Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011
26.4.2011 | 23:07
Vandræðagemlingurinn getur trútt um talað.
Þekkja aðeins viðvarandi flokkadrætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2011 | 21:40
Nýtt afl raunverulegra vinstrisinna í sjónmáli
Það er gott til þess að vita að raunverulegir vinstrimenn, sósíalistar, séu aftur að eignast þingflokk á Alþingi. Í framhaldi af því geri ég ráð fyrir að stofnaður verði róttækur stjórnmálaflokkur á rústum VG, án Steingríms J., Álfheiðar, Svarsfjölskyldunnar og búrtíka- og dekurdýrahjarðar þeirra. Sá flokkur mun, ef að líkum lætur, strax ná góðri fótfestu og halda merki alþýðu manna hátt á lofti.
Þá geri ég ráð fyrir að Guðfríður Lilja, Ögmundu og Jón Bjarnason muni öll ganga í hinn nýja flokk í fyllingu tímans.
Stjórnmálaflokkar eru einungis tæki til að koma hugsjónum og knýjandi verkefnum á framfæri og í framkvæmd. Þegar ljóst er að stjórnmálaflokkur gengur á skjön, eða jafnvel þvert á það sem hann var stofnaður til, er hann sjálfsögðu gagnslaus, ónýtur, nema e.t.v. að hugsjónirnar sem flokkurinn var smíðaður um hafi liðið undir lok.
Og þar sem VG hefur gengið kapítalismanum á hönd með öllum þeim svikum sem í því felast undir styrkri handleiðslu formanns flokksins og engrar breytingar að vænta þar á um ókomna framtíð, er ekki nema um tvennt að ræða í stöðunni: Að Steingrímur, ásamt sínu gaddavírsgengi, yfirgefi VG ekki síðar en á morgun og raunverulegir vinstrisinnar taki við flokknum, eða að raunverulegu vinstrisinnarnir stofni nýjan stjórnmálaflokk. Að mínu mati er síðari kosturinn mun betri, heiðarlegri og raunsærri.
Það er því mikið fagnaðarefni ef Lilja, Atli og Ásmundur bera gæfu til að mynda þingflokk og losa þar með um þá stíflu sem formanni VG hefur tekist að skapa í vinstri helmingi þjóðarlíkamans þar sem hjartað slær.
Stofna væntanlega þingflokk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.4.2011 | 12:43
Hlægilegasta ályktun ársins og jafnframt sú heimskulegasta
Þegar árið 2011 verður gert upp, verður sameiginleg ályktun VG-félaga í Grundarfirði og Stykkishólmi áreiðanlega útnefnd hlægilegasta ályktun ársins og jafnframt sú heimskulegasta í flokki ályktanna sem settar voru fram í fullri alvöru. Þvílíkir andskotans apakettir þessir vesalings nágrannar mínir.
Annars hafa þessir platkommar þarna innfrá alla tíð verið svo skemmtilega foringjahollir, að þótt Steingrímur J. ræki ryðgaðan gaddavír uppí endann á þeim myndu þeir brosa útað eyrum og hæla foringjanum á hvert reipi fyrir tiltækið. Auk þess skil ég heldur ekkert í þeim að álykta ekki gegn Jóni Bjarnasyni fyrir óþekkt hans við Steingrím og Samfylkinguna.
Ég, sem tók þátt í því á sínum tíma að stofna VG og á þar á ofan heima á Snæfellsnesi, styð Ásmund Einar heilshugar. Það er nefnilega svo, að Steingrímur J. og hans viðhlægendahirð innan VG hafa eyðilgt þennan flokk að svo miklu leyti sem hægt er að eyðileggja stjórnmálasamtök.
Það er ekki lengur spurning um hvort heldur hvenær ALVÖRU vinstriflokkur verður stofnaður og ég vona svo sannarlega að Ásmundur Einar verði í þeim flokki ásamt Lilju Mós, Guðfríði Lilju, Atla Gísla, Ögmundi og Jóni Bjarnasyni.
Vilja að Ásmundur Einar segi af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2011 | 00:26
Kommúnískur anarkisti og landafjandi
Nú held ég tísti aldeilis í tittlingaborg. Ekki hafði Jóni Gnarr fyrr tekist að flæma hinar dáfallegu og velgerðu konur, Hönnu Birnu í Valhöll og frú S. Tomm úr viðulegum embættum og skilja þær eftir á víðavangi, flóandi í tárum, en hann er stokkinn eins og landafjandi vestur í New York og farinn að grobba sig þar við frægar fréttastofur. Og Amríkanar, eins vitlausir og þeir eru, gleypa náttúrlega við vaðlinum í mister Gnarr og trúa öllu sem honum hugkvæmist að ljúga að þeim sér til skemmtunar.
Ef vissu að Gnarr borgarstjóri í Reykjavík er harðlínu anarkisti og kommúnisti myndu þeir eflaust varpa honum tafarlaust í fangelsi og geyma hann þar til eilífðarnóns innanum arabíska terrorista og annan ámóta djöflalýð.
Það er því áríðandi fyrir Jón Gnarr að Bandaríkjamenn komist ekki að því hvern mann hann hefur raunverulega að geyma meðan hann dvelur í landi þeirra.
Borgarstjóri í New York | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2011 | 23:25
Mikið fargan herjar á Vilhjálm og Katrínu frá Miðtúni
Æ, ég held það eitthvert fargan á Vilhjálmi Karlssyni og stelpugálunni Kötu frá Miðtúni. En eins og menn vita þá þarf kóngafólk aldrei að kúka eða pissa, sem eru mikil forréttindi sem spara bæði toiletpappír og langar, leiðinlegar og stundum illþefjandi setur á kömrum og klósettum. Nú hafa læknar og siðameistarar Bresku krúnunnar starfað um hríð við að koma innyflum Katrínar gálu frá Miðtúni í konunglegt form, en því miður án sýnilegs árangurs, sem gerir að verkum að hún er enn sem komið er ósamboðin Vilhjálmi Karlssyni. Þessi meinlegi annmarki verðandi drottningar Bretaveldis bendir til að hún verði aldrei drottning, ekkert verði úr fyrirhuguðu brúðkaupi og henni drekkt í staðinn í síkinu utan við Buckinghamhöll.
Það má því með sönnu segja, að mikið fargan og ófagurt herji á Vilhjálm Karlssoni og Katrínu frá Miðtúni, því ekki dugir Bretum að hafa drottningu sem kúkar og pissar eins og sauðsvartur almúginn.
Ferðamenn streyma til Lundúna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2011 | 13:46
Af skemmtiferð Kolbeins og frillu hans, Jakobínu Ólafar Sigurgeirsdóttur
Ég geri ráð fyrir að það hafi verið óviðjafnanleg skemmtun fyrir farþegana á skemmtiferðarskipinu atarna að sjá hásetana missa hina fárveiku frú á áttræðisaldri í sjóinn þarna lengst norður í ballarhafi. Enda ekki á hverjum degi sem boðið er uppá slíkt númer í skemmtanabransanaum.
Þessi undarlegi atburður í norðurhöfum minnir eilítið á þegar Kolbeinn Kolbeinsson, skrifstofustjóri, missti frillu sína, Jakobínu Ólöfu Sigurgeirsdóttur, milli skips og bryggju þegar hann var að leiða hana um borð í togara að næturþeli. Þannig háttað til að bróðir Kolbeins var smyrjari á umræddum togara og hugðist Kolbeinn nýta koju bróður sín undir skemmtilega samkvæmisleiki með Jakobínu Ólöfu. En í stað þess að komast á fyrirhugan áfangastað lauk ferðalaginu, eins og fyrr segir, milli skips og bryggju og tóku þar við umfangsmiklar björgunaraðgerðir sem skiluðu lengi vel engum árangri. Það var ekki fyrr en Kolbeini hugkvæmdist að bregða tógi utanum Jakobínu Ólöfu miðja að skriður komst á björgunina. Af miklu harðfylgi tókst Kolbeini við illan leik að hífa frillu sína innfyrir lunningu togarans, en þegar þar var komið sögu var hún orðin afar máttfarin, búin að tapa pilsi sínu og kápan vafin í einn göndul um höfuð henni. Skömmu síðar kom lögreglan á vettvang og handtók Kolbein Kolbeinsson en flutti frillu hans, dauða nær en lífi, á sjúkrahús.
Eldri borgari féll í hafið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2011 | 12:54
Varnarsigur er ekki bara varnarsigur
Hið virta matsfyrirtæki, Stroody's ákvað í gærkvöldi að færa íhaldsframsóknarkratíuna á Íslandi niður ruslflokk og vista hana þar í hólfi fyrir spilliefni og bráðdrepandi ýldu. Og samkvæmt aukaákvörðun Stroody´s var Samfylkingin tekin út fyrir sviga og dömpað niður fyrir ruslflokkinn í svokallaða klóakrennu, en þaðan á einginn afturkvæmt.
Í hádegisfréttum RÚV sagði Steingrímur J. Sigfússon, að ákvörðun Stróody´s væri mikill varnarsigur fyrir ríkisstjórnina og samtryggingarkerfi fjórflokksins og kæmi í veg fyrir að ríkisstjórnin neyddist til að segja af sér.
Það ríkir því líf og fjör í herbúðum íhaldsframsóknarkratíunnar þessa stundina með flugeldaskothríð og glasaglaumi og munu Jóhanna, Bjarnir Ben, Steingrímur J. og Sigmundur Kögunar bráðlega stíga á stokk og flytja heiminum þakkarávörp.
Eða eins og Steingrímur J. sagði í hádegisfréttunum: Varnarsigur er ekki bara varnarsigur, hann er fyrirst og fremst sigur, stórsigur.
Þykjast hafa sigrað eigin grýlu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2011 | 17:44
Þegar sá gállinn er á honum
Djöfull er að lesa orðbragðið sem haft er eftir þessum Birni Blöndali, sem titlaður er aðstoðarmaður borgarstjóra. Ekki er nóg með að Blöndalur þessi þakki framlag Hönnu Birnu og frú Tomm í sömu tóntegund og hann væri að hreyta skömmum í hunda, heldur lætur hann að því liggja enginn héraðsbrestur sé í því fólgin að þær systur í pólitíkinni hrökkluðust eins og vængbrotnar krákur úr forsetastólum borgarstjórnar; það er engu líkara en Gnörrin og Blöndalir þeirra líti svo á að Hanna Birna og frú Tomm séu ekki neitt neitt, bara loft og endaleysa.
Nei, svona framkoma borgar sig ekki fyrir Gnörrin. Mér kæmi ekki á óvart þó handrukkarar Valhallar, væddir hafnarboltakylfum, rörbútum og keðjum, banki fljótlega uppá hjá borgarstjóranum og sýni honum undanbragðalaust hvar Davíð keypti ölið. Þá er ég illa svikin ef Fémínístafélagið lætur sitt eftir liggja að hegna Jóni Gnarr.
Aðför Jóns borgarstjóra Gnarr að þeim Hönnu Birnu og frú Tomm er sannarlega skítsleg og óviðunandi og minnir öðru fremur á fólskan heimilsföður sem finnur lífsgleðina helst í því að terroríséra eiginkonu sína og börn og leggur auk þess höndur á aldraða foreldra sína þegar sá gállinn er á honum.
Við þökkum þeim fyrir þeirra framlag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2011 | 13:02
Þar hafði hið grimma og guðlausa hjarta Gnarrsins það loksins af
Það var svo sem við því að búast, að ólukkans Gnarrinu tækist það ætlunarverk sitt að flæma Hönnu Birnu Valhallar grátandi úr embætti forseta borgarstjórnar Reykjavíkur. Og í kaupbæti losnaði hann líka við frú Sóley Tomm úr stóli varaforseta borgarstjórnar. Fyrr má nú gagn gera!
Eins og áður hefur komið fram, eru Hanna Birna og Frú Tomm afar viðkvæmar sálir, þola illa áreiti, og verða einkennilega skapvondar þegar á móti bælæs í smáu sem stóru. Þessa veikleika stúlknanna hefir Gnarrinn notfært ser útí æsar af fullkomnum skepnuskap í anda Gorgs Bjarnfreðarsonar svo að lokum stóð ekki steinn yfir steini í sálalífi þeirra og þær flúðu af hólmi, niðurbrotnar og smáðar eins og Gamli Sorrý Gráni forðum daga.
Hvað við tekur hjá Hönnu Birnu og frú Tomm er ekki gott að vita, en sennilega verður það eyðimerkurganga sem bíður þeirra, a.m.k. fyrsta kastið. Þá gera ýmsir málsmetandi aðilar að því skóna, að frú Tomm hverfi á vit Sjálfstæðisflokksins, í náðarfaðm Hönnu Birnu og Guðlaugs Þórs, að eyðimerkurgöngu lokinni og muni herja þaðan á karlrembusvínið Gnarr Bjarfreðarson.
Auðvitað ætti að draga bévað Gnarrið fyrir lög og dóm fyrir meðferð þess á viðkvæmum sálum, fantaskap þess og íllt innræti. Í dýraverndunarlögum segir í 111. grein: ,,Að gleyma að gefa hundinum sínum að éta, ber merki um grimmt og guðlaust hjarta." Það ber líka meðki um grimmt og guðlaust hjarta að flæma Hönnu Birnu og frú Tomm úr forsetastólum borgarstjórnar Reykjavíkur og slíkt á alls ekki að fá að líðast.
Hættir sem forseti borgarstjórnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2011 | 16:46
Ónærgætni Jóns Gnarr eru engin takmörk sett
Ég skil nú ekkert í Jóni Gnarri að voga sér að brúka munn við Hönnu Birnu, fyrrverandi borgararstjóra, vitandi það að hún er mjög viðkvæm fyrir áreiti og kemst iðulega í sorglega geðshræringu, verður frekjuleg í röddinni og augu hennar verða ein logandi ólund, ef henni er svarað af kerskni með það að markmiði að æsa hana upp. Það hefur aldrei þótt til fyrirmyndar að egna óstöðugan og hafi Jón Gnarr skömm fyrir að atast í Hönnu Birnu eins og götustrákur sem gerir sér að leik, útúr leiðindum, að elta taugaveiklaðan hænsnfugl.
Og nú hefir Máría borgargagn tekið af skarið og gert sér lítið fyrir og lýst yfir heilum stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn og Hönnu Birnu og segist iðrast sárlega yfir að hafa kosið Gnörrin í síðustu borgarstjórnarkosningum, enda hafi hún verið ofurölvi á kjördag og því hafi farið sem fara fór.
Þá hefir Arnfreður Ths. Lyngdalh vörubifreiðarstjóri heitið Hönnu Birnu stuðningi sínum við næstu kosningar, en hann var einn þeirra ólánsmanna sem köstuðu atkvæði sínu á hinn skuggalega Gnarr Bjarfreðarson, sem margnefnd Hanna Birna úr Valhöll hefur ekki trú á sem borgarstjóra og stjórnmálamanni, hvernig í andskotanum sem hún hefur fundið það út.
Sjálfstæðismenn gríðarlega svekktir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 64
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007