Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2017
28.2.2017 | 21:12
Úr skýrslu starfsnefndar ríkisstjórnarinnar um menntamál
... Höfundar skýrslunnar telja, að með kennaraskorti megi koma í veg fyrir aukna skaðmenntun, sem kostað hefir þjóðarbúið milljarða á milljarða ofan á umliðnum árum. Í staðin fyrir að harma kennaraskort ættu til þess bærir aðilar, að gleðjast og nota þetta tækifæri til að hrifsa allt skólakerfið úr höndum ríkis og sveitarfélaga of einkavæða það með einni vel útfærðri leiftursókn. Það gengur auðvitað ekki, að ríkið, hvað þá sveitarfélög, séu að vasast í skólarekstri sem betur væri kominn í hönum einkaaðila. Það verður að vera frjáls samkeppni í skólarekstri og áfengissölu eins og bankarekstri, útgerð og sælgætisframleiðslu.
Þá er nauðsinlegt að nota kennaraskortinn til að koma börnum og unglingum í arðbæra vinnu, að maður minnist ekki á háskóladundarana, sem er eins alsherjar reginskömm og hneysa fyrir Íslendinga. Í gamla daga voru 13 ára strákar settir um boð í síðutogara og jafnöldrur þeirra látnar salta fisk þar til þær misstu allar nöglurnar af fingrunum, og tánum líka. Þegar fram í sótti urðu þessi börn fyrirmyndarborgarar og lentu á Litla-Hrauni og inni á geðdeild vegna ótæpilegrar áfengis- og dópneyslu. Það varð sko fólk úr þeim krökkum!
Enn fremur er nauðsynlegt, út frá þjóðfélagshag, að lækka laun svo kallaðra kennara um að minnsta kosti 70%, svo að þeir öðlist kosnaðarvitund og láti af því að fylla höfuðin á varnarlausum börnum af einhverjum úrkynjuðum sósíalisma og aumingjadekri. Þegar skólarnir verða orðnir undirdeildir stöndugra fyrirtækja eins og Samherja, Granda, álveranna, Haga og einkarekinna banka verða öll skólavandamál, að meðtalinni skaðmenntun, úr sögunni og hagvöxtur eykst sem því svarar og fólk fer loks að búa við stöðugt góðæri, margfaldaða neyslu og miklu betri bíla.
Virðingarfyllst,
fyrir hönd starfsnefndar ríkisstjórnarinnar um menntamál:
Frú Ingveldur
Kolbeinn Kolbeinsson
Máría Borgargagn
Indriði Handreður
Brynjar Vondalykt
Óli Apaköttur
Sigurveig Dræsa
Starfið þurfi að vera samkeppnishæft | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2017 | 20:18
Upphaf hjallastefnu
Nú er trúlega komið að þeim tímamótum að auðvaldsblekkingafyrirtækið, sem kennir sig við stefnu og hjall, hverfi alfarið frá ungbarnaföndri og gerist efnalaug með megináherslu á arðræningja- og péééníngaþvott. Það efir sem sé komið upp úr dúrnum, að þrátt fyrir glæsileg einkavæðingartilþrif hjallabúanna á vígvelli barnanna, þá hafa krakkakvikindin ekki látið segjast og eru jafn óþekk og uppivöðslusöm og ungarnir á samfélagsreknu barnastöðvunum.
Í Íslenskum aðli eftir Þórberg Þórðarson er sagt frá fyrirrennara allra hjallastefnuspekúlanta, Illuga nokkrum bónda að Múla í Nauteyrarhreppi. Illugi var mikill uppeldisfræðingur og laðaði skárri eiginleika í börnum með því að leiða þau í hjall sinn og afhýða þá eða þær er sýnt höfðu af sér ódyggðir með árarblaði, en duglegu börnunum gaf hann hangikjöt, bringukolla og lundabagga. Af þessum traktéringum urðu börnin dugleg, þæg og blíð og framúrskarandi þjóðfélagsþegnar þegar fram í sótti. En því miður hafa aungvar spurnir borist af árablöðum og lundaböggum úr hefbúðum hjallastefnunar hinnar nýrri og því hefir farið sem farið hefir.
Frú Ingveldur og Máría Borgargagn hafa löngum verið sérdeilis elskhugar hjallastefnu, einkum þeirra fyrri, árablaðsins og bringukollana. Til að mynda kom Máría Borgargagn sér upp ágætu árablaði úr eikarviði, sem hefir komið að dásamlegum notum þegar Borgargagnið hefir mátt refsa eiginmanni sínum, Indriða Handreði, fyrir svínsleg kvenna- og karlaför hans ótérleg. Það er álit Borgargagnsins, að maður hennar hafi betrast, heldur en hitt, við árasláttinn, enda sé nú svo komið, að öll ónáttúra hefir fokið úr honum út í veður og vind, en jákvæð náttúra reyndar líka. Um hjallastefnu nýrri, eru þær stöllu sammála, að hún hafi verið frábært innlegg í baráttunni gegn ríkis- og sveitarreknum skólum; en forræðishyggja af tagi ríkisskóla og sveitarsjóða sé óalandi og ólíðanleg í nútíma vestrænu þjóðfélagi. Hinsvegar sé undurgott af hafa eintóma einkaskóla, alla á ríkisspenanum.
Hjallastefnan þvær ekki þvottinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2017 | 18:59
Skrifstofusjakalinn
Skrifstofusjakalinn mikli á kontor Alþýðusambandsins hefir alla sína alþýðutíð lagt hart að sér í baráttunni gegn opinberum starfsmönnum. Þessi sérkennilega stéttabarátta sjakalans, sem sjálfur þiggur laun samkvæmt ríkislaunum ráðherra, hefir að sjálfsögðu ekki skilað verkafólki einum einasta eyra, en það skiptir aungvu máli í höfðinu á hinum kapítalískmenntaða og morgunblaðslærða hagfræðingi, sem samhliða bardagagirnd hans við opinbera starfsmenn hefir einstaka ánægju að því að faðma fulltrúa erkiauðvaldsins að sér fyrir framan myndavélar fjölmiðla.
Mest var þó gaman að sjakalanum þegar hann skreið ýlfrandi undir borð þegar lýðurinn þursti út á strætin til mótmæla eftir Hrunið góða. Og þar lágu þeir, sjakalinn og hans alþýðuhetjur, og báðu fyrir kapítalismanum meðan hitt fólkið kveikti í jólatrénu á Austurvelli og heimsókti höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins og heimili alræmdra auðvaldsblesa með málningarfötur í hönd. Og þar eð gvöð skrifstofusjakalans á alþýðukontórnum er algóður gvöð og sanngjarn, þá bænheyrði hann sinn fúlskeggjaða dreng og afstýrði byltingu hins óskammfeilna lýðs á Austurvelli. Það er mál manna, að aldrei hafi drotni Mammón borist að hjarta annar eins trúar- og bænarhiti en undan skrifstofuborðinu í höfuðstöðvum Alþýðusambands Íslands er þessa myrku haustdaga 2007 og fram á vor 2008.
En mikið mega Íslendingar vera hamingjusamir með, að þeirra æðsta alþýðuhetja og skrifstofusjakali er engu minni bardagahrókur en Don Kíkóti og að vopnaviðskipti hans við vindmillur opinberra starfsmanna eru engu síður stórbrotnar en skylmingar Don Kíkóta við spánskar vindmillur fyrir nokkurhundruð árum. Við skulum bara vona, að skrifstofusjakalinn fái ekki einhvern mylluspaðann í hausinn einn góðan veðurdag og hin kapítalíska hagfræðifroða leki óbætt hjá garði ofan í holræsið. Því vér eigum heill vora og hamingju undir salekum auðvaldsins og alþýðusjakölunum.
Kjarasamningum ekki sagt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2017 | 20:02
Gvöndur niðursetningur
Í fjölskyldu frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar er enginn svartur sauður, eða sauður yfirleitt. Til dæmis fær aunginn svartur sauður aðgang að heimili þeirra sæmdarhjóna, en svartir sauðir eru samkvæmt skilgreiningu þeirra hjóna aðeins þeir sem sannarlega eru róttækir sósíalistar. Sósíaldemókratar, Álfheiður Ingadóttir, Steingrímur og Svavarsfjölskyldan er öll velkomin í hús frú Ingveldar og Kolbeins, enda hafa soleiðis eintök sést velta út um þvottahússdyrnar á því húsi með allt á hælunum. Nú um stundir er mikið fjör og mikið brallað á heimili sæmdarhjónanna, Máría borgargagn hefir verið í essinu sínu og Brynjar Vondalykt farið með himinskautum.
En aungin regla er án undantekningar. Það á líka við um fjölskyldur frú Ingveldar og Kolbeins. Þegar að er gáð, má koma auga á undartekninguna, að vísu ekki nema í ágætum sjónauka, en þó helst í smásjá. Staðreyndin er sem sagt, að Kolbeinn á einn varhugaverðan náfrænda, sem er líka náfrændi frú Ingveldar. Umræddur náfrændi er afar skuggalegur náungi, sem meðal annarra óhæfu í gjörðum sínum, var nálega búinn að drekkja húsmóður sinni í súrtunnu innan um blómurskeppi. Þarna er auðvitað um að ræða ómennið vanþakkláta, Gvönd niðursetning. Að réttu lagi ætti Gvöndur niðursetningur að vera löngu dauður úr elli, en þess í stað hefir sannast svo um munar, að þeir lifa lengst sem lýðum eru leiðastir.
Í upphafinu bar móðir Gvöndar niðursetnings hann út strax eftir fæðingu drengsins, en ógæfa þjóðarinnar hagaði því svo, að lúsug hundtík snðraði hvítvoðunginn uppi og bar hann heim til sín. Húsbændum hundtíkurinnar þókti vandast málið þegar tíkarfjandinn færði þeim veinandi kornabarn, sem aunginn vissi deili á. Brynjólfur bóndi hugðist loka málinu með því að fleygja barnunganum í fjóshauginn, en húsfreyja hans tók það ekki í mál og í sameiningu ákváðu þau, að gera feng tíkurinnar að niðursetningi sínum. Þegar hjónin voru dauð og börnin þeirra búin að skipta með sér reytum þeirra, kom í ljós að enginn vildi taka Gvönd niðursetning, sem þá var orðinn svo gott sem fullorðinn maður, að sér, enda hafði hann óorð á sér. Af þeim sökum fór Gvöndur á vergang, sem endaði á því að hann féll í höndur gömlu Framsóknarmaddömunnar. Hjá þeirri viðrðulegu maddömu nam Gvöndur niðursetningur aragrúa af óknyttum og í þeim efnum var þó ekki á bætandi. En þegar Gvöndur niðursetningur gerði alvarlega tilraun til að neyða frú Ingveldi, náfrænku sína, og Kolbein, náfrænda sinn, bæði í einu, til óforskammaðra hynferðisathafna, settu þau niðursetninginn frænda þeirra út af sakramenntinu fyrir lífstíð.
Meira af Gvöndi niðursetningi síðar.
Svarti sauðurinn í fjölskyldunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2017 | 18:34
Skipulögðu glæpasamtökin og þeirra blautu draumar
Já, það er sannarlega dauðafæri fyrir skipulögðu glæpasamtökin á Íslandi að hrifsa bankana af fólkinu í landinu og færa þá sjálfum sér að gjöf. Þetta gerðu bófafélögin fyrir um það bil hálfum öðrum áratug með gríðarlega góðum árangri, grenjandi góðæri, byggingakrönum í þúsundatali á höfuðborgarsvææðinu, að ekki sé minnst á gullát bankaséffana. Þessu fádæma góðæri lauk svo með því að stómennin þutu í einkaþotum að næturþeli með útroðnar ferðatöskur af péníngaseðlum í farteskinu. Þetta voru æsilegir ævintýratímar og vissulega brenna skipulögðu glæpasamtökin í skinninu (eg þau hafa þá skinn) eftir því endurtaka leikin.
Vissulega er það spennandi fyrir sjálfstæða, framsækna og bjarta viðreisnarsinna, að stela bönkunum aftur í skjóli nætur og sjúga allt innan úr þeim og flytja út í ferðatöskum og henda bönkunum að svo búnu aftur í fangið á ríkinu, þ.e.a.s. okkur óbreyttum kjósendum. Það þarf auðvitað lipra snilligáfu og mikið magn af bíræfni til að láta svona hringekju ganga hring eftir hring, án þess að þjóðinni lánist að sjá samhengið í leiknum. En kjósendur eru óskynsamir og frámunalega trúgjarnir í löngun sinni eftir brauðmolum af borði kapítalismans, það sannaðist svo átakanlega í síðustu og næstsíðustu alþingiskosningum.
Í dauðafæri til að endurskoða kerfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2017 | 22:33
Hátíð og hymmnasöngur
Á Íslandi hefir rottukapphlaupið um að komast á saungvakeppni Evrópu, júóvísjón, farið versnandi með hverju ári. Og á hverju ári bera landsmenn þá von í brjósti, að nú sé botninum náð og leiðin liggi hér eftir aðeins upp á við, og jafnoft hafa þær vonir brostið, því leiðin liggur ávallt beint niður. Að þessu sinni, árið 2017, er afrakstuinn hræðilegur, eiginlega djöfullegri en orð fá lýst. Úrkynjunin er orðin svo berrössuð, að aunvum dylst, að brátt sé komið að leiðarlokum þátttöku Íslendinga í Evrópusöngvakeppninni. Það er gott og huggun harmi gegn; en því er samt ekki hægt að treysta því alveg; á hverju ári rísa hæfileikalausir spangólarar upp eins og draugar frá kaþólskri tíð og verða sér til skammar. Meira að segja óhljóð langdrukkinna fyllirafta í útilegu eru hátíð og hymmnasöngur hjá evrópugrenjinu í kvöld.
Einhvers staðar rakst á þá hugmynd, að freistandi væri, að senda Krisján Jóhannsson ópérusöngvara í í sönglagasamkeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og láta hann syngja ,,Hamraborgina" aftur á bak, ekki væri ólíklegt að það mundi slá í gegn. Kristján er náttúrlega okkar besti og mesti söngfugl síðan Garðar Hólm féll fyrir sjálfs sín hendi á almenningssalerninu hjá eftirlitsmanninum. Öldungar, sem bjuggu að þeirri lifsreynslu að hafa heyrt Garðar Hólm syngja, og vóru ekki dauðir þegar Kristján hóf upp raust sína, sögðu að söngur þeirra væri furðulíkur; Garðar hefði að vísu verið betri þegar kom að söngversum eins og ,,Kindur jarma í kofunum" og ,,Austankaldinn á oss blés", en að öðru leyti nákvæmlega eins.
Það er helst, að sæmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn eiginmaður hennar, geti afborið íslenskt júróvísjón, ef þau eru nógu ölvuð, að öðrum kosti hatast þau, eins og aðrir, við þessa álappalegu keppni. Í kvöld voru þau sem betur fer svo drukkin að þau hrifust með sargangarginu í sjónvarpinu, og það svo rækilega, að frú Ingveldur sleikti út um og slefaði reiðinnar býsn af einskærri fryggð. Kolbeinn, aftur á móti, sofnaði undir júródinglinu og pissaði í buxurnar. Þegar hann stóð upp skildi hann eftir sig stóran poll í leðurklædda húsbóndastólnum, en frú Ingveldur og Máría Borgargagn furðuðu sig á vatninu og ráku í það puttana. Hvað þær gerðu meira verður ekki upplýst hér, enda er það öldungis óprenthæft.
Mér við hlið, Til mín og Nótt í úrslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.2.2017 kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2017 | 19:48
Horft til framtíðar og heildarlausna í ferðamannaiðnvæðingunni
Hvurskonar bölvað ekkisens kjaftæði er þetta? Hafa spekúlantarnir ekki ekk gert sér grein fyrir að ferðamenn eru gefins, hrein og klár guðsgjöf, sem við eigum að nýta okkur til hins ítrasta. Til að mynda er það æsileg skemmtun, að liggja fyrir ferðamönnum og ræna þá meðan þeir geta aungvum vörnum við komið. Ekki er síður gefandi, að gabba svona ferðalinga í kynnisferð til fjalla og skilja þá þar eftir eins graslömb og veðja síðan um hvort, hvar eða hvenær þeir skila sér til byggða. Það er svo margt skemmtilegt sem hægt er að gera við ókeypis ferðamenn, ef horft er til framtíðar og tækifærin nýtt.
Í sveitahrepp einum norðanlands hafir Arnes bóndi að Hvannarótum legið fyrir ferðamönnum í mörg ár og fénýtt þá, suma að hætti Bjarnar frá Öxl, aðra hefir hann gert að þrælum sínum og enn aðra hefir hann barið fyrir skort á skotsilfri. Á þessari ferðamannaiðju hefir Arnesi bónda græðst allnokkuð fé og er hann nú um stundir talinn ríkasti bóndi hreppsins. Nú hafa fleiri meðlimir Bændasamtaka Íslands farið að gefa frumkvæði Arnesar bónda að Hvannarótum gaum og má í kjölfarið búast við að mun fleiri ferðamenn komi til landsins en hverfa þaðan aftur. Og ef erlend ríki spyrja okkar ráðamenn um afdrif þegna sinna verður þeim sagt, að umræddir þegnar hafi hlaupið í sjóinn við Reynisfjöru og útilokað sé að komast í samband við þá á Íslandi.
Þar sem vér Íslendingar erum í aðra röndina komnir af skandinavískum ræningjum og mannslögurum að langfeðgatala, þá mun oss ekki muna um, að troða nýjar slóðir í ferðamannaiðnvæðingunni og verða rík og búa öll á Arnarnesinu við gengdarlausa auðlegð og velfarnað. Allt byggist þetta svo á, að ferðamenn eru einmitt gefins, þeir streyma inn í landið eins og höfuðsóttarrollum, með alla vasa fulla af péééníngum og kunna fótum sínum ekki forráð. Til dæmis um þetta, þá jagaði Arnes bóndi ein gullhjón frá Tortóla og fengu af þeim þvílíkt frálag auðs, að Arnes gat endurnýjað á einu bretti allar dráttarvélar sínar, heyvinnsluvélar, fjós og hlöðu. Svo það er eftir einhverju að slægjast fyrir framtakssama menn með pééénígavit á borð við hvaða sprenglærðan viðskiptahagfræðiverkfræðing sem er í útlöndum.
Ferðamenn eru ekki gefins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2017 | 18:50
Frelsið er loks komið að túngarðinum okkar
Þá eru þingmenn enn einusinni farnir að ræða uppáhaldsmálið sitt, brennivínsfrumvarpið, sem ekki er skrýtið, því það hæfir gáfnafari þeirra svo einstaklega vel. Nú er löngu vitað, að ungir sjálfstæðismenn, heimdellingar, og aðrir ámóta veðurvitar vilja þjóðina augafulla, ekki síst í matvöruverslunum, því eins og flestir vita þá er manneskjan aldrei jafn frjáls en þegar hún er örvita af spíritusnautn eða liggur ósjálfbjarga af sömu ástæðu á gangstétt eða í vegarkanti. Og ungu sjálfstæðismennirnir með heimdallsórana eru ekki lengur einir í baráttu sinni fyrir brennivínsorgíunni því nú eru píratar mættir til leiks, fullir af hugsjónaleldi og gufu í heila stað. Þjóðin má því eiga von á að verða loks frjáls, eins og á nítjándu öldinni, þegar frjálsir fylliraftar bönnuðu matkaupandi húsmæðrum aðgang að matvöruverslunum með drykkjulátum sínum.
Einhverjir ötulustu stuðningsmenn brennivínsfrumvarpsins frá upphafi eru þau sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson, en þau hafa í félagi við Brynjar Vondulykt, Óla Apakött, Indriða Handreð og Máríu Borgargagn, samið hvert frumvarpið af öðru um frelsi brennivínsins og sent vankaða smástráka, heimdallsmenntaða, með þau inn í þingið þar sem fullorðnir menn hafa kastað þeim í ruslið. En nú eru breyttir tímar og inná Alþingi Íslendinga er komið fullt af hugsjónaóðum unglingum á ýmsum aldri, sem eru staðráðnir í að frelsa brennivínið í eitt skipti fyrir öll og gera þjóðina þar með frjálsa í leiðinni.
Í dag varð svo sá merkis atburður, að frú Ingveldur og eiginmaður hennar, Vondalyktin, apakötturinn og Borgargagnshjónin, með nokkurn hóp af frjálshyggnum unglingsskjátum með sér, heimsókti veglega nýlenduvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu, sem áður var í eigu bónusfega, og upphófu þar alfrjálsa og uppbyggjandi drykkju á brennivíni, hvítvíni og bjór. Skipti engum togum, að þegar í stað varð ljómandi frelsi alsráðandi, að matkaupandi húsmæður gátu aungva rönd við reist og gengu orðalaust frelsinu á vald. Um kaffileytið mátti sjá stútungshúsmóður koma vagandi út úr nýlenduvöruversluninni með pokaskjatta í annarri hendi, áberand fáklædda, með geirvörturnar frelsaðar sem og megnið af kviðskegginu. Þessi milda hústrú sté sigri hrósandi upp í bifreið sína og ók á brott, frelsinu fegin. Inni í nýlenduvöruversluninni mátti á sama tíma heyra orrustugnýinn af bardaga Kolbeins, Vondulyktarinnar, Apakattarins og Handreðsins við nokkra ráðvillta Pólverja sem þeim hafði tekist að króa af. Kolbeinn og hans menn staðhæfðu að Pólverjarnir mæru helvítis andskotans múlimar, sem bæri að leggja lágrétta í gólfið. En allt var svo frjálst, svo undur frjálst, í nýlenduversluninni í dag, að annað eins frelsi hefir ekki sést hér á landi síðan Gúðmúndsen kaupmaður höndlaði með brennivín og aðra spíritushlaðna vökva í stórverslun sinni, Gúðmúndsensbúð.
Afnám einkaleyfis en ekki aukið aðgengi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2017 | 22:16
Konnarnir liggja hvur um annan þveran í forarvilpunni
Jújú, Valmundur minn, samherjarnir komu standandi niður, enda lyftust þeir aldrei upp frá gólfinu. Hinsvegar liggja þú og Konninn og Villi hvur um annan þveran í forarvilpunni, sem þið létuð samherjana og Thorgerði teyma ykkur út í. Nú verðið þið að gjöra svo vel að halda áfram að velta ukkur í eðjunni þar til yfir lýkur. Í kvöld hlægja samherjarnir að ykkur eins og hvurjum öðrum brjóstumkennanlegum endemum. Það verður að hafa það. Næst fara þeir með ykkur bak við hús og láta ykkur skrifa uppá föst laun sjómanna og þar með afnám hlutaskiptakerfisins; ekki þarf að efa að þið konnarnir gerið það fúslega fyrir góðgjörðamenn ukkar. Og ef þeir samherjarnir bæðu ykkur við sama tækifæri að kyssa þá á rassinn munduð þið gera það umsvifalaust fyrir þá og sleikja útum á eftir eins og hvur önnur hundsspott.
Auk þess er tilvalið að þið breytið nafni Sjómannasambands Íslands í Sjálfstæðis- og Framsóknarmannafélag Íslands, með heimilisfesti og varnarþing í Hádegismóum. Það væri þó fjári skæslegt af ykkar hálfu og í takt við tíðarandann hjá samherjunum, vinum ukkar.
Tæpt en þetta hafðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2017 | 20:14
Að ég skuli ekki heita eitthvað meira en maður
Konráð Þorsteinn Már lætur ekki deigann síga í dag frekar en í gær og fer nærri um hvaða ,,menn" það eru sem kunna að meta þetta. Einkennilegt að nota orðið ,,þetta" yfir kjarasamning; mætti halda að sá er þannig talar hafi megnan viðbjóð á kjarasamningnum atarna og helst ekki tala um hann og als ekki snerta hann. En hvað varðar þessa ,,menn", sem Konráð Þorsteinn Már heldur að kunni að meta kjarasmninginn, þá verður mér hugsað til séra Árna þega hann þurfti að gista í plássi nokkru er vakti honum óhug: ,,Um kvöldið setti að mér óskaplegt þunglyndi út af því, að ég skyldi ekki heita eitthvað meira en máður, úr því að íbúar þessa þorps hétu menn."
Svo er það hann Valmundur, sem villtist úr Eyjum til Reykjavíkur og gerðist sjámannasambandsformaður. Í kvöld heyrði ég ekki betur en fyrrgreindur Valmundur hefði í hótunum við hásetahjörðina. Hann lét út ganga af sínum munni ummæli eitthvað á þá leið, að ef samningurinn félli myndi samninganefndin ekki semja meira, og var á honum að skilja, að eftirleiðis væri best að vanþakklátir slordónarnir sjálfir sjá hér eftir um samninga fyrir sig, en þeir fagmennirnir, konnarnir, mundu draga sig í hlé. Það er greinilegt að Valmundur hefur orðið fyrir því óláni að hafa smitast af hótunarvírus sjávarútvegsráðherra og er næsta víst að hann sé búinn að vera.
En á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns hefir í mörgu verið að snúast um helgina. Kolbeinn hefir til dæmis verið í stöðugu sambandi við sína snata í verkalýðshreyfingunni, tvo á Akureyri og einn á Akranesi og lagt á ráðin með þá öflugu stórsóknarfórn, sem fullkomnaðist hjá ríkissáttasemjara þegar Konráð Þorsteinn Már Vilhelmsson Alferðsson skirfaði upp á fórnina í viðurvist fjölmiðla. Ekki var erillinn minn hjá frú Ingveldi, sem þurfti að hugga Brynjar Vondulykt og Óla Apakött hvað eftir annað því þeirra sorg er stór, sem helgast af því að Indriði Handreður stóð eiginkonu sína, Máríu Borgargagn, að verki með þeim félögum. Skipti aungvum togum, að helvítis Handreðurinn lagði af tómri fólsku á þá höndur, kviknakta og ósjáfbjarga. Verst þykir þeim, að Borgargagnir tók af fullum þunga þátt í ódæðisverkinu gegn þeim með ruddalegum kjaftshöggum og spörkum. Hún sveik þá sem sé þegar eigimaðurinn birtist, snörist gegn þeim af lítilli ást en þeim mun meiri illkvittni og mannvonsku.
Held að menn kunni að meta þetta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 21
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 1493
- Frá upphafi: 1542363
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 1315
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007