Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011

Pippa í keng eftir gamla sénsinn

furutre_1085279.jpgEftir myndinni af Pippu, eða Pípí eins og sum kalla hana, að dæma hefur hún borið heldur skarðan hlut eftir viðskipti sín við gamla viðhaldið sitt, hann Gorg Percý. Ekki er annað að sjá en vesalings telpan sé með gigt í mjaðmagrindinni og þar af leiðandi í keng. Trúlegar hefur Gorgur, ódámurinn sá arni, hoggið einum of oft í sama knérunninn Pippu þarna í Madrid.

Svo getur auðvitað hugsast að Pippa hafi verið í spreng þegar myndin var tekin og ekkert toilet nærsveitis utan gangstéttin.


mbl.is Pippa skrúfar upp kynþokkann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvorki ráðherra né þjóðin eiga að ansa fólki sem kann ekki að skammast sín

Ekki skil ég í Guðbjarti Hannessyni, þein grandvara manni, að hafa sig útí að eyða orðum að þingmanni eins og Torgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Að eiga opinberlaga orðastað, og það meira að segja úr ræðustóli Alþingis, við ósiðað hrunslið sem setti þjóðfélagið á hvolf og kann, auk margra annarra annmarka sinna, alls ekki að skamast sín, er það sama og gera sig að fífli frammi fyrir augum þjóðarinnar.

Og yfirleitt á enginn, allrasíst þingmenn sem vandir eru að virðingu sinni, að ansa hrunsföntum Sjálfstæðisflokksins þegar þeir eru að myndast við í siðleysi sínu að rífa kjaft og láta dólgslega. Þann auma mannskap á að hunsa í hvívetna, í mesta lagi að segja honum til Helvítis, og láta þar við sitja.

Meðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki beðið þjóðina innilega fyrirgefningar á framferði sínu, fyrir og eftir Hrun, breytt stefnu flokksins eða lagt hann niður, á þjóðin ekkert vantalað við þessi alræmdu samtök ójafnaðarmanna og yfirgangshunda. 


mbl.is Ekki á að nota börn í kjarabaráttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðileg samskipti bréfbera og hunda eru lítt til fyrirmyndar

Það eru því miður, aðrir segja sem betur fer, margar óhugnanlegar sögur til af samskiptum bréfbera og hunda. Til að mynda hvarf bréfberi nokkur í Hafnarfirði algjörlega fyrir nokkrum árum við störf sín. Ekkert varð sannað um skyndilegt brotthvarf bréfberans, en talið er víst að tík af þýsku fjárhundakyni hafi banað honum og étið. Þá stökk grimmur rottuhundur á blaðburðarkonu í Laugarneshverfinu og beit af henni bæði eyrun og færði húsbónda sínum. Ekki var síðra þegar Kristján póstdreifingarmaður Hallsson á Akranesi drap tvo kjölturakka, sem geltu að honum, með hamri og tróð líkunum af þeim innum bréfalúguna ásamt pósti sem stílaður var á heimilisfang hundanna.

Það verður því að kallast vel sloppið hjá konunni í Mosfellsbæ að sleppa tvífótbrotin og kviðbitin frá dalmatíuhundinum sem hún lenti í höggi við.


mbl.is Hundur beit bréfbera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Strauss Kahn lætur bandaríkjamenn ekki ljúga að sér

Skohh, piltar mínir, hún hérna frú Stráss Kan er ekkert gefin fyrir að láta ljúga að sér einhverjum óþverrasögum um eiginmann sinn, herra Stráss Kan. Hún ætti að þekkja hann manna og kvenna best og veit sem er að eignmaður henner myndi aldrei koma þjótandi eins og eldibrandur útaf klósettinu, með allt á hælunum eða jafnvel kvikberrassaður, og einhenda sér aftanað afrísk-amrískri herbergisþernu og neyða hana til óguðlegra athafna á herbergisgólfinu miðju. Enda hefur herra Stráss Kan aldrei látið svona við frú Stráss Kan; frúin hefur meira að segja lýst því yfir að bóndi henna sé ætíð afar friðsamur þegar hann kemur útaf baðherberginu á heimili þeirra hjóna.

