Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2012

Máría okkar er fullkomið dæmi um heilbrigða sál í hraustum líkama

ingv16.jpgÞað er nú aldeilis til í því sumum vaxi ásmegin í greddunni með aldrinum. Ef við tökum til dæmis hana Máríu okkar hérna borgargagn til örlítillar skoðunnar, en hún er milli fimmtugs og sextugs, kemur í ljós að hún hefur ekki einungis viðhaldið fýsn sinni til kynlífs frá ungdómsaldri, heldur hefur hún sífellt verið að bæta í losta sinn með hverju árinu.

Nú má vera, að hneykslunargjarnar smásálir með niðurbælda typpakomplexa, telji Máríu borgargagn vera einstaklega skammarlegt tilfelli af geðbiluðum brókarsóttargemlingi. En það er nú öðru nær. Máría borgargagn, er af skaparans hendi sérstaklega heilbrigð til sálar og líkama og stundar sitt frjálslega af dodo hreinni náttúrunnar þörf án allra málalenginga, enda er hún mikill útivistarunnandi og hleypur ósjaldan eins og fjallageit uppum fjöll og firnindi, yfrum afdali og öræfi í einu rykskýji þegar sá gállinn er á henni.

Þegar Máría borgargagn verður komin á áttræðisaldur verður kynhvöt hennar örugglega komin uppí áður óþekktar hæðir og hræddur er ég um, að gamlingjarnir sem verða henni samferða á dvalarheimili aldraðrar megi gá að sér þegar þar að kemur.

Já, kæru vinir, Máría okkar hérna borgargagn er einmitt fullkomið dæmi um heilbrigða sál í hraustum líkama.


mbl.is Kynlíf verður betra með aldrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyrðu Jón minn, eigum við ekki bara að endurstofna VG?

rev8Nú, þegar Vinstrihreyfingin grænt framborð, er orðin svo innilega úrkynjuð af ESB-sjúkdómi, auðvaldsþjónkun, óstjórn og uppdráttarsýki, að ekkert getur stöðvað að hún fari að berja nestið á næstu dögum, þá er aldeilis komin tími til að endurmeta stöðuna af fullri einurð og hugsa stórt.

Það átti sem sé fyrir Steingrími okkar hérna að liggja og flokkseigendafélagi VG, sem á að sjálfsögðu Steingrím líka eins og hann leggur sig, að drekkja umræddri vinstrihreygingu og grænu framboði í kviksyndi íhaldsframsóknarkratismans, ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

En ekki tjáir að gráta afglöp og hroka Steingríms bónda, heldur safna lið og sýna karlfauski þessum og búrtíkum hans hvar Davíð vinur þeirra keypti ölið. 

Það stendur því uppá okkur sósíalista, Jón minn, að endurstilla allt heila klabbið með einhverjum hætti. Ég mæli með því að við endurstofnum Vinstrihreyfinguna, án Steingríms, Álfheiðar, Sendiherrafjölskydunnar og undanrennulýðsins sem dillir sé og gjammar fyrir yfirstéttarslektið í VG. Það er nefnilega meiri eftirspurn en margann grunar eftir sósíalískum flokki hér á landi, ekki síst í ljósi þess að enginn slíkur flokkur hefur starfað hér um skeið en þeim mun fleiri íhaldsframsóknarflokkar, fjórflokkar, og heilmikið kraðak af nýstofnuðum og bráðlegastofnuðum auðvaldsflokkum sem allir eru jafnframt í dauðateygjunum af kæfandi frjálslyndi, réttlæti og alltumvefjandi auðvaldskærleika.

Það því ekkert sem heitir ljótt, Jón minn, að nú verða sósíalistar á Íslandi að láta slag standa og endurreisa samtök sín uppúr öskustó VG, enda er það heilög skylda þeirra.


mbl.is Eigum ekkert erindi í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumfluttu karolíska orgíu fyrir tvo ...

ingv17.jpgFjandi er ég smeykur um að góðvinir þjóðarinnar, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, frú Ingveldur, Indriði handreður og Máría borgargagn, þyki 10 bestu kynlífssenurnar ansi þunnur þrettándi. Fólk eins og þau, sem eru vönd að virðingu sinni í kynlífsmálum, vilja ekkert hlandgálugugt í þeim efnum.

Tökum til dæmis frú Ingveldi, sem hefur marga endurgelgjuna sopið á sinni viðburðaríku ævi. Hún heldur því fram að viðþolslaus gredda sé náðargáfa sem ekki eigi að leggja neinar hömlur á. Og hún getur trútt um talað, eftir að hafa búið með öðrum eins endemis fjörkálfi og Kolbeini Kolbeinssyni í stinna þrjá áratugi. Þó má segja að frú Ingveldur sé ekki að öllu leyti samkvæm sjáfri sér í þessum efnum. Hún hefur nefnilega margoft misþyrmt eiginmanni sínum fyrir hjúskaparbrot og önnur fáránleg kynferðisafglöp. Þó keyrði um þverbak þegar frú Ingveldur stóð mann sinn að fullkomnu óeðli með karlkyns sóknarpresti. Þá fór hún slíkum hamförum í líkamsmeiðingum og ofstopa að viðkomandi prestur flúði með kerlingu sína til Makedoníu og messar þar nú hjá einhverjum sértrúarsöfnuði.

Og ekki hafa Máría borgargagn og Indriði handreður slegið slöku við í að fremja krassandi kynlífsgjörninga útum borg og bý. Moldfull og leiðinleg hófust þau handa á Landakotstúninu hér um árið og frumfluttu karolíska orgíu fyrir tvo í aðalhlutverkum og tvo í aukahlutverkum. Fyrir bragðið voru þau handtekin og kærð fyrir að særa blygðunarkennd íbúa Reykjavíkur og Seltjarnarness.


mbl.is 10 bestu kynlífssenurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennir Guði Almáttugum um Hrunið

god2Helvítis ansans ósköp er Einsi Gvöfinns orðinn vel að sér í stjórnmálafræðum; hann hreinlega leiftrar uppljómun andans oft á dag, og flóknustu hlutir liggja þá fyrir honum eins og opin bók.

Nú hefur þessi rammi hugsuður komist að því, að Samfylkingin og VG séu klofin ofaní rót og vilji þar af leiðandi ekki kosningar. Og til að bæta um betur fullyrðir Einsi að Jóhanna Sig sé ófær um að leiða Samfylkinguna.

Það er ekki ónýtt fyrir þjóðina að eiga annan eins andans jöfur og Einsa Gvöðfinns.

Ég man líka eftir öðrum Einsa. Sá var og er kallaður Einsi kroppur. Kroppsnafnið mun ekki eiga sér uppruna í íturlegu vaxtarlagi kappans, en slíku atgerfi var ekki til að dreifa í hans tifelli.

En Einsi kroppur hefur alla tíð búið að sérstakri náðargáfu. Það er að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þessi guðsblessaða náðargáfa hefur nú knúið Einsa kropp til að flytja búferlum til Noregs, af því að fínu lánin hans hækkuðu svo furðulega mikið eftir Hrunið sem Sjálfstæðisflokkurinn hans færði honum. Svo einkennilega vill þó til, að Einsa kroppi er fyrirmunað að sjá samhengið milli hækkun lánanna, Hrunsins og Sjálfstæðisflokksins. Hann kennir nefnilega öllu öðru en Sjálfstæðisflokknum um ófarir sínar. Nú síðast dró hann Guð Almáttugan inní málið og kenndi honum um allt svínaríið.


mbl.is Segir Jóhönnu ófæra um að leiða Samfylkinguna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband