Leita í fréttum mbl.is

Stjórnarskrárbrot og landráð

Hvaða fjandans smámunasemi er þetta? Það er hreint og beint stórhneyksli að dæma mann í 18 mánáða fangelsi fyrir það eitt að vinna vinnuna sína og reyna að bjarga sér frá hungri og kröm. Dómþolinn í þessu furðulega máli, sem er góður og gegn frjálshyggjumaður, á auðvitað að njóta athafnafrelsis til fjáröflunnar, rétt eins og aðrir fjársýslumenn og útrásarvíkingar. Í fljótu bragði sýnist mér að aðförin að hinum dæmda frjálshyggjumanni fari algjörlega í bág við stjórnarskrárvarinn rétt einstaklinga til athafnafrelsis og flokkast því undir stjórnarskrárbrot og landráð.

Það er ljóst að dómurinn yfir frjálshyggjumanninum er runninn undan rifjum kommúnistastjórnarinnar sem nú ríkir á Íslandi. Þessi hroðalega kommúnistastjórn ætlar sér nefnilega að fá sem flesta þegna landsins dæmda í fangelsi. Einkum leikur kommúnistunum í ríkisstjórninni hugur á að leggja fjársýslu-, frjálshyggju- og athafnamenn í járn í myrkvari dýflissu og svelta þá þar, - helst í hel. Hið sama ætla þeir að gera við Gjeir Haaarde fyrrverandi forsætisráðherra.  Ástandið hjá okkur er orðið alveg eins og í Norður Kóreu, að því undanskildu að það er mun verra hér.


mbl.is Neyddu mann til fjárútláta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband