Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2011
19.11.2011 | 15:24
Saklausum manni varpað á dyr og honum misþyrmt
Rétt viðbrögð við bankahruni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.11.2011 | 06:46
Landsfundarfulltrúar gera upp sakir sín á milli
Það eru naumast andskotans lætin í landsfundafulltrúum Sjálfstæðisflokksins; aka eins og brjálæðingar útum allan bæ skjótandi hverjir á aðra úr haglabyssum útaf einhverri nauðaómerkilegri innanbúðarspillingu. Það væri réttast að senda þessa karla vestur um haf, til Mexico, þar sem þeir plaffað sig niður að vild án þess að nokkur skipti sé af því.
Það er helst af landsfundi Sjálfstæðisflokksins að segja, að þegar allir stóðu upp með tárin í augunum að lokinni setningarræðu Bjarna, réði frú Ingveldur ekki við sig og greip báðum höndum um rassakinnarnar á manninum sem stóð fyrir framan hana og sneri þéttingsfast uppá. Maðurinn, sem er vænn kvótagreifi, hokinn af áhyggjum og auðsæld, sperrtist allur upp er hann fann hendur frú Ingveldar á þjóhnöppum sínum og fékk samstundis nærbuxnapínu sem entist honum langt fram á nótt. Og í gærmorgun sló Máría borgargagn einn karlkyns landsfundarfulltrúa utanundir fyrir ónærgætin klámmunnsöfnuð í viðurvist heiðarlegar konu.
Handtökur vegna skotárásar | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.11.2011 | 10:17
Logandi kyndill og vindill Clintons
Ég er viss um að frú Clinton hefði hlegið jafnmikið, ef fáklæddi strákurinn hefði haldið á logandi vindli. Enda leika logandi vindlar stórt hlutverk í hamingju Clintonhjónanna og frú Clinton hefur sennilega séð stóran vindil í kyndlinum stráksins.
En hvað ætli hafi orðið af Móníku vindlastelpu, sem lifgaði gamla Clinton svo vel upp hér um árið? Er hún máske týnd og trölli gefin í einhverju andstyggilegu hjónabandi? Ætli hún hafi ekkert heimsókt Barrakk Óbama í Hvíta húsið? Hann reykir sígarettur. Það held ég væri gaman fyrir Barrakk og Móníku að taka einn smá sígarettublús við huggulegt tækifæri.
Hló að hálfnöktum karlmanni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2011 | 08:48
Tóku daginn snemma
Frú Ingveldur og Máría borgargagn, vinkona hennar, tóku daginn snemma í dag, voru komnar á ról um fjögurleytið og farnar að undirbúa sig fyrir landsfund Flokksins af miklum krafti. Undirbúningur þeirra stallsystra hófst með þremur hvítvínsglösum og góðum slurk af hvítu dufti, ættuðu frá Kólumbíu. Að svo búnu hófu þær lestur á fyrirliggjandi landsfundargögnum og skemmta sér vel yfir þeim þessa stundina, að því er fram kemur á feisbúkksíðu Kolbeins Kolbeinssonar.
Eftir hádegi ætla frú Ingveldur og Máría borgargagn að heimsækja nokkrar knæpur í Reykjavík í leit að góðum inspírasjónum fyrir landsfundinn. Í kvöld má gera ráð fyrir að karlkyns landsfundarfulltrúar muni beina sínum karllægu sjónum að þessum tveimur frábæru konum, snúast kringum þær með væmnu lostabrosi, þess albúnir að leiða þær afsíðis til að komast í nánara samband við þær.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.11.2011 | 07:39
Ófagurt vitni um spillta hugsun og heilaþvott
Vilja Hönnu Birnu sem forsætisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.11.2011 | 20:39
Hver verður miðaldabyskubb við miðaldakyrkju Icelandair?
Þetta er nú aldeilis gott verkefni fyrir hann Árna okkar Johnsen. Við skulum vera viss um, að hann einhendir sér að fullum krafti í að rífa miðaldakirkjuna uppúr jörðu eftir að hann er búinn að smíða hrútakofann þarna í Skálholti.
Nú, svo þarf að finna alminnilegan byskub fyrir miðaldakirkjuna svo hægt verði að sýna hana ferðamönnum. Samkvæmt almannavilja koma aðein þrír einstaklingar til greina til að taka vígslu til þessa veigamikla embættis, en það eru: Guðni Ágústsson, Bjarni bóksali og Stjörnusýslumaðurinn Stones á Selfossi. Auðvitað er afar erfitt að velja milli þessara heiðursmanna, en ljóst er að hver þeirra gæti gengt embætti miðaldabyskubs í Skálholti með einstökum sóma.
Ef ekki næst samkomulag um einhvern ofangreindra þremenninga, væri skynsamlegast að kalla saman nefnd særingamanna og láta þá freista þess að vekja Brynjólf byskub upp frá dauðum, eða Jón Vidalín, eða Þollák byskub helga, sem rak búðin, sem faðir Árni og hans kapelánar eru að endurreisa þessa dagana og óráðvandir menn halda fram að hafi verið hrútakofi.
Miðaldakirkja rísi í Skálholti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.11.2011 | 18:21
Lýsti síðdegis yfir stuðningi við Hönnu Birnu
Mikið ógurlega er nú hún Hanna Birna sprenglærð kona. Það sést best á því að hún kann að segja, ,,kerfið þenst út" og ,, þar skorti alla pólitíska sýn" eins og ekki neitt og sleikir meira að segja útum á eftir eins og dáindisvel alinn fressköttur, sem er nýbúinn að éta skógarþröst og drekka heilan líter af rjóma á eftir.
Og ekki er að undra, að Hanna Birna sé vel að sér, enda nam hún fræðin í Valhöllu við kné Kjartans Gunnarsonar, auk þess sem hún er mjög vel að sér í Hanezi Holmsteiner, herra Pé. Blöndal og Tryggva Þór Herbertssyni. Það er ekki amalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fá svo víðlesna og marggáfaða konu fyrir formann eftir nokkra daga.
Þá gerðist sá ánægjulegi atburður nú síðdegis, að frú Ingveldur lýsti yfir hugheilum stuðningi við Hönnu Birnu til formanns Sjálfstæðisflokksins. En stuðningur frú Ingveldar er náttúrlega algjör hvalreki fyrir Hönnu Birnu, því vandfundinn er er betri stuðningsmaður en frú Ingveldur. Að vísu var frú Ingveldur nokkuð við skál þegar hún lýsti yfir fyrrnefndum stuðningi, en vó ástand sitt upp með ferskum hressileika og jákvæðni. Það skyggir samt nokkuð á gleði manna í stuðningsliði Hönnu Birnu, að sjálfstæðiskonan Máría borgargagn hefur verið ófáanleg fram að þessu, að veita Hönnu Birnu liðveislu í fegurðarsamkeppninni við Bjarna Ben, þann endemis durt og grátsöngvara.
Og ekki mun linast kjökur Bjarna þegar talið verður uppúr kjörkassanum í Valhöllu.
Meirihlutann skortir sýn og stefnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2011 | 14:52
Ráð gegn verðandi mæðrum liggja ekki á glámbekk
Það er ljóti þjóðflokkurinn þessar ,,verðandi mæður" og lítt til fyrirmyndar. Það er svo sem ekkert nýtt, að þetta fólk liggi undir grun um að hafa eitt og annað óhreint í pokanum, enda hafa afkomendur þeirra sannað með tiltektum sínum ófögrum, að nefdur grunur hafi við gild rök að styðjast. Og löngum hefur því verið trúað á umræddan þjóðflokk, að hann reyki, drekki og éti eins og svín á meðgöngunni, og hagi sér öllu leyti afkáralega og svívirðilega.
Og nú kveður Valgerður Lísa Sigurðardóttir uppúr með, að verðandi mæður bryðji rítalín í gríð og erg og takist með því móti að redobla aðrar nautnir sínar uppfyrir hæstu ský. Svo fæðast blessuð börnin í heiminn með yglibrún og mannhatur í augum, þess albúin að herja á samferðarfólk sitt við öll tækifæri með bölvi, grjótkasti og bankahruni.
Það er augljóst, að brýn nauðsyn er til að bregðast við verðandi mæðrum, þó ekki væri nema af þjóðfélagslegum velferðarsökum. Hinsvegar liggja liggja ráð gegn þeim ekki á glámbekk, fremur en ráð gegn klámorgíusýki og nærbuxnafémínísma.
Þegar Máría borgargagn var á sínum tíma ófrísk að þessum tveimur krökkum, sem einhverjum ódrætti tókst að galdra inní hana, færðist hún öll í aukanna og hoppaði daglega kloflengd sína uppí loftið. Auk þess svelgdi hún í sig tóbaki, kannabis, brendum drykkjum, feitu kjéti, ódæmum af sykri, amfetamíni og diezapami. En hún var samt það vönd að virðingu sinni, að hún snerti ekki við rítalíni meðan hún var barnshafandi, nokkuð sem verðandi mæður dagsins í dag víla ekki fyrir sér að gera, ef marka má orð Valgerðar Lísu Sigurðardóttur, ljósmóður hjá mæðravernd LSH.
Rítalínmisnotkun á meðgöngu eykst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2011 | 11:20
Sú var tíðin ...
Sú var tíðin, að Indriði handreður og félagar hans, vættu baðmullarhnoðra uppúr kogespritti og stungu þeim rennvotum uppí rassinn á sér, sjáfum sér til gottgjörelsis en einnig í sparnaðarskyni. Og blessuð áhrifin létu heldur ekki á sér standa: þeir urðu drullufullir á augabragði, böðuðu út öllum öngum og fóru að syngja ,,Kátir vóru karlar" og ,,Frammi í dalanna ró."
Eftir að Máría borgargagn kynntist Indriða sínum handreði, tók hún þennan sið upp eftir honum með fjarska góðum árangri. En það var einmitt í einni svona kogesprittsveislu, sem Indriði ljóðaði eftirfarandi á Máríu: ,,Elsku hjartans ástargull, ósköp er ég af þér snortin. Aldrei skítug aldrei full, alveg ertu rétta sortin." Af þessu má ráða, að framtíð áfengisneyslu liggur í tíðatöppum og baðmullarhnoðrum, vættum í brennivíni, volka og kogga.
Væta tíðatappa upp úr vodka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2011 | 10:52
Landsfundartillögur frú Ingveldar
Að sjálfsögðu vill Sjálfstæðisflokkurinn leggja jöfnunarsjóð sveitarfélaga niður, því Sjálfstæðisflokkurinn er án skilyrða ójafnaðarflokkur og liðsmenn hans ójafnaðarmenn að öllu leyti. Þess vegna kemur þessi tillaga engum á óvart.
Þá hefur hin þróttmikla sjálfstæðiskona og háttvirtur landsfundarfulltrúi, frú Ingveldur, samið nokkrar ágætar þjóðþrifatillögur, sem hún mun leggja fyrir landsfund flokksins um næstu helgi. Þar bera hæst tillögur hennar um að heilbrigðis- og menntakerfið verði einkavætt undir eins og Sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur í ríkisstjórn. Þá ætlar frú Ingveldur að leggja til, að atvinnuleysistryggingasjóður verði lagður niður, því hún telur að ríkið eigi ekki að moka dýrmætum péníngum í atvinnulausa aumingja, sem engum öðrum geti um kennt að vera atvinnulausir nema sjáfum sér. Ennfremur mun frú Ingveldur bera upp tillögu þess efnis, að áfengisgjald ríkisins verði aflagt með öllu, ÁTVR verði lagt niður og matvöruverslunum, og jafnvel herrafataverlunum, verði falið að sjá um alla áfengissölu. En síðast en ekki síst, ætlar frú Ingveldur að leggja til við landsfundinn, að nektardans verði leyfður að nýju og vændi verði lögformleg atvinnugrein og þeir sem þá vinnu stundi fái lögvernduð starfsheitin vændismaður og vændiskona.
Ef ég þekki sjálfstæðismenn rétt, munu þeir samþykkja allar tillögur frú Ingveldar með lófataki, blísti og fótastappi.
Vilja leggja niður Jöfnunarsjóð sveitarfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 57
- Sl. sólarhring: 132
- Sl. viku: 215
- Frá upphafi: 1539498
Annað
- Innlit í dag: 49
- Innlit sl. viku: 183
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 48
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007