Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011
31.12.2011 | 12:19
Farin að minna á geðlausar lurður
Ég er sammála Guðfríði Lilju með það að brottrekstur Jóns Bjarnasonar úr ríkisstjórn eru mikil mistök þeirra sem að honum stóðu, og auðvitað var Jón beittur ógeðfelldum rangindum. Ef Jón hefði verið auðsveipur Jóhönnu og Steigrími í ESB-málinu væri hann örugglega enn ráðherra. En Jón fékk að gjalda skoðanna sinna, sem um leið er stefna flokksins sem hann starfar fyrir, og því fór sem fór. Þetta er afar sorgleg niðurstaða og til skammar fyrir forystu VG.
En það er líka stórundarlegt hvað fólk eins og Guðfríður Lilja, - já, og Ögmundur Jónasson, - geta látið bjóða sér. Þau eru satt að segja farin að minna óþyrmilega á geðlausar lurður án nokkurrar pólitískrar reisnar. Skilur þetta fólk ekki að VG er búið spil og að ríkisstjórnin sem þau fórna öllu fyrir er púra hægristjórn?
Mín nýársósk er, að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason taki sig saman í andlitinu og yfirgefi VG og ríkisstjórnina og gangi til liðs við alþýðuna í landinu. Hafi þau ekki kjark til þess, bíður þeirra fátt annað pólitísk niðurlæging í fangi auðvaldsins, óréttlætisins og rangsleitninnar. Þeirra er völin.
Mér finnst þetta rangt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.12.2011 | 21:01
VG-liðar eiga að reka Steingrím J. úr flokknum
Steingrímur J. Sigfússon lýgur því blákalt, að brottrekstur Jón Bjarnasonar tengist ekki Evrópusambandsumsókninni. Það er hreinn viðbjóður að horfa uppá svona málatilbúnað og það sé ráðherra í þokkabót og flokksformaður sem leyfir sér svona hræsni og lygaþvætting.
Steingrímur J. Sigfússon hefur afrekað það að flæma þrjá þingmenn VG úr flokknum a tiltölulega stuttum tíma, og tveir eða þrír í viðbót sitja klofvega á borðstokknum. Þess utan er fylgu VG í frjálsu falli, stefnumál og hugsjónir sviknar, auk þess sem formaðurinn hefur einungis verið formaður hluta flokksins, á hina hefur hann litið á sem andstæðinga sína og ekkert viljað af þeim vita.
Það vita allir hvað gert er við skipstjóra sem missir hluta af skipshöfn sinni í sjóinn sökum óaðgæslu og hroka og fær auk þess ekki bröndu úr sjó. Þessháttar skipstjóri er auðvitað rekinn áður enn honum tækist að gera meira af sér, svo sem eins og að sökkva skipinu með manni og mús og setja útgerðina á hausinn. Að minnsta kosti væru vinir Steingríms í Samherja fljótir að reka slíka skipstjórnarmenn af skipum sínum.
Svo væri gott fyrir samfylkingarfólk að gera sér grein fyrir, að brotthvarf Árna Páls tengist að hluta þeirri staðreynd að hann fer svo mikið í taugarnar á Steingrími, á sama hátt Jóhanna Sig þolir ekki Jón Bjarnason. Árni Páll er nefnilega að gjalda þess nú, að hann var stuðningsmaður Ólafs Ragnars í Alþýðubaneingrími dalaginu sáluga.
Ef félagar í VG gera ekki uppreisn gegn Steingrími og reka hann úr flokknum, mun Vinstrihreyfingin grænt framboð heyra sögunni til innan nokkurra missera.
Tengist ekki Evrópumálunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.12.2011 | 17:12
Yfirvofandi andlát Hreyfingarinnar ofaní fjórflokksdíki ríkisstjórnar
Ætli sé ekki bara farsælast að Hreyfingin andist þegjandi og hljóðalaust inní ríkisstjórnina? Það myndi þó skýra línurnar örlítið hvað varðar baráttuna gegn samtryggingu fjórflokksvaldsins. Ég efast ekki um að Hreyfingarliðar eiga samleið með Steingrími, Jóhönnu, Össuri og Álfheiði Ingadóttur, enda nægilega hægrisinnaðir til að mala og kumra í fanginu á slíku heiðursfólki.
Og það sannast hér enn sem áður, að ,,Júdasar líkar lenda leiksbróður sínum hjá", eins og Hallgrímur sálugi Pétursson segir í Passíusálmum sínum.
Eiga samleið með stjórninni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.12.2011 | 14:06
Smá-ópíum í rassinn á almenningi
Jæja já, - gaman gaman. Það er nefnilega það.
Svo Steingrímur og Jóhanna hafa í huga að nota hreyfingarfólkið fyrir smá-ópíum í rassinn á almenningi. Það var viðbúið.
Og hreyfingarliðar tilbúnir tilbúnir til að flikka uppá endurreisn Gamla Íslands, - náttúrlega út frá stefnuskrá Hreyfingarinnar. Nema hvað?
Það er áreiðanlega fjarska gaman að taka þátt í svona skeinisblaðapólitík.
Og þegar Steingrímur og Jóhanna verða búin að farða á sér nefin með Hreyfingunni, verða Birgitta, Þór og Margrét loksins komin í eina sæng aftur með Þráni Bertelssyni. Það er því til mikils að vinna fyrir þau, blessuð.
Í viðræðum við ríkisstjórnina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.12.2011 | 13:28
Helmingurinn lygi, hitt allt eintóm svik
Það er greinilega ekki mikill vilji hjá ríkisstjórninni til að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu svo einhverju nemi, fyrst að erkikvótasinnarnir Kristján Möller og Björn Valur eru kallaðir til af kvótakarlinum Guðbjarti Hannessyni og kvótakerlingunni Katrínu Jakobsdóttur. Þetta kallar maður nú að gefa kjósendum fokkmerki á tyknesku.
Það væri lang heiðarlegast af ríkisstjórnarflokkunum að hætta þessum leikaraskap og lýsa því yfir að engu verði breytt varðandi stjórnun fiskveiða, enda hefur ekkert slíkt staðið til af hálfu stjórnarinnar frá upphafi. Allt tal um breytingar af hálfu þessa fólks, hvað þá gjörbreytingu, á kvótakefinu, var einugnis ómerkilegt loforðasnakk sem aldrei átti að standa við; helmingurinn af fiskveiðiloforðum Samfylkingarinnar og VG voru semsé nefnilega skotheld lygi en hinn helmingurinn eintóm svik.
Varðandi fiskveiðistjórnunarmál er Fjórflokkurinn samstiga frá upphafi til enda. Í þeim efnum eru Steingrímur J., Bjarni Ben, Sigmundur Davíð, Jóhanna Sig, Þorsteinn Már, Friðrik Jón, Vilhjálmur Egilsson og Gylfi Arnbjörnsson samherjar.
Það er í senn bæði sorglegt og hlálegt, að núverandi ríkisstjórnarflokkar voru kosnir af fólkinu til að skapa nýtt Ísland, en í stað þess endurreisti ríkisstjórnin Gamla Ísland!
Unnið að forsendum fyrir nýju frumvarpi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2011 | 20:37
Ógeðfelld góðverk
Í mínum augum er það ógeðfelld ófyrirleitni og niðurlæging fyrir land og þjóð þegar fyrirtæki, sem sópað hefur af sér aflaheimildum landsmanna á vafasaman hátt, og lýtur forystu fyrrverandi stjórnarformanns Glitnisbanka, tekur sig til og purðar tugum milljóna í ,,góðverk" á sínu heimasvæði. Það er full ástæða til að vara fólk við ,,góðmennsku" af þessu tagi og taka þau ekki góð og gild. Því að með svona gjöfum eru hinir gjafmildu auðherrar fyrst og fremst að blekkja alþýðu manna í því skyni að auðvelda sér að deila og drottna yfir henni.
Vonska auðmanna er slæm, en góðmennska þeirra er jafnvel verri, því hún er gjarnan knúin áfram af græðgi og óendanlegri hræsni.
Og félagi Ólafur Ragnar Grímsson á auðvitað ekki að láta sjá sig á góðgerðarsamkomum Samherja né annarra slíkra. Það er smekkleysa ad hálfu forseta Íslands.
Samherji gefur 75 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.12.2011 | 20:49
Mistök að hafa ekki hrakið verkalýðsforstjórana frá völdum
Hver á nú að taka mark á syfjulegu umlinu í verkalýðsforstjóranum Sigurði Bessasyni, í ljósi þess að hann og hinir verkalýðsforstjórarnir tóku fullan þátt í frjálshyggjufirringunni sem að lokum lagði efnahagskerfi þjóðarinnar á hliðina? Það er ennfremur í minnum haft þegar verkalýðsforstjórarnir skriðu eins og hverjir aðrir blauðir auðvaldsrakkar undir borð þegar alþýða manna blés til mótmæla gegn fjárglæframafíunni, sem lauk með því að ríkisstjórn verkalýðsforstjóranna hrökklaðist frá völdum.
Það voru hinsvegar stór mistök í búsáhaldabyltingunni að hafa ekki rekið verkalýðsforstjórana frá völdum eins og vini þeirra í Sjálfstæðisflokknum.
Getum ekki sætt okkur við atvinnuleysið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.12.2011 | 20:09
Verðandi tengdadóttir Íslands
Þetta hjónaband Sínedu Ó. Konnor er vægast sagt dularfullt, svo ekki sé meira sagt. Að skilja eftir 16 daga frá hjónavígslu er aldeilis nóg af svo góðu. Það hlýtur einhver andskotinn að hafa verið ónormal í þessu sambandi. Kanske hefur kynvilla verið með í spilinu, - hver veit? Annað eins hefur víst gerst. Þessi Herridge-náungi hefur að minnsta kosti komið manni fyrir sjónir eins og hann hafi eitt og annað miður geðslegt í pokanum. Svo getur verið að helvítis beinið sé haldinn merargirnd, en ef svo fer málið aldeilis að vandast. Slíkir þokkapiltar eiga stundum til að barna ellefta boðorðið með því að taka venjulegann kvennmann frillutaki og giftast honum með pompi og prakt. Svo kemur náttúrlega hið rétta í ljós og þar með er hjónabandinu samstundis lokið eins og gefur að skilja.
En góðu fréttirnar eru, að nú er Síneda Ó. Konnor á lausu og hvet ég því alla íslenska karla á sæmilegum giftingaraldri, að taka sig nú saman í andlitinu og fara á fjörurnar við Sínedu, því hún alveg upplögð sem tengdadóttir Íslands.
Skilin eftir 16 daga hjónaband | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.12.2011 | 19:22
Þegar ein báran rís, er önnur, þriðja, fjórða og fimmta vís
Ekki er það efnilegt hjá blessaðri manneskjunni henni Ónordal. Það er eins og ólánið ætli ekki af henni að ganga. En sumir virðast ekki geta stigið hænufet öðruvísi en að flækja sig í buxunum og velta útaf eins og karöflupoki. Fyrst lendir Ónordal í því að vera kosin til Alþingis fyrir einhver hræðilegustu samtök þjóðarinnar, þar næst gera þeir hana að varaformanni samtakanna og loks hverfur Tómás hennar úr landi eins og hver önnur súrálssletta. Verra getur það ekki orðið fyrir eina saklausa konukind. Og hefur nú sannast grátlega á frú Ónordal, að þegar ein báran rís er önnnur, þriðja, fjórða og fimmta vís.
Einusinni þaut Kolbeinn Kolbeinsson úr landi ásamt Indriða handreði og settust þeir að í Hamborg í Þýskalandi. Þar kváðust þeir hafa vellaunuð verk að vinna og báði konur sínar að hafa sig afsakaða um stundarsakir og brýndu fyrir þeim, áður en þeir fóru af landi brott, að haga sér skikkanlega og passa sérstaklega vel á karlkyninu, sem væri til alls líklegt eins og venjulega.
Segir ekki af okkar mönnum meir fyrr en þeir birtast mánuði síðar á Keflavíkurflugvelli, rauðþrútnir í framan og illa til reika, og með pappíra í fórum sínum, sem hljóðuðu uppá 5 milljón króna skuld við fyrirtæki eitt við Herbertsstrasse í Hamborg. Og svo varð ríkisstofnunuin, sem Kolbeinn er skrifstofustjóri hjá, að borga reikninginn ásamt því að biðja frúna, sem veitir fyrirtækinu í Herbertsstrasse, fyrirgefningar á framkomu þeirra félaga og óskilvísi.
Býr áfram á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.12.2011 | 11:29
Gluggagægir rotaður í Reykjavík
Já. Það hefur löngum verið vitað að Gluggagægir ræfilinn væri haldin sjúklegu óeðli. Enda liggja ekki aðrir en stórbilaðir menn á gluggum og glápa inní hús með frygðarglampa í augum. Af þessháttar iðju eru, því miður, margar ljótar sögur, sem sumar hafa endað með skelfingu.
Einusinn lá Gluggagægir á herbergisglugga frú Ingveldar þegar hún var í mestu makindum að máta allrahanda falleg og eggjandi undirföt. Hún varð vör við að einhver var að stara innum gluggann til að fylgjast með henni. Og eins og fyrri daginn var frú Ingveldur fljót að hugsa, greip stóra og þunga eirstyttu og stakk henni af heljaraflu útum rúðuna og beint framaná trýni Gluggagægis, sem hné undir eins niður, dauðrotaður og blóðugur. Síðar kom í ljós, að hann var með opna buxnaklauf og nærbuxnalaus. Það þótti sýna betur en nokkuð annað í hvaða tilgangi menn taka uppá að stunda gluggagægjur.
Gluggagægir handtekinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 60
- Sl. sólarhring: 134
- Sl. viku: 218
- Frá upphafi: 1539501
Annað
- Innlit í dag: 52
- Innlit sl. viku: 186
- Gestir í dag: 52
- IP-tölur í dag: 51
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007