Bloggfærslur mánaðarins, október 2015
17.10.2015 | 20:21
Af Siggu Títu sem vildi verða sjúkraliði
Það var á sínum tíma draumur Siggu Títu að verða sjúkraliði. Meðan á þessum skringilega draumi stóð hjá Títunni, hafði hún nánast aungva hugmynd um í hverju starf sjúkraliða er fólgið; henni þókti bara starfsheitið svo undur flott og aðlaðandi, að hún taldi sig reiðubúna að leggja allt í sölurnar til að fá skreyta sig nafnbótinni ,,sjúkraliði." Kérlíngin, mamma hennar, var ekki sterkari á svelli viskunnar um hvað sjúkraliði er. Hún hélt, kérlíngarskömmin, að sjúkraliði væri sennilega gerviliður úr járni til að setja í fólk.
Drauminn um að öðlast sjúkraliðatign missti Sigga Títa strax í fyrstu heimsókn sinni að heimili frú Ingveldar og eiginmanns hennar, Kolbeins Kolbeinsonar skrifstofustjóra. Í þeirri heimsókn varð Sigga Tita svo heppin að hitta Máríu Borgargagn einslega inni í búri. Það var reglulega áhrifarík og ánæguleg stund fyrir Siggu Títu.
Dagin eftir, að hafa þegið heimboð frú Ingveldar og fengið að kynnast hinu víðfræga Borgargagni þar í búrinu, sagði Sigga Títa móður sinni, að nú væri hún búin að missa áhugann á að verða sjúkraliði, en hefði þess í stað ákveðið að verða það sem kallað er ,,lespíja" á fagmáli menntafólks. Móðirin glenti glyrnur sínar uppá gátt við að heyra sinnaskipti dóttur sinnar, svo þær ætluðu hreinlega útúr höfðinu á henni. - Ja hvur andskotinn, varð móðurinni að orði þegar hún hafði numið þessi býsn af vörum dóttur sinnar, - þú ætlar þó ekki að segja mér, Sigga litla, að þú sért orðin sódónísk? Ef svo er, þá skalt þú ekki halda að þú fáir að búa undir mínu þaki stundinni lengur. En hvað illyrmið Máríu Borgargagn varðar, þá get ég sagt þér það strax, að ef til hefir verið vergjörn meri og beggja handa járn þá er það sú kona. Að láta Máríu Borgargagn gjéra sig að kynvillingi er samasem að gefa sig Djöflinum sjálfum í Helvíti. Svo rak móðir Siggu Títu dóttur sína að heiman og bað hana aldrei þrífast.
Mikið eftir óunnið í kjaraviðræðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2015 | 10:54
Illkvittnisheimska og sjálfsafneitun
Og maddama Nordal stormaði gegnum mannfjöldan með hæðnisglott á vör. Henni þykir víst voða spaugilegt að opinberir starfsmenn, einkum lögregluprjónar með aungvann verkfallsrétt, sitji fyrir henni, þá hún kemur til ríkisstjórnarfundar, og heimti hærra kaup. Maddaman og sálufélagar hennar í Flokknum, sem af illkvittnisheimsku kennir sig við sjálfstæði, hafa ímigust á opinberum stafsmönnum, nema þeim er þau hafa sjálf ráðið til ríkis og bæjar af pólitískum ástæðum.
Svo syngur þessi ruddafengni skríll kommúníska lagleysu eftir kommúnistadólga beint uppí eyrun á ríkistjórnarlimunum. Það hlýtur að kosta foringja ríkisstjórnarinnar mikla sjálfsafneitun, að lauma ekki vítisvél í handsprengjuformi útum glugga stjótnarráðsins, inní uppreisnarmannaþvöguna miðja og sprengja hana til Andskotans.
Sungu Maístjörnuna við stjórnarráðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2015 | 09:45
Meinlegur misskilningur
Stundum skolast eitt og annað til þegar greint er frá afrekum sjálfstæðismanna í fjölmiðlum. Meira að segja lögreglunni verður það á, að hrasa á svelli sannleikans þegar hún segir frá einstökum afrekum fólks, sem tilheyrir umræddum minnihlutahópi.
Í fréttinni um ,,mann sem var að ónáða konur á veitaingastað í Austurstræti" hefir slæðst inn meinleg villa, sem breytir eðli málsins svo illilega, að óviðunandi er. Fyrir það fyrsta var hinn drukkni sjálfstæðismaður ekki að ónáða konur í veitingahúsinu. Honum varð það einungis á, að reyna við Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóra og framsóknarmann til að hafa af honum ástir í formi skyndikynna inni á salerni veitingastaðarins. Því miður fyrir sjálfstæðismanninn, komst eiginkona Kolbeins, frú Ingveldur, á snoðir um fyrirætlun hans, sem aftur gerði það að verkum, að hún sló sjálfstæðismanninn hreinlega í öngvit. Enda er frú Ingveldur ekkert uppá það komin, að ókunnugir slordónar séu að kássast uppá Kolbein Kolbeinsson inná brennivínsknæpum.
Brynjar Vondalykt, sem var sjónarvottur að rothöggi frú Ingveldar, ber, að hann hafi ekki orðið vitni að eins snyrtilegu og fagmannlegu knokkáti í mörg herrans ár. Frú Ingveldur hafi einfaldlega sökkt sjálfstæðismanninum eins og fötu fullri af blýi. En hinsvegar sé Kolbeinn Kolbeinsson bölvaður ræfill og öfuguggabesefi, sem sé vís með að stunda viðbjóðslegan hórdóm með hverju sem er, þannig að frú Ingveldur haafi verið í fullum rétti með að aftengja ófétið sem ætlaði að fífla Kolbein til fremur ókræsilegra athafna við sig.
Ónáðaði konur og var kýldur í andlitið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2015 | 21:41
Ríkisrekin lögregla er auðvitað tímaskekkja á 21. öldinni
Nú, fyrst ríkisrekna lögreglan hagar sér svona, þá er um að gera fyrir fjármálaráðherra, og hina litlu auðvaldssveinana og litlu auðvaldsgriðkurnar í ríkisstjórninni, að nota tækifærið og einkavæða lögregluna. Það er auðvitað nauðsynlegt, einkum í þjóðhagslegu tilliti, að stofnuð verði lögreglufélög, bæði í hlutafélagaformi og einkahlutafélagaformi. Það væri til dæmis mjög viðkunnanlegt, að lögreglan í sjávarþorpunum væri í eigu einhvers, eða einhverra kvótagreifa, en á höfuðborgarsvæðinu væri lögreglan einfaldlega hlutafélag á markaði, að sjálfsögðu í meirihlutaeigu kjölfestufjárfesta, og skráð í Kauphöllinni. Svo myndi kostnaðurinn vera greiddur úr ríkissjóði, þegjandi og hljóðalaust.
Raunar er einkavæðinglögreglunnar komin á nokkurn rekspöl, því hugmyndin hefir verið tekin til alvarlegrar umræðu á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar. Meðal annars hafa forsætisráðherra og fjármálaráðherra verið kallaðir á vettvang til að taka við frumskipunum varðandi undirbúning á að einkavæða lögregluna og ríkislögreglustjóra, en einkum þó og sérílagi stjörnusýslumanninn Stones á Suðurnesjum.
Þegar allt lögreglustóðið, eins og það leggur sig, verður orðið varanleg eign ábyrgra manna, þýðir ekkert andskotans múður og pex. Ef lögregluslánarnir láta sér detta í hug að rífa kjaft við sína yfirboðara og eigendur, til dæmis að heimta hærri laun eða þvíumlíkt, þá verður þeim auðvita fleygt fyrir borð og samið við starfsmannaleigur á evrópska efnahagssvæðinu um að fá ódýra lögregluþjóna einhvers staðar að úr andskotanum til að verja ríkisstjórnina og betri borgara landsins fyrir stjórnarbyltingum og hermdaverkum hverskonar.
Ráðuneytið hótar lögreglu lögsókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2015 | 16:56
Þokkalegt uppátæki
Það er þokkaleg uppátæki hjá einni pínulítilli skítaþjóð, að láta sig hafa það, að dæma sína bestu menn í margra ára fangelsisvistun. Önnur eins firn hafa ekki gerst í heiminum síðan í Frönsku byltingunni, sællar minningar. Og ekki virðist jafnréttishugsjónin hátt metin hjá þessum svokölluðu dómstólum, eins og sést best á því að Sigurjón bánkastjóri fékk 42 mánaða dóm en Sigríður Elín bara 18. Svona helvítis kynjahalli er með öllu óþolandi og engum bjóðandi í lýðræðissamfélagi á tuttugustu og fyrstu öldinni.
En úr því að Íslendingar ætla að senda Sigurjón Þ. og Sigríði Elínu á Hraunið, þá er það lágmarkskrafa lýðræðissinna og fémínísta, að þau fái að vera saman í klefa meðan á afplánun stendur. En til vara er krafan, að þau verði ekki látin í klefa með Ólafi útvegsbónda frá Miðhrauni II. og Sigurði Einarssyni frá Kaupþingum.
Sigurjón í 3½ árs fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2015 | 16:25
Predikun í Gemlufallssókn
Mikið er þetta nú dásamlegur vitnisburður hjá henni Jónu Hrönn. Það hlýtur eiginlega að vera ólýsanleg tilfinning fyrir konu, að hlaupa í spik af stressi í sjálfu miðju neyslukapphlaupinu, og linna ekki látum fyrr en hún er hætt að komast gegnum venjulegar dyr öðruvísi en að láta einhvern nærstaddan ýta á eftir sér, kanske með einhverju verkfæri. Þá er augljóst, að það er gríðarlega erfið lífsreynsla fyrir mjög digran prest, að stíga í stólinn og predika hófsemdarfullt líferni yfir sóknarbarnaskjátunum. En hver er svo sem ekki alsæll með sitt eða sín sérstöku áföll í lífinu?
Síðastliðinn sunnudag steig síra Baldvin, prestur í Gemlufallssókn, í stólinn og sagði sókanbörnum sínum til syndanna. Að venju var musteri síra Baldvins troðfullt útúr dyrum og kómust færri að en vildu. Síra Baldin lagði útaf kaflanum um kvenpresta í hinu nýja guðspjalli, sem hann hefir sjálfur samið. Og síra Baldvin var ekkert að tvítóla við efnið og hóf predíkun sína á þessum guðrækilegu orðum: - Þér faríséar og fúlmenni, sem eruð svo heillum horfnir, að þið hikið ekki við að skipa kérlíngar í prestsembætti, helst spikfeita kvenvarga, sem eru að minnstakosti jafn syndugir og þið! Með þessu framferði yðar, hafið þér smánað guðskristni í heiminum, rekið laungutaung framan í Jésú Krist frelsara vorn, og gert fyritlitlegt gys að Guði, skapara hymins og jarðar! Haldið þér máske, að Jésús frelsari minn og vinur hafi verið einhver breima kéllíngarskrukka með brjóstahaldara og ístrustrekkjara um sig miðjan? Er yður ekki sjáfrátt fyrir heimsku, rugli og villu? Það mætti halda það ...
Sannlega fóru sóknarbörn síra Baldvins heim til sín að messu lokinni, niðurbrotin, sum hágrátandi, en öll framúrskarandi skelkuð. Einstaka sóknarbarn lét sér í hug koma, að kæra predíkun síra Baldvins til lögreglunnar og byskubbsins, því hann hafði hótað að leggja hendur, sem í hans tilfelli eru hroðalegir sleggjuhrammar, á hvurn þann, sem vogaði sér að reyna að draga kvenprest, honum til aðstoðar í Gemlufallsprestakalli. - Ég læt engum líðast, hafði síra Baldvin öskrað á söfnuðinn, -að vanhelga guðshús mín í Gemlufallsþingum með öðru eins guðlasti og forsmán og svokallaður kvenprestur er, hvort heldur slík fígúra er grindhoruð eins og útigangsköttur eða svo sílspikuð, að fitutaumarnir seytla útúr munnvikjunum á henni.
Þjáðist af streituspiki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.10.2015 | 20:16
Ótrúverðugur þorskhaus
Skelfilegur andskotans þorskhaus held ég þessi Marteinn Schulz sé. Sennilega er þessi þorpari eitthvað skyldur Karli Scultz leynilögreglumanni, sem gerði garðinn hvað frægastann við ,,lausn" Guðmundar- og Geirfinnsmála á síðustu öld. Manngarmurinn virðist hafa þotið eins og eldibrandur um Snæfellsnes,sem reyndar er allsendis óvíst hann hafi gert, og myndað staði, sem þekktir eru af póstkortum - og síðan ekki söguna meir.
Það sem gerir Schulz þennan einkar ótrúverðugan og líklegan til að hafa aldrei á Snæfellsnes komið, er sú dularfulla staðreynd, að hann minnist ekki svo sem einu orði á langbesta og frægasta bloggara Snæfellinga, sem líklega er hvað mestur bloggari á Íslandi og í Evrópu. Þessi staðreynd er svo skammarleg fyrir Schulz, að réttast væri að leita hann uppi og flengja, honum og hans líkum til viðvörunnar.
Að þrjóturinn skuli hafa ,,heillast" af grjóthrúgu nokkurri innan Búlandshöfða,sem minnir helst á vörtu og heitir að sögn Kirkjufell, segir náttúrulega meir en nokkur orð á hvurju menningarstigi maðurinn er. Og fegurðarskyn hans tekur greinilega í aungvu fram fegurðarskyni þeirra katta er verið hafa staurblindir frá fæðingu. Ja svei og aftur svei og sveiattan.
Ísland í hnotskurn á Snæfellsnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.10.2015 | 18:22
Frú Gnarresen er ótvírætt tímamótahvalreki
Það skoðast, sem einn sérdeilis lukkulegur búhnykkur fyrir Alþingi og Íslendinga alla, Heiða Kristín Gnarresen orðin þingmaður með fullan tillögu- og atkvæðisrétt á Alþingi. Annar eins hvalreki hefir vart rekið á fjörur löggjafarsamkomunnar síðan Árni Johnsen var fyrst kjörinn á þing. Og þvílík andlitslyfting fyrir Björtu framtíðna hans Gvöndar Steingríms, að fá frú Gnarresen í þingflokkinn, ekki síst vegna þess að hin virðulega frú var, að eigin sögn, hætt í pólitík (eins og hún hafi einhvern tíma verið í stjórnmálum)útaf lekandi fýlu útí Gvönd formann.
Eins og öllum er ljóst, þá er afrekalisti Björtu framtíðarinnar á Alþingi mjög langur; raunar svo langur, að manni dettur ekki minni mælieining í hug um þessi ósköp en ljósár. Til frekari glöggvunar, þá lítur listinn í heild sinni svona út: 1.) Tillaga um að breyta klukkunni annað hvort afturábak eða áfram um klukkustund. 2.) Um fleiri atriði á þessum lista er ekki að ræða. Til að lengja afrekalistann um að minnsta kosti 100%, hefir litla frú Gnarresen gripið til þess örvæntingarúrræðis, að leggja til við þingheim, að hann hundskist til að leggja bílum sínum skikkanlega í ,,nærumhverfi Alþingis." (Afskaplega gáfulegt og langskólalegt orð ,,nærumhverfi" og heppilegt til notkunnar fyrir nútímastjórnmálaskörunga).
En í meirihluta hverjum starfa þessi fáu bæjarfulltrúar Björtu framtíðarinnar hans Gvöndar og hennar frú Gnarresen í sveitarfélögum utan Reykjavíkur?
Lagasetning eða bílasala? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.10.2015 | 08:56
Ástæðan fyrir annríki lögreglunnar í nótt
Annasamar nætur lögreglu um þessar mundir standa í beinu sambandi við þá nöturlegu staðreynd, að þessa dagana eru hinir svokölluðu Sjálfstæðismenn að peppa sig upp fyrir landsfundinn, sem þeir hyggjast halda síðar í þessum mánuði. Svo mikil er sálarvonskan í þessu fólki, auk harðlífis, uppivöðslusemi og laungreddu, að það gengur um gnístandi tönnum, þess albúið að slíta hreðjarnar undan andstæðingum sínum við fyrsta tækifæri.
Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins söfnuðust saman í gærkvöldi undur og býsn af allrahanda frjálshyggjudrjólum, múlímahöturum og auðvalspervertum. Um miðnætti tók þessi harðskeytti söfuður, að syngja hergöngukvæði sín úr kalda stríðinu, blóta Karli Marx með miklum áherslum og lofa kjarnorkubombuna með ekki minni áherslum. Síðan hljóp mannsöfnuðurinn útá stræti borgarinnar, gjörtrylltur af baráttuhug, og tók til við að fremja óskunda.
Nú í morgunsárið voru allar fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsveæðinu troðfullar af ofstækisfullum, froðufellandi frjálshyggju- og auðvaldsbullum. Í sumum fangaklefunum eru allt uppundir 10 manns, allir bláþrútnir af þeirri tegund geðveiki, sem þeir kalla ,,sjálfstæðishugsjónina." Það verður eflaust dægilegt fyrir skúringakonur lögregluembættisins, að þrífa upp hroðann í fangaklefunum eftir hina vitskertu hugsjónamenn og hugsjónakonur.
Annasöm nótt hjá lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2015 | 21:10
Er Kolbeinn að flytja að Suðurgötu 3?
Í dag hótaði frú Ingveldur Kolbeini eiginmanni sínum að reka hann að heiman og koma honum fyrir fullt og fast fyrir á heimili Samtakanna 78 við Suðurgötu 3. Kolbeinn bar sig að vonum aumlega undan hótununni og bar fyrir sig, að hann hefði ekki hagað sér svo illa, að réttlætanlegt væri að setja hann niður í þeim stað sem frú Ingveldur nefndi. En frú Ingveldur situr enn við sinn keip og vill Kolbein útaf heimili sínu útaf verknaði hans með Indriða Handreði og Brynjari Vondulykt síðastliðna nótt. Hún hafði sem sé komið að þeim kumpánunum í einni bendu inni í miðstövarkompunni, öllum berrössuðum neðan mittis.
Nú er frú Ingveldur ýmsu vön af bónda sínum, en þó ekki því sem fyrir augum hennar blasti í miðstöðvarkompunni í nótt; það verður auðvitað ekki nefnt einu orði af augljósum velsæmisástæðum. Hinsvegar negldi hún kompuhurðina klossfasta og dró naglana ekki úr fyrr en eftir hádegi í dag, þegar hún hleypti manni sínum og félögum út, illa timbruðum og ferlega útleiknum eftir vistina, því ekki varð samkomulagið gott þeirra í milli í þrengslunum þegar þeir fóru að þynnast upp og þurftu að æla og gera aðrar þarfir sínar. Það varð sem sé mikið grénj og kveinstafir, auk pústra og smásparka, í blindunni í miðstöðvarkompunni.
Hvort Kolbeinni verði mættur eins og beiningarmaður við dyrnar á hinu nýja og glæsilega húsnæði að Suðurgötu 3 í bítið á mánudagsmorgun, skal ósagt látið á þessari stundu. En óneitanlega ber hótun frú Ingveldar dálítinn keim af ásetningi. Það var víst lyktin, megn óþefurinn, sem gaus á móti henni, er hún lauk upp dyrum miðstövarkomunnar, sem gerði að það að verkum að henni þókti ófært að láta lengur hér við sitja. Raunar hefir frú Ingveldur nefnt fleiri vistunarkosti en Suðurgötu 7 fyrir Kolbein. Þar koma víst einkum til greina Hundahótelið, vitfirringahæli og Hjálpræðisherinn. Af Kolbeini sjálfum er það að segja, að nú undir kvöld tókst honum að koma fram nokkrum hefndum, er honum af hreinni útsjónarsemi, auðnaðist að loka frú Ingveldi og Máríu Borgargagn inni á gestaklósettinu, níðþröngri og gluggalausri vistarveru án loftræstingar.
Nýtt húsnæði Samtakanna 78 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 145
- Sl. sólarhring: 283
- Sl. viku: 1385
- Frá upphafi: 1542645
Annað
- Innlit í dag: 120
- Innlit sl. viku: 1216
- Gestir í dag: 119
- IP-tölur í dag: 117
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007