Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2020

Skreið um markteiginn eins og blindur kettlingur

ball_1132817.jpgMikið þó djöfull var að sjá íslenska fótboltalandsliðið í kvöld. Jésús góður Guð. Markvörðurinn, ef vörð skyldi kalla, skríðandi í markteignum eins og blindur kettlingur uns boltaskömmin lullaði í netið. Og útispilararnir, ekki vóru þeir betri, gangandi hver á eftir öðrum útaf og þóktust vera meiddir. Þetta eru nú meiri kallarnir. En Danskurinn hló og hló að þessum leppalúðum og lék þá sundur og saman að vild.

Það segir sig sjálft, að það er tilgangslaust að vera halda úti landsliði sem gerir ekki betur en þetta. Það eina sem íslensku delarnir gátu gert á vellinum var að renna sér á rassinum fyrir dönsku snilldarmennin eða klifra upp á axlirnar á þeim eins og gíraffar. Meiri voru afrek íslenska knattspyrnulandsliðsins ekki í kveld. Og auðvitað á að reka landsliðsþjálfarann, aðstoðarlandsliðsþjálfarann og formann KSÍ; þetta eru mestu spillingarguttar, fyrir utan að hafa ekkert vit á fótbolta.

Þá var nú heldur densilegt að sjá til hans Gylfa. Þegar hann fékk boltann fór hann snúast í hringi og snörist áfram eins og skopparkringla, löngu eftir að boltinn var farin veg allrar veraldar, eða bara í markið hjá Íslíngum. Nú viljum vér að vanur nautgripahirðir verði ráðinn næsti þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu og nautgripahirðinum verði falið að byrja á að kíkja undir halann á leikmönnunum til að sjá hvers kyns er. Fleira er það nú ekki.


mbl.is Sterkari á öllum sviðum knattspyrnunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörkubaráttu um vegtyllur í helsta krataeðlis og aumingjaflokknum

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Nú er að verða úr vöndu að ráða fyrir krataeðlisgægsnin í varaformennismálum. Tvær sæmdarkvinnur hafa þegar gefið kost á sér til vitleysunnar, ein beint úr borgarstéttinni miðri, önnur úr gáfnaljósadeild efrimillistéttarfémínísta og sú in þriðja háskólanemi með erlent eftirnafn vill gjörast generalsekrétér. Þetta er nú aunginn slormannskapur. Það vantar þá einna helst Thorgerði Katthrinu í varaformennisframboð so allt sé fullkomið.

Samfylkingin, krataeðlisvesalingarnir, þetta ámátlega landsölu og blekkingalið, sem þykist eiga alþýðuna, en stendur alltaf með auðvaldinu og hinu vestræna, harðkapítalíska þjóðskipulagi. Nú vantar bara að vekja upp eitthvað af þessum sáluðu  margrómuðu krataeðlisforingjum og fá þeim hlutverk, þó ekki væri nema í ,,nýju stjórnarskránni" þeirra. Þá held ég kratakvígurnar mundu baula laglega í falsettu og míga um allan hjáleigutúnblettinn, sem Íhaldið úthlutaði þeim fyrir löngu í túnfætinum hjá sér.

Með hverjum sló hjarta krataeðlisins þegar Íslandi var þröngvað inn í NATÓ? Með stríðsæsingaliði auðvaldsins.
Með hverjum sló hjarta krataeðlisins þegar Bandaríkjaher var plantað niður á Miðnesheiði? Með stríðsæsingaliði auðvaldsins.
Með hverjum sló hjarta krataeðlisins þegar íslenskir kjósendur söfnuðu undirskriftum með því að leggja ESS-samningin í þjóðaratkvæðagreiðslu? Nú, með eigendum auðvaldsbáknsins ESB.
Það er því vel skiljanlegt að barátta sé um trúnaðarstöður í helsta krataeðlis og aumingjaflokknum.


mbl.is Alexandra býður sig fram til ritara Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verður hún að segja af sér þó svo hún hafi skaffað vel

thorr.jpgHenni er ekki treystandi, kérlíngakjökrinu, það er fullreynt. Nú verður hún að segja af sér þingmennsku með skít og skömm og fá sér raunverulega vinnu. Þetta getur ekki gengið svona lengur. So kvað eitthvert tónskáld vera að semja gott lag til söngs, sem ber hið dulúðuga nafn ,,7 hægri" og er ætlunin að flytja það við kirkjuhátíðir, stórar. Sálmurinn hefst sona: ,,7 hægri á Hólum hentar byskubbsstólum á páskum og á jólum með tryllandi tólum." En hvort ætli sé betra að vera lýðskrumari eða poppólisti? 

Þegar búið er að banna gólf þá er bannað að spela gólf og þeir sem brjóta það bann verða að taka út sína refsingu. Í fjögurhundruðustu og áttundu grein hegningarlaga segir: ,,Sá sem leikur gólf þegar gólfbann er í gildi vagna farsóttar skal sæta fangélsisvist í tíu ár og greiða tvo milljarða tæpa til ríkissjóðs." Það væri því vel sloppið hjá Thorgerði að hrökklast aðeins af þingi og þurfa ekki að sitja á Hrauninu í tíu ár og borga tæpa tvo milljarða í refsiauka fyrir glæp sinn.

Þá frú Ingveldi vóru bornar fréttirnar af Thorgerði sagði hún aðeins, að konugarmurinn væri auðvitað spinnigal og við því væri ekkert að gera. En Brynjar Vonadalykt hló svo og beraði tanngarðana, þegar hann heyrði tíðindin, að menn máttu hlaupa til og skjóta róandi á kallskepnuna svo hún sturlaðist ekki. - Eitt má þó Thorgerður eiga, sagði frú Ingveldur eftir stundarþögn, - hún hefir alltaf skaffað vel til heimílínsíns.


mbl.is Óafsakanlegt að hafa farið í golf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kolbeini falið að vinna gegn fáfræði skólafólks í kynferðismálum

kenn.jpgNú, það er víst staðreynd að fáfræði skólafólks í kynferðismálum í dag er algerð. Mér er sagt að ekki þurfi minna en harðsvíraða kynlífsfræðinga til að koma örlítilli glóru af typpaviti inn í æskulýðinn. Ef heldur sem horfir, og kynjafáfræðin fær að vaða uppi, er hætt við að þjóðin þurrkist út á næstu áratugum af því að hún veit ekki lengur hvernig á að gera dodo og enn síður til hvers dodoið er.

Sem betur fer hafa harðsvíraðir og ofur-hugrakkir kynlífsverkfræðingar vaðið á fund frökenar Alfredos menntamálaráðherra og gert henni grein fyrir alvarleika kynlífsins og hvað tómlæti og fávísi hvað það varðar mun óhjákvæmilega hafa í för með sér: sem sé heldur snautleg endalok íslenskrar þjóðar. Fröken Alfredos varð að vonum alvarlega skelkuð er hún hafði hlýtt um stund á krassandi tungutak kynlífsverkfræðingana og sagði sem var, að þetta væri alveg satt hjá þeim og lagði til að þjóðinni væri byrlað víagra í stórum skömmtum svo kvikindin réðu sér ekki fyrir dodogleði. Þókt kynferðisverkfræðingum þá sem úr væri að rætast og tóku gleði sína aftur.

Kolbeinn Kolbeinsson er samt ekki alveg viss um meinta fáfræði ungdómsins í kynfræðinni. Hann gekk því líka á fund flokkssystur sinnar, frökenar Alfredos, og bauð fram krafta sína. Hann sagðist gjarn vilja taka að sér að fara í skóla landsins og kenna æskunni sitthvað um kröftugar uppáferðir og einnig kátlegar uppákomur í bólinu. Og eins og sönnum framsóknarmönnum og samvinnuhugsjónarfólki sæmir, þá gjörði litla fröken Alfredós bindandi verksamning við Kolbein Kolbeinsson, um að hann annaðist æxlunarfræðikennslu í skólum landsins, og stofnuðu þau systkinin einkahlutafélag um framkvæmdina. Þar með er kynviti unga fólksins bjargað og er það nú komið í örugga höfn til frambúðar. 


mbl.is Ákveðið að taka kynfræðslu út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nauðsynleg nafnbreyting á Gímsvötnum í vændum

gosVissu þið, greyin mín, að nú er í undirbúningi á Alþingi Íslendinga að breyta nafni Grímsvatna í Stenngrimsvötn til heiðurs forseta Alþingis, hinum guðdómlega Stenngrimi Johoð Sikkússyni? Nei, það vissuð þið ekki, enda ekki við því að búast að sauðsvartur almúginn hafi hugmyndaflug til að láta sér detta slíka fásinnu í hug. En meðan helstu kólfar og sleggjur Sjálfstæðisflokksins hafa skemmtan af að spila með Stenngrím og hans Flokkseigendur og undanrennukjúklinga þá má búast við uppákomum af þessu tagi, því Stenngrimur Johoð er hégómagjarn fram úr hófi og heldur að fyrrgreindar nafnbætur á vötnum undir klakahjúpi Vatnajölkuls verði honum til frægðar og framdráttar.

Einhverju sinni settu þau hjón, frú Ingveldur og Kolbeinn, upp hundakofa á lóð sinni, þókt aungvann ættu þau hundinn. Þetta hús nefndu þau Snataból, en eftir að þau fóru að láta Brynjar Vonulykt sofa þar úr sér eiturvímurnar og óeðlið var farið að kalla hundakofann Brynjarsból. Vondalyktin hélt auðvitað að þessi nafnbreyting væri honum til álitsauka með þjóðinni, en því nú aldeilis öfugt farið. Og einn morguninn kom Máría Borgargagn að manni sínum, Indriða Handreði, buxnalausum í hundakofanum með Vondulyktinni og þókti henni sem var liggja ljóst fyrir hvað þeir hefðu verið að aðhafast. En þar eð Borgargagnið er umburðarlynd kona og frjálshuga í betra lagi, þá sagði hún um þennan atburð, að þeim Brynjari og Indriða væri ekki ofgott að toga soldið í typpið á hvorum öðrum, svo fremi þeir gættu þess að verða ekki óléttir af þessu tosi.

Hitt má svo vera annað mál að gos í Stenngrimsvötnum kunni að leiða til þess að fluglæti og flugfélög leggist við Atlandshaf og í Evrópu. Það væri, sem maður kallar, farsæl lausn á svívirðilega mengandi atvinnugrein. Forfeður okkar, landflótta Norðmenn og Bretar, flæktust út og austur um Atlandshafið á dulitlum spýtubátum með einu segli og náðu landi hvar sem þeir vildu, meira að segja á Grænlandi og í Amríku. Ég held þessum déskotans fludólgum nútímans væri hollt ferðast til og frá landinu á trillubátum og tunnuflekum, en láta okkur hin í friði fyrir græðgishugsjónum þeirra og heimsendaspám.  


mbl.is Eldgos gæti haft gífurleg áhrif á efnahaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill ekki viðurkenna að hafa notað Tind. Það er nú það er nú það ...

xv11Jæja ... og kveðst aldrei komið á Tind, nei. Auðvitað ekki. Nema hvað. Hún mundi heldur aldrei viðurkenna fyrir þjóðinni að hún hafi notað Tind þótt hefði margsinnis gert það, sér til óneitanlegrar ánægju og sérlegs yndisauka; það þykir nefnilega ljótt af stjórnmálaskottum að stunda Tind, eða aðrar netsíður, sem gætu vakið upp hugmyndir manna um að slíkir þjóðkjörnir gemlingar væru sannarlega kynóðir. Kynóður stjórnmálamaður er hreinlega ekki samþykktur af lýðnum, mun þolanlegri er sá þingmaður sem lagt getur fram vottorð um það að hann sé steingeldur, helst kynlaus, afspyrnu vitlaus og allra síst nærbuxnalaus.

