Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2014
29.8.2014 | 11:50
Við eigum að gera Nærabergið upptækt og reka skipshöfnina úr landi
Dekur Íslendinga við þjóðflokkin, sem varð innlyksa í Færeyjum fyrir margt löngu síðan, er forkastanlegur og mögum óþolandi. Okkar hugsjón hefir einnig lengi staðið fyrir því nauðsynjaverki, að sölsa þennan leiðinlega eyjaklasa undir okkur með hervaldi og gera innbyggjarana að þrælum vorum til að létta oss sjálfum lífið.
En eitt mega Færeyingar eiga: Með þeim hefir þróast svo mikill trúarhiti, að örgustu múslímar mega vel á halda ef þeir vilja hafa roð við þeim færeyísku reglubræðrum í þeim efnum. Já vinir mínir, fjær og nær: Hinar geigvænlegu trúarkreddur, sem Færeyíngar hafa af illmennskusökum komið sér upp, er næg ástæða fyrir innrás af okkar hálfu og yfirtöku Færeyja. Og Nærabergið eigum við að gera upptækt og koma í eigu Samherja eða Brims.
Færeyingar fá ekki olíu í Reykjavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.8.2014 | 11:17
Ferðamannaváin hefir orsakað eldgos
Og hvernig í fjandanum er með þetta lausingjapakk? Getur það ekki skitið og mígið heima hjá sér í stað þess að geyma það þar til það er komið útí ósnortna íslenska náttúru? Það væri réttast að hleypa þessum ófögnuði ekki inní landið nema að það hafi undirgengist laxerolíumeðferð, magadælu og stólpípu.
Það ætti öllum að vera ljóst, að skítverk ferðamannasúpunnar, sem vaðið hefir eins og engisprettufaraldur yfir landið, hefir nú orsakað eldgos í Holuhrauni og brátt mun Bárðarbunga springa í loft upp og á skella Móðuharðindin hin síðari. Þetta viðurkenna allir eldfjallafræðingar og jarðfræðingar þegar á þá er gengið, þó þeir þori því ekki opinberlega af því að stjórnvöld hafa bannað þeim að segja sannleikan í fjölmiðlum. Og það er sko engin afsökun fyrir bölvaðar skepnurnar, að bera fyrir sig að þær kaupi klósettpappír og skeini sig eitthvað til málamynda; skaðinn er skeður með þeirri hryggilegu afleiðingu, að fósturmoldin hefir fengið ógeð og er farin að gjósa eldi og brennisteini.
Meðfylgjandi mynd er af salernispappírlausum ferðamanni ganga örna sinna svo gott sem úti á víðavangi.
Ferðamenn fylla rotþrærnar hratt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2014 | 22:36
Óhugnanlegur leikur hinna forhertu heimsvaldasinna
Á sínum tíma voru það Rússar sem gengu milli bols og höfuðs á þýska skímslinu, sem auðvaldið vakti upp á þriðja og fjórða tug síðustu aldar, og minnugir þess hafa þeir að sjálfsögðu ekki áhuga á að ófögnuður af þeim meiði fái að athafna sig í bakgarðinum hjá þeim.
Gríman er að falla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2014 | 21:31
Hreindýraveiðimenn og klerkurinn í þokunni
Hræddastur er ég þó um, að drukknir hreindýraveiðimenn gætu átt það til, að beina vopnum sínum að hans heilagleika, ef þeir koma auga á hann gegnum ölvímuna og þokuna. Það væri víst sjón að sjá rottimbraðann og illa afréttaðann hreindýrajagara koma glaðhlakkalegan til byggða að morgni dags með veiði sína í pokaklerkslíki í eftirdragi. Væri líklegt, að annar eins fengur í einni veiðiferð hafi ekki sést austur þar síðan kolludráp lagðis af þar um slóðir fyrir margt löngu.
Davíð Þór Jónsson verður prestur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2014 | 19:56
,,Gvagg gvagg" segir sú fyndnasta með ESB-stýrurnar í augunum
Það er því sérstakt gleðiefni, að Lilja Rafney skuli loks sína lífsmark og skrönglast fram á sjónarsviðið og fara með gamanmál að vanda. ,,Goggolagóóó, gvagg gvagg ... þett algjöliga óasættinlegt ... gvagg gvagg" sagði hún uppúr sjálfum svefnrofunum þegar mbl.is náði henni loks í símann eftir dularfulla eftirgangsmuni. ,,Gvagg gvagg."
Mikið held ég verði kyndugt að fylgjast með ESB-sinnunum Lilju Rafney, Steingrími joð og Kötu Jakk, þegar þau mæta til þings í haust með gömlu loddarastykkin sín í buxunum og svikin frá síðasta kjörtímabili í þverpokum á öxlunum. Þau mun áreinanlega passa vel sem fyrr í samtryggingarhrærigraut auðvaldsins með Hönnu Birnu og Sígmúndi okkar hérna Dávíð.
,,Gvagg gvagg."
Algjörlega óásættanlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.8.2014 | 11:02
Vandræðafólk sem foraktar agann verður að reka úr landi
Verst er þó að vita, að frú Ingveldur hringdi bæði í Odd Hrafn Stefán og Hönnu Birnu til að stappa í þau þvermóðskustálinu og hét þeim stuðningi í bráð og lengd. Og raunverulega er aungvu skárra, að Oddur Hrafn Stefán skuli hafa dregið upp annan eins últraskarf og raun ber vitni til að verja mál sitt gegn valdstjórninni; þá er nú Jón Steinar skömminni skárri þótt hann hafi aldrei lært þá setningu, að agi verði að vera.
Satt að segja er almenningur kominn í vandræði með fallega, fræga og ríka fólkið, og gerist sú hugsun æ áleitnari á götunni, að við þessu vandamáli verði að bregðast með því að reka vandræðafólkið úr landi eins og hann þarna Tona Ómos, eða hvað hann heitir fanturinn atarna, sem varð Hönnu Birnu, Gýrzla og Þóreyju að falli.
Krummi neitar sök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2014 | 21:58
Óhræsið og Skriflabúðin
Bæði frú Ingveldur og Kolbeinn vóru hjartanlega sammála um, að Óhræsið og Skriflabúðin væru orkt útfrá illmennsku höfunda þeirra, öfundsýki og lygaárattu. Bölvaður öxndælingurinn hefði djöflað Óhræsinu saman á kojufylliríi til að koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn og gott fólk sem honum heyrir til; fálkinn í kvæðinu væri tilvísun í einkennistákn Sjálfstæðisflokkinn og ,,gæðakonan góða" væri fólskufull árás á errilegar konur í Flokknum, innblásin af gríðarlegri kvenfyrirlitningu og hatri á Sjálfstæðisflokknum, enda hefði aunginn kvenmaður litið við öxndælska rónapeðinu, ekki einusinni mellujúfferturnar í Kaupmannahöfn.
Á meðan frú Ingveldur og Kolbeinn gegnumlýstu og krufðu óþverraþuluna um Skriflabúðina kinkuðu þau ákaft kollum framaní hvort annað með óduldum vandlætingarsvip og og drógu axlirnar uppfyrir eyru eins og verið væri að raspa á þeim bakið með kúaklóru. Bæði eru þau handviss um, að dólgurinn Einar Ben hafi af einskærum skepnuskap og mannvonsku hnoðað saman bragum um okrarann í Skriflabúðinni til að ná sér niður á betri borgurum landsins, en þó einkum og sérílagi til að svívirða og lítillækka Sjálfstæðisflokkinn.
Að lokum sagði frú Ingveldur við mann sinn, að henni þætti ekki örgrannt um, að óþverraandi drykkjuraftana, Jónasar og Einars, svifi nú eins og illur náþokuslæðingur yfir þjóðinni og væri ekki loku fyrir það skotið, að þessi andskoti ætti eftir að valda þjóðinni ógurlegum búsifjum, nokkurskonar Móðuharðindum með hafís og fjárfelli. Sérstaklega myndi þetta valda Sjálfstæðisflokknum, og því miður Framsóknarflokknum líka, gríðarlegu tjóni, hreinustu landauðn.
Ég hef ekki gert neitt rangt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.8.2014 kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.8.2014 | 17:31
Kunnur djúphyggjumaður leggur fram stórbrotna kenningu
Hinsvegar er formaður Samfylkingarinnar handan við öll stjórnmál og alls ekki viðræðuhæfur um þau; þar er hann á sama báti og gersemið Sígmúndur Dávíð og Katrín Jakkó; sem sé ekki skiljanlegur nokkrum manni. Til viðbótar við ruglandi og heimskuparalega framgöngu Samfylkingarformannsins, er ekki annað að sjá en að hálfkveðnar vísur hans um axarsköft núverandi stjórnar þýði annað en að hann sé að bögglast við að leggja grunn að því að komast í ríkisstjórn með íhaldinu. Aumingja kalltuskan er sem sagt önnum kafinn við að minna íhaldið á Höfuðbólinu að kratarnir búi enn á Hjáleigunni, sem er þinglýst eign erkiíhaldsins.
Ekki um pólitískan leik að ræða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2014 | 12:58
Ef Hanna Birna fellur í orrustunni munu illmenni hrifsa til sín völdin
En það varð þó úr, eftir hefðbundinn vandræðagang við að vekja Sígmúnd Dávíð, að Sígmúndi Dávíð voru afhent öll ráð þau er heyra undir dóms- og kirkjumál. Mun Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og skuggabaldur og framsóknarmaður sinna dómsmálum og kirkjuveseni í hjáverkum bak við tjöldin fyrir hönd forsætisráðherra.
Af Hönnu Birnu er það að segja, að mjög er nú að henni sótt og tvísýnt um leikslok. Er mál manna, að ef Hanna Birna fellur í nýgeysandi Brávallarbardaga, muni umboðsmaður Alþingis, ríkissaksóknari og blaðamenn á DV hrifsa völdin og setjast í alla ráðherrastólana en núverandi ráðherrar sendir á vergang. Má með sanni segja, að föðurland vort sé nú sorta sveipað og allra verstu veðra von.
Sigmundur fer með dómsmál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.8.2014 | 11:56
Þau hafa áreiðanlega sammælst um að leggja hana í einelti
Ekki skemmir heldur fyrir ráðherranum, hvers ráðuneyti hefir rýrnað dulítið uppá síðkastið, að hafa á bak við sig stuðningsveit skipaða litlu fröken Edwalds, Sígurði Gé lögmanni, Páli Vilhjálmssyni og Jóni Steinari lögmanni, auk fleiri málsmetandi snillinga af sama tagi eins og frú Ingveldar og Máríu Borgargagns. Og sannast þar hið fornkveðna, að ber er hver að baka nema sér bróðir eigi.
Það er ljóst að DV, ríkissaksóknari og umboðsmaður Alþingis hafa sammælst um að leggja ráðherra innanríkis í gróft einelti. En sem kunnugt er, þá er einelti ofbeldisglæpur sem ber að refsa fyrir af sérstakri alúð. Við þessu er fátt annað að gera en að taka gerendur eineltisins úr umferð og fá þá dæmda í Litla-Hraun að viðbættum 10 svipuhöggum á nauðaber andskotans raskötin við upphaf hvers mánaðar sem þeir ná að tóra þar á Hrauninu.
Óánægð með vinnubrögð umboðsmanns | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 64
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007