Leita í fréttum mbl.is

Illkvittnisheimska og sjálfsafneitun

war3.jpgOg maddama Nordal stormaði gegnum mannfjöldan með hæðnisglott á vör. Henni þykir víst voða spaugilegt að opinberir starfsmenn, einkum lögregluprjónar með aungvann verkfallsrétt, sitji fyrir henni, þá hún kemur til ríkisstjórnarfundar, og heimti hærra kaup. Maddaman og sálufélagar hennar í Flokknum, sem af illkvittnisheimsku kennir sig við sjálfstæði, hafa ímigust á opinberum stafsmönnum, nema þeim er þau hafa sjálf ráðið til ríkis og bæjar af pólitískum ástæðum.

Svo syngur þessi ruddafengni skríll kommúníska lagleysu eftir kommúnistadólga beint uppí eyrun á ríkistjórnarlimunum. Það hlýtur að kosta foringja ríkisstjórnarinnar mikla sjálfsafneitun, að lauma ekki vítisvél í handsprengjuformi útum glugga stjótnarráðsins, inní uppreisnarmannaþvöguna miðja og sprengja hana til Andskotans.


mbl.is Sungu Maístjörnuna við stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband