Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011
31.5.2011 | 22:19
Ófyrirleitin málflutningur búrtíka LÍÚ
Mikið ósköp er málflutningur Höskuldar Þórhallssonar og annarra af hans kalíberi auðvirðilegur, geldur og í sumum tilfellum verulega ósvífin í umræðunni um fisveiðistjórnunarfrumvarp Jón Bjarnasonar, - já og fjölmörgum öðrum málum. Hvað er það annað en auðvirðilegt og ófyrirleitið af Höskuldi þessum að halda því fram að fyrirhugaðar breytingar á kvótakerfinu kippi stoðunum undan atvinnulífinu á landsbyggðinni, þegar staðreyndin er sú að núverandi kerfi hefur kippt umræddum stoðum undan atvinnlífinu á landsbyggðinni, sem Höskuldur þykist bera svo mikið fyrir brjósti, og lagt fjölda byggðarlaga í rúst?
En strengjabrúðum LÍÚ á Alþingi dettur auðvitað ekki í hug að stunda heiðarlegan málflutning, hvað þá taka þátt í þeirri rústabjörgunaraðgerð sem frumvarp Jóns Bjarnasonar er.
Stoðunum kippt undan landsbyggðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2011 | 20:07
Bægir ,,Manninum með ljáinn" frá fólki
Já.
Sex milljónir manna munu láta lífið vegna reykinga á þessu ári.
Það er einmitt það, já.
En hvað munu margir sem aldrei hafa reykt geyspa golunni í ár? Ég trúi ekki að Alþjóðaheibriggðisstofunin hafi látið undir höfuð leggjast að reikna það út.
Og vel á minnst: Nú ku hópur lífsleiðra alþingisdútlara hafa lagt fram tillögu þess efnis, að í framtíðinni eigi fólk að kaupa sér tóbak í apótekum samkvæmt læknisráði. Það merkir vísast að tóbak sé mikið heilsubótarefni við sjúkdómum, standi pensillíni jafnfætis hvað það varðar, og bægi karlinum með ljáinn, á ögurstundu, frá dauðvona sjúklingum.
,,Já, herra læknir, vilduð þér vinsamlegast skrifa út lyfseðil handa mér uppá eitt karton af rauðum Winston?, því nú stend ég tæpt vegna andarteppu, og auk þess með gigt í báðum öxlum."
Segir sex milljónir láta lífið í ár vegna reykinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2011 | 18:48
Pólitíkst náttúruleysi, úrkynjun og vemmilegt undanrennugutl
Það er vægast sagt stórlægilegt að ráðherra sem veldur ekki því embætti sem hann hefur verið skráður fyrir í tvö ár skuli vera látinn bæta heilu Mennta- og manningarmálaráðuneyti við sig eins og ekkert sé. Á svona ráðslagi getur varla verið nema ein skýring: að algjör óþarfi sé og hafi verið að hafa tvo einstaklinga til að gegna ráðherradómi Umhverfisráðuneytis og Mennta- og menningarmálaráðuneytis. Í framhaldi af þessu má svo spyrja hvaða hundalógík hafi legið að baki þess að hafa sérstakan umhverfisráðherra og síðan mennta- og menningarmálaráðherra sér í lagi.
Nú hefur svo sem engum dulist, að Svandís Svavarsdóttir og Katrín Jakobsdóttir eru lítilla sanda og lítilla sæva á hinu pólitíska landakorti; báðar pólitískt náttúrulausar, báðum lyft uppí stóla sína á óeðlilegan hátt af framsóknarkenndri flokkseigendaelítu VG, báðar ónothæfar sem fulltrúar þeirra sem lengst standa til vinstri í íslenskum stjórnmálum.
Það er því ekki nema eðlilegt að dómgreindarleysið og veruleikafirringin sé kórónuð með því að tilnefna fyrrgreindar ráðherradömur sem helstu hugsanlega arftaka framsóknardólgsins Steingríms J. Sigfússonar, þegar honum þóknast að láta af embætti formanns VG.
Það væri verðugt verkefni fyrir glögga menn úr röðum sósíalista að rannsaka ofaní kjölinn hvernig á því stendur að sósíalísk hreyfing á Íslandi hefur úrkynjast eins og raun ber vitni og orðið að því vemmilega undanrennugutli hún er í dag.
Svandís tekin við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2011 | 14:21
Hvað þurfa illfygli NATO að drepa maga svo hægrielítan ranki við sér
Einlægt skal hún vera við sama heygarðshornið í hernaðar og hernaðarbadalagsmálum, ræfils hægrielítan á Íslandi. Í engum málaflokki öðrum kemur úrkynjum hérlendra hægrimanna jafn berlega í ljós, ásamt undirlægjuhætti og vesaldómi í anda svartasta afturhalds. Frá upphafi átti Ísland ekki neitt erindi í NATO og með árunum hefur aðild okkar að þessu blóðuga stríðsglæpabandalagi kapítalista orðið æ aumkunar- og vandræðalegra.
Það er því vægast sagt, afar ógeðfelt að heyra af viðbrögðum hægriseggjana á Alþingi við tillögu VG um að Ísland segi sig úr Natóviðbjóðnum. Í stað þess að ræða úrsögn Íslands úr NATO af yfirvegun og mannviti, rjúka undanrennusálir afturhaldsins eins og hvefsnir hundar uppí ræðustól Alþingis og slá um sig með útúrsnúningum og hortugheitum að hætti heimskra stríðsæsingamanna.
Hvað þurfa Natoríkin að drepa marga svo íhaldsframsóknarkratían í Íslandi fari að sjá?
Hvað verða illfygli NATO að sýna mikið óréttlæti, undirróður, skemmdarverkastarfsemi og stórglæpi gegn öllu lífi á jörðinni svo hægrimenn á Íslandi fari að fá heilbrigða ljóstýru inní moldarkofahugarfar sitt?
Átakanlegt yfirklór VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.5.2011 | 14:49
Því miður gleymdist að umskíra herra Gnarr
Mikið er í það varið hjá Jóni Gnarri og Degi Bé að bínefna Laugaveginn ,,Mannréttindaveg" í þrjá daga. Ég veit að þeir kumpánar hafa haft heilaga þrenningu, að evangelísk kattþólskum sið, til hliðsjónar þegar þeir ákváðu að hafa dagana þrjá en ekki fjóra eða sjö. Hinsvegar er mjög miður að þeir skuli hafa gleymt að umskríra herra Gnarr til þriggja daga og nefna hann Prjón Mannarétting.
En það er sem sér stórkostleg uppáfyndning að láta Laugaveginn heita Mannréttindaveg í þrjá skitna daga, þó ekki væri til annars en að minnast þeirrar gífurlegu mannréttindabótar þegar rafknúna þvottavélin leysti dætur Reykjavíkur undan þeim ósköpum að dragnast inn Laugaveginn með fullt fangið af skítugum fataleppum, kanske um hávetur í norðanbáli og grimmdarfrosti, alla leið inní Þvottalaugar og bera síðan sömu fataleppa rennvota og níðþunga heim í skafrenningi, jafnvel allar götur vestur á Seltjarnarnes.
Nafni Laugavegs breytt í Mannréttindaveg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.5.2011 | 11:32
Stjórnarskrárbrot og landráð
Hvaða fjandans smámunasemi er þetta? Það er hreint og beint stórhneyksli að dæma mann í 18 mánáða fangelsi fyrir það eitt að vinna vinnuna sína og reyna að bjarga sér frá hungri og kröm. Dómþolinn í þessu furðulega máli, sem er góður og gegn frjálshyggjumaður, á auðvitað að njóta athafnafrelsis til fjáröflunnar, rétt eins og aðrir fjársýslumenn og útrásarvíkingar. Í fljótu bragði sýnist mér að aðförin að hinum dæmda frjálshyggjumanni fari algjörlega í bág við stjórnarskrárvarinn rétt einstaklinga til athafnafrelsis og flokkast því undir stjórnarskrárbrot og landráð.
Það er ljóst að dómurinn yfir frjálshyggjumanninum er runninn undan rifjum kommúnistastjórnarinnar sem nú ríkir á Íslandi. Þessi hroðalega kommúnistastjórn ætlar sér nefnilega að fá sem flesta þegna landsins dæmda í fangelsi. Einkum leikur kommúnistunum í ríkisstjórninni hugur á að leggja fjársýslu-, frjálshyggju- og athafnamenn í járn í myrkvari dýflissu og svelta þá þar, - helst í hel. Hið sama ætla þeir að gera við Gjeir Haaarde fyrrverandi forsætisráðherra. Ástandið hjá okkur er orðið alveg eins og í Norður Kóreu, að því undanskildu að það er mun verra hér.
Neyddu mann til fjárútláta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.5.2011 | 19:09
Svo fara þær á kreik með atkvæðaseðlana og kjörkassana
Ekki fallið frá sameiningum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.5.2011 | 08:44
Hið óstjórnlega pólitíska náttúruleysi er mikil blessun
Sjáum til, samkvæmt þessari frétt er útlit fyrir að gamla ljóta flokkseigendafélagið í VG ætli að bjóða tvo pólitíska náttúruleysingja fram til formanns að Steingrími J. burtsofnuðum. Hver hefði trúað því að jafn eðalborið flokkseigendafélag tæki uppá því að bjóða fram gegn sjálfu sér? En máske líta eignirnar svo á að ekki dugi minna en tveir formenn til að taka við af séra Steingrími, slíkur kappi sem hann er.
Því er ekki að leyna, að það mun vefjast fyrir mörgum, innvígðum sem órólegum, að velja á milli hinna tveggja heiðurskvenna, sem til eru kallaðar, því þær eru einkum þekktar fyrir óstjórnlegt pólitíkst náttúruleysi og finrnadaufa framgöngu í samræmi við það.
Annars held ég væri hyggilegast fyrir aðstandendur VG að jarðsyngja flokkinni með pompi og pragt ásamt öllum fylgigögnum. Það er nefnilega skoðun fjölmargra, að óþarft sé að gera út íhaldsframsóknarkrataflokk eins og VG þegar nóg er af þessháttar undanrennusamtökum fyrir. Hinsvegar fýsir ýmsa að stofna sem fyrst sósíalískan stjórnmálaflokk án Steingríms, Álfheiðar og Svavarsfjölskyldunnar, brúrtíka þeirra og dekurdýra.
Og meðan ég man: Hvers á Árni Þór Sigurðsson að gjalda að vera ekki nefndur á nafn sem eftirmaður Steingríms? Því fyrir utan að hafa gengt starfi yfirbúrtíkur í flokkseigendasöfnuðinum með miklum sóma um árabil er hann eins blessunarlega náttúrulaus á hinum pólitíska akri og hugsast getur, laus við allar vinstri villur sem og annað sem verið getur formanni VG til trafala.
Talið er að formannsslagur í VG sé hafinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.5.2011 | 22:20
Nei, nei, ekki á kjólinn!
Ja, nú liggur íslandsvinurinn, Stráss Kan, laglega í því ef rétt er að verksummerki eftir hann hafi fundist á kjól þernunnar. Og þar með er með öllu úti lokað að karlskepnan eigi eftir að milda þrautir oss Íslendinga með sinni líknandi ASG-hönd.
En úr því sem komið er, er óhætt fyrir flokksbræður og systur Stráss Kan í ríkisstjórn Íslands að afskrifa þennan lostafulla saurlífisgradda í eitt skipti fyrir öll að fullu og öllu. Í staðinn verðum vér að vona, að AGS finni annan íslandsvænan auðvaldskrata, ekki mjög kynóðan, til að taka við af franska sjamörnum, svo Jóhanna og Steingrímur geti haldið áfram að díla við alþjóðlega auðvaldið og heimsvaldasinnana.
Stráss Kan getur afturámóti huggað sig við að hann er ekki fyrsti stórhöfðinginn sem kvenmannskjóll verður að falli: Flestir muna þá dýrðardaga þegar Clinton karl með vindilinn sat í súpunni eftir viðskipti sín við kjól ungfrú Móníku Ljúvinský.
DNA Strauss-Kahn á kjól þernunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.5.2011 | 09:53
Einhugur?! Um hvað? Blekkingar, lýgi og óheiðarleik?
Einhugur?!
Já.
Hann veit hvernig hann á að koma lyginni í jákvæðan búning hann Steingrímur J. Sigfússon.
Það hefur enginn einhugur ríkt í VG, lengi, á þeirri staðreynd ber formaður flokksins mesta ábyrgð. Reyndar er kjaftaskurinn og íhaldsframsóknarkratinn, Steingrímur J, með öllu óhæfur sem flokksformaður og útrúlegt að hann skuli ekki enn hafa verið knúinn til að segja af sér sem slíkur.
Íslenskir sósíalistar eiga enga samleið með Steingrími J. Sigfússyni og búrtíkum hans. Annaðhvort verður ærlegt fólk í VG að steypa formanninum og hyski hans af stóli, eða stofna nýjan stjórnmálaflokk. Ég mæli eindregið með síðari kostinum, það er bæði heiðarlegra og skilvirkara.
Einhugur í VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 48
- Sl. sólarhring: 123
- Sl. viku: 206
- Frá upphafi: 1539489
Annað
- Innlit í dag: 44
- Innlit sl. viku: 178
- Gestir í dag: 44
- IP-tölur í dag: 43
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007