Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2014

Hin óvenjulíka samsvörun á Íslandi

grénjirJapanska þingtuskan Ryutaro Nonomura á sér óvenjulíka samsvörun í íslenska stjórnmálagrátsöngvaranum Sigmúndi Dávíð, sem gamansamir prakkarar gerðu að talsmanni húskarla Framsóknarmaddömunnar og síðar að forsætisráðherra. Því miður þykir mörgum gamansemi framsóknarpúkanna helsti grá og finnst ekkert sniðugt að láta svo stríðalinn og grátgjarnan pabbadreng gegna starfsheitinu forsætisráðherra. Að vera forsætisráðherra er ekkert fyrir börn, allrasíst önuga keipakrakka sem getið hafa sér orð fyrir að vera sígrenjandi af yfirstéttarfrekju.

Það var víst Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri sem kom því á að gera hinn sviðadrjúga dreng að helsta opinbera talsmanni gömlu Framsóknarmaddömunnar, sem legið hefir meir en steindauð í öndunarvél í góða tvo áratugi. Ef sú gamla kæmist til meðvitundar, er næsta víst að hún mundi ganga af göflunum þegar hún kæmist að því hverskonar ótæti og óhræsi hafa vélað með fjóshaug hennar og gripahús. Líklega byrjaði kérlíngin á því að taka hinn kjökursjúka talsmann og koma honum fyrir í fjóshaugnum; í sama stað færu síðan gifturíki kaupfélagsstjórinn og strengjabrúðurnar hans, ásamt Finni, Óla á Miðhrauni, Sigga bánkafursta, Valgerði og Halldóri. Því meðan Framsóknarmaddaman var við fulla heilsu á árum áður og sæmilega alsgáð, var hún kunn fyrir að vera vönd að virðingu sinni og leið hvorki húskörlum sínum né griðkonum neinn skítbuxnahátt, sem verstu götustrákum væri ekki einusinni sæmandi. Það er því eins gott fyrir áðurnefnd gægsn að gamla Framsóknarmaddaman komist aldrei meir til meðvitundar.
mbl.is Sá hágrátandi segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún hefir verið býna hneigð fyrir grænlenska karlmenn

grae.jpgSem kunnugt er, þá er það eðla fljóð, Máría Borgargagn býsna hneigð fyrir grænlenska karlmenn og sér sig skjaldan úr færi með að bregða á leik með þessháttar guttum ef færi gefst. Um tíma bjó hún með slíkum grip, en sá var úr hófi fram drykkfelldur og árásargjarn og mátti Máría stundum láta sig hafa það að slást við þennan þorpara, stundum heilu næturnar. Loks kom hún honum um borð í frystitogara og hefir þessi maður ekki sést síðan. Talið er að Máría hafi beðið skipstjórann fyrir grænlendinginn með þeim orðum, að hann fengi ríkulega borgað fyrir ef hann sæi svo um að þrjóturinn kæmi aldrei til Íslands meir.

En í gærkvöldi rakst Máría Borgargagn fyrir tilviljun sem sé á tvo glaðsinna grænlenska sjómenn sem voru að skemmta sér á vertshúsi einu í Reykjavík. Skifti aungvum togum, að Máría tók báða á löpp og leiddi þá bak við vertshúsið til að reyna karlmennsku þeirra. Ekki tóks þó betur til en svo, að þegar Borgargagnið var búin að hífa uppum sig kjólgopann, laust grænlendingunum saman útaf því hvor þeirra ætti að vera á undan að mæla blíðu hinnar errilegu kvinnu. Og þar sem engin málamiðlun var í sjónmáli fóru þeir að slást með hnúum og hnefum og var ásetningur beggja að taka hinn af lífi sem skjótast. Þegar Máría Borgargagn sá hvað verða vildi, dró hún kjólgopann niðrum sig aftur og hvarf á braut, en lögreglan tók bardagamennina í sína vörslu.
mbl.is Annar á slysadeild en hinn í fangaklefa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullkominn heilsudrykkur fyrir kanann

rat5.jpgJú ég held það sé gráupplagt að ljúga taðblandaðan bjór ofaní helvískann kanann, það er áreiðanlega fullgóður drykkur í trantinn á honum. Og það sem meira er: Þessi mjöður smellpassar sem hátíðardrykkur á geiprædinu.

Hér fyrr meir brugguðu menn gambra í hinum og þessum skúmaskotum þar sem nagdýr af músastofni sem og rottustofni áttu greiðan aðgang að. Og þar er fyrrgreind nagkykvendi eru drykkfelld og gefin fyrir óráðsíulifnað, gerðu þau sé lítið fyrir og kukkuðu og pissuðu í gambrann. Stundum varð þeim fótaskortur á tunnubarminum og hröpuðu niðrí hana og drukknuðu. Eigendur gambrans vóru oftar en ekki lítt smámunasamir menn og var fjandans sama þó fleiri eða færri mýs færu sé að voða í ölgerðarílátum þeirra og drukku framleiðsluna í sig eins og sælgæti og urðu blindfullir af og framúrskarandi skemmtilegir. Af þessu geta menn séð, að taðblandaður bjór er þjóðlegt öl og andskotanum hollara ef út í manneldissálma væri farið og þar af leiðandi fullkominn heilsudrykkur í fjandans belginn á kananum.
mbl.is Taðreyktur bjór til Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá hefði henni gefist færi á að slá honum við ofninn

konaHelvíti góður gæi þessi innbrotsþjófur að gleyma ekki að gefa köttunum sælgæti og biðjast í þokkabót afsökunnar á að þjófstela tölvunni og harða diskinum. Glæpurinn hefði verið mikið skuggalegri ef mannfjandinn hefði hlaupist á brott frá köttunum veinandi af hungri.

Þegar Truggi Fokk braust inn hjá frú Ingveldi til að eiga vingott við Kolbein tók hún á móti honum af fullri einurð. Er frú Ingveldur varð innbrotsmannsins vör læddist hún í veg fyrir hann, tók hann taki og sló honum miskunarlaust utan í ofn og reif utan af honum fötin og kveikti í þeim úti á stétt. Því næst fjötraði hún Trugga og framdi á honum næstum nöktum þá refsingu sem hann átti skilið, sem bæði var harðsnúin og óprenthæf. Að vísu rumskaði Kolbeinn við skarkið sem fylgdi umsvifum frú Ingveldar og ráfaði á hljóðin. Þegar honum varð litið á bráð frú Ingveldar fór hann að kjökra og bað Guð að hjálpa sér, en frú Ingveldur svaraði honum með snoppungi svo hann kastaðist utan í vegg og hné þar niður eins og dauð marglytta. Daginn eftir lagði Truggi Fokk fram kæru á hendur frú Ingveldi þar sem hann sakaði hana um tilraun til manndráps, frelsissviftingu, ærumorð, lygar og hótun um að selja hann mansali. Varð af þessu býsna fjörugur málarekstur, sem lauk skyndilega með því að frú Ingveldur náði Trugga Fokk einum úti á víðavangi og þröngvaði honum til að draga allar sínar kærur til baka annars myndi hún hreinlega snúa hann úr hálsliðnum.

Það hefði því verið heppilegast að Júlía Hvanndal hefði verið heima þegar hinn kattelska innbrotsraft bar að garði, því þá hefði henni gefist færi á slá honum við ofninn, tæta fatalarfa hans í hengla og tjóðra hann klossfastan við stofuskápinn.
mbl.is Augljóst innbrot en engar bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og tröllkona sem er að hrapa fyrir þverhnípt björg

ingv16_1240389.jpgÞað var svo sem auðvitað að einhver giljagaur á stuttbuxum væri gerður út af örkinni með brennivínsfrumvarp fyrir prangarastéttina. Samkvæmt fréttum heitir giljagaurinn að þessu sinni Vilhjálmur Árnason og er sagður alþingismaður þrátt fyrir að ekki nokkur lifandi maður hafi til þessa haft hugmynd um þingmann undir því nafni.

Í herbúðum frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar brustu út mikil gleðilæti þegar fréttist af brennivínsfrumvarpinu og Brynjar Vondalykt æpti uppyfir sig að loksinsloksins værum vér íslendingar að verða eins og siðaðar þjóðir, en sem kunnugt er þá er mælikvarðinn á að þjóð sé siðuð að prangarar fari með sölu brennivíns í sjoppum sínum. Og glðin var svo mikil, að Kolbeinn Kolbeinsson, sem síðustu misseri hefir hallast æ meir að hómósexúalisma, dró Máríu Borgargagn fram í bílskúr og sarð hana þar, svo að segja fyrir framan nefið á Indriða Handreði sambýlingi hennar. En Indriði var líka ofsaglaður svo honum var andstotans sama þó Kolbeinn vinur hans væri að hnoðast á og þenja Borgargagnið á smurolíukámugu bílskúrsgólfinu. Svona getur góð frétt um undurfrjálst brennivínsprang gert fólk frjálslynt og velviljað.

Svo tók frú Ingveldur smá-skrans á strákunum, Brynjari Vondulykt og Óla GÞÞ Apaketti og Haffi Frænka fékk ofurlítinn þjóhnappanúning svo hann hrein uppyfir sig eins og tröllkona sem er að hrapa fyrir þverhnípt björg. Það má því búast við óvenju líflegu samkvæmi þessa helgina hjá frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni.
mbl.is „Sjálfsagður hlutur að leyfa þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húsbrotskallinn á leið suður í kveldverðarboð

fbskxat.jpg- O Ho Ho Hooojj! varð Kolbeini Kolbeinssyni að orði þegar honum var borin fréttin af húsbrotinu í Bolungarvík. - Helvíti var nú það gott hjá kallskrattanum þarna fyrir vetan að mylja bölvaðann hjallinn svona niður með traktorsgröfu. O Ho Ho Ho Hooojjj! Við verðum að bjóða hönom til okkar í mat um helgina frú Ingveldur, eða er það ekki?

Frú Ingveldur varð strax uppveðruð þegar hún heyrði hugmyndina um að bjóða húsbrotskallinum til kveldverðar og síðan í áframhaldandi gleði í anda Sannra Íslendinga. - Hann kvað vera góður sjálfstæðismaður, kumraði hún niður í barminn á sér og skaut lífbeininu fram í áttina að kústaskápnum í eldhúsinu eins og vergjörn nítjánudualdar flagmeri.

Á morgun flýgur hinn húsbrotssinnaði bolvíkingur suður í boði frú Ingveldar og Kolbeins og mun sitja að kveldverði hjá þeim annaðkveld ásamt með Máríu Borgargagni, Indriða Handreði, Brynjari Vondulykt, Óla GÞÞ Apaketti, Haffa Frænku og fleira valinkunnu heiðursfólki og samkvæmissnillingum. Menn verða að hafa unnið nokkuð gott til ef þeir ætla að ná svo langt í lífinu að vera boðið til samsætis hjá frú Ingveldi og Kolbeini Kolbeinssyni.
mbl.is Skemmdin snúist í höndum vargsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar Kolbeinn fékk ebólu í utanlandsferð

kol49.jpgÍ vor sendi Framsóknarmaddaman sinn besta mann, Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra til útlanda til að fixa nokkur trix fyrir utanríkisráðherrann og gifturíka kaupfélagsstjórann í Skagafirði. Þegar hann kom til baka úr þessari mikilvægu ferð leist frú Ingveldi eiginkonu hans ekki á útganginn á kauða. Karldruslan var sem sé áberandi rauður og þrútinn í framan, rauðflekkóttur á maga, bringu og baki og með gríðarlega bólu á annarri rassakinninni, háfgert ýldukýli sem einhver vemmilegur ófögnuður lak úr. Frú Ingveldur varð auðvitað skelfingu lostin þegar hún uppgötvaði þessi firn á líkama hins ábyrgðarfulla framsóknamanns og hringdi felmstfull í Gottfreð lækni og lýsti sjúkdómseinkennunum fyrir honum. Og Gottfreð læknir var fljótur að kveða upp sinn óhagganlegan læknisúrskurð: - Hann er kominn með ebólu, rækalls gemlingurinn. Þú verður laus við hann fyrir fullt og allt innan þriggja daga. Hann grotnar í sundur og verður orðinn að drulluklessu um það bil sem hann skilur við. Hann hefir lent á einhverri óþverrakéllíngu þarna í útlöndunum; nú eða óþverrakalli, mér skilst að þessir framsóknarbesefar verði einlægt svoleiðis þegar þeir komast út fyrir landsteinana.
    - Og er þá ekkert hægt að gera? spurði frú Ingveldur og var fremur óróleg.
    - Ekkert hægt að gera? Það er nú það, svaraði Gottgreður læknir. Jújú, þú getur opnað gluggana til að hleypa pestinni af honum út. En ef þú hefir áhuga á að hann hafi þetta af, skaltu halda honum augafullum í tíu daga og láta hann totta í sig kannabis eins og hann hefir meðvitund til.

Að tíu dögum liðnum hringdi frú Ingveldur aftur í Gottfreð lækni og þakkaði honum læknisráðið, Kolbeinn væri laus við ebóluna en hinsvegar væri ekki alveg runnið af honum ennþá.
mbl.is Óttast að ebóla sé komin til Gana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórt vandamál leyst á einfaldan hátt

war3.jpgSkömmu eftir að Skeifan stóð í björtu báli og reykjarstrókinn bar við himinn eins og af Heklugosi, stungu þeir Óli Apaköttur og Brynjar Vondalykt sér inn bakdyramegin hjá frú Ingveldi og Kolbeini angandi af bensín- og eldspýtnalykt. Þeir kumpánar voru glaðir í bragði og sögðu húsráðendum í óspurðum fréttum, að nú hefði vel tekist til því að þeim hefði tekist að kveikja í Reykjavík. Og frá og með deginum á morgun heyrðu bæði vandamál landsbyggðarinnar og vandamál höfuðborgarinnar sögunni til þar eð téð höfuðborg væri þá aðeins öskuhrúgan ein. - Það var aldrei að þið gerðuð eitthvert gagn, sagði frú Ingveldur að bragði þegar þeir höfðu skýrt frá málavöxtum. Svo bætti hún við: - Nú geta menn séð að oftast þarf ekki nema einn líter af bensíni og eina eldspýtu til að leysa stórt og flókið vandamál.
mbl.is Stórbruni í Skeifunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæn fyrir ungri konu á villigötum

fool7,,Mannauðsstjóri" er einhver ógeðfelldasti starfstitill sem um getur og stendur næstur á eftir því að vera ,,böðull." Sigurður Snorrason var böðull og starfaði fyrir sjálfan konung Danmerkur og Íslands; upphefð Sigurðar fólst í að utaní hann migu allir hundar og að síðustu drukknaði hann í dulitlum mýrarlæk.

Að til skuli vera íslensk stúlka sem grobbar sig af að vera mannauðsstjóri og langar í þokkabót í hund, er statt best að segja kátlegra en tárum taki. Ég bið þess fyrir hennar hönd, að hún hætti að vera ,,mannauðsstjóri" og gefi allar hundavæntingar uppá bátinn og gerist í staðin heiðvirð húsmóðir í nælonsokkum og með hvíta svuntu.
mbl.is Á hund í framtíðardraumum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Clintonskrukkan kalltuskan hennar og frú Ingveldur

ingv5_1240253.jpgEkki er nema von að gamla Clintonskrukkan láti útúr sér að Pútín karlinn ,,geti" verið hættulegur, minnug þess hve eiginmaðurinn hennar hefur einlægt verið stórhættulegur stuttpilsuðum spurningastúlkum með uppskrúfaða frumnáttúru. Flestir muna eflaust eftir þegar kallfjandinn svorni hann Clinton gerðist giljagaur og læsti sig inni í herbergi í Hvíta húsinu ásamt með Mónikku nokkurri Lúvínskí, sem þá var nýfermd, og kenndi henni ýmsa ósiðlega hluti. Sennilega heldur Clintonskrukkan að Pútín sé samskonar ódámur og og bóndi hennar, nema hvað hann girnist gamlar kerlíngarkrumpur en ekki smáskrýtnar spurningarstúlkur, og hugsar sér væntanlega gott til glóðarinnar að hitta Pútín við ákjósanlegt tækifæri skyrtulausan nærbuxnalausan og allslausan.

Og þó. Þegar frú Clinton kom til Íslands hér um árið hitti hún frú Inveldi í fallegu samkvæmi. Síðar meir kvað frú Ingveldur uppúr með að þessi bönnvöð asskotans Clintónkérlíng hefði farið að reyna við sig í samkvæminu, dregið sig með sér inná klósett og komið fram vilja sínum á sér. - Síðan hefi ég, sagði frú Ingveldur, - verið gríðarlega niðurbrotin mannéskja.
mbl.is Pútín getur verið hættulegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband