Bloggfærslur mánaðarins, september 2016
11.9.2016 | 09:21
Gleðiganga auðvaldsþjónanna í Suðurlandi heldur áfram
Þeir hafa löngum verið gamansamir sjálfstæðismennirnir í Suðurkjördæmi og áður Suðurlandskjördæmi þegar kemur að prófkjörum í eigin flokki. Lengi vel var Árni Johnsen þeirra bestmann og leyfðu furðuverkinu Þorsteini Pálssyni að fljóta með ásamt Eggert karlinum Haukdal. En nú vilja sjálfstæðismenn á Suðurlandi hvorki heyra né sjá meistara Johnsen og Þorsteinn Pálsson andaður inní þjóðþrifaskítverkið, sem þeir kalla Viðreisn eða Viðrini eða eitthvað í þá áttina.
Nú er öldin önnur hjá sunnlenskum auðvaldssinnum, vinum arðræningjanna: Nú dugar þeim ekkert minna en fyrrum ónothæfur útvarpsstjóri og lítill brennivínsgutti úr Grindavík, en súkkulaðistúlkurnar Ragnheiður Elín og Unnur Brá settar í skammarkrókinn með gamla góða Johnsen og fá í mesta lagi hér efit að vera klappstýrur fyrir brandarakallana í efstu sætunum. Það merkilegasta við þetta allt er, að Sunnlendingum virðist ekkert klíja við að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, kosingar eftir kosningar, þrátt fyrir að framboðslistar hans þar syðra státi einlægt af eintómum bögubósum frá toppi til táar.
Ýmislegt, eflaust bæði satt og logið, hefir verið sagt um Árna kallinn Johnsen og margir fyllst heilagri þórðargleði yfir einstaka skrýtnum tiltektum hans. Eitt er þó víst, hr. Johnsen úr Eyjum er hrein hátíð í samnburði við eftirmenn sína í Suðurkjördæmi; hann hefir látið verkin tala, þó sumir einhver þeirra hafi orkað tvímælis, eftirmennirnir hafa andskotann ekkert til að hreykja sér af eftir hinn auðnulausa feril þeirra, sem minnir mest á steindauða eyðimörk, auðn og tóm.
![]() |
Páll Magnússon á leið á þing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2016 | 23:03
Náfretur Samfylkingarinnar skammt undan
Það var svo sem fyrir löngu vitað, að Samfylkingin væri furðu vitlaus og þunnildislegur stjórnmálaflokkur, en að hann væri svo innilega vitlaus að hann léti sér sæma að slá kröftugasta og besta þingmanninn sinn af, eins og hvurn annan slátufénað að hausti, hafði ég aldrei ímyndað mér að gæti gerst. Þegar ég tala um Samfylkinguna í þessu tilfelli á ég að sjálfsögðu við fólkið sem er í þeim flokki og tekur þátt í prófkjörum hans. Að skipta Ólínu Þorvarðar út fyrir einhver nóboddí sem enginn þekkir er svo brjálæðislegt, að halda mætti að banvæn sjálfseyðingarhvöt Samfylkingarinnar sé komin á lokastig og varla annað eftir en að urða hræið.
Og mikið kæmi á óvart ef hinir stórbiluðu plottkóngar, sem hreiðrað hafa um sig í Samfylkingunni, og telja sig eiga flest hlutabréfin í þeim flokki, séu ekki höfundarnir að slátrun Ólínu. Á meðan pólitísk útfrymi eins og Össur Skarphéðinsson og Árni Páll sigra í prófkjörum Samfylkingarinnar en Ólína tapar má nokkurn veginn ganga út frá því sem vísu, að Samfylkingin sé í þann veginn að taka síðasta náfretinn, enda á hún engan tilverurétt lengur, erindi hennar er lokið, ef það var þá einhverntíma un eitthvert erindi að ræða.
![]() |
Ólína ekki á lista Samfylkingarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.9.2016 | 18:51
Hin mikla móðir Brýgýta sökuð um bestíuhátt af undirtyllum sínum
Nú er sem sé komið á daginn, samkvæmt einhverjum óhörðnuðum píratablautbörnum, að móðir þeirra allra, maddama Brýgýta Jonsdottir, sé hið versta illfygli og gott ef ekki ómenni. Blessuð börnin vilja í þokkabót meina, að kringum samsuðu á framboðslistum hagi Brýgýtta sé eins og óhefluð bestía; hún stundi í þeim leik ópírtatískan undrróður, hringingar, hótanir og gípugang. Næst bera krakkaskrattarnir eflaust barsmíðar og fólskuleg rotthögg uppá þessa mæddu móður þeirra. Það er margt sem veslings blessunin hún Brýgýta þarf að þola af hendi vondra barna.
En nú hefir Brýgýta gefið út skriflega yfirlýsingu, sem karlar eins og Sigmundur Dávíð og aðrir heimsmethafar af hans kalíberi mættu vera stoltir af. Í yfirlýsingu sinni hafnar Brýgýta öllum ásökunum vandræðaunglinganna í Píratabælinu í hennar garð. Það er einhver vofeiflegur tónn sem svífur yfir vötnum yfirlýsingarinnar, sem gefur tilefni til að gruna, að þeir sem hafa verið að væna Brýgýttu um svarragang og vonsku megi eiga von á kjafsthöggum af óblíðara taginu; ennfremur að Brýgýta bregði óróleikaungunum um að vera með alzheimersjúkdóm á byrjunarstigi, en það gafst Brýgýtu og Margréti Tryggavóttur vel gegn vandamálinu Þráni Bertelssyni í Borgarahreyfingunni og Hreyfingunni fyrir nokkrum árum. Svo gæti henni græðst þokkalega á að lýsa því yfir, að árásirnar á hana skýrist af því að hún sé kona, sona sé aldrei komið fram við kalla, það hefir Hanna Birna gert óspart uppá síðkastið og gefist vel.
Það má eflaust til sanns vegar færa, frá sjaldgæfu sjórnarhorni séð, að Brýgýta kerling sé mikil valkyrja og veigri sér ekki við að leggja höndur á flokkssystkyni sín í þeirri fullvissu, að hún ein og sjálf sé Flokkseigendafélag pírata og hafi þar af leiðandi ein leyfi til að löðrunga og dreifa rógi um þá sem vinna í prófkjörum Pírata og henni er í nöp við. Svona eiga sýslumenn að vera, og músarungarnir, sem hafa verið svo ólánssamir ganga Pírötum á vald, verða að gjöra svo vel að læra að heiðra sína miklu móður, knékjúpa henni og hlýða í hvívetna, - annars hafi þeir verra af.
![]() |
Birgitta hafnar ásökunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2016 | 21:51
Litli Bíbir fullur og gamli Bíbir í heimsókn hjá vafasömu fólki
Svo virðist sem Bíbir ætli ekki að bregðast áheyrendum í kvöld. Svo er að skilja að hann hafi hafið söngskemmtun sína með sönglögum úr smiðjum austurríkismannanna Franz Peter Shuberts og W.A. Mozarts og fylgt þeim eftir með númerum eftir Gerswin og Ellington. Hinsvegar bendir sú staðreynd, að Bíbríngurinn hóf tómleik sinn á tilsettum tíma, að hann sé að flýta sér og vilji djöfla dagskrá sinni af á sem skemmstum tíma. Flas er ei til fagnaðar, segir einhvers staðar, svo búast má við að þessi vörpulegi söngmaður keyri útaf laginu áður en lýkur.
Hitt er aftur alvarlegra, að Bíbir hafi haldið að hann væri í Reykjavík þegar hann var sannarlega staddur í Kópavogi. Það bendir til að drengskökullinn sé augafullur og vís með gera áheyrendum illar skráveifur, svo sem eins og að draga fram leyndarlim sinn og pissa yfir telpurnar á fremsta bekk. Annað eins hefir víst gerst. Verst er þó að pápi Bíbirs, gamli Bíbir, er með syninum í för, en hann er vondur kall og ófyrirleitinn í tiltektum.Sagt er að gamli Bíbir hafi vitjað heimilis frú Ingveldar og Kolbeins í dag og tekið skrans á þeim hjónum og á Máríu Borgargagni og I. Handreði líka. Enda dró Borgargagnið andskotans Handreðinn á eftir sér í bandi eins og hund eftir hamganginn með þeim gamla Bíbríngi. Það má heita kostulegur andskoti að geðslegt fólk eins og Márí og Indriði skuli láta hafa sig útí svona óþverra, því þau eru því miður engin unglömb lengur og Mária auk þess orðin harðla gigtveik í miðvígstöðvunum eftir linnulaus fangbrögð við allrahanda slordóna frá unga aldri. Á eftir sagði frú Ingveldur sem svo, að einkennileg væri það með helvítis Borgargagnið, svona útjaskað og útbrunnið, að aldrei mætti hún kallmann sjá öðruvísi en að hafa í frammi blygðunarlausa tilburði, þó svo hún sé aungin manneskja til stórræða lengur.
![]() |
Bieber byrjaði á slaginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þarna er komið ákjósanlegt tækifæri fyrir útsjónarsama eiturlyfjasala að fjárfesta í framtíðareign. Ekki dugar að ríkið eigi lyfjaverslun og græði stórfé á henni, því það er svo miklu eðlilegar að snjall dópsali með braskaranáttúru eigi og reki svona búð og græði á henni, stingi hluta hagnaðarins undir stól og leggi hann inn á góðan aflandsreikning, svona einhvernveginn panamareikning, í skattakjóli. Ekki er víst að það henti Engeyingum, að Bjarni afhendi einhverjum frændasínum eða frænku Lyfju, en með stálheiðarlegum milliliðum gæti fóður frændi eða góð frænka fjármálaráðherra hreppt þetta dópbæli og enginn þyfrti nokkru sinni að vita ver raunverulegur kaupandi var.
Annars er víst ekkert grín að stunda eiturlyfjasölu nú til dags. Götuapótekari án lyfsöluleyfis og lyfjafræðimenntunar er í stöðugum háska með líf sitt og frelsi. Samkeppnisaðilar vilja víkja honum úr sessi, helst drepa hann, og valdstjórnin er ævinlega á höttunum eftir að koma hönum í fangelsi. Með því að kaupa lyfjaverslun væri dópsalinn endanlega kominn heill í höfn og péééníngasjúklingar myndu líta hann öfundaraugum upp frá því.
Í gagnheilli umræðu um lyfjasölu á breiðum grundvelli, sem fram fór eina helgina að heimili frú Ingveldar og Kolbeins, kom fram ríkur vilji og skotheld rök fyrir stórauknu frelsi og samkeppni í dópsölumálum. Götulyfsalar stæðu alltaf í tómu ströggli við að komast yfir eiturlyf úr apótekum til selja viðskiptavinum sínum, en apótekarar með leyfi mættu ekki selja sína vöru nema eftir geðþóttaákvörðunum læknastóðsins, sem hefir ekkert vit á heilbrigðri samkeppni og enn heilbrigðari verslunarháttum og eiturlyfjadreifingu. Niðurstaða fundarins var, að öll umsýsla með heilsubótarefnum til sálar og líkama ætti fortakslaust að vera algerlega frjáls; ef einhver vill kaupa sér eitur, sem gæti steindrepið hann eða lagt líf hans í rúst, af öðrum aðilja þá ætti honum og sölumanninum að vera það jafnfrjálst og að drekka blávatn, sem er að sönnu einn göróttur drykkur sem fjöldi fólks hefir drepist af.
![]() |
Lyfja auglýst til sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2016 | 21:46
Kynferðislegur flokkur og að ýmsu leyti klámfenginn
Sem kunnugt er, þá er VG sérstaklega kynferðislegur flokkur og hugsanagangur flokksmanna þar nánast allur undir beltisstað. Tippakomplexar og pjölluraunir eru með öðrum orðum ær og kýr þessa kostulega flokks, ef flokk ætti að kalla, því VG er lítið annað en Flokkseigendafélagið alræmda. Hvaðan þessi kynferðisáhugi flokksins er sprottinn veit ég að vísu ekki, en flogið hefir fyrir að þetta fólk hafi horft yfir sig á pornómyndir sé komið með þennan andskota á heilann. Eitt er þó víst: Í upphafi, þegar Vinstrihreyfingin grænt framboð var stofnuð, stóð ekki til að þessi hreyfing legði aðaláherslu á miðvígstöðvar mannslíkamans og klámfengið hugmyndaflug.
Það er svo sem ágætt að eiga einn svona hálfbrenglaðan klám- og kynlífsflokk, en það er algjör óþarfi og eiginlega til skammar að kenna hann við ,,vinstrihreyfingu" því ekki veit ég til þess að vinstrimenn séu kynóðari en hægrimenn og miðjumoðarar. Það hefði verið fróðlegt fyrir Freud gamla að vera á dögum nú og geta rannsakað tippakomplexaelítuna VG og grenslast fyrir af hverju sexúalsjónir eru þessu fólki jvafn hugstæðar og raun ber vitni. (Javfn er steingrímskur framburður á orðinu jafn.)
En sannast sagna, ber það ákveðinn vott um hugkvæmni og afbrigðilegt skopskyn, að snuðra eftir trans- og intersex börnum í ranni menntamálaráðherra. Mætti ætla að fyrirspyrjandi eigi von á að í menntamálaráðuneytinu sé haldin hópum saman þessháttar börn. Af hverju innir fyrirspyrjandi ekki sjávarútvegsráðherra um meðferð útgerðarmanna á intersexúal börnum og krökkum með BDSM-tendensa? Ugglaust hjálpa spurningar af þessum toga VG í væntanlegri kosningabaráttu, þau verða vissulega að gæta þess að ganga ekki svo langt, að þau detti óforvandis í fangið á manni með höfuð fullt að ógeðslegum hugsunum, svo ég leyfi mér að vitna í verk Magnúsar Þ. Jónssonar skálds og tónlistarmanns.
![]() |
Spyr út í málefni transbarna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2016 | 20:08
Að hafa kjósendur að reginfíflum er leikur sem þeir kunna
Auðvitað er Benedikt Bjarnafrændi fjarska glaður með hve vel hefir tiltekist að koma á laggirnar lekbyttu fyrir Sjálfstæðisflokkinn og burgeisastéttina. Og ef dæmið gengur upp hjá þeim frændum veður honum launað með indælu borgunartrixi. Þetta er nefnilega fólk sem er að vinna hörðum höndum að næsta hruni, enda komu ýmsir úr braskarastéttinni vel útúr síðasta Hruni, þannig að til nokkurs er að vinna.
Á bak við tjöldin hafa sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson starfað af einstakri hugkvæmni að stofnun og uppgangi Viðreisnar, - í fantagóðu samstarfi við Stöð 2. Jafnframt hafa sæmdahjónin gert allt sem í þeirra valdi stendur til berja í brestina í sínum flokkum, Sjálfstæðisflokki og Framsókn. Á tímabili voru helgarsamkvæmin á heimili frú Ingveldar og Kolbeins svo róstursöm að þau líktust fremur ægilegum síldardansleikjum á Siglufirði á síðustu öld. En með tilkomu Viðreisnar komst friður á og nú streyma atkvæðin, sem voru ríkisstjórnarflokkunum glötuð, til Viðreisnar og virðist hættan sem steðjað hefir að ríkisstjórninni að mestu liðin hjá; auðvaldið mun halda sínum völdum með Sjálfstæðisflokkinn, Virðreisn og Framsókn í stjórnarráðinu. Og samfélagseyðileggingin, velferðarskemmdarverkin, hrundansinn og borgunartrixin geta haldið óhindruð áfram fram að næsta Hruni.
Við hin verðum svo bara að vona að Bjarna, Bensa Bjarnafrænda og Kögunarslektinu í Framsókn verði óvænt á í messunni og mistakist að hafa kjósendur að reginfíflum einn ganginn enn.
![]() |
Getur ekki annað en verið glaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2016 | 19:19
Esenis tesenis tera
Sérkennilegt viðrini þessi Viðreisn, sem á gegna hlutverki lekabyttu fyrir Sjálfstæðisflokkinn kosningunum framundan. Þarna virðis auðvaldið vera að safna saman örkumla hrunsnillingum, sem eru dasaðir eftir frjálshyggjudansinn kringum gullkálfinn fram að Hruni. Kúlulánabrask og önnur álíka háttvísi er engin fyrirstaða fyrir ,,frama" í Viðreisn, eða þátttaka í pólitík sem leiddi til stórhörmunga tugþúsunda Íslendinga. Að Sjálfstæðisflokknum skuli detta í hug að setja svona óféti og viðrini á laggirnar ber vott um ótakmarkaða ófyrirleitni þegar völd hans eru í hættu og glæpsamlegan hugsunarhátt.
Það verður dægilegt fyrir landsmenn að fá að sjá Thorgerði Katrínu, Þorstein Páls og Bjarnafrændann, ásamt fleiri lúserum af sama tagi, syngja saman baráttusöng Viðreisnar í fjölmiðlum, einkum á Stöð 2: ,,Esenes tesenis tera, viðrini veit ég mig vera"! Og varla mun gleðin og ánægjan minnka, ef svo slysalega tekst til, að kjósendur greiði götu þessa gjörspillta framboðsfyrirbæris og bjargi í leiðinni núverandi ríkisstjórn og hrundansi hennar.
![]() |
Þorgerður og Þorsteinn í Viðreisn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2016 | 19:44
Afrek og framfarir í læknisverkum
Þá tóskt nú betur til þegar Gottfreð læknir skipti um barka í Björnu Natansdóttur, sem búsett er að Herbertsstræti 6 í læknisumdæmi Gottfreðs. Aðdragandi málsins var, að barki Björnu tók að veiklast í vondri kvefpest fyrir sjö árum og í kjalfarið á því byrjaði hann að grotna niður eins fúasprek. Svo var komið með Björnu á stofuna hjá Gottfreði og var hún þá komin á bakka móðunnar miklu og rúmlega það. Gottfreð sá þegar í stað hvers kyns var, hringdi hann í Ármann vélstjóra og bað hann útvega sér gúmmíbarka úr vélinni sem hann stjórnar. Þegar barkinn var kominn inná borð klippti Gottfreð leyfanar af barka Björnu uppvið kok og niðurvið lungu og kastaði þeim á gólfið. Þegar þar var komið kom Gottfreð gúmmíbarkanum úr vél Ármanns fyrir þar sem gamli brkinn Björnu hafði verið og saumaði allt saman.
Það er af Björnu Natansdóttur að segja, að hún hresstis brátt og varð albata á sex vikum. Í dag reykir hún fjóra pakka af Camel á dag og kveðst aldrei finna fyrir barkanum eða hálsinum yfirleitt. Það eina sem henni þótti óþægilegt við barkaskiptin var gúmmíbragðið sem leitaði uppí munn hennar, en með tímanum yfirvann Camelinn þann krankleik og hefir Bjarna verið eins og ný manneskja síðan.
Á umliðnum árum hefir Gottfreð læknir framið mörg heillandi læknisverk, sem byggjast á því að vera leifturfljótur að hugsa, ákveða og framkvæma. Sér í lagi hefir honum tekist að forða nær dauðu fólki til lífs með því að sprauta fáheyrðum efnablöndum í það á ögurstund. Til að mynda dældi hann hræring úr ediki og músaeitri í konu nokkra, sem lá dauð af skyndilegu hjartastoppi, með þeim árangri, að kerlingin spratt á fætur og hefir ekki orðið misdægurt síðan. Reyndar hefir konugarmurinn verið hálf undarleg í höfðinu síðan, en Gottfreð segir það vera útaf hjartastoppinu.
![]() |
Óska eftir áliti vegna máls Macchiarini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2016 | 13:42
Meintir hnökrar og grunur um guðlast setja strik í reikninginn
Ekki vantar upplifunina hjá Sigmundi okkar Dávíð. Það er fjarska gott, - já, og fallegt líka, ef útí þann sálm er farið. Það eina sem skyggir á trúverðugleika þessa heilagsandaástands, sem pilturinn segist finna svo ákaflega til í hjarta sínu og höfði, eru nokkrir meintir hnökrar á sannleiksást hans og sannsögli eftir hann gjörðist ,,stjórnmálamaður." Af skröki og eða sannleiksást hans fyrir þann tíma fer aungum sögum. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart, nema honum sjálfum, að kjósendur geri gys að upplifunum hans, hlægi að þeim opinberlega og segi sem svo að ekki sé á þennan lygalaup logið hverju honum getur dottið í hug að traktera fólk á.
Gamla Framsóknarmaddaman hefir nú dregið feldinn uppfyrir höfuð sér í kararbæli sínu og hugleiðir ákaft hvorn þeira, Sigmund eða Höskuld, hún eigi að senda í hið pólitíska sláturhús flokksins með haustinu. Henni hefir reiknast það strax til, að meira frálag sé af Sigmundi og freistand sé því að setja Höskuld á, því hann virist sprækur eins og lambhrútur meðan Sigmundur kjagar um völlinn eins og útlifuð og þung gamalær.
Þá er þess að geta, að ýmsum gætnum mönnum og alvörugefnum þyki nýjasta upplifunarrassakast Sigmundar Dávíðs fullmikið í ætt við þjóðvegarupplifun þá er sá geggjað Páll, sem síðar fékk kenninafnið ,,postuli", þóttist hafa orðið fyrir í einu bilunarkastinu. Þykir biflíuhneygðum einstaklingum engu líkara en að Sigmundur Dávíð sé að guðlasta í þessu tilfelli, vitandi vits til háðungar guðskristni í landinu, og gjöra lítið úr postulum á borð við Pál og fleiri. Er það meining sumra, meðal annars hins þjóðkunna prests og prófasts til Gemlufallsþinga, síra Baldvins, að réttast sé að bannfæra hinn brátt fallna framsóknarforinga og svipta hann heilögum sakramenntum. Hefir síra Baldvin þegar hafið undirbúning að bannfæringarguðsþjónustu annað kvöld og útloka þar með á þeirri stund hinn afhrópaða forsætisráðherra frá samfélagi heilagra húskarla til fjóss og fjárhúsa.
Meðfylgjandi mynd sýnir Sigmund á flótta undan ævareiðum framsóknardólgum.
![]() |
Aldrei upplifað eins mikinn stuðning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.2.): 6
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 71
- Frá upphafi: 1545575
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007