Einhverju sinni var maður að nafni Arnfreður Skúlason frá Egilsstöðum kærður fyrir að hafa pissað í blómapott sem stóð við enda á gangi í hóteli einu í Reykjavík. Engin sjónarvottur var að atvikinu, nema blind og elliær kerlingarskrukka, sem sagðist hafa staðið í herbergisdyrum sínum og heyrt Arnfreð kasta af sér vatni í áðurnefndan blómapott. Nú, Arnfreður fékk að dúsa í gæsluvaðhaldi í þrjá daga útaf þessu, eða allt þar til elliæra kerlingarskrukkan viðurkenndi að það hefði verið hún sjálf sem pissaði í blómapottinn.


mbl.is Telja pólitíska ferlinum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hárrétt ákvörðun

Það er hárrétt ákvörðun hjá fangelsismönnunum í New York að hafa Stráss Kan í handjárnum, þá er minni hætta á að hann geri eitthvað af sér. Því ef karlinn er ójárnaður er hætt við að hann færi að káfa á fangavöðunum og þá er aldrei að vita hvað gerðist.

Einusinni komu þeir með óðan fanga á lögreglustöðina við Hvefisgötu og stungu honum inn. Um morguninn fór einn fangavörðurinn inní klefann til að vekja fangann og leiða hann fyrir varðstjórann. Þegar fangavörðurinn ýtti við fanganum var sá síðarnefndi ekki seinn á sér, þreif til fangavarðarins og dró hann uppí til sín og framdi á honum niðurlægjandi ódæðisverk. Eftir þann  atburð hefur fangavörðurinn víst verið dálítið ruglaður í ríminu.


mbl.is Strauss-Kahn í handjárnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er Strauss Kahn jafn saklaus og Kolbeinn Kolbeinsson

Auðvitað er Sráss Kan, öðlingurinn svorni, saklaus af þessum óþverra sem hann er sakaður um. Það er eins og enginn skilji að saklaus maður geti í lent í svona aðstæðum. Ég geri ráð fyrir að þarna hafi verið einn alsherjar misskilningur á ferðinni: Konan hefur orðið hrædd þegar hún leit augum hinn gríðarlega og um leið óviðjafnanlega manndóm herra Stráss Kan og haldið að hann væri að miða vopninu viljandi á hana og því lagt á flótta, yfirbuguð af skelfingu og þá hefur Tító hótelstjóri séð sér leik á borði til að auglýsa hótelið sitt með því að kæra Stráss Kan.

Það kom einusinni fyrir vin okkar allra, Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra, að álpast berrassaður inní kvennaklefann í sundlauginni í Laugardal. Kerlingarnar sem þar voru fyrir brugðust ókvæða við, því þær héldu að Kolbeinn hefði í hyggju að nauðga þeim, og réðust að honum með blautum handklæðum og tréklossum og misþyrmdu honum hroðalega. Svo kom lögreglan og fjarlægði Kolbein, setti hann beint í varðhald. Um kvöldið kom frú Ingveldur í fangelsið og sótti Kolbein og fór með hann heim og barði hann þar eins og hund, því hún trúði því að hann hefði farið í kvennaklefann í sundlauginni í ófrómum tilgangi.


mbl.is Góður starfskraftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja maðurinn að lenda í svona óhappi

Andskotans óheppni hjá karlanganum honum Strauss-Kahn að lenda í þessu veseni. Hvað gat hann gert að því þótt einhver óútskírður kvenmannsbelgur væri að væflast óboðinn inná hótelherbergi hans, ákkúrat þegar hann steig strípaður fram af baðherberginu? Nú, auðvitað fór kvendið að gjóa augunum til hins íðilfagra berrassaða Strauss Kahn, en vildi svo ekkert með hann hafa þegar til kastanna kom. Þá lá náttúrlega beinast við fyrir konuna að kæra kallsvínið fyrir ósiðlegheit af pervertískum toga.

Annars er Strauss Kahn vel geymdur innan fangelsismúranna hjá þeim í New York, því karlinn er kapítalískur mosnster, en sem kunnugt er þá öðlast enginn þá miklu upphefð að verða framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins nema hann sé óvéfengjanlega kapítalískur monster. 

En líklega er Strauss Kahn, þegar öllu er á botninn hvolft, þó fyrst og fremst óbetranlegur saurlífisgraddi, því nú minnist ég þess, sem ég var löngu búinn að gleyma, að hann stóð í einhverju skammalegu erótísku stappi við einkarita sinn, með þeim skelfilegu afleiðingum að einkaritarinn var færður til í starfi. Því miður man ég ekki lengur hvort einkaritari þessi var karl- eða kvenkyns, en það skiftir auðvitað eingu máli þegar framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á í hlut.

Nú er bara að vona að Strauss Kahn verði ekki sleppt lausum í bráð, eða honum takist að strjúka úr fangelsinu hjá þeim í New York.


mbl.is Stjórn AGS kemur saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisfangelsið Harpa lætur fallega í eyrum

Það fór aldrei svo að auðvaldið á Íslandi reysti sér ekki dýrðlegt minnismerki um sína bestu syni og dætur, sjálft útrásarhyskið, og Hrunið Mikla. Það er heldur ekki amalegt fyrir Björgólf Guðmundsson og hans nóta, að vera endurreistir undir hátimbruðum hljóðfæraslætti og öskrum Kristjáns Jóhannssonar og Diddúar íhaldsljóma. Nær Hymmnaríki getur jarðneskt auðvald varla komist á kostnað alþýðu manna sem fær að borga minnismerkið og fara að svo búnu á hausinn. 

En sem betur fer er ekki of seint að breyta tónlistarhúsinu Hörpu í ríkisfangelsið Hörpu og geyma þar óþjóðalýð frjálshyggjunnar sem eyðilagði þjóðfélagið og lagði efnahag þess í rúst.  


mbl.is Harpa tekin formlega í notkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eðlislægur óþokki sem svífst einskis, eða hvað?

Það er vægast sagt dæmalaus ósvífni af Steingrími J. Sigfússyni að halda því fram að svik ríkisstjórnarflokkana í fiskveiðistjórnarmálum Íslendinga sé sú grundvallarkerfisbreyting sem ríkisstjórnarflokkarnir hafi stefnt að. Ég veit ekki um nokkurn mann sem lagt hefur þann skilning í fiskveiðistefnu VG og Samfylkingar að festa eigi kvótakerfið enn betur í sessi, en það er verið að gera með nýtingarsamningum við LÍÚ-dólgana til allt að 22 ára.

En andskotans lygunum og blekkingunum sem vella uppúr Steingrími J. virðast engin takmörk sett. Mér er næst að halda að maðurinn sé eðlislægur óþokki sem svífst einskis til að halda ráðherrastólnum undir rassgatinu á sér, en umræddann ráðherrastól komst þessi loddari í fyrir tilverknað fólks sem trúði því að VG myndi beita sér af alefli fyrir afgerandi breytignum á sem flestum sviðum þjóðfélagsis, þar á meðal afnámi kvótakerfisins eftir svokallaðri fyrningarleið.

En nei ónei, Steingrímur J. er ekki maður neinna breytinga, allra síst í átt að sósíalisma. Hann er fulltrúi spillingar Gamla Íslands og endurreisn þess, AGS, Icesave, fjármagnseigenda, LÍÚ, samtryggingar fjórflokksspillingarinnar; með öðrum orðum er þessi manngarmur fyrirtaks kapítalisti.

Eftir rúma viku verður haldinn flokksráðsfundur VG. Á þeim fundi væri eðlilegt að Steingrími og öðrum í stjórn VG verði vikið frá og þeir reknir úr flokknum með öllum þeim skít og allri þeirri skömm sem það ólánsfólk á skilið.

 


mbl.is Sú breyting sem stefnt var að
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta óþokkabragð skal í þjóðaratkvæðagreiðslu

Samkvæmt þeim fréttum sem borist hafa að væntanlegu kvótafrumvarpi er greinilegt að þar er á ferðinni svikagjörningur sem jaðrar við glæp. Með þessu óþokkabragði ríkisstjórnarinn er ljóst að þar á bæ meta höfðingjarnir samtryggingu fjórflokkanna meir en vilja kjósenda, alþýðunnar í landinu. Enda hefur þessi ríkisstjórnarnefna, sem ósvífin kvikindi kalla ,,vinstristjórn" bæði af illkvittni og heimsku, starfað eingöngu að því að endurreisa Gamla Ísland og það svo dyggilega að Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur hefðu ekki getað gert betur í þeim efnum.

Ef fer sem horfir með kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar, LÍÚ og Sjálfstæðisflokksins, og það verður afgreitt sem lög frá Alþingi, verður þjóðin að rísa upp einn ganginn enn og safna undirskriftum til forseta Íslands til að gjörningurinn verði lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu. Um úrslit þeirrar atkvæðagreiðslu þarf ekki neinn Jesaja spámann til að spá um.


mbl.is Telja meirihluta á þingi fyrir málinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband