Leita í fréttum mbl.is

Mikið fargan herjar á Vilhjálm og Katrínu frá Miðtúni

Æ, ég held það eitthvert fargan á Vilhjálmi Karlssyni og stelpugálunni Kötu frá Miðtúni. En eins og menn vita þá þarf kóngafólk aldrei að kúka eða pissa, sem eru mikil forréttindi sem spara bæði toiletpappír og langar, leiðinlegar og stundum illþefjandi setur á kömrum og klósettum. Nú hafa læknar og siðameistarar Bresku krúnunnar starfað um hríð við að koma innyflum Katrínar gálu frá Miðtúni í konunglegt form, en því miður án sýnilegs árangurs, sem gerir að verkum að hún er enn sem komið er ósamboðin Vilhjálmi Karlssyni. Þessi meinlegi annmarki verðandi drottningar Bretaveldis bendir til að hún verði aldrei drottning, ekkert verði úr fyrirhuguðu brúðkaupi og henni drekkt í staðinn í síkinu utan við Buckinghamhöll.

 Það má því með sönnu segja, að mikið fargan og ófagurt herji á Vilhjálm Karlssoni og Katrínu frá Miðtúni, því ekki dugir Bretum að hafa drottningu sem kúkar og pissar eins og sauðsvartur almúginn.


mbl.is Ferðamenn streyma til Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband