Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2014

Ástandið hefur víst batnað. Allt tal um annað er lúsugur áróður og lýgi

xd7.jpgÁ fólk virkilega að trúa því að ástandið hafi ekkert batnað eftir bráðum árs valdatíð loforðastjórnar Simundarr og Bjarna og þar áður fjögurra ára yfirnáttúrlega flórmokandi kraftaverkastjórn Jóhönnu og Steingríms? Já, ástandið í fátæktarmálum og örbirgðar hafi jafnvel versnað? Ég á bágt með að trúa því. Og vóru þó báðar áminnstar ríkisstjórnir vel hægrisinnaðar; önnur endurreisti Gamla Ísland uppí skítugar lúkurnar á hinni.

Auðvitað hefur ástandið batnað mjög mikið, allt tal um annað ber vott um ófagurt hugarfar ef ekki illgirni og vonsku á háu stigi. Til marks um batnandi ástand eru sífelldar umfjallanir fjölmiðla um stórasannleik Verslunarráðs og annarra dásamlegra auðvaldsfélaga og viðhafnarviðtöl við æðstupresta þessara trúarstofnanna nýfrjálshyggjunnar. Og aldrei hefur blessað kvótakerfið verið fastara í sessi, þökk sé stórsocialistanum Steingrími Þríhrossi. Nú hyllir og undir að bölvað menntakerfið verði loksins einkavætt undir handleiðslu nýfrjálshyggjudrottningarinnar Margrétar Pálu og bandaríska heilbrigiskerfið bíður sem betur fer handan við hornið. Menn skulu minnast þess, og koma inní hausinn á sér í eitt skifti fyrir öll, að misrétti og ójöfnuður er jafnrétti og raunverulegur jöfnuður og sameign fólksins á atvinnutækjum og velferð er óréttlæti gagnvart þeim sem eru bornir til að vera jafnari en aðrir.

Það er sem sé allt að verða klárt undir næsta Hrun, og er það vel.
mbl.is „Ástandið hefur ekkert batnað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi verður dásamlegt stríð

war.jpgÞað verður stríð þar austurfrá. Vonandi dásamlegt stríð, sem guðsútvaldir græða pééénínga á og gleður friðarpostulana í NATO ESB og USA. Nú er lag fyrir Gunnar Braga og Árna Pál að taka höndum saman og fara með sínum mönnum í einni halarófu á vígstöðvarnar í Úkraínu til að berjast við þann arma þrjót Pútín og hans hyski.

Lítill piltur lagði í stríð
og lenti þar í kúlnahríð.
Ekki er að efa það.
Nú unir hann við englasöng
með orðu á brjósti dægrin löng.
Það er nú svo með það.
mbl.is Úkraínumenn grípa til vopna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herskáar konur slógust útaf krataeðlinu

ingv45.jpgHún ku víst geta orðið andskotans ári herská hún Sigríður Ingibjörg þegar þannig stendur í bólið hjá henni. Og henni munar, að talið er, ekkert um að klóra glyrnurnar úr Ögmundi Jónassyni ef henni þykir þess þurfa með. Svo það er eins gott fyrir Ögmund að hafa sig hægan og láta vera að bekkjast við slíkan kvenvarg, ef honum er á annað borð umhugað að halda sjáöldrum sínum heilum.

Ekki alls fyrir löngu bárust mér fréttir af grimmum slagsmálum á milli Máríu Borgargagns og téðrar Sigríðar Ingibjargar í ærslafullu samkvæmi hjá frú Ingiveldi og Kolbeini Kolbeinssyni. Máríu og Sigríði varð sem sé sundurorða útaf ekki ómerkilegri hlut en sjálfu krataeðlinu. Deila þeirra jóskst orð af orði uns Máría Borgargagn lýsti því yfir að helvítis krataeðlið minnti sig á fátt annað en kattarskít úr magaveiku fressi. Þegar þessi orð voru sögð flaug Siríður á Borgargagnið og hótaði í leiðinni að hún skyldi skohh gefa þessari flagðmeri svoleiðis á kjaftinn að hún skutlaðist eins og vígahnöttur alla leið suðrí ESB-dýrðina miðja. Sem betur fer bar góðgjarna menn að, sem gengu á milli stríðsaðilja og auðnaðist að bera klæði á vopnin. Síðan vísaði frú Ingveldur Sigríði á dyr með þeim orðum, að á sínu heimili liðist engum að hóta sómasamlegum manneskjum með ESB.
mbl.is Hvöss orðaskipti þingmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin hyggst til að koma í veg fyrir byltingarstafsemi og frekjulæti gamlingja með lagasetningu

old1.jpgSkjaldan er vargagangurinn langt undan þegar gamlingjarnir blása til fundarhalda. Allir muna eftir uppsteyt öldunganna á Eir fyrir ekki svo alllöngu síðan, útaf einhverjum smámunum. Þar steyptu gamlingjarnir stjórn Eirar af stóli með vopnaðri byltingu, ef ég man rétt, sem ég man. Þá eru þessir svokölluðu eldri borgarar þekktir fyrir ókristilegar, að ég ekki segi bolsévískrar, kröfur á stjórnvöld landsins um að þau fylli vasa þeirra af milljörðum og aftur milljörðum af beinhörðum péééníngum. Pééénínga ætla gamlingjarnir svo að nota að mér skilst til að stunda óhófslíferni á breiðum grundvelli.

En nú mun ríkisstjórnin vera búin að fá yfir sig nóg og uppí kok af frekjulátum og byltingarstarfsemi ábyrgðarlausra öldunga. Ríkisstjórnin hefur sem sé í bígerð, að setja neyðarlög á þennan ósvífna þrýstihóp og koma með þeim inní hausinn á ellilíeyrisþegum, að tilvist þeirra eigi fyrst og síðast að byggjast á því að þeir leyfi framtakssömum og duglegum einkaaðilum að fénýta sig vel og vandlega.

Í samtali við fréttastofu ríkisstjórnarinnar sagði alþingisskörungurinn Óli Apaköttur, sem þá var staddur í veislu að heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar, að frumvarp sem mun þagga niður í gamlingjum í eitt skifti fyrir öll liggi fullbúið á borði ríkisstjórnarinnar og verði lagt fyrir þingið á allra næstu dögum og það keyrt í gegn á hraðbrautarsiglingu.
mbl.is Fjölmennt á fundi FEB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rotaði tvo heiðursmenn með því að slá þeim saman

xb5_1233022.jpgHræðilega er alltaf sorglegt og svekkjandi þegar heilsubótarfrömuðir fara í hár saman og ásaka hverja aðra um lygar, okur, stottulækningar, fals og annað ámóta kræsilegt. Þegar slíkt brestur á er eins og hymmnarnir hrynji og eldstólpar fari um sálarlendur samfélagsins.

Munum við ekki enn eftir stólpíparanum góða sem mátta sæta kárínum og ofsóknum frá læknum fyrir það eitt að dæla úr haughúsum átvagla sem lifðu merstan part á mayonesi, hamborgurum og pizzum? Og hvernig var ekki farið með Friðrik huldulækni úr öðrum heimi hér fyrr á tíð? Honum var vitanlega sagt að fara til fjandans af gáfumönnum þeirra daga.

Frú Ingveldur hefur löngum verið mikill aðdáandi World Class, Sollu á grænum kosti og Jónínu Ben. Enda er frú Ingveldur einhver heilbrigðasta og hraustasta kona sem um getur á Íslandi frá því að landnámsöld var. Stælt til sálar og líkama hefur hún boðið hvaða slordóna og sótrafti birginn í hörðum bardaga og haft sigur. Síðastliðið þriðjudagskvöld greip hún Brynjar Vondulykt og Indriða Handreð með sitthvorri hendi og sló þeim saman svo þeir lágu eftir óvígir í öngviti. Hún hélt nefnilega, að umræddir heiðursmenn, ætluðu að gera bragð úr ellefta boðorðinu og nauðga sér. Þetta afrek þakkar frú Ingveldur heilsubótariðkunum sínum hjá Woeld Class, Sollu á grænum og Jónínu Ben.


mbl.is Segja Björn fara með rangt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ávarpa stjórnvöld eins og skítugt hundkvikindi

dog.jpgÞað er naumast munnsöfnuðurinn og heimtufrekjan sem stúdentar í Stúdendaráði Háskóla Íslands hafa tamið sér. Helst mætti ætla að þetta "ráð", sem ber öll einkenni óráðs, væri samansafn óuppdreginna slordóna frá miðri síðustu öld. Fyrir nú utan að grenja um hrylling og hafa í hótunum, tala þessir óknyttabörn til stjórnvalda eins og þau væru að ávarpa skítugt hundkvikindi.

Ef menntafólk framtíðarinnar ætlar að haga sér útí eitt með þessum hætti, munum við innanskamms sitja uppi með skaðmenntaða uppskafninga sem hafa hrun á hrun ofan að markmiði og gera útafvið þjóðfélagið á undraskömmum tíma.
mbl.is „Afleiðingar verkfalls hryllingur einn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flatur kviður og flatlúsarfordómar

flad.jpgEkki held ég að allir geti fengið flatan kvið, enda ekki nema í maðallagi eftirsóknarvert. Hinsvegar geta allir fengið flatlús á kviðsvæðið ef þeir leggja sig eftir því. Að vísu er fladdarinn misskilinn af röngum aldaranda og honum fundið eitt og annað til foráttu. Fordómarnir gegn flatlúsinni, eru eins og aðrir fordómar, byggir á gengdarlausri fávisku og ónógri upplýsingu. Mönnum og konum hefur nefnilega þótt bölvuð yfirþyrmandi skömm að því að luma á þessu litla dýri innanklæða og forðast að láta nokkra manneskju vita af fénaðinum sem hefur gert sig heimakominn á kviðstöðvum þeirra.

Einn góður vinur minn, sem ekki er hryðjuverkamaður af upplagi, fékk við vel varið tækifæri á sig nokkrar pöddur, sem tóku óðar til óspilltra málanna á miðvígstöðvum hans. Um þær mundir er þetta gerðist, vorum við félagarnir að beita saman lóðir á miklu vertíðarskipi og vórum önnum kafnir frá morgni og frammá nótt. Af skammarsökum og misskilnings, sagði vinur minn ekki neinum frá aðsteðjandi vanda og vissi sannast sagna ekki par hvernig hann ætti að haga baráttu sinni gegn því ógurlega flatlúsamori sem komið var til skjalanna. Eftir margra vikna kvalræði til sálar og líkama, hrökk svo uppí huga hans gömul minning um ráð við flatlúsaplágu. Ráðið fólst í að bera steinolíu að heimkynnum vágestsins og drekkja honum í henni. Um hánótt í stórhríð með grimmdarfrosti og hávaðaroki, laumaðist vinur minn þegar aðrir menn voru sofandi að steinolíutanknum við kaupfélagið og náði að kreista dálítinn slurk af hinum eftirsótta vökva í ryðgaða niðursuðudollu. Þegar hann komst í var bar hann steinolíuna vandlega á sig frá nafla að framan og uppfyrir rassaskor að aftan. Og sjá, allar flatlýsnar vinar míns, frá öldungum niðrí örkríli, steindóu með það sama og voru ekki syrgðar af eiganda sínum. Afturámóti grunar okkur félagana, að vinur okkar sem með okkur stundaði línubeitningu, hafi einnig meðtekið flatlúsainnrás ogekki auðnast að verða eins ráðagóður. Hann nuddaði lífbeininu í sífellu uppvið borðrandir og klóraði sér þessámilli grimmdarlega þar örlítið neðar. Þetta þókti óbrigðult merki um að viðkomandi hefði fladdara. Nú eru liðnir þó nokkrir áratugir síðan þessi atburður varð, en svo einkennilega sem það hljómar, þá stundar vinur okkar ennþá þetta einkennandi borðbrúnarnudd og grimmdarklór, sem bendir eindregið til þess að hann hýsi enn þann dag í dag bölvaðann kvikfénaðinn sem hann fékk á sig endur fyrir löngu.
mbl.is Geta allir fengið flatan kvið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foringi skuggastjórnarinnar afgreiddi hr. Bergsson með hreðjataki og kynnti um leið nýjan frambjóðanda

kol46.jpgFyrir þá sem þekkja lítt innviða stjórnmálaflokkana, þá skal hér með upplýst, að sá góðkunni og vinsæli maður, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, er einhver helsti póstur Framsóknarflokksins bak við tjöldin; hann er með öðrum orðum nokkurskonar forystumaður skuggaráðuneytis þessa gamla burðarvirkis íslensks samfélags.

Og það var auðvitað Kolbeinn Kolbeinsson sem tók af skarið varðandi þann skelfilega frambjóðanda Óskar Bergsson. Skuggaráðuneytisstjórinn fór vissulega fagmannlega að við að leysa þetta mál, fór sér að engu óðslega, en þegar allt var klárt lagði hann einfaldlega hendur á hr. Bergsson og neyddi hann veinandi til að afsala sér fysrsta sætinu á lista Framsóknar í Reykjavík. Það er sagt að hr. Bergson hafi skrækt svo ofboðslega við þetta tækifæri, að valinkunnir framsóknarraftar margsjóaðir í allrahanda pólitísku ofbeldi og undirferli, hafi orðið svo skelkaðir að þeir flúðu í ofboði yfrí næsta herbergi. Ennfremur, segja bestu heimildir, að Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri hafi notað sína eftirlætisaðferð til að koma hr. Bergsson í skilning um að hann væri óæskilegur lúser og kjósendafæla sem ætti betur heima í geymslu með mengandi spillefnum en í fyrsta sæti á lista hjá jafn göfugri stofnun og Framsóknarflokknum.

Þegar Kolbeinn hafði afgreitt hr. Bergsson að fullu og öllu, boðaði hann meðlimi skuggaráðuneytisins á sinn fund og tilkynnti þeim þá gleðifrétt að pólitískir dagar hins misheppnaða frambjóðanda væru taldir og honum á fjóshauginn kastað. Þar næst upplýsti hann samkomuna um að hann væri með þungaviktarmann, sem einnig væri sannur kraftaverkamaður, í hendi til að stetjast í æruprýtt fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Sá maður væri Ólafur Ólafsson útvegsbóndi, sem væri mikill stórbóndi að Miðhrauni á Snæfellsnesi auk þess að veita útgerðarfélaginu Samskip forstöðu. Gerðu viðstaddir góðan róm að störfum Kolbeins í þágu Framsóknarmanna og eru þess fullvissir, að með annan eins þungaviktar- og heiðursmann og Ólaf Ólafsson útvegsbónda í forsæti muni Framsókn snúa vörn í sókn og gjörsigra í borgarstjórnarkosningunum í vor.
mbl.is Óskar mun ekki leiða listann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband