Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2016
27.8.2016 | 22:47
Þetta er verk íslamistana í Þjóðfylkingunni
Ef mér skjöplast ekki því meir, þá er þessi sprengieldflaug úr vopnabúri íslamistana í Þjóðfylkingunni, en það eru sko menn sem kalla hvorki eitt né neitt ömmu sína og því síður afa. Ugglaust hafa þessir bráðhættulegu hryðjuverkarar ætlað að tæta skíðaaðstöðuna í Báfjöllum í loft upp með vítisvélinni, en týnt henni í ölæði. Það er enginn vafi á því, að okkur stafar veruleg ógn af Þjóðfylkingarmúhámeðstrúarmönnum, sem hér hafa haslað sér völl og komið upp bækistöðvum til að herja á okkur innfædda aríana.
Fyrir ekki svo löngu síðan hringdi einn af þessum hrottafengnu alkæítaistum inní símatíma á útvarpi Sugu og gjörði þáttarstjórnendur svo hrædda, að margfalt áfallateymi hefir ekki enn tekist að ná þeim hiður á jörðina. Maður þessi hótaði sem sé þáttarstjórnendunum að heimsækja þá í eigin persónu og berja þá í hausinn, bæði með Biflíunni og Kóraninum, til að vita hvort ekki rofaði til milli eyrnanna á þeim.
Og fyrst hryðjuverkaslápar eru farnir að týna vítisvélum sínum hér og þar uppí sveit, þá liggur beinast við að álykta, að þeir hafi yfir gnægð sprengjueldflauga að ráða og taki nú til við að skjóta þeim í allar áttir þegar minnst varir. Fyrir utan útvarp Sugu, þá er líklegt að þeir velji skotmörk sín af kostgæfni og miði akkúrat í miðjuna á þeim til að valda sem mestum usla. Það væri til dæmis dálaglegt ef þeissir paurar sendu eins og eina eldsendingu og sprengiefnis beint í Áfengis og tóbaksverslun ríkisins og landið yrði brennivínslaust og allir myndu deyja úr þorsta á hálfum mánuði. Þá væri eftirleikurinn þeim auðveldur og þeir myndu á svipstundu hirða allan kvótann og togarana, breyta Seðlabankanum í mosku og Smáralindinni í hóruhús. Hugsaðu um þetta Spætuskratti og hættu að stela þvottinum af snúrum nágrannanna.
Þjóðveginum lokað vegna eldflaugar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.8.2016 kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.8.2016 | 22:17
Reyknesingar fá sér nýtt hirðtónskáld
Sennilega er það hárrétt ákvörðun hjá Gunnsa Þórðar að taka örlítið í andskotans lurgin á svokölluðum ,bæjaryfirvöldum" í Reykjanesbæ og dusta úr þeim rykið. Það er á Gunnsa að skilja, að vondir menn hafi eyðilagt gamla bæinn hans, Keflavík og næsta nágrenni, og að batteríið sem þar stendur nú sé eitthvert andstyggilegt viðundur sem eigi ekkert skylt við gamla bæinn.
Það er svo sem vitað að sveitarfélagið Reykjanesbær eru rústir einar og rofabörð eftir að hafa orðið frjálshyggjufíflsku undangenginna þriggja áratuga að bráð. Það eina sem eftir stendur af umsvifum frjálshyggjufuglanna þar suðurfrá eru einkennilegar grjótblokkir, sem Árni nokkur Johnsen hafði með sér suður af Kvíabryggju; en Árni karl átti nefnilega frænda í frjálshyggjuhirðinni í Reykjanesbæ, sem tók við herlegheitunum, þegar Snæfellingar höfðu fengið nóg af veru hans í Eyrarsveit og ráku hann burt með grjóthrúgurnar.
En fyrst Gunnsi Þórðar er genginn úr skaftinu og búinn að segja reykjanessbæjarelítunni til helvítis, þá verða bæjaryfirvöldin á staðnum að fá sér nýtt og betra hirðtónskáld. Liggur þá beinast við að þau leiti á náðir Gylfa Ægissonar og biðji hann leyfis á að fá að söngla Sjúddírarerei undir flugeldasýningunni í kvöld. Svo má vera að hr. Á. Johnsen bjóði frændanum og hans mönnum að kyrja Stórhöfðasvítuna við þetta einstæða tækifæri.
Bannar flutning á laginu sínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2016 | 21:36
Eitt af öðru leitt til slátrunar á Fjóshaugsbökkum
Þau falla eitt af öðru í fjóshauginn og drukkna blessuð framsóknarljósin, sem gert hafa hvurt kraftaverkið öðru á kjörtímabilinu, ef marka má þeirra ástsæla foringja og panamatröll, hann Sigmund okkar Dávíð. Og það er ekki góða fólki, fjölmenningarsinnarnir og múslimasleikjurnar, sem svo eru kallaðar, sem eru að bregða fæti fyrir kraftavekaskáldin í Framsókn og niðurlægja þau. Nei, það eru flokksmenn sjálfir, að undirlagi gömlu Framsóknarmaddömunnar og Kolbeins Kolbeinssonar, sem keyra yfirnáttúrlega öðlinga á borð við hann Þorstein Sæmundar og hana Vigdísi til heljar og eiga nú aðeins eftir að hafa endaskipti á formanninum, slá hann af og salta ofaní í ryðbrunna grútardallinn, sem Maddaman hefir áratugum saman brúkað til að gjöra stykkin sín. Já svart er það Spæta mín og heimur versnandi fer.
Svo ku nýjasta vitleysingasamkoman, sem fjölmiðlarnir hafa tekið uppá sína arma, Viðreisn sögð á fljúgandi siglingu og talið er að hún muni velta mörgum þingliðleskjum Framsóknar og Samfylkingar fyrir björg og valda glundroða á sjálfu höfuðbólinu, Sjálfstæðisflokknum. Þetta eru nú nýjustu kræsingarnar, sem fjölmiðlaóvitarnir ætla að troða niðrum kokið á kjósendum. Ég segi nú bara eins og slordóninn sem þóttist ekki fá nóga að éta í mötuneytinu: ,,Á maður að þurfa að éta úr rassgatinu á sér á þessum stað." Það er margt bölið, Spætuskita, en fátt hefir verið boðið uppá jafn ógeðfellt í seinni tíð en þennan viðreisnarviðbjóð braskaraskrílsins og ,,frjálslyndu jafningsmannana."
Sennilega væri best að slá Alþingi íslendinga af, sem og flokkadraslið, sem allt er meira eða minna gert út af auðvaldinu, nema Alþýðufylkinguna sem er einarður sósíalistaflokkur. Viðlagið og undirtóninn í djöfladansi auðvaldsflokkanna 6 á þingi er ,,ljúga, svíkja og stela" og öllu má kosta til leiða hrekklausan og grunnhygginn almúgann til fylgis við þá hugsjón, þ.e. ljúga, svíkja og stela. En þegar sú gata verður til enda gengin þá loksins tekur sósíalískt þjóðskipulag við.
Þorsteinn hverfur af Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.8.2016 | 23:32
Það fer versnandi dag frá degi
Jæja Spæta mín, þá hefir kyndugramannafélag, þ.e. Bjarta framtíðin hans Gvöndar, sem er á leið af þingi og á sorphaug sögunnar, boðað þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald á ESB-sjúkdómnum! Merkilegt að dautt hræ, sem ekki er einusinni farið að ganga aftur, skuli gera sig að slíku erkifífli að boða atkvæðagreiðslu þvætting, endemisrugl og landsöluóra. Þess utan er Bjarta framtíðin svo slöpp, dauf og karakterlaus að útilokað er að hún hafi getu til að ganga aftur og verða draugur; meira að segja Drottni Alsherjar mun verða ofvaxið að vekja slíka dauðans skepnu uppfrá dauðum á hinum efsta degi. Enda hefðir Drottinn aldrei lofa því að endurlífga ruslahauga og sorp.
Þá er mér sagt, Spæta mín, að hið næsta á dagskrá í íslenskri poletík sé að lina þjáningar Sigmundar Dávíðs og binda snöggan endi á stjórnmálaumsvif hans. Þetta ætla flokkssystkyni hans í Framsóknarflokknum að gera því þeim er farið að ofbjóða skammarleg axarsköft drengstaulans. Þeir ætla víst að poka endemið og farga því í bölvaðann Fjóshauginn. Eftir þá útreið verður Fjóshaugurinn fyrst verulega baneitraður og djöfullegur.
En þetta helvíti með Björtu framtíðina hans Gvöndar og ESB er svo auðvirðilega að það er ekki einusinni hægt að hlægja að því, hvað þá að taka það alvarlega. Oft hafa einskisnýtir og slepjulegir flokkar sloppið fyrir vangá kjósenda inná Alþingi, en aldrei samt neinn eins og þessi Bjarta framtíðarframsóknarvitleysa. Það ætti að vera hægt að sækja kjósendu,r sem greiða götu apakattaláta á borð við þá Björtu, til saka á grundvelli hegningarlaga og fá þá dæmda í fjölda ára fangelsisvist fyrir ábyrgðarlaust, blygðunarlaust og herfilegt framferði. Já, Spæta mín, svona er nú ástandið og fer heldur versnandi dag frá degi. Ef heldur sem horfir mun þykja gott á Íslandi að geta flúið til Sýrlands og Bagdað.
Verður kosið um Evrópusambandið? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2016 | 21:51
Nú er ég gróflega hissa
Jahérna, nú er ég hissa, eiginlega bæði þver- og langskuðarmát og yfir mig gáttaður. Og ég sem hélt hann Björgólfur okkar hérna Thor ætti ekki neitt, að minnsta kosti ekki hér á landi, eftir tiltektir hans eftir einkavæðingu Landsbankans fyrir Hrun. Ég hélt meira að segja að hann ætti hvergi heima lengur, veslingurinn svorni, ætti hvergi höfði sínu að halla, nema þá í rennusteininum með gamla götótta spariskó undir höfðinu. Hann var svo umkomulaus í sjónvarpsþættinum, sem þeir sýndu í sjónvarpinu eftir að öllu var lokið; hann og vinur hans, Ásgeir Friðjónsson minnir mig hann heiti og er víst jafnaðarmaður, héldu þá til í yfirgefnu verbúðarherbergi, eftir myndinni að dæma, á einhverjum ótilgreindum stað þar sem búið var að stela öllum kvótanum frá heimamönnum. Í sama þætti var líka Jón Ásgeir, eldhress að vanda; kom siglandi til fundar við sjónvarpsmenn á árabát, flissandi eins og gelgjuskvetta.
En nú er sem sé komið í ljós að Björgólfur Thor á hús, að vísu ellihruman timburhjall, sem slagar, að mér sýnist, að fermetrafjölda uppí Höll sumarlandsins, sem brann í Sviðinsvík um árið. Þessi eign Björgólf litla, þó hrörleg sé, tryggir að hann á þak yfir höfuðið á sér og þarf þar af leiðandi ekki að sofa á gangstéttum og í vegköntum. Það fer eitt og annað betur i henni veröld en maður heldur. Og fyrst Björgólfur Thor á hús þá vantar honum banka og eftir því sem ég best veit þá er Landsbankinn á lausu. Það væri áreiðanlega þjóðráð að Sjálfstæðisflokkurinn léti Björgólf Thor hafa Landsbankann, því bæði er hann vanur bankarekstri og hrunadansi.
Hóflegri breytingar en ætlað var | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.8.2016 | 20:44
Leiðarinn í túnfætinum
Sko minn kall! Vill leiða lista! Til hvers ætli hann vilja það og hvert ætlar hann að leiða hann? Ég hélt að Árni Páll væri búinn að fá nóg af þessari helvítis vitleysu. Ég veit svo sem ekki hvort hann gerir sér grein fyrir að bæði hann og flokkurinn hans eru búnir að vera í stjórnmálum með því að sanna það fyrir öllum landslýð að þeir áttu aldrei neitt erindi. Árni Páll og hans nótar halda dauðahaldi í eitthvert náttúrulaust og litlaust ruglumbull, sem þeir kalla ,,jafnaðarmennsku", eða eitthvað í þá áttina, og sem best gæti átt heima í Sjálfstæðisflokknum. En Árni karlanginn vill samt sem áður endilega leiða fáeina einkennilega durta um túnfótinn á höfuðbólinu, Sjálfstæðisflokknum. Verði honum að góðu, greyinu atarna.
Og það eru fleiri á vappi í túnfæti Sjálfstæðisflokksins. Áðan heyrði ég í kvinnu, sem er að ég heldi þingmaður Pírata. Sá eðla kvennmaður talaði undarlega keimlíkt og vankaður heimdellingur og ljóst var að þar fer stækur hægrikvennmaður, sem reynir að breiða yfir blekkingarskituna með holtaþokusnakki, sem gengur útá að afneita tilvist hægri og vinstri; það má ætla að svona bjöllusauðir séu þeirrar skoðunnar að við búum ekki aðeins í stéttlausu þjóðfélagi heldur stéttlausum heimi, eða að auðvaldsskipulagið sé hið eina rétta og náttúrlega skipulagið í samfélagi manna.
Ræningjasamfélagið, þjófafélagið, því við búum ekki í þjóðfélagi heldur ræningja- og þjófafélagi, hefur alrei í lýðveldissögunni lifað náðugri og öruggri daga; þessu klabbi stendur ekki ógn af stjórnmálunum svo útþynnt sem þau eru og yfirfull af ruglandi. Fyrir örfáum árum varð hér heilmikið efnahagshrun af því að ræningjaskríllinn óð helst til of hratt um gleðinnar dyr. Í dag hefir þessi óaldarlýður náð vopnum sínum aftur og strandhöggin hafin á sama ófyrirleitna háttinn og fyrir hrun. Sá hrunadans mun verða viðvarandi um skeið, þar til allt fer á hvolf aftur, nema ...
Árni Páll vill leiða listann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2016 | 18:53
Á meðan situr Hann í vandræðabarnavarðhaldi
Jæja, þá hefir Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður aukið forsætisráðherra kraft og þor með hrossalækningameðali. Í staðinn hefir forsætisráðherra sprautað fjármálaráðherra í hægri rassakinn með enn kröftugra hrossalækningameðali. Enda eru þessir fýrar nú komir á fúllsvíng í hefðbundnum sjónhverfingum fyrir kosningar svo að bókstaflega rýkur úr hausnum á þeim. Á meðan hefir gamla Framsóknarmaddaman Sigmund litla Dávíð í vandræðabarnavarðhaldi í fóðurganginum í Framsóknarfjósinu, til að hann geri sem minnst af sér á meðan fullorðnu mennirnir leika blekkingar sínar og kosningaloforð á stóra sviðinu.
Þessi meðferð á Sigmundi Dávíð gaf honum tilefni til að hóta Framsóknarmaddömunni, að ef hún hleypti honum ekki út þá myndi hann ganga í Þjóðfylkinguna. Sú gamla svaraði óþekktaranganum með því að trúa honum fyrir, að Þjóðfylkingin væri deild í Framsóknarflokknum og hefði sér bás í Fjósinu. Svo vildi hún ekki heyra meira satans óráðskjaftæði í svona stúf meir. Þannig má Sigmundur sitja í gæslu meðan dýralæknirinn og Garðabæjarundrið hlaupa eins og ofvirkir kjúklingar um borg og bý og lofa kjósendum hinu og þessu sem þeir hafa ekki hundsvit á, en halda að virki eins og gott ópíum á fólkið.
En eftir kosningar verður væntanlega komið annað hljóð í strokkana í Valhöll og Framsóknarfjósinu þegar Píratarnir verða búnir að sópa núverandi valdhöfum ásamt stjórnarskránni útúr stjórnarráðinu og farnir að vega að LÍÚ-slektinu. Þá verður harmagrútur og gnístran tanna á mörgum ríkmannlegum heimilum og sumir munu ekki hafa það af og flýja land eða stofna hryðjuverkafélög.
Tekur gildi í tveimur áföngum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2016 | 20:09
Er mögulegt að hjálpa botnskrapara til mennskunnar?
Ajæja og óekkí. Altaf er jafn sorglegt að fá fregnir af ungu fólki sem lendir á villigötum, leitast við að þræða refilstigu, fer hundana, gengur stigamönnum á vald. Soleiðis fólki ber að hjálpa og koma til manns í stað þess að horfa uppá viðkomandi skrapa botninn með rennusteininn á aðra hönd en gaddavír á hina. Verra getur það vart orðið.
Að æskumaður kjósi að ganga viljugur inná frambosðlista af því tagi sem Albert Guðmundsson hefir nú valið sér, er ekkert minna en axarskaft sem á örugglega eftir að draga dilk á eftir sér fyrir hann. Að veita forstöðu Dallssöfnuðinum er merki um að hann hafi orðið ógæfunni að bráð og fyrir hinum liggi að hlaupa breiða veginn til glötunnar. Hvernig í ósköpunum ætli sé farið að því að liðsinna svona tilfelli og hjálpa því til mennskunnar aftur?
Formaður Heimdallar í framboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2016 | 19:27
Andskotinn íllskuflár á Hólum
Einkum fjallaði forsetinn um 16. sálm passíu Hallgríms sáluga, hvar frá er greint hvar Júdasar líkar lenda, Andskotann íllskufláan, ágirnd fjárplógsmanna sem freklega elska féð og andlegri blessun hafna. Þá vék forsetinn, eins og í framhjáhlaupi, að meðferð Jesúsar á péníngaköllunum í musterinu, sársaukaópum þeirra, bölvi og ragni þegar meistarinn velti um borðum þeirra og barða þá með musterisstólunum bara af því að þeir höfðu gert musterið að ræningjabæli.
Má nú að sönnu gera ráð fyrir, að með orðum sínum sé forsetinn að leggja drög að því að leggja höndur á þá óþokka sem gert hafa Ísland að ræningjabæli. Það verður að minnsta kosti dægilegt að sjá Bessastaðakarlinn grípa fyrir kverkar ræningjanna og kasta þeim af hendi útum næsta glugga og á sjó fram. Þá verður grátur og gnístran tanna bæði í LÍÚ og Helvíti.
Það má heita kynlegur andskoti, að nýkjörinn forseti skuli nota fyrstu ferð sína á Hóla í Hjaltadal til að hafa í lítt duldum hótunum við fjármálalífið, atvinnulífið og móðurlífið. Er nema von að rétttrúnaðarmenn séu skelkaðir og spyrji hvur fjandinn sé að manninum. Einn grandvar maður er sat undir talsmáta forsetans í dag lét þess getið á heimleið frá Hólum, að mikið mætti ver ef þessi forsetaskepna sé ekki pírati, að minnsta kosti sé hann ískyggilegur þorpari.
Ræddi Passíusálmana á Hólahátíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2016 | 18:32
Hinar týndu konur eru víða þekktar
Gönguferð þeirra frú Ingveldar, Máríu Borgargagns og Ingupu, frænku frú Ingveldar, um Fimmvörðuháls, gat ekki farið vel, svo drukknar sem þær vóru er þær lögðu upp í ferð sína. Allar vóru þær ofurölvi, lítt sem ekkert klæddar og í malpokunum höfðu þær aðeins áfenga drykki. Enda var þeirra fyrst verk eftir að þær lögðu upp að villast vel og vandlega. Þær stóðu útí auðninni og þokuslæðingnum öskrandi og grenjandi, báðu Gwöð að hjálpa sér og bölvuðu öllu er nafni tjáir að nefna í sand og ösku.
Svo kómu baldnir piltar á fjórhjólum útúr þokunni og björguðu hinum villtu konum. Ekki fór björgunin samt betur en það, að aðrir björgunarmenn á fjórhjólum komu að hinum fyrri og kvennskepnunum augafullum í óguðlegum og skammarlegum stellingum. Þegar villmeyjarnar komu til byggða, vóru eiginmenn þeirra að vonum orðnir heldur órólegir og farnir að segja sögur af konum sem féllu í tröllahöndur á heiðum uppi og skiluðu sér vitskertar heim eftir svo og svo langann tíma.
Að vísu mátti sjá að Kolbeini Kolbeinssyni og Indriða Handreði var létt þegar þeir endurheimtu eiginkonur sínar sæmilega heilar að húfi og lítt vitskertari en þær hafa ætíð verið. Hinsvegar geðjaðist þeim ekki að fyrri björgunarmönnumum á fjórhjólunum, svo sem vonlegt er, og börðu þá fyrir athafnir þeirra með hinum týndu konum. Svo fór öll hersingin í fjallaskálann til að gleðjast og gagnast hverjum öðrum.
Göngukonurnar komnar til byggða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 56
- Sl. sólarhring: 131
- Sl. viku: 214
- Frá upphafi: 1539497
Annað
- Innlit í dag: 49
- Innlit sl. viku: 183
- Gestir í dag: 49
- IP-tölur í dag: 48
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007