til þrisvar um áðurn en þeir leggja í að fremja glæpaveknað í Árnessýslu, því sýslumaðurinn þar er ekkert lamb við að leika og lætur ekki að sér hæða eftir að hann kom sér upp embættisskrúða frá Dressmann.
Rolling Stones auglýsa Dressmann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.1.2011 | 18:51
Siðlaus formaður, eigandi hans og frjálshyggjuglæpamennirnir
Ætli sé ekki best að Steingrímur og eigandi hans, Svavar Gestsson, ásamt frjálshyggjuglæpamönnunum, borgi einir og óstuddir Icesave-glæpinn úr eigin vösum. Það er gjörsamlega útí hött að saklaus almenningur þurfi að borga milljarða á milljarða ofan fyrir glæp sem hann á enga aðild að.
Það er stórmerkilegt að maður sem gegnir embætti formanns ,,vinstrihreyfingar" sem hann hefur löngum reynt að telja fólki trú um að sé afskaplega langt til vinstri, berjist með oddi og egg fyrir því að íslensk alþýða fjármagni svæsin glæp samviskulausra kapítalista. Mér finnst það benda til að siðferði slíks formanns sé að einhverju leyti sorglega ábótavant.
Ég verð með hverjum deginum sannfærðari um að það eina sem getur bjargað okkur frá endurreisn Gamla Frjálshyggju-Íslands er bylting.
Greiða þarf 26,1 milljarð vegna Icesave í ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 3
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 225
- Frá upphafi: 1539535
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 195
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007