Það kemur vel á vondan, að Katrín skuli álpast inná að þvæla um gervigreind, því ekki er laust við að hún sjálf skarti öðrum mönnum meiri vitsmuni af því tagi. Þegar telpa eins og Katrín stafar að staðaldri fyrir Stenngrim Johoð og Bjarnaben er langbest fyrir hana að hafa tölvugreind eða vélarvit, - eða hvað þið viljið kalla það, - svo auðvelt sé að forrita hana og láta hana kvaka eins og þeir vilja hún kvaki í það og það skiptið. 

En Stenngrimur Johoð og Bjarniben verða að passa sig á að setja ekki vitlaust eða óæskilegt forrit í þennan blaðafulltrúa sinn. Hvernig haldið þið það væri ef kjaftbrúksforritinu væri hlaðið inn á telpugreyið og þjóðin sæti agndofa fyrir framan sjónvarpstækin og hlustaði á hana bölva, tvinna og klæmast eins og ein hryllileg bestía úr ræsinu? Það væri stjórnvaldsskömm og niðurbrot lýðræðislegra hefða í háborgaralegu samfélagi auðvaldsins. Það er margt að varast í henni veröld, og Stenngrimur Johoð og Bjarniben eru viðsjárverðir piltar og stutt í götustrákinn á þeim og Samherjamóralinn. Af framangreindu má því sjá, að eitt og annað gæti reynst Katrínu skeinuhættara en að viðra sig annað slagið inni á Tindi.   


mbl.is Katrín segist aldrei hafa notað Tinder
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af íslenskum brennuvörgum fyrr og nú

vik_1239908.jpgÞað held ég þessi Mikael í Njarðvíkum sé vaskur maður og kræfur. Í hið minnsta þarf meira en meðalmenni til að hafa orð á, í heyranda hljóði, að réttast væri að leggja eld að höfuðstöðvum KSÍ og brenna þær og Laugardalinn allan til ösku. Á söguöld, þá hetjur voru uppi með þjóðinni, var siður garpa brenna óvini sína inni og eru í þeim fræðum Njálsbrenna og Flugumýrarbrenna mestar, báðar sannkallað stofustáss í heimi íslenskra brennuvarga.

Á þessari stundu er mér ókunnugt um hvort Mikjáll af Njarðvíkum gangi enn laus, því mórallinn í dag er að ábyrgðarlaust sé að láta brennumenn njóta frelsis til að koma fram hefndum með því að kynda bál kringum þá er þeim er í nöp við. En vel má vera að Stjörnusýslumaðurinn Stones, sem rekinn var af Suðurnesjum og afplánar nú undir pilsfaldi hælisleitendaráðherra, hafi verið sendur á vettvang til að handtaka Mikjál kappa og taka af honum eldspýtur og kveikjara svo helvítið nái ekki að kveikja í Laugardalsvellinum áður en landsleikurinn við Rúmena hefst við hátíðlega athöfn.

En stundum brýtur nauðsyn lög og grípa verður til róttækra aðgerða. Þetta veit til að munda Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri, framsóknarmaður og eiginmaður frú Ingveldar. Hann lenti í sárri raun og vaknaði upp í skelfilegum timburmönnum og fráhvörfum og óhrjálegum minningum um fyllirísglæp og afbrotahyski, sem gæti kostað hann langa dvöl í fangélsi innan um glæpamenn. Kolbeinn reis upp og settist á rúmstokkinn, sem frú Ingveldur kallar alltaf ,,sængurkantinn", og hugsaði sitt alvarlega mál. Eftir nokkra stund hafði hann orkt sig til niðurstöðu með eftirfarandi kveðlingi:

Mér er sóttin soldið þúng,
sárt hún kvelur gamlan púng.
En eftir það hopp og hóruþvarg
þá held ég ég ráði mér brennuvarg.

Um kveldið, - en um kveldið, góðir hálsar, - brann alræmt spillingargreni og athvarf misindisfólks í Þingholtunum til grunna, svo rækilega að einungis heimiliskötturinn komst lífs af. Og Kolbeinn Kolbeinsson taldi fram seðlana og andaði léttar.


mbl.is Hótaði að kveikja í höfuðstöðvum KSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af vínhneigðum konum og afrekum þeirra

ingv25_1222523.jpgJá, er hún þá sona, blessuð gamla skrukkan? Þar í er líklegast fólgið hvers vegna hún er jafn ógn völt á fótunum og raun ber vitni. Hvað á gjöra við kérlíngar á tíræðisaldri, sem eru svaðblautar og delera stundum með afkáralegum munnsöfnuði og hranalegum illyrðum? Nei, það vitið þið auðvitað ekki. Einhvurjum kann að detta í hug að rétt væri að rassskella þær opinberlega, öðrum til viðvörunar. En það væri full-langt gengið.

Gamla geðstýfða Framsóknarmaddaman hefir svo lengi sem sem elstu framsóknarmenn muna haft ákavítisflösku innan seilingar, undir koddanum í bælinu sínu eða ofan í nærbuxunum til að halda því volgu. Stundum hefir kérlíng verið svo draugfull að allir húskarlarnir og griðkonurnar í Framsóknarfjósinu hafa orðið dauðhrædd, því gömlu Maddömunni er laus höndin og ofbeldissinnuð þegar hún er vel drukkin. Eitt sinn reif hún til ráðsmanns síns, þess er þá var, og lúskraði illa á honum; og þegar ráðsmaðurinn lá lémagna og nær meðvitundarlaus við fætur hennar heimtaði hún sveðju eða góð skæri til að geta klippt af helvítinu skottið.

Frú Ingveldur er líka liðtæk við flöskuna, aungvu síður en Framsóknarmaddaman og Englandsdrotning, en hún kann að fara vel með ölvunarástand sitt og dómgreind heldur hún óskertri þó fast sé drukkið, það þakkar hún kókinu, sem hún hefir ævinlega í handraðanum þegar hún drekkur. Að vísu hefir henni endrum og eins hlaupið kapp í kinn þegar hún hefðir orðið þess vís að Kolbeinn hennar Kolbeinsson, eiginmaður frú Ingveldar til áratuga, hafi verið að drýgja hór eða stunda ósæmilegan kynferðisósóma án hennar leyfis. Haft var eftir grandvörum sjúkraflutningamanni, sem fékk eitt sinn það verkefni að sækja Kolbein slasaðan eftir eiginkonu hans og frama með hann á sjúkrahús, að það hefði vissulega verið úr hófi sorglegt að koma að Kolbeini með brotinn leyndarlim eftir fantatök frú Ingveldar og Máríu Borgargagni og Indriða Handreði dauðrotuðum og berrössuðum fyrir ofan rúm. Í kjölfarið á þessu atviki lá Kolbein milli heims og helju á gjörgæsludeild í heilan mánuð og var lengi vel ekki hugað líf, því leyndarlimurinn hans var illa brotinn, tvíbrotinn að sögn, og svarblár að lit. 


mbl.is Drottningin byrjar að drekka fyrir hádegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr vöndu að ráða hjá fyrrum kjósendum VG, þeim er vandir eru að virðingu sinni þrátt fyrir allt

x7Það þarf auðvitað aungvann að undra, að liðlegur helmingur þeirra sem glopruðu atkvæðum sínum á VG að ætli alls ekki að láta sömu villu henda sig við næstu kosningar. Furðulegast er að hátt í helmingur þeirra plötuðu ku vera tilbúnir til að kjósa VG aftur næst; eðlilegast væri að aunginn af fyrri kjósendum mundi kjósa þennan ófögnuð meir.

En það er ekki um auðugan garð að gresja fyrir fyrir fyrrum kjósendur VG að finna stað fyrir atkvæði sín. Sennilega væri affarasælast fyrir þá að sitja bara heima við næstu kosningar, í hæsta lagi að fara á kjörstað og skila auðu eða gjöra atkvæðaseðilinn ógildan með því að skrifa upp heldur blautleg afmorskvæði á framhlið hans. Ekki er fýsilegt fyrir þessa kjósendur að kjósa flokka úr safni gömlu Framsóknarmaddömunnar, eða einhvern hinna óheiðarlegu krataeðlisflokka eða einhver af svæsnustu auðvaldssamtökunum. Ónei, þessháttar drasl kjósa fyrrum áhangendur VG ekki, þá viljum vér heldur útskitna salernisskál inn á Alþingi.

En væri þá ekki gráupplagt fyrir uppgjafa VG-ara að færa sig yfir á sosialistaflokk Gunnars Smára? Í fljótu bragði væri það þjóðráð. Eða hvað? Því er til að svara, að hvur á sósíalisti, sem vandur er að virðingu sinni, mundi aldrei glepjast á að kjósa þann hálfvitlausa apakattasöfnuð sem hoppar hvað ákafast og hæst kringum útrásarvíking þann fyrrnefndan, er tekið hefir yfir sosialismus á Íslandi. Í þeim ranni sannast hvað best, og trúlega endanlega, að ekki er viðlit að stofna skítsæmilegan og nothæfan kommaflokk fyrir lukkuriddurum, fémínístum og hálfvitlausum og biluðum hoppurum, sem einlægt eru fyrstir á vettvang þegar þeir frétta af flokkstofnun einhvers staðar. Þetta höfum vér séð gerast hvað ofan í annað síðustu fjörutíu árin eða svo; allrahanda fúleggjabandalög, borgarastéttarflokkar, krataeðlissjúklingafylkingar, vitfirringasamkomur og efrimillistéttarfémínístakompaný hafa komið fram á sjónarsviðið með samskonar öskrum undir sama lagi. Allt hefir þetta lið ætlað að bjarga kapítalismanum og berjast gegn spillingu, spillingu, spillingu, - nú síðast hafa lukkuriddaraberserkirnir í krataeðlishjörðinni og hið borgaralega fémínístauppsóp sameinast í fullkominni géðveikisöskursymfóníu og orgíu útaf einhverju kjánaplaggi, sem valinkunnir krataeðliskverúlantar settu saman og það kallar ,,nýju stjórnarskrána"; öllu má víst nafn gefa ef fíflskapurinn er nægur, þér að segja. Sannlega er það ekki efnilegt, piltar mínir, og allt farið út um læri og maga og svo kraumar kóvíð nítjándi ofan í öllum hroðanum.  


mbl.is Meirihluti kýs VG ekki aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar berserkur gamla Kolbeins fannst myrtur

kol27Alltaf er jafn upplífgandi að fá fréttir af því að einhver, eða einhverjir, hafi gengið berserksgang, en það sýnir oss að enn eru brekserkir meðal oss. Í kauptúninu, hvar Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, ólst upp og sleit barnsskóm sínum, var hroðalegur berserkur, Andrés að nafni, trylltur maður sem lék sér að því að rífa upp jarðýtur og velta þeim á hliðina. Þennan berserk notaði gamli Kolbeinn, faðir Kolbeins Kolbeinssonar, kaupfélagsstjóri og útgerðarstjóri, til að innheimta skuldir fyrir sig af skuldseigum óbótamönnum og einnig til að jafna um andskota sem gamla Kolbeini var í nöp við.

Svo fékk Kolbeinn kaupfélagsstjóri óvænt fréttir af því að berserkurinn væri farinn að halda við mágkonu gamla Kolbeins. Morguninn eftir fannst berserkurinn dauður niður við höfn, hafði verið skotinn í hnakkann með stórvirki skotfæri. Aldrei komst upp hvur valdur væri að morðinu, enda lítið gert til að upplýsa málið og nokkrum mánuðum síðar höfðu flestir gleymt voveiflegri burtsiglingu berserksins í þorpinu. 

En nú hafa einhverjir orðið óðir við að sjá einkarekið strætóskýli í Reykjavík og mölvað allt glerkyns í því. En ekki hafa þó berserkir verið þar á ferð, því ef svo hefði verið væru uppitöðurnar verið rifnar upp með rótum og þeim vafið saman eins og tvinnaspottum. Að brjóta gler er létt verk og löðurmannlegt, en að snúa saman gildum járnstöngum er aðeins á færi berserkja og heljarmenna.  


mbl.is Virðast hafa gengið berserksgang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband