Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011
27.12.2011 | 11:00
Hinn sanni framsóknarandi kaupfélagsins
Það er ánægjulegt að hinn sanni framsóknarandi kaupfélagsins á Sauðárkróki hafi svifið yfir vötnum á skemmtistaðnum Mælifelli í nótt. Og víst er að gamla Framsóknarmaddaman hefur glaðst óumræðilega þegar hún frétti af umsvifum sinna manna þarna á Mælifelli, slegið sér á lær og sagt: ,,Þeir eru sannarlega gifturíkir húskarlar mínir á Sauðárkróki, nú sem endranær."
Svo hafa heyrst óljósar fréttir af því að framsóknarmaðurinn, Kolbeinn Kolbeinnson skrifstofustjóri, hafi ekki gert það endasleppt yfir hátíðarnar. Meðal annars er sagt, að hann hafi mætt kófdrukkin til aftansöngs á aðfangadagskvöld, dottið afturyfir sig á jólatréð að heimili sínu það sama kvöld og hlaupið allsnakin eina 10 tíu hringi í jólasnjónum kringum heimili sitt um hádegisbil á jóladag vegna veðmáls við Máríu borgargagn.
Svo skulu illa artaðir auðnuleysingjar reyna að halda því fram, að Framsóknarflokkurinn sé dauður úr öllum æðum!
Skorinn með brotinni flösku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2011 | 13:31
Helvítis lygi á jóladag
Það verður að teljast framúrskarandi óforskammað af hálfu forsvarsmanna Húsdýragarðsins, að spinna upp lygahistoríu um að Jólakötturinn haldi til í garðinum og sé fóðraður af starfsfólki hans.
Hið rétta er, að Jólakötturinn er um þessar mundir staddur á Vestfjörðum, en þar tókst honum að jaga öldung nokkurn, sem var á leið til miðnæturmessu. Vitni voru sammála um, að aðfarir Jólakattarins hefðu um flest minnt á þegar venjulegur heimilisköttur veiðir og étur skógarþröst, mús eða rottu. Það fylgdi og sögunni, að enginn héraðsbrestur hafi orðið þótt gamlingi þessi orðið Jólakettinum að bráð, því þetta hafi verið nískur leiðindadurgur, yfirgangssamur stórþjófur og arðræningi. Eru heimamenn því nokkuð sáttir við að hafa horft á karlinn hverfa ofaní meltingarfæri kattarins, því að þetta hafi verið sannkölluð landhreinsun, auk þess sem nú þurfa þeir ekki að hafa fyrir því að grafa karlinn í vígðum reit.
Húsdýrin fengu jólagesti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.12.2011 | 00:51
Þegar Bubur söng í veislunni hjá Máríu borgargagni
Núnú. Það fór þá aldrei svo, að Bubur héldi ekki tómleik á Þolláksmessu. Og það í Háskólabíói! Ekki var þeð lakara. Það er bölvað og skítt að maður lét þennan viðburð fram hjá sér fara. En það er ekki á allt kosið og auglýsingarnar um tómleikinn fór alveg fram hjá mér, og því fór sem fór.
Ég er að velta fyrir mér, hvort Bubur hafi tekið Járnplötuvalsinn, sem hann syngur svo asskotans ósköp vel. Eða Lagið sem sökkti bátnum í Sandgerði? Þá er lagið um 1000 rassa nóttina ekki sem verst hjá honum.
Þá held ég muni þegar Bubur kom í veisluna hjá Máríu borgargagni og tók Hamraborgina. Það var mikil upplifun. Og Borgargagnið varð svo uppnumið, að það mátti hlaupa á klósettið í miðju lagi. Að vísu sofnaði Máría, blessunin, á taðskálinni og hraut þar eins og kvefaður kálfur þegar að var komið.
En þegar Bubur hafði lokið við að syngja Hamraborgina, tók Indriði handreður í rassinn á honum og kastaði honum niður útidyratröppurnar og gítarnum á eftir.
Bubbi syngur á Þorláksmessu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2011 | 23:04
Á leið til hymmna með Kim Jong-il
Svo bregðast krosstré sem aðrir raftar. Og nú ætlar hjartað í gamla Filippusi að fara að bresta, og það svona rétt fyrir jólin. Það má búast við einhverri sorg á aðfangadagskvöld í Buckinghamhöll, ef svo illa tekst til að Filippus karlinn andast og fer samferða til hymmna með Kim Jong-il. Ekki það að Kim Jong-il sé ekki nógu góður félagsskap fyrir Filippus, öðru nær. Þvert á móti eru svona karlar ævinlega hver sem annar, ekkert nema manngæskan og viðkunnanlegheitin.
Og ósköp held ég Elísbet drottnig verði einmanna ef Filippus verður úr heimi hallur. Enda er ekkert skemmtilegt fyrir káta og hressa konu að verða ekkja og láta aðrar kerlingar hlægja að sér. Þó er ekki loku fyrir það skotið, að Elísbet nái sér í ekkjustandinu í stæltan stegg, frekan til fjörsins og elegant, sem munar ekki um að segja ,,upp með pils og niður með brækur" oft á dag við Elísabetu.
Hinsvegar hef ég meiri áhyggjur af Karli prinsi og gömlu kerlingunni sem deilir svefnherbergi með honum. Þetta gamla skar er nefnilega komin á það stig að fá reiðarslag þá og þegar, með allri þeirri skömm sem því fylgir fyrir Karl. Og hvað gerir Kaarl þá? Ekki getur hann náð sér í aðra konu því að engin kona vill svona álappalegan mann með þessa líka skítasögu að baki sér.
Filippus prins fluttur á spítala | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2011 | 12:06
Ólafur skans veður Ólafur trans
Það er laglegt ástandið á aumingja karlinum honum Óláfi sérstaka saksóknara. Hann lætur hafa eftir sér eins og ekkert sé sjálfsagðara, að líklega gefi hann ekki út fleiri ákærur fyrir áramót, það gerist ekki fyrr en einhverntíma eftir áramót!
Einhverntíma eftir áramót! Það var þó. Því segir maðurinn ekki hreinlega: Kanske einhventíma í eilífðinni. Mikið held ég að bófarnir hafi rekið upp tröllahlátur þegar lásu þennan framandi boðskap.
Þá voru nú skemmtilegri fréttirnar sem ég fékk í fyrradag af Ólafi skans. Sá Ólafur var að koma úr kynskiptiaðgerð fyrir 10 dögum og heitir þar af leiðandi ekki Ólafur skans lengur, heldur Ólafur trans, og verður í kjól og sokkabuxum um jólin, föður sínum til sérstakrar ánægju. En gamli Skans er gjörsamlega æfur yfir því að sonur hans skuli vera orðinn löggildur transsexúalisti. Enda vinnur gamli maðurinn nú hörðum höndum að því að koma syni sínum á geðveikrahæli svo hægt verði að berja þessa vitleysu útúr hausnum á drengnum.
Rannsókn nokkurra mála lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2011 | 21:12
Herhvöt gegn spilltum verkalýðsforstjórum og undanrennuklíkum þeirra
Merkileg fyrirbæri þessir verkalýðsforstjórar. Það er eins og ekkert komist lengur fyrir í hausnum á þeim annað en lífeyrissjóðir, ávöxtun, fjárfestingar og ýmiskonar auðvaldsbrall. Skammarlega lág laun félagsmanna Starfsgreinasambandsins virðast ekki koma þessari útbrunnu undanrennuklíku, sem þar ræður ríkjum, meira við en ánamaðkar í Ástralíu; að minnsta kosti láta þeir afkomu verkalýðs á Íslandi í léttu rúmi liggja.
Eitt er þó víst: Það verður með einhverjum skilvirkum ráðum, að taka lífeyissjóðina af verkalýðsforstjórunum og vinum þeirra í atvinnurekenda- og braskarastétt. Til dæmis væri ágætt að láta Seðlabankann yfirtaka alla lífeyrissjóðina á einu bretti og þar væri starfrækt deild sem sæi um alla umsýslu lífeyrisspanaðar þjóðarinnar.
Það þarf varla að taka það fram, að verkalýðshreyfingin, aðildarfélög hennar og stjórnir þeirra, eiga einungis að einbeita sér að róttækri og öflugri stéttarbaráttu, en láta allt lífeyrissjóða, sjúkrasjóða og orlofshúsastúss lönd og leið. En til að svo megi verða, er nauðsynlegt fyrir almenna félagsmenn að steypa verkalýðsforstjórunum af stóli og taka málin í sínar eigin hendur, með illu eða góðu.
Það breytist ekkert sem máli skiptir í þjóðfélaginu okkar nema til staðar sé öflug og róttæk verkalýðshreyfing sem hikar ekki við að bjóða samtryggingarbræðingi auðvaldsins byrginn. Gáum að því.
Færri greiða í séreignarsparnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2011 | 18:16
Verulega varhugaverðir blóðgjafar
Það getur verið varhugavert að jólasveinar gefi blóð, einkum og sér í lagi Giljagaur og Gluggagægir því að þeir eru pervertar og ódó. Enn varhugaverðara er þó að leyfa krötum að gefa blóð, það gerir hið illræmda krataeðli, sem er einskonar banvænn geðkrabbi. Með réttu lagi ætti að banna krötum að gefa blóð, nema í mesta lagi hverjum öðrum, rétt eins og að lúsahvolpar eiga aðeins að vistast með öðrum lúsahvolpum
Maður nokkur, einkar vandur að viðingu sinni, orðheldinn og samkvæmur sjáfum sér, varð fyrir því óláni að fá blóð úr krata eftir skurðaðgerð. Þegar þessi náungi slapp af sjúkrahúsinu tóku hans nánustu stax eftir breytingu til hins verra í fari hans: Ekkert var lengur að marka sem hann sagði, hann gerðist viðurstyggileg auðvaldssleikja og fór að fara á bak við allt og alla, ævinlega reiðubúin að reka rýtinginn í bakið á fólki. Þessi óhugnaður fór versnandi með hverjum degi og við sjálft lá ættingjar mannsins færu að leggja á ráðin um að koma skepnunni fyrir. Sem betur fer tók hið sjálfvirka réttlætislögmál náttúrunnar í taumana, því að karlinn féll útum glugga á sjöttu hæð í fjölbýlishúsi þegar ,,besti vinur" hans kom að honum í rúminu hjá eiginkonu vinarins.
Blóðið flæðir um jólin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2011 | 13:31
Tveimur gálum um fimmtugt varð hált á sílíkóninu
Jæja. Þá er loks mál til komið, að kvenpéningur vor fari með blessuð sílíkónjúgrin sín í skoðun til að kanna hvort hætta sé á sííkónið sé líklegt til að svipta þær lífi fyrir aldur fram. Það verður trúlega spennandi að fylgjast með hverjar fá græn merki á júgrin og hverjar rauð. Svo verða þær sem standast ekki skoðunina sviptar sílíkóninu og eftir standa brjóstin, slöpp og tómleg eins og blautir þvottapokar; þá held ég verði aldeilis kátt í sumum kotum, eða hvað?
Nýlega heyrði ég af tveimur gálum um fimmtugt, Móru og Súllu, sem fegu sér sílíkónbrjóst fyrir tveimur árum. Þessar dömur, sem eru hin mestu glugghross, hljóp kapp í kinn þegar barmar þeirra voru orðnir reistir og stinnir eins og á kvikmyndastjörnum og gáfu sig nautnunum á vald með ungum mönnum, hvar og hvenær sem var, og fóru mikinn. En svo fóru þær yfir strikið með mikilum glæsibrag þegar þær gerðu sér lítið fyrir og nauðguðu áttræðum píanóleikara. Píanóleikaranum varð svo mikið um þetta atvik að hann andaðist viku síðar, saddur lífdaga. Og gálurnar voru svo ósvífnar að fylgja glottandi hinum burtsofnaða tónlistarmanni til grafar. Svo var mál þeirra tekið fyrir og dómarinn dæmdi sílíkónbrjóstin af þeim og þar með var umsvifum Móru og Súllu á lostasviðinu lokið fyrir fullt og allt.
Ráðlagt að ræða við lækni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2011 | 22:42
Kobbi Stöðmaður, Venni skógartíta og Kim Jong-il
Það er fyrir mestu að gott hljóð sé þessa dagana í kaupmönnum og Köbba Stöðmenni. Reyndar mun Kobbi Stöðmenni vera illa gigtveikur um þessar mundir og blæs einhverskonar sápukúlum þegar hann talar. Útaf þessum kvillum verður hann að baða sig uppúr grænsápu og éta kattarláfujafning í hvert mál. Það er sem sé ekki tekið út með sældinni að vera Kobbi Stöðmenni og þurfa meðfram heilsuleysinu að fylgjast með andlegum sveiflum kaupahéðna í Reykjavík og standa Gnarrinu samviskusamleg skil geðheilbrigði þeirra frá degi til dags.
Það varpaði þó meinlegum skugga á ánægju Kobba, kaupmanna og Gnarrsins þegar sá armi dólgur, Venni skógartíta, gerði sér lítið fyrir og meig eins og hundur utaní kyrrstæðan bíl á Laugarveginum á sama tíma og fréttir bárust af ótímabæru andláti Kim Jong-il. Enda gera sér flestir grein fyrir, að ef þetta asnaspark Skógartítunnar spyrst út fyrir landsteinana, mun það hafa mjög neikvæðar afleiðingar í för með sér hvað varðar erlendar fjárfestingar í framtíðinni.
Gott hljóð í kaupmönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2011 | 22:13
Frú Ingveldur lokar skjóðunni yfir jólin
Á stjórnarfundi í sjálfstæðiskvennafélaginu Hvöt í gærkvöldi upplýsti frú Ingveldur aðrar stjórnarkonur um, hún hefði afráðið fyrir viku síðan að loka á sé ,,bölvaðri skjóðunni", eins og hún orðaði það, yfir jólin og að minnsta kosti allt fram til áramóta. ,, Mér er fjandans sama hvað öðrum finns um á ákvörðun, en ég á mína pjásu sjálf og ræð því ein hvort hún er brúkuð eða ekki brúkuð", sagði frú Ingveldur og dustaði kökumylsnu framan af sér með kvenlegum tilfæringum.
Flokkssystrum frú Ingveldar brá að vonum við þessa afdráttarlausu yfirlýsingu og báðu Guð að hjápa sér. Öllum þótti þeim þetta viðhorf frú Ingveldar eiginlega of fémínískt fyrir sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt og spurðu hvort hún væri virkilega orðin nærbuxnafémínísti eins karlkerlingarnar á Smugunni. En frú Ingveldur lét ekki slá sig útaf laginu og svaraði því til, að hún væri engin helvítis gylta með bleika slaufu á skottinu.
Hinsvegar varð Kolbeinn, eiginmaður frú Ingveldar, vondur þegar hún sagði honum frá ,,lokun skjóðunnar" og kvaðst hafa önnur ráð með að halda uppi dampi á miðvígstöðvunum. Hann ætlaði í skötu- og svartadauðaveislu heima hjá Máríu borgargagni og indriða handreði á Þollák, og ef hann þekkti slíkar samkomur rétt, myndi hitna verulega í kolunum á því heimili strax uppúr hádegi með skyldugum giljagauragangi, hispurslausri nekt og djörfum tiltektum. En frú Ingveldur sagði manni sínum, að ef hann svo mikið sem stigi fæti innfyrir dyr á sóða- og lastabæli andskotans Borgargagnsins og Handreðsins, myndi hún drepa hann á staðnum, snúa hann úr hálsliðnum eins og gæsastegg og láta henda hræinu af honum inn til Kobba mannætu.
Nú er að sjá hvað Kolbeinn Kolbeinsson gerir á Þollák og ennfremur hvort frú Ingveldur stendur við sín stóru orð um að loka skjóðunni yfir jólin allt fram til áramóta.
Syngur í jólamynd BBC | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 56
- Sl. sólarhring: 131
- Sl. viku: 214
- Frá upphafi: 1539497
Annað
- Innlit í dag: 49
- Innlit sl. viku: 183
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 48
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007