Bloggfærslur mánaðarins, október 2020
19.10.2020 | 17:47
Heimsfrægur klausturmunkur messaði yfir þingheimi og skreið síðan á brott
Það var þá naumast predikunin sem klausturmunkurinn, bróðir Bergþór, drafaði yfir saklausan þingheim í dag; við hefðum nú haldið, að þessum veslings krossbera væri nær að geyma sér allan þvætting inni í þingsal Alþingis, en hafa hann heldur yfir við tíðasöng á Klaustrinu. Og hvurnig bar svo ,,bróðir Beggó" sig að þegar hann yfirgaf ræðupúlt Alþings? Það var víst sérdeilis sjón að sjá, því blessaður drengurinn gekk ekki til sætis síns eins og aðrir menn, hann skreið. Stuttu síðar skreið hann sem ein heilsulaus hundtík inn á alþingisklósett og hefir vart sést eftir það.
Ekki var ,,bróðir Beggó" mikið að velta fyrir sér borgaralegum réttindum, mannréttindum og mannasiðum þegar hann, ásamt félögum sínum í klausturlifnaði og messuvíni, voru að baktala vinnufélaga sína á Alþingi með fáheyrðum munnsöfnuði og fábjánahætti. Að réttu lagi hefðu mannréttindi á Íslandi átt að vera með þeim hætti, þegar Bára tók upp messulæti Beggó og félaga í Klaustrinu, að þeim hefði tafarlaust verið vísað af þingi og gert að greiða, hvurjum um sig, sem svarar einu þingmannskaupi með öllum sporslum og fíniríi í ríkissjóð fyrir kjaftháttinn, klámið og sóðaskapinn.Í þessum orðum töluðum skreið Beggó klausturmunkur út af salerninu með salernisrúllu dinglandi eins og hala á eftir sér. Svona til fara ætlar kauði að krjúpa með bræðrum sínum og þessari einu systur frammi fyrir guðum Miðjunga, þeim Mammóni, Bacchusi og frjósemisguðinu Frey, í leiftrandi tilbeiðslu og meira messuvíni. Já, þeir eru svo margir lokkarnir sem skrokkarnir, og gamla Framsóknarmaddaman gengin til náða.
![]() |
Segir ríkisstjórnina skýla sér bak við þríeykið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ánægjulegt er til þess að vita, að Stjáni Samherji Júl skuli af sínu alkunna frjálslyndi hafa ráðið náfrænda Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra og framsóknarmanns, Kolbein Árnason til skrifstofustjórastarfs í ráðuneyti atvinnumála. Telpurnar tvær, sem Stjáni réði líka, ná alveg máli í jobbin og öll gátu þau skilað fullgildum flokksskírteinum inn til Stjána áður en ráðning fór fram.
Þó verður að segjast alveg eins og er, að ekki kæmi á óvart þókt upp kæmu meinbugir í sambandi við flokksskírteini Kolbeins frænda Kolbeins Kolbeinssonar; það hefir nefnilega alltaf verið svínsk framsóknarmaddömunáttúra í því fólki. Og náttúra gömlu Framsóknarmaddömunnar er nú sona og sona, eins og alþjóð veit. Vel má vera að frændinn, þ.e. Kolbeinn Árnason, blóti Maddömuna á laun, sé það sem kallað er flugumaður, en hann er með púngapróf í lögfræði, sem gerir þó ekki annað en að gjöra manninn ennþá tortryggilegri.
Á meðan þessu fer fram situr höfuð Kolbeinsættarinnar á dvalarheimili aldurhniginna borgara og hann ræður þar öllu og stjórnar með fáheyrðum ofstopa, ofstæki og hreini grimmd. Stafsfólk dvalarheimilisins er skelfingu lostið og margir hafa hætt og farið þess í stað að ganga til géðlækna og sálfræðinga, jafnvel presta og þerapista. Karlinn er framúrskarandi illskeyttur og hefir komið sér upp vopnabúri í herbergi sínu. Í því safni eru skotvopn af ýmsu tagi, allt upp í hálfsjálfvirka hríðskotabyssu, sem gamli maðurinn tekur í hönd sér þegar hann vill leggja áherslu á kröfur sínar; og handsprengjur á hann líka og eldvörpu, sem hann dúndraði af inn í eldhús dvalarheimilisins með þeim afleiðingum að yfirmatráðurinn, sem kallaður var ,,matreðurinn" og vikastúlkan brunnu upp til agna. Allir á elliheimilinu, íbúar jafnt sem starfsfólk, steinhéldu kjafti við yfirheyrslurnar út af þessu óhappi, af því þau voru örvingluð af hræðslu við gamla Kolbein, sem hafði þegar hér var komið sögu marghótað að drepa þau ef þau kjöftuðu frá.
![]() |
Ása, Áslaug og Kolbeinn nýir skrifstofustjórar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samkvæmt þessari frétt er ekki annað að sjá en að ríxlögreglustjóri sé dugleg við að slást við brjálaða stórglæpamenn, hlaupa undir þá og snúa þá niður. Það veitir þjóðinni auðvitað mikla öryggiskennd að eiga sér svo röskvan ríxlögreglustjóra og fyrir bragðið sefur þjóðin vært og stillt á nóttinni.
Sagt er að stórglæpamennirnir, sem ríxlögreglustjóri átti í höggi við, séu svo miklir stórglæpamenn, enda að norðan, að þeir hafi reynt sem þeir gátu að fljúga á ríxlögreglustjóra, sem á einu augabragði snöri þá niður sem fyrr segir. Áður höfðu stórglæpamennirnir verið í varðhaldi á Akureyri terrorísérað lögregluprjónana þar með svo góðum árangri að fimm liggja þeir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og þrír eru hafðir suðrá Kleppi í géðrofi. Af þessum lýsingum má sjá að fyrrnefndir stórglæpamenn eru aungin lömb við að leika.
Nú, svo fór ríxlöglegustjóri sjálf norður til að berjast við fantana og hafði með í för sinn bestmann, Hálfdán Varðstjóra, en það kom til af því hve verkefnið var stórt og áhættusamt. Þegar norður var komið slóst Hálfdán við stórglæpamennina og tókst um síðir og með miklu harðfylgi að koma djöflunum í járn. Að svo búnu dró hann óbótamennina úr húsi og velti þeim inn í lögreglubifreiðina, en ríxlögreglustjóri vappaði á eftir, rjóð og undirleit, og dálítið í fasi eins og fraukunni af Seltjarnarnesi er lýst í Ofvitanum.
![]() |
Sviptu ungan mann frelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2020 | 18:52
Hverjir eru ÞG verktakar í raun og veru?
Skammstöfunin ,,ÞG" merkir í þessu tilfelli Þorgerður Katrín, þannig að verktakafyrirtækið ljúfa heitir fullu nafni Þorgerðar Katrínar verktakar. Það er guðsþakkarvert að Alþingi hafi leitað í sinn hóp eftir verktaka í stað þess að fá einhvern þöngulhaus og klambrara til verksins. Þorgerður Katrín, sem gegnir líka nafninu Thorgerður Katrín, eða Thorgerður Kattharín, er bánghög kona og sýnast margir hamrar á lofti þá hún neglir.
Auðvitað gerum vér öll ráð fyrir að Þorn Gé ráði eitthvað af auðnuleysingjunum sem dingla innanhúss í Alþingishúsinu til að skafa og naglhreinsa mótatimbur og sendast fyrir verktakann eftir kaffi, brennivíni og cígarettum. Þá ætti að vera hægt að brúka veslingana til að handlanga og aðstoða við uppsteypu. Það var víst gjörð könnun á verkfærni alþingismanna og kom í ljós að færni þeirra var langt undir meðallagi og verksvit enn minna. Það lofar skohhh ekki góðu. Ha?
Í umræddri könnun komu líka mjök sorglegar staðreyndir upp á yfirborðið: Píratar eru með öllu ónothæfir hvárt heldur er við skeinisblaðanotkun, greindarprófun eða naglhreinsun og betra væri að, eins og stendur í skýrslunni, að reka niður fúinn girðingarstaur á vinnusvæði Alþingis en láta sér detta í hug að reyna að nota Miðflokkinn þar sem hann er óhæfur til allra verka annarra en að sitja að bænasöng og messuvínsdrykkju að Klaustrinu. Þó væru til staðar eintök meðal þingmanna hefðu gott af að vinna af sér spikið við heilnæm útistörf hjá verktakafyrirtæki ÞG.
![]() |
ÞG verktakar byggja nýtt hús við Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.10.2020 | 16:51
Athyglisverðar sagnir af kóngahóri
Ekki get ég að því gert að hafa lúmskt gaman af sona kóngahóri eins og hjá gamla kónginum í Belgíu. Sögu hefi ég heyrt af einum vorum dásamlegasta konungi Danmerkur og Íslands, sem sannverðugir menn uppástanda að hafi andast á hóruhúsi í Þjóðverjalandi. Karlinn átta að hafa verið að dunda sig við að drýgja hór með voðalegri vændisdrós, en fengið ógurlegt reiðarslag meðan á athöfnin stóð, og dáið. Það er sagt að lögregluþjónarnir þýsku, margeiðsvarnir um þagmælsku, hafi verið hlægjandi allan tíman sem þeir bjuggu um kóng í mellubælinu og báru hann út.
Annar kóngur, af ætt norrænna manna, kom stöku sinnum, hér fyrr á árum, með kvennafans með sér til Íslands og óð sá söfnuður beit austur á Hérað, þar sem skvett var úr klaufunum allt hvað af tók. Þegar sögurnar bárust þarna austan af Héraði fékk fólk þá mynd af kóngi þessum að hann væri óseðjandi griðungur og með gufustróka fram úr nösunum af einskærum losta. En nú er þessi ágæti kóngur útkulnaður; hann er að vísu ekki látinn en útkulnaður samt og ekkert víagra er svo sterkt að það megni að hefja hið útkulnaða stolt kóngs, sem var honum til frægðarauka á árum áður, til nýs lífs.
Þá er ógetið kóngs eins, sem í aprílmánuði í rigningartíð fannst dáin úti á víðavangi með buxur sínar á hælunum. Þessi uppákoma þókti skammarleg fyrir konungsfjölskylduna því staðreyndin með staðsetningu buxnanna á kóngi gaf til kynna að hann hefði verið að aðhafast eitthvað frámunalega háðuglegt þá kallið kom. Áratugum síðar gaf sig fram ótúttleg kventuska með tvær ljótar vörtur á nefinu og gjörði kröfur, því gamli kóngurinn sem fannst dauður á víðavangi með allt niðrum sig hefði verið faðir sinn og hún hefði komið undir á víðavangi rétt áður en kóngurinn fauk af hjörunum. Þessi uppákoma var jafnvel enn hryllilegri fyrir konungsfjölskylduna en þegar gamli kóngurinn dó. Ekki bætti úr skák að að þessi nýtilkomna, óásjálega kvinna, gerði kröfu til sjálfrar krúnunnar, því nú væri svo komið að hún væri elst barna gamla kóngsins og réttkjörin til að sitja í konungssessi með kórónu á höfði. Það er víst ekki vert að rekja þessa sorgarsögu lengra, en það eimir enn af henni í konungssölum Evrópu.
![]() |
Belgíukonungur hitti hálfsystur í fyrsta sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2020 | 14:08
Össur og Sögu-Pétur eru miklir bræður og það er litið upp til þeirra
Þau eru hvurju örðu lík, Össur, Pétur og ,,nýja stjórnarskráin", öll full með hortitti, vindhögg og uppskafningu. Það er því lítið undarlegt að karlarnir Össur og Pétur séu stórvinir, enda báðir áhugamenn um froðusnakk og það sem því fylgir. Trúlega eru þeir líka óaðskiljanlegir lagsmenn í sosialdemokratiuni svokölluðu, sem er, ef svo má segja, einn af sverari borðfótunum undir eldhúsborði kapítalismans a Vesturlöndum og auðvaldsþjóðskipulaginu. Með öðrum orðum eru þeir Össur og Pési fjarskalega miklir bræður í krataeðlinu og það er litið upp til þeirra í krataeðlissjúklingasamfélaginu.
Þó er einna skuggalegast þegar krataeðlismenn á borð við Össur og Sögu-Pétur fara að geipa um frjálslyndi. En þessháttar frjálslyndistal er bein ávísun á bullandi tækifærismennsku og undirferli. Þannig fara og að óheiðarlegir hundingstittir, sem eru að fara að hrinda í framkvæmd einhverjum svikum við alþýðuna. En Össur og Pétur hafa auðvitað aldrei verið alþýðumenn og hafa aungva trú á alþýðunni, nema þá aðeins, eins og aðrir auðvaldskipulagssinnar, í formi vinnudýra, að öðru leiti er alþýðan fyrir stórmennum eins og Össuri og Pétri. Og þess vegna tala þeir einlægt eins og engin alþýða sé til.
En þeir hafa gaman af þessu drengirnir og þeir finna sjálfumgleði sinni farveg í þessu kostulega nýstjórnarskrármáli þrátt fyrir að ,,nýjastjórnarskráin" þeirra sé klén, illa unnin og til skammar.
![]() |
Hrekkvísi eða elliglöp? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2020 | 18:11
Nú er hann dauður, eins og rotturnar sem þar bjuggu
Miðbærinn er steindauður, skítugur, fráhrindandi, eins og dauður róni í ræsinu, og svo er feikna vond lykt þar, ég held hreinlega bara manneskjulegur sauróþefur. Það kemur og fram í fréttinni að miðbærinn hafi drepist fyrir tíu elligar tólf árum síðan. Ef það er rétt þá hefir einhver ólánsmaður vakið hann upp og reist frá dauða. Sona helvískur miðbær deyr hvorki né andast, hann drepst, eins og rotturnar sem þar eiga heima.
Í eina tíð bjó ég sjálfur í námunda við miðbæinn. Þá lýsti Reykjavík af góðri menningu og menn, og þá ekki síður konur, gengu glöð og reif um Laugarveginn, Austurstræti, Austurvöll og allt inn á hádegisbarin á Borginni, sem bauð af sér sérlega góðan þokka, svo sem kunnugt er. Á hádegisbarnum komu saman valinkunnir gjaldeyrisaflarar og báru saman bækur sínar. Einnig brá þar fyrir lögmönnum, heildsölum og ríkisstarfsmönnum, jafnvel úr Symfónýjunni. Aftur á móti var fremur lítið um kvenfólk á hádegisbarnum, enda fyrir neðan virðingu kvenna í þá góðu daga að sækja slíkan stað; konur þær er sóktu hádegisbarinn á Borgin vóru fortakslaust náttúrlausar og þýddi lítið fyrir flagara að sækja gull í skaut þeirra.Á mínum tíma í höfuðborginni var matvöruverslunum og skranbúðum lokað stundvíslega klukkan sex að kveldi, nema á föstudögum máttu verslanir hafa opið til sjö og ekki opnað fyrr en á mánudagsmorgni. Þegar maður hættir sér til Reykjavíkur í dag blasir við einhverskonar fáránlegt geðveikrahæli og í miðbænum, sem nú er að sögn blessunarlega steindauður er aungvu líkara en maður sé kominn inn í óhrjálegt haughús, ef þefurinn þar er hafður til hliðsjónar, en geggjaðar eiturætur hoppa eða slangra um göturnar, sem allskonar málningu og litarefnum hefir verið gusað á. En það er knæpa í öðruhvoru húsi í miðbænum og lýðurinn sem býr þar inni stiklar annað slagið út til að reykja og míga á gangstéttina; en sumir laumast bak við hús og skíta. Einnig eru til nægjusamari sem láta duga að drita að baki bekkja á Austurvelli, af þeim tiltekjum gýs oft ógnvekjandi pest. En þetta er víst nýmóðins stórmenning, ættuð úr sorptunnum New York, og hvur sem dirfist að fetta fingur út þessa nýstjórnarskrármenningu lágkúrunnar í 101 Reykjavík er brottrækur gjör af biluðum borgaryfirvöldum.
![]() |
Spurt um dauða miðbæjarins á ný |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2020 | 20:12
Og skemmtidagskráin heldur áfram og nytsömu sakleysingjarnir dansa með
Skemmtidagskrá krataeðlissjúklingana um ,,nýju stjórnarskrána" sem landslið kverúlanta í krataeðlissöfnuðinum sauð saman fyrir hart nær áratug, nýrri er nú skepnan ekki. Það hefir væntanlega ekki farið framhjá mörgum, að nú fer fjörið fram við skítugar veggnefnur niður við sjó þar sem nytsamir sakleysingjar og hálfvitlaust fólk, sem heldur að það sé ,,vinstrieitthvað" hefir síðustu daga dundað sér við krota slagorð með því að maka málningu á fyrrnefnda veggi undir stjórn biluðustu krataeðlisstagkálfa landsins.
Það kátlegast við þetta allt er að ríflega þrjátíuþúsund hrekklausar sálir hafa látið nafn sitt undir þessa galtómu stjórnarskrárdellu, sem aungvu mun breyta þótt hún væri tekin í heilu lagi og gerð að gildandi stjórnarskrá. Aumingja fólkið telur sér trú um að sægreifaveldið og kvótakerfið líði sjálfkrafa undir lok um leið og ,,stjórnarskrá" Þorvaldar og Illuga tæki gildi. Sömuleiðis mundum við renna eftir stjórnarskrá eins og fjallalækur inn í ESB á vit hymmnaríkisástands í geysilágum vöxtum, evru og matvælum á gjafverði. Þá verður lífið leikur og sorgir og vandamál úr sögunni. Sona er nú krataeðlið gott við okkur.
En, ónei. Stjórnarskrá Þorvaldar og Illuga mun aungvu bylta eða breyta, enda er þetta frámunalega íhaldssöm og harðkapítalísk stjórnarskrá, gerð fyrir blábjána og aðra heimskingja í mjög óljósum tilgangi. Eða hafið þið orðið vör við óróleika og hræðslu sægreifa og kvótaelskara við plaggið þeirra kratakumpána? Og hvað með aðra kaupahéðna og braskalýðinn? Nei, þetta lið lætur sér tiltektir stjórnarskrárberserkja og lukkuriddara í léttu rúmi liggja, því það þarf ekkert að hræðast.
![]() |
Mikið af veggjakroti í Skúlagötu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.10.2020 | 16:36
Nú stendur Háfdán Varðstjóri einn vaktina
Eftir að Rögnvaldur lagðist stendur Hálfdán Varðstjóri einn uppi af lögregluliðinu og berst hetjulega við að halda lögum reglum innan skikkanlegra marka. Síðast í dag starfaði Hálfdán við að þvo einhverskonar kjaftæði úr ringluðum 101-börnum af veggnum við hliðina á sjávarútvegsráðuneytinu, en grislingarnir höfðu krotað óráðhjal á hann með málningu. Ekki bætti úr skák, að Hálfdán Varðstjóri varð að taka sé hlé frá verki annað slagið til að stugga burt 101 börnum, sem þóktust ætla að gera aðsúg að honum. Þremur kvikindum náði hann á vettvangi í dag og rassskellti öll á bert rassgatið fyrir framan nefið á vegfarendum.
Þrír andskotar hugðust læðast á bak Hálfdáni og skera sundur slönguna við háþrýstidæluna sem hann var að nota. Við þessum ösnum sá Varðstjórin í tíma og rann eftir þeim. Kom þá í ljós að þetta vóru blauðir djöflar, sem hlupu beint af augum yfir Sæbrautina og út í sjó og hafa ekki komið upp síðan. - Bættur sé skaðinn, sagði Hálfdán Varðstjóri við viðstadda um leið og hann snöri sér aftur að háþrýstidælunni.
Það hefir og komið í ljós að kóvíð nítjándi bítur ekki á Hálfdán Varðstjóra, það sannaðist strax í vetur leið. Þá handtók hann óregluhjú, gjörsmittuð af kóvíði en það vissi Hálfdán ekki, og snaraði þeim með sér niður á stöð og beint in í fangaklefa. Inni í klefanum gekk Hálfdán, móður og másandi, stynjandi af frygðarlosta, í skrokk á endemunum og lék þau grátt. Daginn eftir kom upp úr dúrnum að hjúin vóru útsteypt í kóvíði nítjánda og Hálfdán útbíaður af þessum óþverra. Hálfdáni varð ekki meint af vírusnum, en bölvuð hjúin hafa ekki komið undir bert loft síðan; þau liggja heima hjá sér í sjálfsvorkun og örkumlum eftir varðstjórinn og kóvíðið; þau nenna ekki einsusini á taðhúsið nema endrum og eins, en láta sér oftast nægja að kukka í plastpoka og henda honum síðan út um herbergisgluggann.
![]() |
Rögnvaldur með veiruna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá hefa þeir stökkt landvörðum og verkefnisstjóra á Þingvöllum á flótta, gott ef ekki flæmt þá út í Þingvallavatn eins og hvur önnur óféti, sem þarf að losna við undir eins. Eitthvað virðist þjóðgarðsvörður vera fálmandi, því hann þruglar um að ráða hin brottreknu næst vor. Ja, það verður víst lítið um ráðningar á þessu veslings fólki ef rétt er að grimmir hundar hafi verið látnir reka það útí vatn. Máske er þjóðgarðsvörður dauðhræddur um að hljóta sömu örlög þessum eina og átta, sem áttu fótum fjöri að launa undan ofríki ráðamanna (það er að segja ef þau hafa komist af).
Ef þannig verkast að þjóðgarðsvörður verði líka á bak og burt með vorinu væri upplagt fyrir ráherra að ráða hana Ólínu hérna Kérúlf til þjóðgarðsins, en hún kvað vera búin að rita heila bók um það að hafa ekki fengið job á Þingvöllum. Vissulega getur Ólína verið þarna ein því það væri tvímælalaust farsælast. En ... hvað á eiginlega að gera með fullt af fólki á ríxlaunum á Þingvöllum? Ef einhver nauðsyn er á starfmannasukki þarna því á ekki líka í Berserkjahrauni eða á Tíkarflóa í Meðallandi?
En ráðherrann yfir þessum fjanda er lúmskur og var búinn að koma upp hópi af blóðgrimmum rökkum, mannætuhundum, áður en hann lét til skarar skríða gegn verkefnastjóranum og landvörðunum átta, sem hafa hafa gengið undir vinnuheitinu ,,jólasveinar einn og átta" á skrifborði ráðherra. Umræddir hundar ku vera af sömu ætt og hundarnir sem bændamenningin á Íslandi sigaði á snillinginn Eirík frá Brúnum þegar hann kom heim til Íslands til að frelsa landa sína til mormónatrúar. Svo sem sjá má er öll umgjörðin kringum þessi nýjustu Þingvallamál sérlega þjóðleg og upprífandi fyrir hvurn mann og ráðherra og stjórnsýslu til ævarandi sóma og líklegt til að halda nafni hans á lofti um ókomnar aldir.
![]() |
Mjög erfið og sár aðgerð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Mismunandi tegundir glæpagengja og rummungsþjófa
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 43
- Sl. sólarhring: 150
- Sl. viku: 233
- Frá upphafi: 1546110
Annað
- Innlit í dag: 42
- Innlit sl. viku: 204
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 41
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007