Bloggfærslur mánaðarins, maí 2018
31.5.2018 | 19:42
Fyrirgefning syndanna
Það gekk eitt og annað á þegar Pétur Þríhross fór ásamt fáeinum smáköllum upp á fjall til að grafa þau Satan og Mósu upp til að koma þeim til byggða og í vígða mold. Satan og Mósa vóru á sinni tíð alþekkt illþýði, sem samtíðarmenn þeira gáfust loks upp á og embættuðu við aðstoð axar, höggstokks og böðuls. Svo verður það, einum tvohundruð árum síðar, að Satan og Mósa koma fram, afturgengin, á miðilsfundum að heimili Péturs Pálssonar framkvæmdastjóra.
Fáum sögum fer af ferð Péturs og hans manna og greftri þeirra á fjöllum, nema hvað nóg brennivín var meðferðis. Undir morgun, daginn eftir, kom Pétur einn saman til byggða með böggul í fanginu, en aðstoðarmenn hans skiluðu sér síðar, sumir handan fjalla og rammvilltir. En Satan og Mósa fengu sína útför í fallegri kistu með sálmasöng og bænagjörð.
Nú stendur til að gera Rósu að bæjarstjóra í Hafnarfirði og væntanlega verður Satan skammt undan. Í staðin fyrir að Pétur Þríhross fór á fjall vóru íbúar Hafnarfjarðar látnir kjósa Rósu og Satan karlinn taldi atkvæðin og glotti við tönn. Því má segja með sanni að allt er það eins liðið hans Sveins ...
Rósa næsti bæjarstjóri í Hafnarfirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2018 | 22:53
Það er engum verkum að skipta
Það er þá eins gott að finnist einhver verk til að skipta á milli sín. Þar að auki eru í hópnum liðleskjur sem þýðingarlaust er að setja nokkuð upp í höndurnar á. Í síðasta merihluta vórtu til að mynda nokrrar herlegar liðleskjur, hvur og ein með marga úthverfa og öfuga þumalputta á hvorri hendi og frá þeim lak ýlda, sem bar verklagni þeirra ófagurt vitni. Enda fjaraði sá meirihluti út frá grútskítugri miðborg og einhverju óskiljanlegu rugli.
Vissulega er Samfylkingin, VG, Viðreisn og Píratar ágætur hægrisinnaður grátkór, þó falskur sé og óáheyrilegur. Og þessi ósköp eru fullgóður meirihluti fyrir Reykvíkinga, þeir eiga hvort eð er ekki neitt skárra í pokahorninu. En þetta lið skiptir aldrei neinum verkum, því í fyrsta lagi eru engin verk, sem hægt er að kalla því nafni, í boð; í öðru lagi kann þetta lið ekki vinna nein verk, eru liðleskjur; í þriðja lagi væri nær að borgarbúar verkuðu þetta stjórnmáladót sitt upp úr sterkum lút úr vítíssóda og stíflueyði.
Til að fullkomna fáránleikann og línubrenglunina í borgarstjórn ættu Samfylkingin, VG, Viðreisn, eða hvað þetta heitir og Píratar að bjóða Vigdísi Hauks borgarstjórastólinn. Það mundi setja vissan svip á meirihlutann og borgarstjórnina og gera að verkum að setja mundi óstöðvandi hlátur að útlendingum sem kæmust að því hvað væri á seyði. En verkunum skulum við gleyma, því þau verða engin, því ekki er hægt að telja illar athafnir og heimskupör til raunverulegra verka á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur.
Eiga eftir að ræða verkaskiptingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.5.2018 | 21:49
Yfirgangur og illmennska norðanvéra
Þeir eru alltaf samir við sig þeir þarna fyrir norðan land. Þeir hafa getið sér frægð fyrir að skjóta niður þúfutittlinga og máríuerlur og hælt sér af. Nú eru þessir karlar uppvísir af því að skjóta kjóa! Ja, þvílíkir andskotans þorparar. Svo bíta þessir djöflar hausinn af skömminni og senda okkur Steingrím J. hingað suður. Það verður að fara að taka á Norðlendingum svo um munar, og grípa til vopna ef þess þarf með.
Og við skulum muna að Norðlendingar ráku Guðmund byskubb góða burt af Hólum í Hjaltadal og út í Grímsey. Þeir myrtu Nathan Kétílsson og kveiktu í honum og það var ekki tilviljun að síðasta opinber aftaka með böðli og tilheyrandi á Íslandi var gjör á Norðurlandi. Það má segja að heldur hafi skörin enn færst upp í bekkinn með þessum kaldrifjuðu kjóamorðum þannig að ekki verður við unaða lengur.
Nú er ekki úr vegi að rifja upp gamalt ránmorð sem Norðlendingur, að sjálfsögðu, framdi á sunnlenkum bónda skömmu eftir fyrst göngur. Ránsfengurinn sem bölvaður norðanvérinn hafði hug á var ein flaska brennivíns, en þeir fyrir norðan eru ósköp drykkfelldir og illir við vín. Sem betur fer var ekki brennivín á flöskunni þegar til kom heldur terpertína, sem Norðlendingurinn drakk eins og vatn og steindrapst af. Það var víst sjón að sjá þegar óbermið fékk innantökurnar og hausinn sprakk hérumbil af honum og hann gerði ofan á allt annað sona líka helvíti densilega í buxurnar áður enn hann tók síðustu andvörpin. Og Sunnlendingar grófu þennan illa fjanda utangarðs og vöndu hunda sína á að míga og skíta á leiðið.
Kjóar skotnir í algeru tilgangsleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.5.2018 | 15:59
Fimbulfambar sem vanræktur óviti
Aftur er hún byrjuð að fimbulfamba eins og hvur annar vanræktur óviti. Auðvitað hafa fjölmiðlamenn dálítið gaman af sona númerum, sem þvæla ómengaða vitleysu út í eitt eins og um naglföst vísindi sé að ræða. Á sínum tíma báðum við til Guðs um að hann hlutaðist til um að torðið væri tusku upp í aumingja manneskjuna og hlífa þannig almennigi við að sitja undir bullinu. Og við héldum að Guð hefi bænheyrt okkur. Nú kemur í ljós, að Guð bænheyrði okkur ekki, hann refsar okkur með því að senda Vigdísi aftur á vettvang, tvíelleftri, spúandi ruglumbulli yfir okkur eins og kæstum hænsnaskít. Megi Drottinn taka í tamana áður en eitthvað verra hlýst af.
Og þegar þetta klístraða framsóknarfljóð, sem gamla Framsóknarmaddaman er búin að fá leið á, fer að úttala sig um valdaleysi Sósíalistaflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur fer maður ósjálfrátt að hugsa um, að illa sé nú aflögð strætisvagnaleiðin Kleppur-hraðferð. Nú so, so fer Vigdís með allt sitt andlega atgerfi í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum, Viðreksrinum og Fokki Fólsins og verður ógurlega valdamikil og allir fá að dást að því hvað hún er klár og hress. Á hátíðis dögum fer hún á tal við almúgann á strætinu og gefur honum í nefið og undir vörina úr 110 ára leyniboxinu.
Best gæti ég trúað að Eyþór geri Vigdísi að borgarstjóra og leyfi henni að kveikja á jólatrénu á Austurvelli og láta sitt skæra ljós skína við og við í fjölmiðlum. Ég er viss um að kjósendur í Reykjavík mundu verða fjarska glaðir ef hlutirnir féllu í það horf. Meira þarf ekki til að gleðja kjósendur, skal ég segja þér. Á bak við tjöldin mundu svo nagdýr auðvaldsins naga innviði samfélagsins, naga og naga og naga. Og þau munu með blessun Eyþórs, Vigdísar, Dags og Katrínar naga þangað til samfélagið verður komið aftur á átjándu öld.
Gagnrýnir fréttaflutning RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.5.2018 | 23:26
Og öll eru þau undarlega í ætt við ...
Ég held að Móra Svört og Vigdís Hauks væru helvíti góðar saman i meirihluta með Eyþóri. Þau eru það sterk að þeim nægir að vera þrjú saman til að mynda geysiöflugan meirihluta, en hin 20 sem kosin vóru í bæjarstjórnina eru gauð með augun rauð og líflegri þau væru ef þau væru dauð. Jájá. Náttúrlega verður Vigdís borgarstjórinn, hún selur sig ekki fyrir minna og lætur Eyþór þjóna sér til sængur.
Þá man ég eftir konunni sem baulið heyrðist innan í. Hún var ættuð af Seltjarnarnesi í föðurstift en móðurfólkið kom ú Landbrotinu. Hvað það var sem baulaði inni í konugarminum vissi aunginn og þegar hún deyði þorðu læknanir ekki að kryfja líkið. Og þegar hún var jarðsunginn var baulað inni í kistunni í kapp við kórinn, sem hamaðist við að syngja útfararsálmana á methraða til að flýta þessara óhuggulegu kveðjustund.
Skonsukarlinn var mikill matreiðslumaður hér áður og fyrr í íslenska flotanum. Stundum fór eitthvað að baula innan í honum. Þetta var eins og baul bráðungri kvígu og Skonsukarlinn verðraðist alltaf allur upp þegar þessi ósköp létu á sér kræla. Sonur Skonsukarlsins, óopinber, er Brynjar Vondalykt, sem sumir vilja fremur flokka sem skepnu en til manna. Og allt er þetta fólk, konan, sem ættuð var af Seltjarnarnesi og úr Landbrotinu, Skonsukarlinn og Brynjar launsonur hans Vondalykt, mjög undarlega í ætt við Vigdísi, Móru og Eyþór, sem eru alveg við það að fara að stjórna Reykjavík.
Ýmislegt sameini Viðreisn og Pírata | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2018 | 21:58
Gleðigjafinn Goggológó
Hið stigvaxandi gáfnaljós, Vigdís Hauksdóttir, býr sig nú af alefli undir að taka við starfi borgarstjóra í Reykjavík. Þann dag sem hún tekur við borgarstjórn mun hún hefja dauðaleita að moskunni, sem hún heldur að búið sé að reisa í Reykjavík. Þegar hún gefst upp við að leita að moskunni hyggst hún reka alla múslima burt úr Reykjavík, en múslimarnir eru þrjóskir og neita að fara. Þegar kemur upp úr dúrnum að lög meina hinum aburðagáfaða borgarstjóra reka múslimana, stökkur hún á vegg og lekur niður sem ein gelklessa. Verða þar með úr sögunni borgarstjóraórar hins geysifjölgáfaða foringja Vigsísar Hauksdóttur.
Við munum öll leit Vigdísar að leyniboxinu, sem hún laug að þjóðinni að eihversstaðar væri geymt. Jújú, hún hélt glæfralega fyrirlestra um leyniboxið og glamraði um það í Fjárlaganefnd og lét að liggja að þar væru geymdir hroðalegir höfuðglæpir gegn Íslandi, margföld föðurlandssvik og landráð. En svo gerist það, að Vigdís Hauksdóttir steinhætti að röfla um leyniboxið og fjasið í henni um það fjaraði út og skyndilega var eins og ekkert hefði gerst og Vigdís sjálf varð að einhverskonar leyniboxi, hvers óþefur hefir verið rómaður af unnendum Tortúluskjala.
Í Miðflokki Tortúlumanna er Vigdís hrókur alls fagnaðar, brandaragosinn sem allir hlægja að. Hún er meira að segja, af middflokksmönnum, talin skemmtilegri en sjálfur Sigmundur Dávíð og eru þeir þó ekki skemmtanavandir menn. Hún hefir stungið höfðinu í steininn og pissað í sandinn, brotið gandinn og gaggað eins og Fjandinn, en allt hefir komið fyrir ekki: alltaf þykir middflokkdmönnum og poppúlistum Vigdís upp úr þeirra hópi.
Bað fólk um að vera viðbúið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.5.2018 | 20:11
Enn eitt kjafthöggið skekur skrifstofusjakalasamfélagið á ASÍ
Enn þrengir að skrifstofusjakölum ASÍ og í kveld munu þeir fá greitt kjaftshögg að norðan. og á haustdögum er viðbúið að hringurinn lokist með einu geðugu knock out og sjakalarnir verði bornir út af ársfundi ASÍ í aungviti og þeim ekki hleypt inn aftur þó þeir rakni úr rotinu. Fyrr vóru Skagamenn og verslunarmenn búir að kjaftshögga sjakalasveitina ansi rösklega og þá einkum yfirskrifstofusjakalann, sem orðinn er ærið óhrjálegur orðinn eftir barsmíðarnar; einhver sagði að veiðihárin væru meira að segja fokin af honum.
Þið getið rétt ímyndað ukkur, kæru vinir, hverig litlu sjakölunum líður undir sívaxandi ofbeldi verkaskrílsins. Á Akureyri gnötrar litli framsóknarstúfurinn hjá Einingu, hann er skjakali við hirð Gylfa og stéttasamvinnusjakalanna, og bíður örlaga sinna í fangi gömlu Framsóknarmaddömunnar, sem lengi hefir kúrt við dauðans dyr. Í Keflavík veltir einhver aumasti kratasjakalinn sér um hrygg á svikaskeri Flóabandalagsins, sem væntanlega heyrir blessunarlega sögunni til með hinni nýju stjórn Eflingar. Og þannig munu þeir í sjakalasveitini væntanlega hverfa af vettvangi með skottið milli lappanna, flestir meðvitundarlitlir og undursljóir.
Nú þýðir ekki lengur fyrir skrifstofusjakalana á ASÍ kontórnum að fitja upp á trýnin, og þeim mun verða ljóst að enga hjálp er að fá hjá vinum þeirra í samtökum atvinnurekenda og Sjálfstæðisflokknum, því verkaskríllinn ber enga virðingu lengur fyrir þeim góðu auðvaldsherrum. Af þessu getur hver maður séð að ekki er tekið út með sældinni fyrir einn yfirskrifstofusjakala og undirskrifstofusjakala hans að skælast um með vantraust frá Framsýn, VR og Skagamönnum á herðunum. Og þó að formlegt vantraust hafi ekki borist frá Eflingu, þá er jafn víst að ný stjórn þar á bæ séu fremur litlir aðdáendur skrifstofusjakalanna á ASÍ kontórnum.
Uppsöfnuð óánægja með störf Gylfa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2018 | 18:57
Gripir af sameiginlegu kyni sauða og nauta
Hvað er litli steggurinn hann Bjarni Ben að fara með því að spurnigar þingmanna til ráðherra séu komnar út í tóma þvælu? Er Bjarni að gefa í skyn að þingmennirnir ættu að halda kjafti og halda áfram að bora í nefið á sér, eða finnst honum spurningar þingmannanna heimskulegar og þingmennirnir sjálfir enn heimskulegri? Jú, það kann að vera ráð að láta stjórnarandstöðuþingmenn fara í greindarpróf, einkum og sérílagi af því rökstuddur grunur leikur á að greindarvístala þessara sprella er talin samsvara meðalgreindarvísitölu sauðnauta á Grænlandjökli.
En þó ofangreindar spurningar séu fátæklegar á vitrænan mælikvarða og fyrirspyrjendur afleitir, þá er þó hryllilegast af þessu öllu, að forsætisráðherra er svo illa af Guði gjörr að geta ekki svarað svo mikið sem broti úr einni einfeldningslegri spurningu illa gefins stjórnarandstöðuþingmanns, og ekki er ástandið milli eyrna fjármálaráðherra neitt skárra; megi algóð öfl þessa heims og annars gefa að þessu ástandi megi linna og við fáum vitrara fólk til starfa á Alþingi og ríxtjórn. Já.
En fyrst minnst hefir verið á tóma þvælu, þá er varla undankomu auðið frá þerri leiðinlegu hugsun, að útdeilingar forsætis- og fjármálaráðuneyta séu komanar út í tóma þvælu og þessi embætti séu skipuð annarsvegar tómum jakkafötum út fataskáp hinnar blindu, ríku yfirstéttar, og hinsvegar galtómri dragt úr fataskáp hinnar sjálfumglöðu, sjálfhverfu og skaðmenntuðu efrimillistéttarelítu. Er rétt að svona lið fari með æðstu völd lýðvelsisins, þó svo það hafi aungva burði til þess eða móralska getu? Þessu verður þjóðin að svara eins og vitibornir menn en ekki eins og gripirnir af nauta- og sauðakyni uppi á hájöklum Grænlands.
Komið út í tóma þvælu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.5.2018 | 21:17
Djöfulsins skömm er nú að þessu
Hún Dóra Björt, sem gárungarnir kalla sér til hægari verka Móru Svört, segist ekki vilja vinna með Sjálfstæðisflokknum. Maður heyrir sem betur fer skjaldan sona helvískan dónaskap á síðari árum; þetta er bæði forhert, sorglegt og klámfengið, að koma sona fram við Sjálfstæðisflokkinn. Þó er Móra Svört og Píratarnir miklir frjálshyggjubógar fyrir sína parta, ekki minni frjálshyggjuséní en Davíð Oddsson og Hanes Hólmsteinn, og ættu því að gera alveg sérlega unaðslegar gælur við Sjálfstæðisflokkinn og innviði hans.
Jæja, en þetta er bara sona, og Móra Svört verður tekin gegn fyrir dónaskapinn á skrifstofu Pírata í fyrramálið; hún má skohh þakka forsjóninni og öllum góðum vættum ef hinir Píratarnir sækja ekki Brýgýttu gömlu til að flengja hana stórhýðingu fyrir hina dæmalausu framkomu við Sjálfstæðisflokkinn. Samt kom Eyðþór Arnalds, það dyggðum prýdda englaljós, Móru Svört til að hlægja út að eyrum, sem eru heldur í stærra lagi, með því að kitla hana dulítið undir hökuna og segja henn valinn ljósastaurabrandara. Jamm, þeim kemur vel saman Móru Svört og honum Eyþóri. Mætti segja mér að þau verði orðin hjón fyrir næstu áramót.
Svo var það í morgun, akkúrat í mitt morgunsárið, þegar einn af þessum nýkjörnu borgarfulltrúum í Reykjavík var að staulast heim í heldur sona krítísku ástandi, að hann slangraði fram á erlendann ferðamann sem hafði gert sér hægt um vik og var að ganga örna sinna við heimreiðina að húsi hins nýkjörna. Og sá nýkjörni hafði og heldur aungvar vöblur á og spyrnti ferðamanninum um koll svo hann veltist upp úr hroðanum sem hann hafði ætlað að skilja eftir við heimreiðina. Ekki tók betra við þegar sá nýkjörni kom inn á heimili sitt, því þar kom hann að maka sínum í hjónarúminu og hafði makinn haft Brynjar Vondulykt með sér í rúmið. Og af því Vondalyktin var einmitt á þessum stað þegar nýkjörinn borgarfulltrúann bar að garði brutust úr hatrömm átök, sem eftir nokkra stund bárust úr húsi og út að heimreiðinni, þar sem annar erlendur ferðamaður hafði tekið sér stöðu þar sem hinn fyrri hafði skilið verksummerki sín eftir. Og það var einmitt nákvæmlega á þessum stað sem Brynjari Vondulykt tókst að koma höggi í þann nýkjörna, sem missti við það endanlega fótavist sína og hlammaðist á trýnið niður í afurðirnar eftir ferðamanninn, sem stóð undrandi hjá meðan hann gyrti sig í brók. Að þessu er fullkomin skömm, fullkomin skömm, ekki minni en hjá Móru Svörtu gagnvart Sjálfstæðisflokknum, en högg Vondulyktarinnar var snilld.
Til í allt nema Sjálfstæðisflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2018 | 14:44
Og Vondalyktin var þeim til þægðar á allan hátt
Frú Sæland er afar merk kona og stjórnmálaskörungur, enda nautgripur að viti. Stuðningur við hana og hennar flokk er auk þess enn eitt dæmið grunnhyggni og reginheimsku kjósenda og ber þeim ófagurt vitni og illa lyktandi. Og þegar frú Sæland tekur til við að tala tungum um félagshyggju fer félagshyggjan sjálf að iða, hvar hún liggur í svaðinu, svívirt og smáð af allrahanda skítapakki, sem lagt hefir sér nafn hennar í munn fyrir kosningar án nokkurrar meiningar eða fyirætlana um efndir.
Gaspur frú Sæland og Ólafs Ísleifssonar um þá sem ,,standa svo höllum fæti" í samfélaginu er náttúrlega ofboðslega sætt og minnir á hræsnina þegar hún bergður sér í útreiðartúr á hræsnistruntunni og ætlast til að almenningur dáist að sér. Og í morgun heyrði frú Sæland fyrst borgarlínu nefnda og var sagt að leggja það orð á minnið og nota það þegar hún væri komin í beina útsendingu sjónvarpsins.
En það er svipur með frú Sæland, Katrínu Jakkó og Eyþóri mannkynsfrelsara, fyrir mörgum eru þau líka nútíma útgáfa af hinum þríeina guðdómi Biflíunnar. Freiri eru tilkallaðir að leggja sitt góss af mörkum á vogarskál blekkingarinnar til að halda lýðnum illa upplýstum og heimskum við jötu kapítalistanna: Dagur, hr. L. Vindbelgur, erkifíflið Vigdís, Hrafnabjargabóndinn, Ásmundur Einar, svo fáein endemi séu nefnd. Allt er þetta samt fólk sem frú Ingveldur hefir velþóknun á og Kolbeinn eiginmaður hennar, Máría Borgargagn og Brynjar Vondalykt gera sér mjög dælt við í helgarsamkomum að heimili frú Ingveldar og Kolbeins. Vondalyktin hefir meira að segja látið hafa eftir sér, að hann sé þessu fólki til þægðar á allan hátt í nefndum helgarsamkvæmum.
Hættið að röfla um borgarlínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
- Spøgelset í höfn á Jótlandi
- Þétt dagskrá forseta á morgun - og fullveldismessa síra Baldv...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.12.): 4
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 1476
- Frá upphafi: 1542346
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 1299
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007