Bloggfærslur mánaðarins, september 2016
3.9.2016 | 23:47
Hvaða mannskapur er það sem hefir lyst á að kjósa uppsóp?
Hvernig nennir fólk að hafa fyrir því að fara á kjörstað til að kjósa þetta uppsóp frjálshyggjunnar og peningagéðveikinnar? Að 3430 manns hafi kosið í þessu fáránleikastappi segir okkur aðeins að, að minnsta kosti 3430 manns í Reykjavík sé ekki sjálfrátt. Á meðan leika fáráðlingar fjölmiðlanna þann ljóta leik, að tala upp annan svæsinn flokk braskara og péníngagéðsjúklinga, Viðreisn, upp eins og þar sé frelsarinn fundinn! Það er eitthvað mikið að þessu fólki og það sem að því er er samfélagslega stórhættulegt og eyðileggjandi. Það er komið nóg af því, að heimskir og illgjarnir fjölmiðlabjálfar stjórni umferðinni á stjórnmálasviðinu, taki hættuleg framboð uppá sína arma og kjafti upp fylgi við þau í fjölmiðlum sínum. Og því miður er fólk andvaralaust og lætur fjölmiðlaspjátrunga og hægrisinnaða ódáma hafa sig fyrir fífl, kosningar eftir koningar með litlum undantekningum.
Það þarf varla að fara í grafgötur með, að Viðreisn er gerð út af Sjálfstæðisflokknum í þeim tilgangi að taka við lekanum frá stjórnarflokkunum og ná fylgi frá liði sem annars hefði veri til með að kjósa stjórnarandstöðuflokkana. Markmiðið er að sjálfsögðu að Sjálfstæðisflokkurinn haldi völdum með stuðningi Framsóknar og að sjálfsögðu Viðreisnar. Plottið er nú ekki flóknara en þetta og mógúlar auðvaldsins vita, að núverandi ríkisstjórnarflokkar munu ekki fá meirihluta þingsæta, þessvegna kemur lekabyttan Viðreisn inní dæmið til að bjarga völdunum svo auðveldara verði að niðurlægja alþýðu manna, ljúga að henni og stela frá henni öllu sem hönd á festir.
![]() |
Staðan óbreytt, en litlu munar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.9.2016 | 20:38
Einvalalið úr gömlum sálmi
Þegar ég hafði litið yfir hópinn sem ætlar að taka þátt í einhverjum fjandanum, sem þeir kalla ,,flokksval", kom uppí hugann sorgum hlaðið vers úr gömlum sálmi, sem var í sálmabókinni sem gefin var út 1836:
,,Aumt er að sjá í einni lest
áhaldsgögnin slitin flest,
dapra konu og drukkinn prest,
drembin þræl og meiddan hest."
Það kemur sem sagt á daginn, að fyrrgreindur sálmur hefir haft einkennilega nákvæmt forspárgildi fyrir ,,flokksval" Samfylkingarinnar 180 árum eftir að hann kom út á prenti. Öll eru þau þarna endurborin, slitnu áhaldsgögnin, konan, ölvaði klerkurinn, drembni þrællinn og meidda merhrossið.
Jafnvel Galdra-Lofti hefði ekki tekist betur að vakja upp burtsofnaða sjónhverfingalúsera en Samfylkingunni að safna saman slíku einvalaliði af undirmálsdreggjum samfélagsins.
![]() |
Fjögur vilja leiða listann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.9.2016 | 19:46
Ofurölvi Kolbeinn galdraði fram strengjabrúðulista
Þrátt fyrir miklar annir heimafyrir, slengdi Kolbein Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður heilum framsóknarlista framaní kjósendur í Norðvesturkjördæmi í dag. Sem við mátti búast, eru samankomnar á þeim lista margar dægilegar strengjabrúður, hvur annarri sniðugri og fáránlegri. Ekki þarf að taka fram, að Kolbeinn var mjög drukkin þegar hann sullaði listanum saman og vitaberrassaður, en það aftraði þó ekki grunnhyggnum og meðvirkum framsóknarmönnum kjördæmisins að samþykkja listann og klappa duglega fyrir strengjabrúðunum.
Á meðan listi Kolbeins var tekinn góður og gildur uppí Borgarfirði, stóð Kolbeinn sjálfur í ströngu að heimili sínu. Til dæmis gerði frú Ingveldur, eiginkona hans, harða atlögu að honum af því að Máría Borgargagn hafði kysst hann nakin rassinn, nánar tiltekið milli rassakinnana, fyrir framan nefið og glyrnurnar á frú Ingveldi. Og frú Ingveldur tók mann sinn aungvum vettlingatökum fyrir tiltækið, því hún reif í hnakkadrambið á Borgargagninu og brúkaði það sem barefli á Kolbein, sem hrökk undan skrækjandi eins og páfagaukur. Munaði minnstu að frú Ingveldi tækist að rota Kolbein með Máríu ræflinum, sem skrækti líka og emjaði sem væri hún grís.Á þessari stundu ríkir mikil hátíð að heimili þeirra sæmdarhjóna, frú Ingveldar og Kolbeins, vegna prófskjörs sjálfstæðisflokksauðvaldsins í Reykjavík. Það dansar maddama Nordal við Óla Apakött, sem raknaði úr eiturdái síðustu nætur nú undir kvöld. Og Vondalyktin er enn og aftur mætt til leiks, kom blindfullur á reiðhjóli til veislunnar illa til reika, því honum tókst að keyra á fjóra ljósastaura á leið sinni í samkvæmið og húrraði loks um koll af hjólinu um leið og hann renndi í hlað frú Ingveldar og Kolbeins.
![]() |
Gunnar Bragi leiðir Framsókn í NV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2016 | 18:55
Strákurinn Bjarni skákar Flokkseigendum og mátar þá kanski
Nú, það er ósköp eðlileg skýring á því að blaðasnápar hefi ekki náð í Lilju Rafneyju í dag. Hún slökkti nefnilega á öllum símum og skreið undir rúm og hefir látið fyrir berast þar síðan í morgun. Ekkert er við þetta framferði þingmannsins að athuga, nema hvað köngulærnar sem lengi hafa búið undir téðu rúmi hafa orðið fyrir umtalsverðum óþægindum vegna hvalablásturs og svitakasta frúarinnar.
En það er fleira en heimskir og ágengir fréttasnatar sem Lilja Rafney er hrædd við. Hún er sannarlega skelfingu lostin við strákinn Bjarna, sem er alveg við að hirða af henni 1. sætið í kjördæminu. Strákurinn Bjarni hefir meðal annars á samviskunni að vera sonur Jóns Bjarnasonar, þess hins sama og kom hvað sárast við sál og samvisku Flokkseigendafélags VG, hafi það félag einhverja sál og samvisku, sem að sjálfsögðu er afar vafasamt.. Það væri vitaskuld hræðilegra en versta helvíti fyrir Flokkseigendur að vakna um við að Jóns Bjarnasonar-sonur hefði velt litla þæga krúttinu henni Lilju Rafney úr sessi og stolið fyrsta sætinu. Þessháttar þjófnað kunna Flokkseigendur ekki að meta, allrasíst brunarústir eins og hann Steingrímur og hún Álfheiður, að ógleymdum Swavari Sendiherra borgarastéttarinnar.Ef svo illa vildi til, að götustrákurinn Bjarni stæli heilu kjördæmi af Flokkseigendum, er viðbúið að Kata Smæl þenji nasavængina og verði eins og fugl í framan og goggi til höfðinu þar til töffaragreiðslan hennar fer í rugl og verði líkast hrafnslaup með gargandi ungum. Að minnsta kosti væru nógu gaman að sjá slíkar aðfarir hjá platformanninum mikla.
![]() |
Lilja Rafney baðst afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2016 | 08:35
Afrek Brynjars Vondulyktar síðasta sólarhringinn
Svo sem meðfylgjandi frétt á mbl.is sýnir, er ástandið á Brynjari Vondulykt ekki vel gott þessa dagana. Í gær drakk hann mikið landabrugg að heimili frú Ingveldar og Kolbeins, raunar svo herfilega mikið að drjúgir skammtar af kókaíni og amfetamíni gátu ekki rétt hann við. Greip hann þá til þess ráðs að setjast uppí bifreið sína og fara á rúntinn sér til hressingar og láta renna ofurlítið af sér. Auðvitað þurfti lögreglufjandinn að reka augun í kynlegt aksturslag bifreiðar Brynjars og fara að hnýsast í hverju það sætti.
Þegar lögreglan hafi komist að því að ökumaður bifreiðarinnar var gjörsamlega blind-augafullur tóku þeir lyklana af honum, en af því að þetta var Brynjar Vondalykt þá slepptu þeir honum í stað þess að stinga honum inn eftir að hann hafði sagt þeim nokkrar blautlegar sögur af samskiptum sínum við frú Ingveldi, Kolbein og fleiri ofurdjarfar persónur eins og Máríu Borgargagn og hennar mann, Indriða Handreð. Það var svo ekki fyrr en Brynjar Vondalykt lá þversum á götunni Flatahrauni í hreinu óminnisástandi, að lögreglan handtók pilt og laumaði honum inní fangaklefann.
En eftir að lögreglan hafði lúskrað dálítið á Vondulyktinni í fangaklefanum og sprautað á hann 200 lítrum af jökulköldu vatni fór loks að rofa til í hausnum á honum. Klukkutíma síðar var hann mættur í fullu fjöri á heimili frú Ingveldar og Kolbeins, að vísu rennblautur og með glóðarauga eftir lögreglumanninn Hróðmar fant. Umsvifalaust var Brynjar færður úr vosklæðum sínum á miðju stofugólfinu og Kolbeinn húsbóndi og framsóknarmaður leiddi hinn hrakta gest inní miðstöðvarkompuna og læsti sig þar inni með honum. Á sama tíma lét frú Ingveldur sig hafa það að skríða bak við stofusófa með Máríu Borgargagni og þæfðust þær þar á í drykklanga stund þar til frú Ingveldur stóð upp og skipaði Borgargagninu að andskotast í sturtu því það væri svo viðbjóðslega vond fýla af henni, eins og af dragúldnum þorski.
![]() |
Ökumaðurinn nánast áfengisdauður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.9.2016 | 08:05
Tíelleft vandlætingarskeifa sendir póst
Ekki er mér örgrannt um að maddama Lilja Rafney setji upp mikla og síða skeifu þegar hún les um umsvif sín á netföngum Alþingis. Kjaftakellingalegur vandlætingartónn er vörumerki Lilju og mun hún eflaust beita þessu traustvekjandi vörumerki sínu þegar ódámar fara að núa henni um nasir spillingu útaf póstinum frá starfsmanni Alþingis, sem hann sendi fyrir hana í góðri trú. Framsóknarmenn munu eflaust grípa þetta axarskaft Lilju fegins hendi og benda á að þarna sé á ferðinni ekki minni spilling en Wintrisfélagið og Panamaskjölin framsóknarformannsins. Og Vigdís Hauks mun eflaust hefja voldugt grjótkast úr steinhúsinu sínu af þessu tilefni.
En kanski hefir starfmaður Alþingis bara verið draugfullur þegar hann sendi póstinn í ógáti fyrir Lilju Rafney á sínu netfangi. Einnig hemur til greina, að margnefndur starfsmaður hafi farið svona að einskærri illkvittni og mannvonsku. Allur andskotinn er nú til. Þarna er greinilega á ferðinni fáheyrt spillingarmál af þeirri tegund að kjósendur VG eru meir en líklegir til að færa sig í hrönnum yfirá Framsókn og jafnvel Viðreisn.
Svo á eftir að koma í ljós hvernig kjósendur í fornvali VG í Norðvestukjördæmi koma til með að afgreiða fyrir sína parta þetta glæpsamlega spillingarmál. Verður það ofaná hjá þeim að stampa Lilju Rafneyju og skilja hana eina eftir með skeifuna og vandlætingartóninn? Eða verða þeir svo hreyknir af því að eiga loks forhertan spillingarpésa í konulíki á Alþingi að þeir kjósa hana allir sem einn í fyrsta sæti? Vissulega hefir hallað mjög undan fæti hjá áhangendum VG á siðferðissvellinu og þeir orðið æ dofnari fyrir siðleysi og siðvillu við hverja byltu sem þeir hafa hlotið. Nú er svo komið, að flokksmenn VG hafa enn og aftur valið Steingrím J. til að ráðskast með lista VG í Norðausturkjördæmi í stað þess að reka þann óalandi gemling úr flokknum fyrir óheilindi og loddarahátt.
![]() |
Sendi stuðningspóst frá netfangi Alþingis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2016 | 21:53
Ekki er kyn þótt keraldið leki
Íllt er það allt og bölvað þetta lúxusvandamál sem píratagarmarnir hafa ratað í hér í Norðvesturkjördæmi. Það kom sem sé á daginn að einn rummungsfóli hafði gefið kost á sér í prófkjöri píratana og haft sigur með ófyrirleitnum bolabrögðum. Í pírataslóðum er það nefnilega höfuðglæpur frambjóðanda í prófkjöri af fá systkyni og vini til að ganga í flokkinn til að kjósa sig og talið bera vott um siðleysi, siðvillu, siðbilindu og siðkrabba af langsíðustu sort. Hinsvegar er pólitískur ruglandi álitinn dyggð þar á bæ, svo sem eins og að vísa sí og æ í svokallaða ,,grunnstefnu" pírata þegar viðkomandi pírati hefur ekki hugmynd um hverju hann á að svara þegar hann er spurður um eitthvað sem tengist flokknum. En ,,grunnstefna" pírata er mikið framsóknarvers, opið í alla enda og eftir þörfum hvers og eins til útúrsnúninga.
Yfirpíratinn er svo náttúrlega vandamál útaf fyrir sig, en samt ekki það merkilegt að hægt sé að kalla hana lúxusvandamál, öðru nær. Holtaþokunagg og hefðbundinn leikaraskapur af gynnri tegundinn er aðall þessa yfirpírata og leiðarljós. En þegar hjartahreinn einfeldningur, sem yfirpírötunum er í nöp við, tekur þátt í prófkjöri og fær systkyni og vini til að kjósa sig er hann sleginn af með fáheyrðu offorsi og hroka.
Pírataflokkurinn er gnarristaútafan af veslings Framsóknarflokknum, líkur foreldri sínu á fjósbásnum nema að því leyti að hann er ennþá rennblautur bak við eyrun og eins er eitthvert ólag á hlandfærum hans, þvagið safnast víst saman í líkamanum eins og hjá hákarlinum, sem þekktur er fyrir að vera hlanblöðrulaus og míga inní sig og er baneitraður þar til hann er búinn að liggja 12 ár í fjóshaugi. Þar skilur á milli gömlu Stóru-Framsóknar og Pírataframsóknar. Og á sama hátt er Viðreisn óæðri endinn á Sjálfstæðisflokknum. Þannig ber allt að sama brunni í líffræði hins kapítalíska sexflokks á Alþingi og því ekki kyn að keraldið leki.
![]() |
Felldu framboðslista í NV-kjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.9.2016 | 19:20
Griðkur í plotti við panamastrákinn Wintris
Nú hefir hann Sigmundur hérna Dávíð gjört óhreint og vanhelgað bandalag við einhverjar griðkur, í Framsóknarfjósinu, sem aunginn veit hvurjar eru þó þær séu víst þingkvinnur, um framboðsplott gegn Höskuldi prestssyni af Akureyri. Vonir Sigmundar og griðkvennanna standa til að enginn fái 50% í fyrri umferð, af því að fraukurnar muni taka atkvæði af prestssyninum, þannig að kjósa verði aftur um tvo þá efstu, væntanlega Sigmund og Höskuld og þá muni Sigmundur hafa betur, en Höskuldo stungið á haus ofaní fjóshauginn.
Að sögn eru griðkurnar, sem eru með Sigmundi Dávíð í plotti, afskaplega forlyftar af honum, ekki síst útaf Wintris og panamaumsvifum hans. Þær eru sem sé stórhrifnar af skattaskjólum, aflandsfélögum og öðrum sílkum felustöðum, enda hafa mörg flokkssystkyni þeirra fjarska góða reynslu soleiðis fyrirkomulagi. Má ætla að prestssonurinn fari mjög halloka útúr viðskiptum sínum við panamabandalagi og verði genginn VG eða Pírötum á hönd fljótlega eftir þær hraksmánarlegu hrakfarir.
En gamla Framsóknarmaddaman heldur þó ró sinni í körinni þótt smásveinar hennar og griðkvendi leiki sér með þeim afleiðingum að Höskuldur verði skjátan ein eftir það gaman. Maddaman hefur aldrei haft mætur á Höskuldi og mun ekki gráta það þótt hann hverfi í fjóshauginn og deyji þar pólitískum sammardaudaga inní VG eða Píratana. ,,Farið hefir fé betra" er haft eftir þeirri gömlu, sem hlakkar til vígaferlana. Og Siggi Einars og Ólafur útvegsbóndi ætla að hlægja eins og graðhestar þegar Höskuldur verður frá.
![]() |
Þrjú bjóða sig fram gegn Sigmundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.2.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 1545575
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007