Bloggfærslur mánaðarins, júní 2013
Í Brekkukotsannál, bls 139, er sagt frá dúxasjúkdómnum á þessa leið: - Mér er sagt ég hafi í skóla verið sú tegund af fáráðlingum sem hafa dúxaveikina. Það er talið á Íslandi að þeir sem hafa þessa veiki geti aldrei orðið annað en drykkjurútar, blaðamenn eða undirkontóristar. (Tilvitnun í Brekkukotsannál líkur.)
Því miður hafa læknavísindi enn ekki fundið upp ráð við dúxaveikinni. En sagt er að færir vísindalegir rannsóknarmenn fullyrði, að ekki sé einusinni hægt að nota dúxa til blaðberastarfs og enn síður snjómoksturs. Þá er dúxum ráðið eindregið frá að reyna sig til sjós, því að un borð í skipi fari þeir sér ævinlega að voða eða verði þess valdandi að aðrir menn hrökkvi fyrir borð, falli marga metra niður á lestargólf og stórslasist.
Í viðurkenndum menningarlöndum á borð við Bandaríkin, Saudi Arabíu og Egyptaland, eru dúxar hafðir á sérstökum hælum þar sem umhverfinu stafar ekki hætta af þeim.
Stærðfræðiséní af Suðurnesjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2013 | 19:07
Gjörspillt snobbkratakéllíng veður elginn.
En svona er nú réttlæti kratanna, krataeðlið. Þessum vesalingum er eðlislægt að skríða eins og úrkynjaðir rakkar fyrir valdi kapítalismans. Svo kallar þetta hyski sig jafnaðarmenn!
Hefði sagt sig úr flokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þegar frú Ingveldur frétti af afreki hinna ungu bifhjólameistara, glaðnaði svo heldur betur yfir henni þrátt fyrir mánudagstimburmennina, að hún hringdi í leigubílstjóra og skipaði honum að fara í ríkið fyrir sig og kaupa 5 kassa af Carlsberg Elefanti og fimm pottflöskur af stalínískum vodka og færa sér undanbragðalaust á stundinni.
Þegar frú Ingveldur var búin að drekka úr sér timburmennina stefndi hún Máríu Borgargagni og stúlkunum á sinn fund. Þegar þessi pistill er ritaður, stendur gríðarleg veisla sem hæst hjá frú Ingveldi og ekkert til sparað í mat og drykk. Enda ekki á hverjum degi, að frædfólk frú Ingveldar og Máríuborgargagns vinna jafn stórbrotið afrek og bifhjólagelgjunnar unnu í gærkvöldi. Hitt er svo aftur annað mál, að helvítis ljósastaurinn sem telpurnar óku á hefði átt að vera staðsettur annarsstaðar, en sá staurfjandi kom í veg fyrir að þeim tækist að stinga lögregluna af.
Börn veittust að lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Að sjálfsögðu hafa hin illa upplýstu borgaryifvöld ekki hugmynd um, fremur en annað, að Arnarhóll er helgur reitur, sem orkt hefir verið um af stórskáldum í bundnu og óbundnu máli. En fyrst og síðast er Arnarhóll athvarf og griðastaður mestu gleðimanna í Bakkusi konungi, sem þjóðin hefir eignast, og þar er enn fremur varnarþiing þeirra og hymmnaríki. Efst á hólnum gnæfir svo stytta af knálegum náunga, sem sumir vilja meina að sé af Ingólfi einhvejum Arnarsyni, en svo er ekki því styttan er af Bakkusi konungi sjálfum, sem er vel við hæfi á þessum stað.
Illa meinandi óheillakrákur borgarastéttarinnar hafa löngum kallað innbyggjara Arnarhóls öllum illum nöfnum eins og ræfla, ónytjunga, göturæsissvín ... og meira að segja róna. Það merkilega við munnsöfuð og fyrirlitningu borgarastéttarinnar á arnarhólskeisurunum er sam sú staðreynd, að á meðan gleðimenn Arnarhóls eru stálheiðarlegir, upplyftir hugsjónamenn þá eru helstu stertimenni borgarastéttarinnar ýmist forheimskandi afætur eða forhertir glæpamenn af fystu gráðu.
Í fullri vinsemd vil ég benda Gnarrinu og krullhærða sjakalanum frá Samfylkingunni og sagður er læknir, að vernda Arnahól og hemspekingana sem þar búa framvegis fyrir brjáluðum mönnum eins og Retrói Stefssyni og þeim óarga skríl sem honum fylgir og samanstendur af barnungum tækifærisfylliröftum allt ofaní 10 ára að aldri.
Retro Stefson tryllti lýðinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2013 | 21:10
Til hamingju ,,Hinir síungu." Til hamingju. - En næsta ár heimta ég að komast á bæjarlitamannalaun
Að sjálfsögðu hef ég, eins og aðrir bæjarbúar, átt góð samskifti við áhöfn ,,Hinna síungu: Má þar af handahófi nefna, að einn þeira keyrði mig heilan vetur, alla daga nema sunnudaga, í skóla, þar eð vel meinandi fólk fékk þá flugu í höfuðið, að hægt að troða einhverju námsefni inní hausinn á mér, sem var auðvitað mesta firra; annar kenndi mér einn vetur, með betri árangri en hægt var að ætlast til, þá ég var skólasveinn í Barnaskóla Ólafsvíkur; þriðji hefur smíðað fyrir mig allmarga glugga og með hinum fjórða sat ég fyrir margt löngu nokkrum sinnum fundi í bæjarstjórn Ólafsvíkur.
Varla þarf að taka fram, að meðlimir ,,Hinna síungur" eru langflestir það sem kallað er ,,góðir framsóknarmenn", en slíkt er af sumum talið hverri persónu fremur til lasts en af öðrum mesti kostur sem prýtt getur nokkurn mann. En það verur víst að hafa það hvernig bítlahljómsveitin Hinir sínungu eru stemmdir í pólitík, - enginn er með öllu gallalaus í henni veröld og ekki verður á allt kosið.
Um leið og ég ítreka hamingjuóskir mínar til minna kæru síungu sveitunga, vil ég af mestu hófsemd og lítillæti mælast til að mér sjálfum verði veittur titillinn ,,bæjarlistamaður Snæfellsbæjar" á næsta ári fyrir ötul, göfug og gefandi bloggstörf mín undanfarin ár. Ekki verður því neitað að Bloggskrif eru list, sem verðaskulda stóran staf, og með það í huga ætti að vera auðvelt fyrir nefndina, sem sér um útnefningu bæjarlistamanna, að setja mig á bæjarlistamannalaun næsta ár. Amen.
Hinir síungu bæjarlistamenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2013 | 21:29
Hálfíslenski sjómannssonurinn Vilhjálmur
Í ljósi þess, að félagi Ólafur Ragnar Grímsson forseti mun að líkindum láta af forsetaembætti í lok kjörtímabils hans, væri sérstaklega gráupplagt að fá hálfíslenska sjómannsyninum, Vilhjálmi prins, forsetatignina í hendur, án málalenginga.
Vilhjálmur Bretaprins indverskur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.6.2013 | 20:57
Geldingartöng frá Ásmundi og minnispunktur frá brúðkaupi Kolbeins og frú Ingveldar
Og fyrst ég er farinn að skrifa um brúðkaup, er ekki úr vegi að rifja agnarögn upp atburð sem gerðist í brúðkaupi Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og og frú Ingveldar, sem á þeim tímapunkti starfaði sem íþrótta- og snyrtifulltrúi.
Það gerðist nefnilega í brúðkaupi þeirra sæmdarhjóna, að vinir þeirra, Máría Borgargagn og Indriði Handreður fóru, sökum ölvunar, að eðla sig undir borði í brúkaupsveislunni miðri við mikinn fögnuð Kolbeins brúðguma, sem vildi ólmur að hann og frú Ingveldur létu slag standa og færu í smá-eðlisfræðikeppni við Handreðinn og Borgargagnið. Skipti heldur engum togum, að við lá, að brúðkaupsveislan breyttist úr virðulegu borgarastéttarbrúðkaupi í allsherjar orgíu eins og þær gerast verstar og svæsnastar í pornómyndum. En sem betur fer hóf gamli Kolbeinn Kolbeinsson, afi Kolbeins brúðguma, járnsleginn göngustaf sinn á loft og lúbarði sonarson sinn með honum, ásamt einginkonu hans, sem og Máríu Borgargagn og Hanreðinn eins og vitfirrta hunda, uns þeim skildist að þau ættu að haga sér eins og siðað fólk á þessari hátíðarstund. En brúðkaupsgestum þótti að vonum skemmtilegt að sjá hið dónalega fólk gyrða uppum sig brækurnar og strjúka niðrum sig pilsin eftir barsmíðar gamla mannsins á þeim.
Nauðgaði á brúðkaupsdaginn sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hleypt inn í hollum í Ríkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2013 | 08:53
Þær náfrænkur, Framsóknarmaddaman og Rauðsmýrarmaddaman, hafa löngum verið samar við sig, enda margt líkt með skyldum.
Þetta góðverk hinnar dauðu og afturgengnu Framsóknarmaddömu er mjög í stíl við góðverkið sem Rauðsmýrarmaddaman, náfrænka Framsóknarmaddömunnar, framdi á Bjarti í Sumarhúsum þegar hún seldi Bjarti vinnumanni sínum draugabælið Sumarhús, eftir að Ingólfur sonur hennar hafði barnað vinnukonu hennar á laun. En hluti af kaupverðinu á Sumarhúsum var að Bjartur tæki hina þunguð vinnukonu með sér að Sumarhúsum og gengist við að hann væri faðir barnsins svo að engin skömm félli á Rauðsmýrarheimilið.
Meðfylgjandi mynd er af Framsóknarmaddömunni hvar hún á góðum degi hvílir lúin bein í gröf sinni.
Sauðfé við heimili forsætisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2013 | 08:15
Óþarfa afskiftasemi
Ef þetta hefur verið ráðherrabíll átti fortakslaust að láta manninn óáreittan við iðju sína, því fátt fer ráðherrum nýju auðvaldsstjórnarinnar betur en að vera ekið um á glæsivagni, sem duglegur og skemmtanavandur maður hefur beitt slaghamri. Beyglaður og skældur bíll með brotnar rúður er til að mynda hæfilegur lygaknörr fyrir þennan undarlega náunga, sem búið er að gera að forsætisráðherra, þar eð slík bifreið samsvarar sér einkar vel við framferði þessa forsætisráðherra, ósvífin kosningaloforð hans og óumflýjanleg svik hans við þau.
Það er ekki beint aðlaðandi ásjóna, sem við blasir, þegar ríkisstjórnin missir grímuna frá andlitinu eitt andartak.
Braut rúður við Stjórnarráðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 21
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 1493
- Frá upphafi: 1542363
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 1315
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007