Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2018

Ekki brugðust Íslendingar fremur en fyrri daginn

images.jpgÍslendingar brugðust ekki fremur en fyrri daginn þegar að því kom að velja einhverja lagleysu fyrir Evróvísíjón. Eins og ekkert væri valdi okkar fólk langlélegasta lagið sem var í boði og þar með er orðið víst að mikið verður hlegið út um alla Evrópu að smekkleysi Íslendinga, afdala- og akáraskapar þeirra þegar kemur að tónlist, þótt ekki sé um merkilegri tónlist að ræða en venjulegt Evróvísíjóngaul.

Úti í Þýskalandi er mikill hópur Evróvísíjónunnenda, sem fylgdist grannt með keppninni í Íslandi. Eins og við manninn mælt sprakk þessi stóri söfnuður úr hlátri þegar tilkynnt var um framlag Íslands, aldrei höfðu menn þar á bæ heyrt aðra eins lagleysu framreidda með jafn hjákátlegum óhljóðum og graðvargastappi. Og Þýskurunum bar einróma saman um að önnur eins reginfífl og Íslendingar væru ekki til á norðurhveli jarðar.

Úr því sem komið er verða Íslendingar víst að neyðast til að kaupa einhverja gargara til að flytja hneykslið á sviði í Portúgal fyrir framan gjörvalla Evrópu eins og hún leggur sig. Og þá verður nú fyrst hlegið að Íslendingum svo um munar. Öll álfan mun bókstaflega ljóma af hæðni og dáraskap í garð okkar Íslendinga, þessarar gömlu, æruprýddu bókmenntaþjóðar sem samdi Íslendingasögurnar, Sturlungu og Snorraeddu, en getur í dag ekki samið annað en hornskakka hrákakviðlinga, sem felstum verður íllt af að hlusta á. 


mbl.is Ari verður fulltrúi Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjár skáldmæltar konur orktu brag

launmorðSo þeir skjóttu bara á Tromp forseta í dag, en hittu ekki. Það eru ekki allir jafn hittnir á skotvopn, skal ég segja ukkur. En Tromp var í Flórídu í dag og því erfitt að hæfa hann frá Washington (Vossíngtonn). Skothvellirnir heyrðust hinsvegar út um allt, meira að segja til Íslands; næmir menn í landsmálafélaginu Verði, eða hvurn fjárann það heitir annars, námu hvellina í hlustum sínu og fóru af hjörunum, þeir héldu sem sé að heilaþveginn kommúnist frá Norðurkóreyju hefði skjótt á Tromp og fellt hann.

Nú, það fór ekki hjá því að mikill viðbúnaður væri uppi hjá landsmálafélaginu, gamlir ráðherrar drógu haglarana undan rúmunum og dustuðu af þeim rykið og reyndu þá á máfunum fram í Örfirisey og kaldasti ex-ráðherrann skaut æðikollu til bana af fjögurra meta færi og sú fór nú heldur en ekki í hakk. Hún varð satt að segja eitt allsherjar ojbjakk.

Þegar fréttist af skothríðinni á Hvíta húsið og ætluð var Tromp forseta, settust þrjár skáldmæltar konur og orktu brag um atvikið upp úr öðrum brag, gömlum og vinsælum, sem hljóðar svo í allra heilagra nafni:

Fjallaskauðaforinginn 
fantur nauðagrófur.
Telst nú dauður Trumpurinn
trylltur sauðaþjófur.



mbl.is Skot­um hleypt af við Hvíta húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í loks ræðu sinnar rak hún upp org, eða baul.

drunk14.jpgSú held ég sé nú dómbær á það hvort einhver hafi villst af leið eða ekki. Trekk í trekk sat Jóhanna Sigurðardóttir sjálf eins og gljámjalandi búri í ríkisstjórnum með Sjálfstæðisflokknum, meira að segja með Framsókn líka þegar henni tókst hvað best upp. Svo er það hinn versti misskilningur að Samfylkingin hafi einhvera spjót í vopnabúri sínu til að ota að öðrum flokkum; einu vopnin sem þessi óhrjálega flokksnefna hefur yfir að ráða, fyrir utan svik, lygar og sjúklega auðvaldsþjónustu, eru bjúgsverð úr linara efni en brauðdeig íblandað krataeðli, en með slíkum tólum er ekki einusinni hægt að vinna á rykmýi.

Og nú er Jóhanna kerling farin að minna um margt á sjálfa gömlu Framsóknarmaddömuna. Þegar Logi Vindbelgur heldur samfylkingarskrall með fáeinum krataskjátum, fársjúkum af illvígu krataeðli, skríður Jóhanna upp úr kör sinni, alveg eins og Framsóknarmaddaman gerir þegar hún fer að fá sér neðan í því, klöngrast stíf og stirð og þver upp í ræðustól, kastar Loga Vindbelg eins og skítalepp aftur fyrir sig, og fer að reka upp hryglur, framan í skjálfandi fundarmenn, sem snúast fljótlega upp í bölbænir og almennt leiðindafjas. Í lok ræðu sinnar, ef ræðu skal kalla, rak Jóhanna Kratamaddama upp ægilegt org, eða baul, svo kratakindurnar í salnum ultu út af og lágu dágóða stund spriklandi í gólfinu sem ein skítseiði.

Og fyrst Jóhanna Kratamaddama var svo seinheppin að gera spillingu Sjálfstæðisflokks og Framsóknarmaddömunnar að umtalsefni, þá skal á það minnt, að fyrir nokkrum árum gerðist títtnefnd Jóhanna Sigurðardóttir svo gerspillt og rótnöguð, að hún endurreisti Gamla Ísland á rústum Hrunsins í samfélagi við alræmdan pörupilt og svikahrapp, Steingrím nokkurn Sigfússon, og svo náttúrlega alla helstu málsmetandi kapítalista Íslands í Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki, sem og alþjóðleg glæpafélög á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðin og önnur slík ómissandi arðránsþing. Þó er bót í máli, að eftir að krataskrallinu lauk er Logi Vindbelgur farinn að ganga að jafnaði í brjóstahaldara af hinni fræknu Jóhönnu úr íhaldsríkisstjórnunum.


mbl.is Jóhanna: VG villtist tímabundið af leið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Götustelpa frá Pítötum veitist með óþrifa munnsöfnuði að saklausum pilti

drottEinhverju sinni sagði mér stórfróður maður, minnugur, grandvar og sannsögull, að það væri hérumbil grundvallarmunur á að taka í forhúðina en tána; enn meiri munur væri samt á að taka tána í forhúðina, en mestur munur væri þó, og um leið praktískast, væri að brúka forhúðarstegginn til að bera á stórutána þá eymsli og gröftur hrjá nöglina og hið viðkvæma svæði undir henni.

Auðvitað þekkir Binni litli þetta allt og gat því trútt um talað í ræðipúlti Alþingis. Hitt er aftur verra fyrir þann sómakæra og mæta mann, að þurfa að eiga í stórrifrildi, sannkallaði munnhöggorustu, við götustelpu frá Pírötum í Bítinu. Götustelpa þessi er alræmd fyrir kjafthátt og kjafbrúk, skítkast og skítmak í garð sæmilegra borgara. Í bítinu réðist hún eins og versta hæna að Binna, goggaði í hann og hristi framan í hann óhreinindum, og hafði uppi svigurmæli um fjarverandi fólk svo Binna rak í rogastans, enda er hann öðrum mönnum fremur vandur að virðingu sinni, hefi ég frí Ingveldi fyrir því, en hún veit öðrum betur hvað hún syngur.

Og Binna litla varð svo um svarraganginn í Píratahafgamminum, að hann gekk um kvöldi í söfnuð Sjöundadags aðventista til að leita sér æðri sáluhjálpar, því satt að segja var maðurinn yfirbugaður eftir hinar hastarlegu traktéringar sem götuskjátan Píratanna bauð honum upp á. Ef yfirvöld gera ekkart með þá uppákomu, sem fólk varð vitni að í Bítinu, er illa komið fyrir Íslendingur. Með réttu lagi ætti götustelpan að vera gæsluvarðhald og einangru uppi á Hólmsheiði og sæta fmmtu fráðu yfirheyrslu eins og verstu glæpamenn þjóðarinnar. 


mbl.is Munur á að taka forhúðina eða tána?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annarlegur og öðruvísi veruleiki eða jafnlýgin og Steingrímur, Bjarni og Sigmundur

kol25Annaðvort er ,,veruleikinn" sem Katrín Jakobsdóttir býr eitthvað annarlegur og allt öðruvísi en veruleiki okkar hinnar eða hún einfaldlega jafnlýgin og Steingrímur eigandi hennar, Bjarni Ben og Sigmundur Dávíð. Katrín segir nefnilega eins og ekkert sé sjálfsagðara (og þá væntanlega sérstaklega í þágu sannleikans) að það sé ,,háttur innan flokksins að tala beins út." Sannleikurinn er hinsvegar sá, að þeir sem voga sér að tala beint út innan VG hafa ekki þurft að kemba hærurnar á þeim bæ, því þeir hafa verið hraktir jöfnum hönum úr flokknum, því Flokkseigendurnir vilja ekki óróa í sínum flokki. Og Flokkseigendur VG, með Katrínu sem þjónustupíu, eru ekki smeykir við að reka flokksmenn sína í bakið með ryðbreddum sínum. Það er sem sagt argasta haugalýgi í Katrínu að hatturinn innan VG sé að tala beint út á flokksvettvangi.

Ögmundur Jónasson, Jón Bjarnason, Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, allt fyrrverand þingmenn og ráðherrar VG voru öll sem eitt hrakin með einelti, ruddaskap og svínsnáttúru úr VG. Minni spámenn eins og Þorleifur Gunnlaugsson, Óli kommi, Þorvaldur Þorvaldsson, Vésteinn Valgarðsson og Sólveig Annan Jónsdóttir flæmdust á brott, enda búið að gera þeim skiljanlegt, svo ekki var um villst, að þau væru Steingrími, Álfheiði og Svavarsfjölskyldunni síður en svo þóknanleg. Þetta fólk, sem nefnt er hér að ofan, er auðvitað aðeins brot af öllum þeim fjölda sem hrakist hafa á brott undan loddaraher Flokkseigenda.

Mér var svo sem löngu ljóst, að hugur Flokkseigenda stóð fyrst og fremst til að komast í samsteypustjórn með Sjálfstæðisflokknum, og ekki væri verra ef gamla Framsóknarmaddaman, sem á ættir að rekja til Gunnarsstaða í Þistilfirði, fengi að fljóta með. Það má því með sanni segja að Flokkseigendafélag VG sé loks komið heim og muni umfram flest annað hafa í forgangi að treysta fjölskylduböndin við Engeyjarættina og Skagfirska efnahagssvæðið. Hafi einhver, eða einhverjir, átt sósíalíska drauma, jafnvel róttæka, um VG þá er víst óhætt að fullyrða að allir slíkir draumar eru út og best að gleyma þeim fyrir fullt og allt. 


mbl.is Ekkert rætt saman eftir stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband