Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2021
Fríða litla lipurtá,
lekur í burtu, rauð og brún og grá.
Hún dansaði við feita Djöfulinn,
og dúndraði skoti á afa sinn.
Fríða dansa aldrei má,
hún er svo rangeyg,
reið og fúl og blá.
En hún dansar og dansar eins og naut.
Daníel kurfur á eftir henni
afmorsörvum skaut.
En Fríða er fólsk og stirð lund,
hún fláði stegginn upp við veggin
eins og dauðan hund.
Svona orktu skáldin á Íslandi fyrir miðja síðustu öld. Svo komu Haukur Morthens og Raggi Bjarna og klömbruðu lagi ofan á skáldskapinn og sungu fyrir ungdóminn, þá miðaldra og þau gömlu skör sem ekki voru öll sem þau voru séð. Í þá daga var ekkert kynslóðabil, ekkert unglingavandamál og allir voru vel að sér frá fimm ára aldri í leyndardómum dodosins og fræðum sem lúta að fjölgun mannkynsins. Í dag veit enginn neitt í sinn haus. Þeir yngri halda að gamlingjarnir séu einhver önnur dýrategund en unga fólkið og hafa ofan í kaupið ekki hugmynd um hvernig mannlig tímgun fer fram og því má búast við að hin fræga skepna hómó sapíens verði útdauð áður en varir.
En Fríða, sem fyrrum var kölluð ,,lipurtá", er enn á lífi, að vísu afgömul og rám eftir að hafa reykt Camel í sjötíu og fimm ár. En það má kérlíngarkösin eiga að hún dansar ennþá og á það til að láta illa. Á dvalarheimilinu hafa orðið róstur út af gömlu konunni, karlar slegist um hana, því Fríða kann enn að kveikja upp náttúruna í útafdauðum karlahjössum. Hún kom eitt sinn fram úr herberginu sínu á Hrafnistu, kviknakin, og valhoppaði marsúrka um gangana og gömlu gripirnir tóku strax við sér eins og þeim hefði verið gefinn allt og stór skammtur af víagra í æð. Það kveld var mikið fjör og ein kerlingin varð meira að segja ólétt um nóttina eftir Begga Munkaskalla þó hún væri hátt komin á níræðisaldur.
Fórnirnar alveg þess virði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svo lengi sem hægt verður að halda liðinu við áfengisnautn verður jaz spelaður á vertshúsinu Jómfrúnni. Og þar eð jazinn er fag, þá setja raftarnir, sem sitja að sumbli og þykjast vera að hlusta, upp mikilvægan gáfumannasvip. Og sumir látast verða svo snortnir af jazinum, að þeir að vætan fer að seytla niður af stólsetum þeirra, gölir taumar sem varða að polli á gólfinu eða útipallinum. Eitt sinn fengu vertarnir á Jommfrunni ofurspilarann Jón Glám gítarleikara til leika jaz utan við vertshúsið. Fljótt kom í ljós að Jón Glámur gítarleikari var ekki kominn til að gutla við jazföndur og hóf því tónleikinn með því að þjóta beint inn í trítilspænandi tóndæmi svo við lá að strætisvagninn sem átti leið hjá lenti á ljósastaur. Sem betur fer tókst bifreiðarstjóranum að sveigja hjá staurnum en hafnaði þess í stað á hliðinni til handan við strætið.
Eftir að Jón Glámur hafði lokið tóndæminu vatt hann sér þegar í stað í forleikinn af gítarsymfóníunni, sem hann samdi í krassandi vímu til heiðurs Myrkrahöfðingjanum. Þetta er vandasöm tónsmíð, sem krefst öflugra tækja, svo sem 50.000 watta magnara hið minnsta. Eflaust hefðu allir dottið í dauðarot hefði Jón Glámur haft verkfæri sín inni á Jómfrúnni og leikið þar yfir fólkinu. En af því að þetta var útitónleikur á góðviðrisdegi sátu gestirnir úti með full borð áfengis fyrir framan sig. Síðar var haft eftir vertinum, að gítarleikur Jóns Gláms hefði verið svo stórfenglegur þennan dag, að allri gestirnir hefðu mígið undir í stóla sína og völlurinn verið einn hlandvaðall. Hann bætti því við, að í það skipti hefðu viðskiptavinir hans fengið mikið fyrir péníngana sína.
Í annað sinn fór Jón Glámur gítarleikari vestur í Hnífsdal til að flytja Vestfirðingum jaz. Þegar tónleikurinn átti að hefjast var slangur af körlum og kerlingum mætt í félagsheimilið. Sumar kerlingarnar voru drukknar en flestir karlarnir við skál, því þau héldu að þannig ætti fólk að vera þegar það hlustaði á jaz. Svo smá fylltist húsið og Jón Glámur sté á svið, væddur rafgígju sinni og kveikti á magnaratólunum, sem voru svo fyrirferðarmikil að þau tóku yfir allt baksviðið. Þetta voru ein hundraðþúsund wött með neistaflugi og karlarnir og kerlingarnar bókstaflega frusu þegar fyrstu tónarnir riðu yfir þau eins og hamslausar holskeflur í fárviðri vestur af Halmiðum. Þeir sem gátu, tóku til fótanna, en hinir tróðust undir, þegar ljóst varð hvers kyns var, en allir reyndu þó að taka á rás burt úr húsinu. Svo hafa aldraðir Vestfirðingar frá sagt og staðfest í mín eyru, að aldrei hafi þeir á langri æfi komist í aðra eins mannraun og að sitja undir jaztónleik Jóns Gláms gítarleikar í fáeinar mínútur. Gnýrinn hafi verið þessháttar, að engu hafi verið líkara en jörðin væri að rifna undan fótum þeim en stólar og borð kastast til og frá eins og í ógnarveltingi á hafi úti.
Samfélagslega ábyrgt að halda Sumarjazzinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2021 | 23:30
Langafasonur Garðars Hólms aflýsir hverjum tómleikunum á fætur öðrum
Já, hann minnir á Garðar Hólm þessi Andri Bocelli og ekki að undra því Garðar okkar Hólm langafi Andra. Þannig var nefnilega mál með vexti, að þegar Garðar Hólm hélt fræga söngskemmtun fyrir páfann í Róm, kynntist hann þvoglumæltri kvensvipt á bak við Péturskirkjuna og gjörði sér lítið fyrir, svo sem Íslendinga er háttur, og barnaði kvendið. Svo fæddist stúlka, sem kölluð var Gella Pocatella, hún var amma Andra Bocella. Nú, Gella Pocatella eignaðist dótturina Holmdellu Razzi, sem aftur eignaðist son með flagaranum Bocella eldri og var þar kominn í heiminn Andri Bocelli sjálfur og gjörðist þegar ópérusöngvari eins og langafi hans heitinn.
Eins og menn vita gekk ekki andskotalaust fyrir Garðari Hólm að halda tómleika á Íslandi. Hvað eftir annað voru stórtómleikar auglýstir í Reykjavík en þeim var því miður aflýst með stuttum fyrirvara ellegar söngvarinn Garðar Hólm mætti ekki, lét ekki sjá sig. Þó er almennt álitið og viðurkennt, að Garðar Hólm sé langmestur söngvari íslenskur, fyrr eða síðar, og séu aðrir hérlendir söngmenn eins og tístidúkkur eða raddbilaðir mávar á öskuhaugum við hlið hans.
Nú ætlar sagan að endurtaka sig hjá barnabarnabarni Garðars Hólms hvað tómleikahald í Reykjavík varðar. Það hyllir undir að fyrirhuguðum tómleikum hans, númer tvö í röðinni, verði aflýst. Þegar þar verður komið er jafnvíst að reynt verði að halda þarnæstu tómleikar Andra á svölum Alþingishússins. Og þeir falla auðvitað niður vegna fjarveru listamannsins. Þá verður farið að halla verulega undan fæti hjá Andra, eins og hjá langafa hans í sama punkti ferilsins, og loks finnst hann kirfilega andaður á almenningssalerninu að Bankastræti núll. Garðar Hólm fannst látinn í stofnuninni hjá eftirlitsmanninum eftir að hafa etið sér banvæna töflu til að binda endi á tómleikaferðir sínar í eitt skipti fyrir öll. En stofnun eftirlitsmannsins var sem kunnugt er undanfari stofnunarinnar að Bankastæti núll.
Andrea Bocelli ætlar til Íslands sama hvað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2021 | 21:25
Mun meiri hætta á kröftugu samfaragosi nú en hamfaragosi
Nei, það er engin ástæða til að spá hamfaragosi. Hinsvegar er þeim mun meiri hætta á kröftugu samfaragosi með öllum þeim hörmungum sem þessháttar gosi fylgir. Fyrir tíu árum varð ógurlegt samfaragos að heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar manns hennar. Þar vóru þá staddir ásamt þeim hjónum fáeinir júnkar úr ríkisstjórninni, ennfremur þekktir fákar úr stjórnarandstöðunni, bankagraddar og fjárfestingafól og hryssur nokkrar allvakrar. Þessu mannvali til viðbótar vóru þar á staðnum ekki ómerkari persónur en Máría Borgargagn, Indriði Handreður, Brynjar Vondalykt, Óli þ. Apaköttur, Sigurveig Dræsa og séra Atgeir p.t. Fjallabaksen.
Það var ekki fyrr en frú Ingveldur dró upp stríðsrommið og stóran bréfpoka fullan af dufti, sem var gríðarlegur mulningur úr víagra, kókaíni, amfetamíni og rottueitri, að hitna fór í kolunum svo orð var á gerandi. Og sem hleypt væri af fallbyssu stökk allt liðið á sama augnablikinu á stofugólfið af þeim freyðandi og froðufellandi losta, sem Borgargagnið , Handreðurinn, Kolbeinn og Vondalyktin þrá og dreymir um nætur sem daga. Þar kom, að ráherradurgur, digur þjór og ístrumikill, tók niðrum sig buxurnar og hugðist leggja frú Ingveldi í miðja kösina til þembingar, en fékk að launum krepptan hnefa frú Ingveldar beint á trýnið og steinrotaðist; féll hann þegar í stað í valinn með nefið millum þjóhnappa Vondulyktarinnar, sem lá þar rymjandi eins og göltur, abelsínugölur í framan og slefandi.
Í þessum hamförum gengu flestar af fyrrnefndum hryssum af vitinu og með þrjá stjórnmálamenn og einn bankasjéff var farið með beint á vitfirringahælið og margir aðrir áttu við mikla sál-og geðræna koplexa og ónáttúru að etja lengi á eftir. Kolbeinn Kolbeinsson missti fljótt meðvitund í samfaragosinu og varð því ekki meint af, en Máría Borgargagn iðaði látlaust í heilan mánuð eins og grálúsugur kattarskratti; það þókti undur fróðlegt að horfa á hana sitja í stól þennan eftirminnilega mánuð. Það var nú meiri helvítis eftirálostabruninn atarna! Eins og gefur að skilja varð þessi atburður um verslunarmannahelgi og einhvern veginn í fjandanum hafði rakki nágrannans komist í samkvæmið á heimili frú Ingveldar og Kolbeins og olli það öðrum viðstöddum miklum heilabrotum óhugnaði þegar frá leið, því mörgum varð hugstætt þegar hundkvikindið kom vaðandi inn og stakk hausnum beint ofan í áðurgreindan bréfpoka og sogaði gríðarlega, einnig lapti dýrið upp lítér sterks áfengis sem farið hafði á gólfið í eldhúsinu. Ber flestum saman um, að Djöfullinn sjálfur í eigin persónu hafi hlaupið í hund nágrannans þetta gleðiríka kveld og því hafi farið sem farið fór. Einmitt.
Engin ástæða til að spá hamfaragosi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2021 | 12:04
Óhamingju vinstrstjórnmála á Íslandi verður allt að liði
Mikið er ég nú orðinn leiður á stjórnmálaflokkum sem sigla eins og ekkert sé undir fölsku flaggi. Verst er ástandið á þessum svokallaða ,,vinstrivæng", en þar hefir um árabil ríkt harðlífi, stöðugur, vísvitandi ruglandi, tækifærismennska af verstu tegund, og hugsjónadofi og þurrð sem tekur út fyrir allan þjófabálk. Síðustu fjóra áratugina hafa lukkuriddarar og sérkennilega athyglissjúkir jólasveinar,sumir í síðkjólum aðrir í pilsi, stormað út á ,,vinstrivænginn" veifandi háskólagráðum og gargandi í taumlausri sjálfsdýrkun: ,,Nú skal ég! Nú skal ég!", þó varla eða alls ekki hafi örlað vinstrimennsku eða sósíalisma í höfði þeirra og brjósti.Það var því engin furða þegar snillingurinn Guðbergur Bergsson rifhöfundur í Grindavík kallaði þetta lið ,,undanrennu af gömlu sósíalistunum".
Saga róttæks sósíalisma á Íslandi er saga útþynningar, sem náði hámarki þegar borgaralegir menntamenn og spjátrungar náðu að yfirtaka sósíalísku hreyfinguna og verkalýðshreyfinguna, gelda stéttabaráttu verkafólks og ýta henni út í horn sem einhverju alveg sérlega púkó og lásí fyrirbrigði sem siðuðu fólki væri auðvitað ekki boðleg. Á þessum grunni, ásamt með því háborgaralega jukki fémínísmanum, einhverju rugli sem þeir kalla ,,frjálslyndi" eða eitthvað þessháttar og harðkapítalískri ,,hagfræði" Vesturlanda, voru um síðustu aldamót stofnaðir tveir stjórnmálaflokkar, Vinstri grænir og Samfylkingin, sem gerðu tilkall til vinstrisinnaðra kjósenda og sósíalista. Auðvitað mistókust þessir flokkar algjörlega og úrkynjunin hélt áfram með öllum þeim óheiðarleik og óþverraskap sem slíku fylgir; þeir fóru að rækta hugsjónalausa undanrennuunga, sem eru þeim kosti búnir að vera öldungis óhæfir til stjórnmálastarfa. Í kjölfarið fylgdu ruslflokkar á borð við Pírata, Borgarahreyfinguna og Miðflokkinn. Og allt þóktist þetta lið vera að berjast á móti ,,spillingu" án þess jafnvel að kunna skýr skil á því hugtaki.
Það er orðið býsna langt síðan ég og fleiri fórum að sjá í gegnum þennan subbulega og tilgangslausa loddaraleik í nafni vinstripoletikur og sósíalisma. Það var fyrirséð að vinstrisinnað fólk gat ekki til lengdar unað við uppskafningsflokka til vinstri, og ef ekki ætti illa að fara á ,,vinstrivængnum" væri nauðsynlegt að gera bragarbót þar á og stofna raunverulegan Sósíalistaflokk, þar sem heiðarleiki og mannvit skipuðu öndvegi. Upp úr þessum hugleiðingum gerist það að tækifærissinninn og hugjónaleysinginn Gunnar Smári stökkur eins og úlfur í sauðagæru upp á sviðið og borðar sósíalistaflokk! Hann sá sér leik á borði, þott ekki væri hann sósíalisti, að stofna flokk sem væri meðaltalið af VG og Samfylkingu. Nú honum tókst að safna kringum sig klíku af háfvitlausu fólki, sem nú hefir birt sinn fyrsta framboðslista til alþingiskosninga. Um þessa sorglegu þróun mála er víst fátt annað hægt að segja, en að óhamingju sósíalismans á Íslandi verður allt að liði. En eitt er þó ljóst: Fyrsti framboðslisti ,,Sósíalistaflokks" Íslands vegna alþingiskosninga, er enn ein staðfestingin á úrkynjun vinstripólitíkurinnar, því listinn atarna er á ekkert skylt við sósíalisma heldur eru þarna fémínístar, lukkuriddarar og ekkisósíalistar ásamt lúserum á ferð. En baráttan heldur áfram.
Þór Saari í öðru sæti á lista sósíalista í SV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá hafa fémínístarnir lokið morgunverkunum. Þetta er kjarkaðar kérlíngar úr Fémínístaflokknum, sem af einhverri ókunnri ástæðu heitir á opinberum pappírum ,,Sósíalistaflokkur Íslands", marghertar í fjandskap gegn karlkyninu af orðlögðum sæmdarfrúm og maddömum á borð við Gunsa Smára, Þór Saari og Amríku-Vidda. Já, og í morgun þustu fémínístarnir úr Fémínístaflokknum í einum samheldnum hópi, þær vóru tvær saman, að alsaklausum, vanfærum konum, sem komnar voru á fund heilbrigðisyfirvalda til sprautunar. Þær fémínísku voru greinilega í fölskvalausum ham og orguðu og veinuðu að kynsystrum sínum ófrískum, og kvenkyns starfsmönnum heilbrigðismála, vægast sagt hryllilegum slagorðum úr reynslubanka fémínísta í Fémínístaflokki hundrað og eins Reykjavík.
Þetta var að sönnu fjarska lífleg uppákoma og fémínístarnir í fantamiklum aktívístaham og görguðu að þeim óléttu að þær dræpust allar sem ein ef þær leyfðu andskotans feðraveldinu að sprauta þær. Og aðgerðin tókst svo vel, að lögreglumenn úr varðsveit Hálfdáns Varðstjóra vor kvaddir til að sækja fémínístana og færa þá Varðstjóranum. En bak við næstu húshorn lágu húsbændur fémínístana í leyni og fylgdust vel með framvindu mála. Á sama tíma og fémínístarnir létu til skarar skríða gegn feðraveldinu og konum sem er þungaðar af karlmannsvöldum, birti Áslaug Arna dómsmálaráðherra tímamótagrein í blöðum til frelsunar Kóvíðs nítjánda og nauðsyn þess að blása honum eins og stormsveipi yfir þjóðina til að fá úr því skorið hvort nokkur veikur eða drepast af honum. Það er sannarlega skammt stórra högga millum í fémínískum aktívísma þessa dagana og kætast nú efrimillistéttarfémínístar landsins í einum kór, eins og vonlegt er.
Á lögreglustöðinni tók Hálfdán Varðstjóri hinum orðljóta aktívísta Fémínístaflokks Gunsa Smára tveimur höndum, en sem kunnugt er eru höndur Hálfdáns Varðstjóra aungvar kvenmannshöndur og var því ekki við sérlega góðu að búast af hans hálfu. Á undraskömmum tíma var allt aktívístaloft úr fémínístafraukunni frammi fyrir Varðstjóranum, sem þegar var orðinn ber að ofan og til alls líklegur. Enda meðgekk blessuð litla dúfan, að hún hefði látið ljót orð falla á vettvangi; enn fremur, að búið hefði verið að trylla hana upp í Fémínístaflokki Íslands, Miðfótungaflokknum og Sjálfstæðisflokknum; og að hún vissi ekki lengur í þennan heim né annan, nema hvað hún héldi að hún væri fémínískur aktívísti, sem þekkti ekki muninn á hægri og vinstri því henni hefði verið sagt að hægri og vinstri væru úrelt þing. Því til viðbótar staðhæfði aktívístinn að á Íslandi væri stéttlaust þjóðfélag að öðru leyti en því að þar væru til húsa tvær stéttir, feðrastétt, sem væri alvond, og kvennastétt, sem væri svo undurgóð og réttlát. Svo færði Hálfdán Varðstjóri hina fémínísku drotningu inn í fangaklefann og lét hana taka þar út sína refsingu.
Handtekin fyrir mótmæli við bólusetningu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2021 | 12:38
Ennþá er mörgum alvarlegum spurningum ósvarað
Þá er Ísland að verða abelsínugölt eins og Trumpurinn. Það er héld ég ekki verra og í það minnsta skárra en það verði náfölbleikt eins og afturgangan Bíden bandaríkjaforseti. Það er nú ljóta helvítis vofan þessi Bídur, blóðugur upp að öxlum. Svo halda einhver höfuðveik íslensk roðhænsni að Bídur þessi sé ógnar vinstrimaður, sosialist, gott ef ekki róttækur sem slíkur í þokkabót. Sérkennilegur rottuhópur platsosialistar í 101 Reykjavík.
En að efninu: Fyrir tilstilli Sjálfstæðisflokksins, einkum snarbilaðasta hluta hans, var Ísland opnað upp á gátt fyrir Kóvíð nítjánda, - en til hvers veit enginn. Kannski telja hinir snargeggjuðustu að nauðsyn sé á að grisja íbúahópinn, þeim finnst of mikill kostnaður af sumum hópum sjóðfélagsins og hafræði og sparnaður væri fólginn í stampa einhverju af kostnaðarfreka liðinu fyrir ætternisstapa. Þá eru upp glæstar hugmyndir, aðallega hjá háloftahægrinu, að Kóvíður nítjándi sé plat, þetta sé í mesta lagi vægt kvef, stundum með skitu, stundum með lítilsháttar höfuðverk; það er auðvitað nauðsynlegt koma að soleiðis gleðivírúsi með öllum tiltækum ráðum inn í landið.
Og frá Kóvíði nítjánda að öðrum aðkallandi atriðum. Það var þó densilegt að aumingja kerlinguna hana Ölmu í upplýsingaþættinum í morgun; hún var eldrauð niður á bringu eins og konan sem var að tala við Sjána Söng, eða Kidda Konn eins og hann er víst kallaður, í Kastljósinu hér um árið. Vér erum blóðhrædd um að Alma hafi lent í einhverju voðalegu, sem gjörði hana ekki abelsínugöla heldur eldrauða. Er þetta máske vísbending um alvarlega kóvíðssýkingu; eða móðgaði einhver andstyggilegur antífémíníst blessaða konuna með klámfengnu hjali og dólgslegum aðdróttunum? Það er óhætt að segja, að í dag er mörgum ágengum spurningum ósvarð ennþá, hvað sem verður. Og búið að dauðrota þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og þar með Eyjamenn alla.
Ísland líklega skilgreint appelsínugult | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nújá, helvískur fanturinn hann dr. Sigmundur borgarskipulagsfræðingur og fyrrum bóndi að Hrafnabjörgum hefur þá látið verða af því að leiða skársta gripinn út á blóðvöllinn. Mér er sagt að þetta hafi verið heimaslátrun og nú verði höndlað beint frá býli í fyrramálið. Það líklegast heilmikið frálag af karltuddanum honum Þorsteini og innmatur með mesta móti; en að öðru leyti er ókunnugt um hvað verður slátrið. En andskoti er þetta lúalegt hjá Sigmundi; sá sem fellir bestu skepnurnar sínar verður fljótt fallít, gerður upp, kastað á haugana. Þannig fer fyrir því afbrigði gömlu Framsóknarmaddömunnar, sem Miðfótungarflokkurinn heyrir til.
Áður en Þorsteinn boli mætti til slátrarans hafði Sigmundur látið sníða höfuðið að þremur margfrægum klausturmunkum, án þess að blikka auga. Þegar þeir voru dregnir út, aumingjarnir þeir örnu, lét dr. Sigmundur sér sæma að kalla þá múlasna og haugpöddur. Þvílíkur og annar eins erkifóli verður vart fundinn í nágrenni við Framsóknarfjóshauginn.
En Sigmundur er séður vel og hyggst flikka upp á gretta ásjónu Klausturmiðfótunga með því að gjöra hosur sínar grænar fyrir kjósendum með því að bjóða þeim kvígur, sum meira að segja af erlendu kyni. Og Miðfótungar, sem voru búnir að tala svo illa um útlendinga og helga bænastundir í heilögu Klaustrinu beiðnum til almættisins, að það leiddi alla útlendinga frá Íslandi og að til kæmi ríki heittrúaðra MIðfótunga frá Klaustri á Íslandi. Íslandi allt, Ísland öðrum æðri. Það er ekki nema vona að gamla Framsóknarmaddaman væri venju fremur ill og forn í skapi í kveld og vætti ótt og títt kverkarnar með áquavítinu og hefði verstu hrakyrði, bölv og ragn á vör. Ítrekað nefndi sú gamla nafn myrkrahöfðingjans og talaði um gerpi, rottur og óhræsi.
Listi Miðflokksins í Reykjavík suður samþykktur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.7.2021 kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2021 | 20:59
Furðugáfaðir Eyjamenn og kórvilla norður af Fjallabaksleið eystri
Snilldarlegt og gáfulegt að Eyjamönnum að slá bölvaða andstyggðar brennivínsfyllihátíðina af um verslunarmannahelgina og fresta henni til lok sumars, - það er skohh gáfulegast hjá þeim. Lok sumars, samkvæmt íslenskum hefðum og siðvenjum er kringum tuttugasta október og verður það að teljast frábær tími fyrir drykkju- og kynlífslætin í Herjólfsdal. Það er ekkert með það, að Sjálfstæðisflokkurinn í Eyjum, en í honum eru allir Eyjamenn, verða að í þetta sinn að standa við loforðið og ræsa út alla sína fræknustu brekkusöngvara til að láta þá orga þjóðhátíðarstemmur þókt stormur geysi og farið verði að hylla undir aðventu.
Svo að öðru. Frú Ingveldur fór fyrir sínu fólki í fjalla- og öræfaferð fyrr í þessum mánuði. Hrepptu þau hið besta veður, nema hvað kveld eitt, þau vóru þá stödd norður af Fjallabaksleið eystri, skall á þau þau alveg ævintýralega þykk þoka. Þá var það að þau villtust öll og röngluðu í ýmsar áttir. Það ýrði ú þokunni og varð hrollkalt. En þá ein báran rís er önnur vís. Ofan í staðsetningaróhagræðið, sem af þokunni stafaði, rötuðu þeir þeir félagarnir Indriði Handreður og Brynjar Vonadalykt í enn verri villu en þá þokan skapaði þeim. Þeir lentu, félagarnir, í alvarlegri kynvillu á heldur ókristilegum stað, drulluflagi undir stórum steini sem hross og sauðfé hafði traðkað niður fyrir skömmu.
Já, og þegar kapparnir voru að athafna sig á siðferðilega óverjandi hátt í hrossaskítsblandaðri leðjunni undir steininum, létti þokufjandanum allt í einu og miðnætursólin lýsti á svipstundu upp hina dýrðlegu náttúru norður að Fjallabaksleið Eystri. Ekki vitum vér hvað rétt er um það að segja, en þá birti til, var Máría Borgargagn, kona Indriða Handreðs, fyrir tilviljun stödd eins og tíu faðma frá lostabáli manns síns og Vondulyktarinnar í flaginu. Varð henni litið á þá átt sem henni þókt sem hún heyrði hljóð sem líktust voveiflegum dauða- eða kvalastunum. Svo hefir Máría síðar frá sagt, að í annan tíma hafi hún ekki séð viðbjóðslegri sjón en þá er við henni blasti undir stóra steininum. En áður en lauk höfðu hinir kórvilltu menn fengið að kynnast broddstaf Borgargagnsins svo um munaði. Þegar þar var komið þókti vel einsýnt að ekki mundi lengra haldið þann daginn og því sló ferðahópurinn upp tjöldum sínum þarna norður af Fjallabaksleið eystri.
Þjóðhátíð 2021 frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2021 | 12:44
Glöð er vor æska er grýtir eggjum að skólafangabúðum
Samkvæmt þessari góðu frétt, er útlit fyrir að vor glaða æska sé ekki með öllu útafdauð. Um langan aldur hefur fátt annað heyrst af ungmennum Íslands en tölvumók og tölvudauði, en þess á milli ku dýrin æða út til að drekka og dópa þar til þau verða úthverf og öfug, stunda líkamsmeiðingar og kynferðislegt áreiti, sem gefur til kynna að ekki sé þessi lukkupéníngur allur rétt kynjaður. Ef þetta er ekki unglingavandamál þá eru unglingavandamál ekki til. Samkvæmt þeim mæta manni, Flosa heitnum Ólafssyni, voru unglingavandamál ekki til á Íslandi fyrr en eftir að uppþornuð háskólamenni með harðlífi fóru að koma frá Svíþjóð með félagsfrðipungapróf upp a vasann. Og þar sem ekkert var að gera hér á landi fyrir þessa samnorrænu umskiptinga, gerðu þeir sér lítið fyrir og fundu upp unglingavandamál á Íslandi og komust fyrir vikið á spena samfélagsins, sem aldregi skyldi verið hafa.
Þess vegna gleður það oss óendanlega að fá fréttir að aðför öflugra unglinga að öðrum og ógæfusamari unglingum, sem geymdir eru eins og Belsenfangar innilokaðir í skólum um hásumarið. Að fangélsa börn og unglinga að sumri til og breyta skólum í alræmdar fangabúið, sýnir fátt annað en að hinir fullorðnu hafi til að bera hin grimmu og guðlausu hjörtu, sem gjörn eru að fara illa með dýr, gleyma að gefa hundinum að éta og sparka í köttinn, osfrv.
Og æskumenn Reykjavíkur ganga til leiks með fádæma eggjaskothríð, við liggur mannfalli í liði fangabúðabarna. Sem er dálítið sérkennilegt, því vér vissum ekki annað en hinir eggvopnuðu unglingar ætluðu að frelsa börnin sem fallið hafa í ánauð. Á tímum óeirða við Alþingishúsið tókst anspyrnumönnum að skjóta platvinstrikauðann Árna Þór Sigurðsson niður millum Dómkirkju og Alþingishúss með eggi. Fyrir vikið var endemið verðlaunað með sendiherrastöðu, sem hæfi að vísu gangsleysi hans í veröldinni fjarska vel. En hann lá í valnum, en andspyrnumenn hlógu ógurlega að gripnum og örðum þingmennum stumrandi yfir honum.
En framtaka unglinganna með eggin við skólana og skothríðina á Rey Cúbbið er aðdáunarvert og til mikillar fyrirmyndar.
Sitja um börn og kasta í þau eggjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- ,,Karlskömmin þessi Brynki"
- Til umhugsunar 1. janúar 2025
- Ljóðræn athugasemd við Mörtu Smörtu og menningarblætið hennar
- Upp úr námskrá moderne skool kennslukonunnar
- Hvalvertíð hafin milli jóla og nýárs. Sérlegur búhnykkur fyri...
- Fyrir dyrum stendur harðvítug sjálfstæðisbarátta og endaskipt...
- Nú skal karlplágan upprætt í eitt skipti fyrir öll í þágu bes...
- Ákveðinn varðstjóri þarf stundum að gera fleira en gott þykir...
- Misheppnað bankarán er sorglegt bankarán
- Á nýju ári verður hann settur af og fer að borga gjaldþrotin sín
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 5
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 129
- Frá upphafi: 1545298
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 119
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007