Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2020
31.8.2020 | 21:39
Undirrót allrar óhamingju
Ef það er rétt hjá karlaumingjanum að ferðaþjónustunni verði lokað fram að jólum, þá eru það miklar gleðifréttir. Sem kunnugt er þá munu ferðalög vera einhver mesti viðbjóður sem þekktur er á byggðu bóli. Gamla konan í Brekkukoti, amma Álfgríms, vissi sem var að ferðalög eru undirrót allrar óhamingju og gjörðu Garðar Hólm að þeim leiksoppi í lífsins ölduróti sem hann varð hvað frægastur fyrir. Þrátt fyrir það, þá var Garðar Hólm mörgum sinnum betri söngvari en Jóhannes Þór Skúlason málaliði aumasta auðvalds landsins. Og satt að segja, það hefir komið alvarlega til tals hjá okkur sem heitum Jóhannes, að fá lögbann á að þessi kurfur fái að kalla sig Jóhannes og knýja hann þannig til að skipta um nafn.
Við Jóhannesanir eru sammála um, að þessi Skúlason ætti að heita Indriði, eins og Indriði Handreður, því hann er viðloðandi Framsóknarfjósið, að minnstakosti skúrræxnið sem gamla Maddaman lét hrófla upp við Fjósið til geyma Miðflokkinn og jafnvel fleiri Totúlísta í. Einnig væri bráðnauðsynlegt að gjöra ferð fyrir þennan Skúlason senda hann eitthvert langt í burtu, til dæmis til Tortólu elligar Seychelleseyja, hvar innistæðurnar dafna og leynireikningarnir skjóta rótum. En nú er sem sé ferðaþjónusta aflögð fram að jólum og jafnvel mikið lengur, ef Guð lofar.
Fyrr á tíð, þegar svartidauði, stórabóla og spánnskaveikin riðu húsum á Íslandi minnist aunginn maður á ferðalög, því síður ferðaþjónustu. Að vísu höfum vér átt einn ferðaþjónustubónda, en aðeins bara þennan eina, og það var hann Björn hérna Haraldsson að Öxl í Breiðvíkurhreppi á Snæfellsnesi. Það var sko maður. Frumkvöðull, áræðinn og ráðsnjall. En svo kom helvísk öfundin til og öfundsjúkir illræðismenn, sem öfunduðu Björn af brautryðjandastarfi hans og ferðagróða, drógu hann úr húsi í Öxl, leiddu hann út að Laugarbrekku og hjuggu hann þar í spað; grófu síðan tættlurnar af þessu óskabarni íslenskrar atvinnusögu út um víðan völl svo tryggt væri að hann gréri ekki saman aftur eins og hrökkáll. Síðan lá ferðaþjónusta blessunarlega niðri þar til eftir Eyjafjallajökulsgos. Nú er þessi vá vonandi aftur af oss aftur tekin og á henni slökkt bæði til lengri og skemmri tíma.
Ferðaþjónustunni lokað fram að jólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2020 | 20:34
Það var kátt hérna um laugardagskveldið í Bánkastrætinu ...
SH Lúnd er mikil hetja, svo sem hún á annars kyn til, því fyrir það fyrsta er hún náfrænka frú Ingveldar og í öðru lagi langsystir Elsu Lúnd, sem var eitt sinn var sjónvarpsstjarna. Nú slagsmálahundarnir í Bánkastræti vóru að sjálfsögðu Sjálfstæðismenn á besta aldri, nýbúnir að kasta af sér vatni utan í veggi Stjórnarráðshússins. Það var vel til fundið hjá þeim að gjöra Bákastrætið að orrustuvelli sínum, því þeir eru vel tengdir bánkaráðsmönnum og bánkastjórum, einnig bánkaræningjum og bánkafíflum. Það er nú svo.
Það var og sjón að sjá þar á strætinu á laugardagskveldið þegar SH Lúnd varpaði sér í miðja þvöguna og fór að slást eins og hundur, glefsaði, beit og klóraði. En mest varð þó um dýrðir þegar hún reif fyrir misgrip niðrum einn bánkapúnginn og niðurlægði hann fyrir lífstíð. Sá blessaði dregur var fluttur afsíðis til að þiggja áfallahjálp, en það stoðaði nú lítið því endemið hljóp beint að næsta tré og reyndi að hengja sig; þegar þetta gerðist hafði náunginn ekki sinusinni haft fyrir því að hífa uppum sig og gyrða sig sómasamlega. Því miður fór hengingin út um þúfur þar er greinin sem kauði batt spottann við brotnaði. Nú hvílir þessi mannaumingi niðurnjörvaður í rúmi á líknardeildinni og það er hafður heftiplástur fyrir trantinum á honum svo öskrin og bölvið í honum fari ekki alveg með hina sjúklingana.
En svo við höldum áfram með áflogalætin í SH Lúnd, þá gerði hún það ekki endasleppt þarna í Bánkastrætinu á laugardagskveldið því hún klykkti út með sparka í gangbrautarkant og nú er býfan á henni margföld að umfangi, kvalirnar óskaplegar og ómögulegt að lina þær. Við vitum um eina konu aðra sem hefir lent í sona slysi, sú er náfrænka þeirra frú Ingveldar og SH Lúnd, hún sparn líka í gangstéttar kant og var ekki mönnum sinnandi á eftir fyrr en þeim hugkvæmdist að saga af henni fótinn um miðjan kálfa. Síðan hefir hún ekki fundið til í meiddinu, eins og börnin segja, en upp úr þessu hefir borið mikið á fólsku í fari hennar, sannkallaðri mannvonsku, sem er í senn óútreiknanleg og ljót.
Ég stökk bara af stað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2020 | 12:46
Ókennilegur sjúkdómur herjar líka á fjölskyldu frú Ingveldar
Jú, þetta er vissulega dularfullur sjúkdómur í kynfærum hundsins, ekki er að efa það. En sennilega er best að láta dýralækna, þó ekki þennan í samgönguráðuneytinu eða vinkonu hans í Vegagerðinni, um að greina og lækna hundsspottið. En þó þetta sé íllt allt og bölvað og Matvælastofnun komin með lúkurnar í kynfærin á hundinum þá má alltaf hugga sig við að þeir félagarnir Kolbeinn Kolbeinsson, flokksbróðir samgönguráðherra, og Indriði Handreður fengu báðir kóvíð-níjándavírus í leyndarlimi sína.
Auðvitað þjáðust þeir félagar, Kolbeinn og Handreður, afskaplega mikið, enda einskorðaðist veikin í þeirra tilfelli við miðvígstöðvarnar og mátti segja að þeir engdust sundur og saman af óslökkvandi kvölum í hart nær viku, en þá vóru þeir svæfðir uppi á spítala og þurfti hrossameðal til að ná þeim alveg niður. Frú Ingveldur varð æf þegar hún komst að því hvurnig í pottinn var búið og kenndi Máríu Borgargagni um, hún hefði lagst í óleyfi með viðbjóðslegum péníngaróna og smitað síðan Handreð mann sinn og einnig Kolbein, en það hafði hún ekkert leyfi til að gera. Þess vegna gerðist það að frú Ingveldur kom vinkonu sinn að óvörum, hvar hún var stödd í mikilli verslunarmiðstöð í höfuðborginni, þreif til hennar og dró hana á hárinu um gólf og ganga og linnti ekki sókninni fyrr en Borgargagnið hafði misst niðrum sig. Þetta var ljót uppákoma og fengu sjónarvottar, allir sem einn, áfallahjálp hjá áfallafróðum spesíalístum.
En leyndarmálið um krankleik hundanna er enn óleyst. Varla hafa þeir fengið kóvíð nítjánda í æxlunarfærin? Eða hvað? Hvur fjandinn kom fyrir fjölskyldu frú Ingveldar? Og nú er Brynjar Vondalykt búinn að vera með ógnarskitu í mánuð og er orðinn eins og tálguð fjöl; frú Ingveldur hefir áhyggjur af heilsufari hans, telur hann í lífhættu, líka Sjálfstæðisflokkinn. Og nú er hann byrjaður að gelta.
Ill meðferð á hundum kærð til lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2020 | 12:43
Fulltrúar kvenfyrirlitningarinnar ráðast að Áslaugu Örnu með svigurmælum og ofstopa
Bölvað ekkisins óstand er á gimbrunum hans Bjarnaben þessa dagana, ef heldur sem horfir verða þær að segja af sér ráðherradómi elligar fjarlægðar með valdi ef þær hyggjast stympast á móti. Hitt er svo annað mál þessi óvægna árás þingmannsins Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur á ráðherrann Áslaugu Örnu, en þar gerir Rósa Björk, sem er flokkssystir Áslaugar Örnu, sig seka um ruddalega kvenfyrirlitningu af síðustu sort. Eða dettur einhverjum í hug að Rósa hefði ráðist svona á Áslaugu ef Áslaug væri ekki kona?
Það er ekkert nema fegurð við aðfarir Áslaugar Örnu og aðdáunarvert hvurnig henni tekst að flétta saman leik og starfi; hún stökkur beint af hestbaki austur á söndum um borð í landhelgisþyrilvængjuna og brennir í bæinn á hálfan fund og til baka aftur austur á sanda og hoppar þar úr þyrlunni á ferð og beint ofan á hrygginn á hrossinu, sem beið þolinmótt austur á söndum eftir eiganda sínum undir fullum reiðtygjum. Þessi glæsiferð Áslaugar Örnu er svo fádæma glæsilega að hún slær ferðalag Þ.K. Reykfjörð út á kóvíð nítjánlífið á dögunum hér um bil út.
En nú segir Áslaug Arna að glæsiferð hennar um loftin blá með þyrilvængju Landhelgisgæslunnar hafi verið mi-mi-miss-tökk og nú ætli hún að skoða í framhaldinu verkferla um sona ferðir og skemmtiflug á eigum ríkisins. Ennfremur, að forstjóri gæslunnar, sem er karllægur karlskarfur úr karladeild Valhallar, hafi ginnt hana með fagurgala til að láta gæsluþyrluna skutla sér fram og til baka yfir svarta sanda. Það liggur því í augum úti, eins og oddvitaskepnan vestur á fjörðum orðaði það, að forstjóri gæslunnar er næstum því dauðasekur og verður eflaust dæmdur til að afplána glæpsins með því að sinna sérstökum verkefnum í dómsmálaráðuneytinu. Að Áslaug Arna sýni á sér bilbug og tali nú um einhver óskiljanleg assgotans misstökk í sambandi við glæsilega ferð sína með þyrlu gefur til kynna að hún sé á leið í aðra vinnu, hún ætli með öðrum orðum að Rósu Björk og aðra fulltrúa kvenfyrirlitningarinnar hrekja sig nauðuga af framabraut.
Forstjórinn bauð dómsmálaráðherra far | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.8.2020 | 20:49
Andstyggilegt framferði sauðkindar á Snæfellsnesi í dag
Í dag lagði ég land undir fót og ók hátt í þjúhundruð og þrjátíu kílómetra, það er að segja: frá heimili mínu í suðausturátt og til baka aftur. Á leið um sunnanvert Snæfellsnes ók ég fram á sauðkind sem bar sig einkennilega í vegkantinum en álengdar stóðu lömb hennar tvö og horfðu stjörf á atferli móðurinnar. Þegar ég kom nær sá ég að ærin studdi með öðrum framfæti sínum ofan á hálsinn á fugli, líklega hettumávi, og reif áfergjulega kjöt frá beini á fórnarlambinu munnur hennar var blóðugur eins og á einu leóni í Afríku sem veitt hefir hvítan trúboða sér til matar.
Ég stöðvaði bifreið mína til að geta virt þennan atburð betur fyrir mér, en ég hefi aldrei heyrt um það áður að sauðfé jagaði sér fugla til að éta. Þegar ég opnaði bílinn og sté út hvæsti kindin að mér eins og grimmt rándýr og það var kaldur arnarsúgur í því hvæsi, en lömbin færðu sig fjær, áreiðanlega yfirbuguð af ógeði á framferði móðurinnar. Og skjátan hélt áfram að graðga mávnum í sig af einhverjum óskiljanlegum losta þar til fátt var eftir af hinum látna annað en stélið, vængirnir, hausinn og goggurinn. Eftir að hafa sleikt vel og vandlega út um eftir máltíðina tók rollan sig til og hneggjaði sem hross um leið og hún lyfti sér upp á afturlappirnar.
Þegar ég settist aftur upp í bifreið mína, nær friðlaus og lémagna af viðbjóði, sá ég útundan mér að ærin var farin að skima kringum sig eftir fleiri fuglum til að éta. Í bakaleiðinni sá ég hvorki tangur né tetur af þessari kostulegu sauðkind eða lömbum hennar, en vængirnir af hettu mávnum voru á sínum stað í vegkantinum og báru græðgi og íllsku sauðfjárkynsins ófagurt vitni. Þegar heim kom var fyrsta fréttin sem ég heyrði í útvarpinu um einhvern mannfjanda í Hong Kong sem þykist vera kominn með kóvíð nítjánda í annað sinn á nokkrum mánuðum, en sem betur fer er Kári þeirrar skoðunar að slíkur þvættingur sé álíka gáfulegur og framganga kindarinnar á sunnanverðu Snæfellsnesi sem át hettumáv í vegkanti í dag.
Ekki sönnun á nokkrum sköpuðum hlut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2020 | 12:51
Hún er á leið á ruslahaug sögunnar og er það vel
Þá er það búið hjá ríkisstjórninni og aðeins dagaspursmál hvenær henni verður fleygt á ruslahaug sögunnar, en á þeim haugi er eitt og annað skemmtilegt að sjá. Þegar ríkisstjórnin verður lögst og komin í öndunarvélina hygg ég að verði freistandi fyrir hjúkrunarliðið á spítalanum og taka þá maskínu úr sambandi því illu er best aflokið. En þetta var víst fjörugt trall á Hotélinu Rángá og heilmikið dansað bak við hús, það var til dæmis sérstaklega til þess tekið að Sigurður Ingi, ráðsmaður gömlu geggjuðu Framsóknarmaddömunnar í Framsóknarfjósinu, hafi linnt látum fyrr hætt að dansa fyrr en hann flækti sig í gaddavírsdræsunni, sem er til skrauts að húsabaki Rángár hotéls, en þá vóru allir hinir orðnir svo fullir og dasaðir að þeir létu Sigurð Inga liggja þar rammflæktan og gátandi til morguns.
Þegar frú Ingveldi var tilkynnt um sóttkví og einangrun ríkisstjórnarinnar svarði hún því til, að þetta komi ekki á óvart, fólk sem umgangist alla daga skepnur á borð við Kolbein Kolbeinsson, Brynjar Vondulykt, Máríu Borgargagn og Indriða Handreð eigi á hættu að verða bráðhættulegir pestargemlingar. Enn fremur upplýsti frú Ingveldur að áminnstir fjórmenningar væru búnir að slefandi af kóðvíðnítjándasjúkdómi síðan í febrúar og væru þeir nú búnir að ná þeim eftirsóknarverða árangri að smita gjörvalla ríkisstjórnina af hinni hættulegu drepsótt.
Hér að ofan var aðeins drepið á ruslahauga sögunnar og fullyrt að þar séu ýmsir skemmtilegir hlutir geymdir. Þar liggur til að mynda, rykfallin uppi á hillu, Viðreisnarstjórnin sáluga ásamt með krataeðlissjúklingunum Þjóðvaka, Alþýðuflokki, Samtökum frjálslyndra og ,,vinstri"manna og Bandalagi jafningsmanna. Þarna liggur og líkið af Alþýðubandalaginu, sem fársjúkir og stórbilaðir krataeðlissjúklingar myrtu sér til gamans í stundarhagsmunaskyni. Eins og staðan er í dag, þá grunar oss sterklega, að nú sé ekki langt að bíða þess að gamla Framsóknarmaddaman og Sjálfstæðisflokkurinn verði borin steindauð á þennan góða ruslahaug og þeim kastað í eldsofninn, en þar eru sérlega spilltum og glæpsamlegum óþrifnaðarfyrirbrigðum eytt í eldi og eimyrju.
Ríkisstjórnin í tvöfalda skimun og smitgát | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið óskaplega eru þau lík í framan þau (þaug) Jóhannes þessi Þór og hún frú Andersen. Jóhannes er að vísu skeggjaðri en Andersen, en það er nú bara bitamun en ekki fjár. Bæði eru þau áhuga á að kóvíð nítjánda sé sleppt lausum á landsmenn, af hugsjónaástæðum og frelsis, segja þau, en við hin trúum því mátulega.
Samkvæmt mannréttinda- og frelsisfólkinu Jóhannesi og Andersen er betra að ferðaþjónustubúhnubbar fái tækifæri til að græða dulítið á útlendingum áður en þeir falla endanlega fyrir kóvíð nítjánda, þ.e. bæði búhnubbarnir og útlendingarnir, að ógleymdum frelsishetjunum í Valhöllu auðvaldsins. Hinsvegar er sokallaður ,,sóttvarnarlæknir" með eitthvert múður og pex og heimtar að Íslandi verði lokað og læst í eitt skipti fyrir öll og því breytt í einn djöfulsins Gúlageyjaklasa; og ekki er fyrirbrigðið sem það nefnir ,,landlækni" skárra. Þetta ófétisfólk virðist stefna að því ljóst og leynt að svæla þjóðina inni eins og rottur eða melrakka.
Svo er eitt með öðru: en það er það hvað Jóhannes Þór og frú Andersen segja og gera ef þau fá kóvíð nítjánda í rassinn á sér. Ætli þau fari þá kannski að gráta og góla og heimti að sóttvarnarlæknir og landlæknir komi í snarhasti og lækni sig? Eða kemur það ef til vill í hlut útfararstjórans að sýsla með þau eftir kóðvíð nítjánda? Trúlega telja þau að best sé bera sig mannalega og leyfa öðrum að dást að hugrekki þeirra andspænis kóvíðnum, sem þau segja að sé í mesta lagi væg kvefpest. ,,Undirsáta frelsið frítt fjárplógsgjarnir rækja nú lítt." En satt að segja eru frú Andersen og Jóhannes Þór, vinur Sigmundar og Klaustursystkinanna, svo lík að þau sjálf þekkja sig ekki hvort frá öðru.
Landið ekki lokað lengi án umræðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2020 | 13:19
Stjörnusýslumaðurinn flæmdur úr starfi og færður inn á kontór eins og óknyttaklerkur
Jæja, þá eru efrimillistéttarfémínístarnir og yfirfémínísta-elítufénaðurinn búnir að flæma Stjörnusýslumanninn Stones, okkar eina Yfirvald, úr embætti. Þetta er íllt verk sem einhverjum á eftir hefnast fyrir. Það vafðist svo sem ekki lengi fyrir Sjálfstæðisflokknum að búa til nýtt starf fyrir Stjörnusýslumanninn inni í dómsmálaráðuneytinu því ekki gat þetta lið verið svo harðbrjósta að skilja hann eftir úti á berangri, bjargarlausan og berrassaðan. Þetta er sama aðferð og það notar hjá bysskubbsstofu þegar ódælir klerkar fara út fyrir siðgæðismörk Sjálfstæðisflokksins; þeir eru kallaðir til sérstakra starfa á bysskubbsstofu, en það eru störf sem aunginn hefir ennþá árætt að lýsa eða skilgreina, enda ganga þau út á að greiða óknyttaklerkunum laun fyrir ekki neitt.
Nú skyldi einhver ætla að Stjörnusýslumaðurinn Stones væri feginn að losna við andskota sína efrimillistéttarfémíníska á skrifstofu lögreglustjóra í Keflavík, en því er aldeilis ekki að heilsa. Stjörnusýslumaðurinn Stones er svo mikill heiðursmaður að hann saknar þeirra er vöktu samsærið gegn honum og stökktu honum á brott og höfðu af honum lúðrasveitarbúninginn. Hinsvegar gerðust Alda ríxlögreglufémínísti og viðhlæjendur hennar á stöðinni svo framhleypin að draga íslenskan fána að hún á hvurri einustu flaggstaung við hús embættisins og einnig við fánastángir allra nærliggjandi húsa sem og við verksmiðjuna góðu í Helguvík.
Ef við þekkjum Stjörnusýslumanninn Stones rétt þá mun ekki líða á löngu þar til fréttir fara að berast úr dómsmálaráðuneytinu um að hann sé byrjaður að velgja litla ljóshærða dómsmálaráðherranum úr Vallhöllu undir uggum. Og vissulega væri viðeigandi að þeir í Sjálfstæðisflokknum stígi skrefið til fulls og gjöri Stjörnusýslumanninn Stones að dóms- og kirkjumálaráðherra, en sú litla ljóshærða fái jobb sem uppáhellingardama á kaffistofu ráðuneytisins meðfram því að skúra gólfið á skrifstofu ráðherra; það verður nefnilega að kenna stelpunni að vinna, en það gleymdist alveg áður en hún var gerð að ráðherra.
Mun fyrst og fremst sakna starfsfólksins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2020 | 10:47
Hugsjónaprinsinn Ólafur bóndi að Miðhrauni I. lætur ekki deigann síga
Er nú af sú tíð er Ólafur bóndi og útgerðarmaður að Miðhrauni I. í Miklholtshreppi sagði stórglæpamönnum sögur á kvöldvökum Kvíabryggju. Sagnamennska þessa merka þuls yfir stigamönnunum þar vestra var hugsjónastarf bóndans og mannúðarviðleitni sem seint verður fullþakkað. Á Kvíabryggju vann Ólafur bóndi mikið og merkilegt frumkvöðlastarf, sem fólst í fórnfúsri og óeigingjarnri baráttu fyrir rauðvíni á borð fanga og reiðnámskeiðum, því hvað er fegurra en rauðvínsfullur fangi á þeysireið um garða fangélsins að Kvíabryggju á Snæfellsnesi.
Og hugsjónaprinsinn Ólafur útvegsbóndi að Miðhrauni I. lætur sér ekki nægja hokra að hrossum á Snæfellsnesi og berjast fyrir réttindum fanga þar um slóðir. Í Frans hefir hann hann komið upp merkilegu búi að Pur Chevel, sem í lauslegri þýðingu gæti kallast Paurakot, og þar ríður hinn íslenski stórbóndi um tún og töðuvelli á risastórum graðhestum og jóreykirnir fylla dalskvompuna hvar bærinn Paurakot stendur svo ekki sést út úr augum þegar mest gengur á.
Í tilfelli Ólafs bónda má segja að stórmennum af hans kalíberi séu útrásir í blóð bornar; stórsiglingar á langskipum og strandhögg eru ær og kýr slíkra garpa fyrir utan fangahjálp og reiðnámskeið. Víst er um það, að á bæjartúninu í Paurakoti eru ,,haldin merkileg hestamót" svo vitnað sé til orða húsfreyju Ólafs bónda því þar frísa á stalli ekki ómerkari íslensk hross en Sörli sá er Grímur orkti um og heygður var ,,Húsafells í túni" og hinn merki stólpagripur, Krapi" sem Steinar bóndi í Steinahlíðum færði danakonungi að gjöf; en þessi góðhross lét Ólafur bóndi töframenn sína endurlífga. Enn fremur má sjá á beit í Paurakotstúni inu franska truntuna djáknans af Myrká sem og klár þann skjóttan sem helst vann sér til frægðar að hlaupa fyrir björg með sýslumann á bakinu með þeim hryggilegu afleiðingum að báðir létust. Ekki má heldur gleyma sebrahestunum í Paurakoti, en þá lét Ólafur bóndi flytja til sín frá Afríku, en þeir eru nú aðallega ætlaðir fyrir börn góðra hestamanna að fá sér sprett á.
Ólafur Ólafsson og Ingibjörg með eina löglega keppnisvöllinn í Frakklandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.8.2020 | 19:26
Það er búið hjá henni, aumingjanum svorna
Það er náttúrlega mesti misskilningur hjá telpuskömminni að það sé nóg fyrir hana að biðjast afsökunar á framferðinu þegar einungis afsögn og brottrekstur úr ríkisstjórninni er í boði. Látum vera ef hún hefði bara neytt abelsínuguls landabruggs með handspíritusi í leyni heima hjá sér, en að láta taka myndir af sér í þjöppuklessu með fullt af kéllingum og með grunsamlegt áfengi á stórum skálum í forgrunni er svo forkastanlegt á þessum tímum að afsögn og brottrekstur er óhjákvæmilegur.
Já, þetta er búið hjá henni, aumingjanum svorna, og aungin leið að skila skömminni; ekki einusinni Sjálfstæðisflokkurinn hefir ekki géð í sér til að taka við slíkum óþrifnaði. Nú þarf Bjarniben, sem stundum er kallaður Bjarnibóla af vinum hans, að sækja nýja telpu til að setja í ráðherrastólinn sem losnar þegar búið verður að fleygja jómfrú Reykfjörð úr húsi. Sagt er að Bjarniben og sjálfstæðissamherjar hans líti mjök til þess að fá fimmtán ára stúlkukind af góðum ættum í stólinn sem losnar þegar Reykfjörð verður fokin út í veður og vind.
En að öðru: Hvur man ekki eftir frú Ingveldi og Máríu Borgargagni þegar þær vóru drukknar á fjöllum ásamt vondum félagsskap, orðlögðum hórkörlum og fyrirlitlegum skítapokum. Eiginmenn þeirra stallsystra vóru einsamlir heima og grunaði ekki neitt. Það fór nú svo að að þær frú Ingveldur og Borgargagnið kómu heim úr fjallaferðinni uppsmitaðar af hryllilegum kynsjúkdómi, sem kenndur hefir verið við hjarðsveina. Skiptu heldur aungvum togum að innan sárafárra daga vóru eiginmenn þeirra orðnir fársjúkir og Kolbeini var vart hugað líf í rúman hálfan mánuð.
Naut engra sérkjara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í dag tók séra Atgeir fryggðina í misgripum fyrir friðinn
- Á meðan bysskubbi svelgdist á í stólnum söng síra Baldvin hve...
- Grjótari og Jakobsleiðin á hálendi Íslands
- Hún elskar hann en hann elskar hana að meðaltali frekar lítið
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Til heiðurs nýrri ríkisstjórn
- Göglin, þjófræðið, og auðvaldspervertarnir
- Vér óskum emírítusnum innilega til hamingju með glæsilega ákv...
- ,,Hjónabandið er samábyrgð tveggja andlegra öreiga"
- Álfabakkamúrinn á eftir að reynast fólki vel; þökk sé Degi og...
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.12.): 14
- Sl. sólarhring: 169
- Sl. viku: 1254
- Frá upphafi: 1542514
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 1107
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007