Bloggfærslur mánaðarins, október 2022
7.10.2022 | 20:32
Söngur afturfótafiðrildana á Eyri
Víst munum vér hengja þorskinn upp á sporðinum og vinþurrka hann,
en vér verðum að muna að taka hann niður áður en flugan fer að verpa.
Ofar skýjunum leyfist eitt og annað sem ekki þolir dagljósið;
klám í hæstu hæðum, svívirðingar og landráðabrigsl.
Hvað verður um sagnarandann þegar öll vötn verða þornuð á heiðinni?
Og kvenprestur lét sig hafa að kalla síra Baldvin klæðskipting og kynskipting.
Frillur og nornir! Skerið upp herör gegn óréttlætinu
og hakkið hagfræðingana og skítapakkið.
Kolbeinn Kolbeinsson, hvar ert þú?
Buxnalaus í miðstöðvarkompunni með Handreðinn við fætur þér?
Nú er verið að vinna í því að Morgunblaðið og Útvarp Saga fái friðarverðlaun Nóbels,
verði Nóbélsfriðarar, Nóbélsskáld.
Eða er verið að tala um frygðarverðlaunin þeim til handa?
Já. Jomm.
Hlandsteinsgular eru hugsanir yðar,
fémínístar í ruglinu.
En afturfótafiðrildin á Eyri syngja haustljóðin sín
í skugga háfjallamera og heimsvaldasinna.
Halda Eurovision í Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2022 | 18:08
Voðinn er vís ef hættunni er boðið heim
Það er stórhættulegt að leyfa rússneskum hafrannsóknarskipum að valsa átölulaust um landhelgina okkar. Rússnesk hafrannsóknarskip eru með allar lestar stútfullar af gríðarlegum fallbyssum, eldflaugum, kjarnaoddum og kjarnorkusprengjum, fyrir utan óteljandi önnur hryllileg drápstól. Að leyfa þessum andskotum að fara um landhelgina okkar er ógnar mikill slóðaskapur af hálfu stjórnvalda okkar, svo mikill reyndar að réttast væri að setja þau af fyrir vikið.
En við getum líka verið Rússum þakklát fyrir að rannsaka hafið innan íslensku lögsögunnar, því ekki gera aðrir það. Að vísu höfum við einhverskonar fálkalega Hafrannsóknarstofu, en hún gerir nú ekkert annað en að leigja stórhýsi á morð fjár í Hafnarfirði af valinkunnum pénígaspámanni, leita dauðaleit að loðnu fyrir útgerðarauðvaldsrassana og stunda einskisnýtt netarall á vorin í fjáröflunarskyni, svo þeir eigi fyrir olíu á rannsóknarskipin sín þegar þeir fara að leita að loðnunni sem útgerðarauðvaldsrassarnir eru alveg við að útrýma.
En hvað mundu stjórnvöld okkar segja ef rússnesku hafrannsóknarskipin mundi allt í einu ösla inn Eyjafjörð og Skagafjörð og taka Samherja og gifturíka kaupfélagsstjórann og hans hafurtask á Sauðárkróki traustataki? Eða skjóta Hornbjarg niður með einum vel löguðum kjarnaoddi? Þá þýddi nú lítið fyrir Katrínu, Bjarnaben og ráðsmann Framsóknarmaddömunnar að gera í buxurnar og kvaka eins og skottbrotnir hvolpar.
Heimilt að vísa erlendum rannsóknarskipum frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.10.2022 | 13:49
Móðgun við íslenska alþýðu - og hver samdi buslubænina fyrir paurana 12?
Jæja, svo Saleksbandalag Bjarnaben, frú Halldóru Saleksdóttur, Drífu, Katrínar Jakkó og Höllu Gunnars, Samfylkingarinnar og VG, framsóknarsnatanna í Eyjafirði og Skagafirði, samherjanna og auðvaldsins hafði ekki neitt bitastæðara en Ólöfu Helgu til að bjóða fram á móti Ragnari Ingólfssyni í embætti forseta Alþýðusambandsins. Ja, aumt er það og vesælt. Það ætti hreinlega að varða við lög að etja einfeldningi, eins og þessari Ólöfu, til þess að fremja skrípalæti eins og að sækjast eftir því að verða forseti ASÍ, - og raunar er þetta asnaspark Salekssamfélagsins stórkostleg móðgun við íslenska alþýðu.
Það vill svo skemmtilega til, að daginn áður en frú Saleksdóttir, fröken Snædal og Halla Gunnars hrintu Ólöfu Helgu út í foraðið til að gera sér enn meir til skammar, varð þessi sama Ólöf Helga uppvís, ásamt Agníesku nokkurri sem er gildur limur í ,,verkalýðsmálaráði Samfylkingarinnar" með gömlu frú Saleksdóttur, að hafa vaðið á ólögmætan hátt inn í tölvupósthólf Sólveigar Önnu hjá Eflingu, að henni fjarstaddri, sennilega í þeim tilgangi einum að reyna að snuðra eitthvað bragðbætandi upp, sem þær gætu haft á Sólveigu og gert út af við verkalýðsbaráttu hennar. En upp komst um strákinn Tuma og Ólöf Helga kjaftaði af sér á stjórnafundi í Eflingu, þannig að tölvupóstsinnbrotið lá ljóst fyrir.
Þá var ekki síður hlægileg buslubænin sem tólf ,,verkalýðs"höfðingjar skrifuðu undir. Það er álitamál hvaða endemi það voru sem sömdu þennan bænalestur. Þar koma auðvitað helst til greina fröken Snædal og Halla framkvæmdastjóri hennar. Hinsvegar er næsta ótrúlegt, að undanrennugemlingarnir sem skrifuðu undir hafi getað klórað sig fram úr skáldskapnum frá upphafi til enda, enda þarf til þess sæmilegri lestrarkunnáttu en kyndugar salekskjóður eru þekktar fyrir. Það stefnir því allt í glens og gaman á alþýðusambandsþinginu sem hefst eftir helgi, sem nær hámarki þegar hinu undirförula og öfgafulla Saleksgengi verður í heilu lagi í ruslatunnuna.
Ólöf vill verða forseti ASÍ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2022 | 14:48
Vinkonurnar Drífa Snædal, Katrín Jakobs og Halla Gunnarsdóttir
Ómerkilegt hundsspott Halla Gunnarsdóttir, sem Katrín Jakobsdóttir sendi Drífu vinkonu sinni á kontór ASÍ til að berjast gegn verkalýðssinnunum í alþýðusambandinu og fyrir Salek svikamyllunni. Við munum sum eftir því þegar efrimillistéttarfémínístinn, Drífa Snædal, lét að því liggja að hún væri hætt í VG af því hún þóktist ekki vilja éta skít með þeim flokki meðan hann væri í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Auðvitað fór fröken Snædal aldrei úr VG og hélt ótrauð áfram í fæði hjá Katrínu vinkonu sinni, að minnsta kosti hafa aldrei sést nein sönnunargögn um að Drífa hafi í raun yfirgefið VG. En svo fékk hún Höllu vinkonu sína hjá Katrínu Jakkó vinkonu sinni og réði hana sem framkvæmdastjóra ASÍ án auglýsingar! Mikið fjandi eru þessar vinkonur lágkúrulegar og óheiðarlegar í alla staði. Ojbara. Og nú stendur upp á hinn hámenntaða efrimillistéttarfémínísta og skoðanaleysingja í forsætisráðuneytinu, fyrrnefnda Katrínu Jakkó, að koma vinkonum sínum, Drífu og Höllu, til hjálpar eftir að þær sturtuðu sjálfum sér niður hjá ASÍ og finna þeim vel launuð jobb. Vér bíðum öll spennt eftir því hvar þessar óþrifatuðrur birtast næst á framagosa- og spillingarferðalagi þeirra eftir að róttæk alþýðan gef þeim verðskuldað spark í rassgatið.
En gefum næst Sólveigu Önnu Jónsdóttur orðið, en hún hefur allnokkra reynslu orðið af vinkonunum sem hér hefir verið á minnst:
,,Halla segist ekki skilja umræðuna um endurvakningu Salek. Það er stórundarlegt ef rétt er. Halla ætti framar flestum að þekkja þá einbeittu vinnu sem að fór í gang hjá forsætisráðuneytinu með mikilli aðkomu ASÍ undir stjórn Drífu Snædal í því að útbúa svokallaða Grænbók um kjarasamninga og vinnumarkaðsmál (undirbúningsvinna við að innleiða Salek-kerfið, undir öðru nafni). Halla var pólitískur ráðgjafi og nánasti samstarfsmaður forseta ASÍ. Hún útbjó t.d. með forsetanum gagna-pakka til að senda Grænbókar-nefndinni en sá pakki innihélt að mestu skjöl og gögn frá tíð Gylfa Arnbjörnssonar, algjörlega eins og þau komu af kúnni. Þótti Höllu þetta fullsæmandi pólitískt innlegg frá forystu ASÍ, og þetta hefði verið sent nema fyrir andstöðu mína og Ragnars Þórs, formanns VR (um þetta má lesa í grein minni Með Salek á sjálfstýringu: Kreppa íslensku verkalýðshreyfingarinnar II).
Halla segir að innan ASÍ séu stofnanir þar sem að takast eigi á um málefni. Hún telur upp þing ASÍ, miðstjórn, formannafundi og málefnanefndir. Þetta er rétt hjá Höllu og á nákvæmlega þessum vettvöngum hef ég ítrekað komið skoðunum mínum á framfæri, krafist svara um ýmis mál, lagt fram gögn máli mínu til stuðnings o.s.frv. Ég hef að öllu leiti virt lýðræðislega vettvanga ASÍ en það sama er ekki hægt að segja um nánasta stuðningsfólk Drífu Snædal; þau hafa haldið leynifundi, og svo auðvitað fyrst og fremst ástundað kviksögur og rógburð í auðvirðilegum tilraunum sínum til að grafa undan málflutningi mínum, og annarra sem að þeim eru ekki þóknanlegir. Jafnvel gengið svo langt að útbúa sérstaka kvenna-póstlista þar sem að starfsfólk ASÍ, forseti og aðrir sem að starfa innan vébanda ASÍ hafa komið saman til að ræða persónu mína og hvernig hægt sé að beita sér í baráttunni gegn forystu minni í Eflingu.
Eitt af fyrstu verkum Höllu Gunnarsdóttur sem framkvæmdastjóra ASÍ var að útbúa sérstakan sérfræðingahóp heildasamtaka launafólks. Hún gerði sjálfa sig að yfir-sérfræðing sérfræðingahópsins. Um það var engin umræða á lýðræðislegum vettvöngum ASÍ. Hún bauð svo til starfa með sér í hópnum hinum og þessum sérfræðingum (frá BSRB, BHM, VR, ásamt öðrum) en gætti þess að bjóða fulltrúa frá Eflingu ekki þátttöku í starfi hópsins. Það var ekki fyrr en ég gerði alvarlegar athugasemdir við það að Efling, stærsta félag verka og láglaunafólks á landinu, væri sniðgengið (á fundi þar sem að framkvæmdastjóri ASÍ skammaði mig fullum hálsi fyrir að dirfast að hafa skoðun, ekki í fyrsta og ekki í síðasta skipti) að forseti ASÍ bauð fulltrúa Eflingar þátttöku í hópnum".
Mig langar ekki með barnið mitt þarna inn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.10.2022 | 21:57
Hr. M. Oz er einkennilega illa ættaður og líkur Gottfreði lækni
Fyrir þá sem eru fáfróðir og ekkert vita, þá er frambjóðandinn og vísindamaðurinn Mehmet Oz sonur Galdrakarlsins í Oz og hefir hann því ekki langt að sækja það að vera brögðóttur. En að karlfjandinn sé sadisti og dýraníðingur kemur á óvart, þar eð faðir hans hefir orð á sér að vera vænn viðskepnur; trúlega hefir Mehmet frambjóðandi þessa ónáttúru úr móðurætt sinni, en kona Galdrakarlsins í Oz er sem kunnugt ef af viðsjárverðri og illa þokkaðri nornaætt; kerlingin er með rauð augu, að hætti nornaættbálksins. Því er svo við að bæta að frægasta formóðir Mehmets var nornin sem afvegaleiddi systkinin Hans og Grétu og ætlaði að matreiða þau sér til gottgjörelsis.
Svo kemur fram að Mehmet Oz er repúblíkani, svona eins og næsti formaður Samfylkingarinnar og Dagur borgmeistari í Reykjavík. Já, og Gottfreð Gottfreðsson læknir. Sömuleiðis, eins og Mehmet, er Gottfreð mikill vísindamaður og hefir meðal annars fundið framsóknarvírusinn í fólk, sem og mótefni gegn þeim hættulega vírusi. Þá greindi Gottfreð læknir fyrstur manna krataeðlið eftir ströngustu reglum vísindanna og var tilnefndur til Nóbelsverðlauna fyrir. Nú, Gottfreð gerði skemmtilegar tilraunir, og gerir enn, með uppgötvanir sínar, til dæmis dældi hann framsóknarvírusum í eiturgrænni upplausn í píratadreng. Það fór illa, píratasveinninn var brjálaður og eftir að hafa engst sundur og saman í tvo sólarhringa samfleytt spýttist höfuðið af honum eins og tappi úr kampavínsbokku. Einnig sprautaði hann fáeina krataeðlisdrauga með nefndum framsóknarvírusum, en það hafði þau áhrif á kratana að þeir urðu ennþá lýgnari og vitlausari en þeir voru fyrir, og var víst ekki á þau ósköp bætandi, að sögn kunnugra manna.
Svo munum við öll þegar Gottfreð læknir var kallaður til Máríu Borgargagns þegar hún hélt heilu hverfi vakandi með ævintýralega trylltum lostaveinum og klámfengnum upphrópunum. Gottfreð var ekkert að tvítóla neitt við læknisaðgerðir sínar að þessu sinni, heldu vóð inn til Borgargagnsins og sprautaði hana með ókenndum vökva eins og villta antílópu í nárann og fleygði henni svo nakinni í baðkarið og fyllti það af jökulköldu vatni. Það er sagt að Máría Borgargagn hafi hugsað sig tvisvar um þegar hún fékk tækifæri til að hrína upp yfir sig af frygð.
Frambjóðandi repúblikana sakaður um dýraníð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2022 | 13:36
Sækir fyrirmyndir í alræmdan meðvitundariðnað
Það er við hæfi að Áslaug Arna gerist Disney-fígúra, það fer henni svo aldeilis vel. Ekki síst vegna þeirrar hörmulegu staðreyndar að þorparinn Walt Disney og fyrirtæki hans hefur einna helst unnið sér til frægðar að taka gömul evrópsk ævintýri og útfletja þau og útvatna svo að ekki stendur steinn yfir steini af hinum upprunalegum sögum. Eða eins og Þórarinn Eldjárn skáld segir í Disneyrímum sínum:
Beint í smiðju bræðra Grimm
beina iðjuhöldar för.
Vinna hryðjuverkin dimm,
Walt í miðju, spenntur, ör.
-----------
Þegar allt er flatt og fláð
filmar Valtýr rústina.
Breytir salti í sykurbráð,
setur kalt á glóðina.
Svo gerðist það að Disney varð úr heimi hallur nokkru fyrr en hann kærði sig um. Sögðu sumir að þarna hafi Guð augljóslega tekið í taumana og virkja karmalögmálið á Walt með því að fella hann úr krabba. En Walt Disney dó ekki ráðalaus áður en hann dó, öðru nær, því hann skipaði svo fyrir að líkami hans væri látinn í frystikistu um leið og hann geispaði golunni. En um þetta segir Þórarinn skáld:
,,Það um listakynjakvist
kveða í máli stystu,
að hann gisti, eigi vist,
oní frystikistu,
uni í dái ísi hjá,
eins og björn í híði,
stari ljáinn ögrand'á
eftir því hann bíði
í kaldri ró að krabbahró
kempur Eirar lækni,
en einkum þó að eflist nóg
affrystingartækni".
Það er sem sé úr meðvitundariðju dólgsins Disney, sem ráðherrann Áslaug Arna sækir sér fyrirmyndir að blekkingarfígúrum gerviveraldar sinnar.
,,Nemur löndin Andrés önd,
argvítugur steggur.
Dauða hönd á dal og strönd
disneyvélin leggur".
(Höf. Þórarinn Eldjárn.
Ráðherra klæddi sig upp sem Elsa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2022 | 23:06
Spillingargulan
Jæja, hvaða framsóknarkurf í Fjósi gömlu Maddömunnar ætli sú gula dragi fram úr erminni til að setja yfir þessa svokölluðu Kvikmyndamiðstöð Íslands? Það héld ég verði nú meiri bögubósinn og með kúamykju í nærbuxunum. Einhverjum datt Björn Ingi í hug, öðrum kynjaður dýralæknir, sá þriðji, afar hrumur og heilabilaður, nefndi Jónas frá Hriflu. Það væri svo sem eftir öðru að gamla Framsóknarmaddaman skipaði ráðsmanni sínum, húskörlum og griðkonum að vekja gamla Hriflon upp af værum blundi og skipa hann yfir kvikmyndaiðnaðinn í landinu. Vitað er að Hriflon sálugi var kvikmyndasinnaður á sinni tíð og hafði hug á að gera kvikmynd um raunveruleg fylliríslæti og ölæði óðra drykkjurúta, sem þeir áttu svo að vera dæmdir til að horfa í kvikmyndahúsi þegar af þeim bráði.
En þókt Sigingi, sú gula og labbakúturinn úr Dölum vestur séu miklir menn þá hafa þau samt aungva burði til að kalla Hriflukarlinn aftur til starfa hérna megin grafar. Þá rennur upp fyrir oss mynd steggsins á Akureyri, hans Björns Snæbjörnssonar verkalýðsforstjóra, hann er sko sannur framsóknarmaður, sem veit hvorki í þennan heim né annan fyrir framsóknaráráttuhegðun, sem stafar af baktéríusýkingu, framsóknarbaktéríunni, sem ræktast í Fjóshaugnum gömlu Framsóknarmaddömunni til dýrðar. Þar er sem sé fundinn sá framsóknarkurfur sem verðskuldar Kvikmyndamiðstöð Íslands til afnota. Vér erum viss um að sú gula ræður karlinn Bjössa Snæ, þó ekki væri nema í spillingarskyni, en Bjössi ku vera að hætta hinu framsóknarkynjaða verkaforstjóravafstri sínu á næstunni.
Þá er vert að geta þess að Framsókn, Sjálfstæðaauðvaldið og Katrín Jakkó hafa í hyggju að véla bandaríska herveldið til að setja aftur upp myndarlega herstöð á Miðnesheiði og þegar það raungerist, eins og fíflin orða það, verður Sölunefnd varnarliðseigna endurreist og yfir hana settur innvígður framsóknarfjóshaugur. Líklega verður það sú gula sjálf, sem gjörist forstöðukvendi yfir Sölunefndinni, því efir nokkru er að slægjast þar sem hermang og hæfileg spilling eru annars vegar.
Staðan auglýst í fyrsta sinn í tuttugu ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2022 | 22:03
Heimsókn borgarbúa í réttirnar í sveitinni
Í þar síðustu viku ákváðu sæmdarhjónin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson, að gerast þjóðleg og efna til ferðar norður í land til að heiðra bændur og sauðfé með því að vera með þeim á réttardaginn. Þau hjóni létu aka sér og vinum sínum í fimmtán manna vagni og allir voru góðglaðir þá rennt var ú hlaði. Í Norðurárdal tóku þau upp tvo veðraða ferðamenn frá Frans og buðu þeim brennivín, svartadauða, og tóku óstinnt upp þegar Fransararnir, sem voru karl og kona, ráku bara tungubroddana í dauðann en vildu ekki drekka. Gripu þá Brynjar Vondalykt og Kolbeinn til sinna ráða og neyddu áfengið ofan í hjúin með valdi, svo þau urðu á augabragði draugfull. Er þar var komið sögu gjörðu Kolbeinn og Indriði Handreður sér hægt um vik og fóru að áreita ferðalangana á kynferðislegan hátt, en þau vildu ekki þýðast gestgjafa sína og því varð það úr, uppi á miðri Holtavörðuheiði, að þeir létu bifreiðarstjórann stöðva bifreiðina og köstuðu frönsku hjónaleysunum út. Þetta var steinsnar frá heimili ráðskonunnar á Holtavörðuheiðinni og munu þessi ólánssömu ferðalangar hafa lent í klóm hennar.
Loks komust frú Ingveldur og þau í hina frægu Krossheimarétt á Hæðum. Nýbúið var að reka safnið, sem taldi kringum tuttuguþúsund fjár, inn í réttina og og þegar brostinn á mikill ys og djöflagangur. Hundar slógust eins og grimmir úlfar og pardusleónar við réttarvegginn, en inni í réttinni sjálfri var kvenfólkið farið að staupa sig í sífellu. Brátt var brostið á algleymi og Kolbeinn ekki seinn á sér að fífla eina húsfreyjuna úr sveitinni og velta henni skríkjandi og frísandi inn í einn réttardilkinn, sem byrjað var að draga í. Svo kom bóndi húsfreyjunnar að henni og Kolbeini og barði hann og dró síðan að réttarveggnum og velti honum þar yfir. Upp úr þessu byrjuðu slagsmálin og var frú Ingveldur fljót að rota tuttugu manns, allt framsóknarfóla að hennar sögn. En Indriði Handreður var grátt leikinn af ólmum sveitalubbum, sem að skilnaði teymdu hann burt af vettvangi á leyndarlimnum og böðuðu hann upp úr forarvilpu, sem hafði myndast þegar sauðféð var rekið inn í réttina um morguninn.
Um kveldið, þegar frú Ingveldur og hennar fólk hafði loks sloppið undan bændalýðnum fóru þau eins og eldur millum bæja í sveitinni og létu hendur sópa og höndur skipta og létu í alla staði ófriðlega. Og er þau koma að Ásbjarnarkeldu var þeim vörnuð innganga í bæinn svo að þau lögðu eld að að honum og svældu íbúa þess úr eins og refa úr greni og létu þá finna rækilega til tevatnsins þar á hlaðinu á Ásbjarnarkeldu. Að svo búnu héldu þau heim. Þókti frú Ingveldi og hennar fólki sem ferðin hefði tekist í alla staði vel og verið hin ákjósanlegasta skemmtun.
Ofboðið eftir ölvun og slæma hegðun stuðningsmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.10.2022 kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2022 | 20:17
Vér þurfum ekki lengur vitnanna við
Það þarf víst ekki frekar vitnananna við, fyrst svo illa er komið fyrir Deginum Bé, að hann er farinn að veita sér verðlaun fyrir ókláruð verk. Sjúkleiki að þessu tagi bendir til að nýfrjálshyggjurefurinn Dagur hafi fengið krataeðlisvírusinn í bæði heilahvel, sem og í litla heilann og sjálfa blágörnina. Þegar svo er komið eru batalíkur engar og sjúklingurinn verður að sitja uppi með það hlutskipti að vera til athlægis það sem eftir er ævinnar. En svona hefir þetta verið hjá krataeðlishöfðingjunum og nægir í því sambandi að nefna Gylfa Þorn, John Baldwin, Sighvat, Jóhönnu og Ingibjörgu Sólrúnu; allt var þetta fólk hlálegt í rembingi sínum og kom aungvu til leiðar nema fáránlegu gaspri og montbelgingi.
En tilfellið með Daginn er alvarlegt og má búast við að hann muni delera daglega héðan í frá þar til hann verður tekinn úr umferð. Það eru náttúrulega algerð firn, að einn aumur borgmeistari í Reykjavík taki upp á að verðlauna sjálfan sig, það asnastrik að verlauna sjálfan sig er eitt og sér nógu vitlaust og niðurlægjandi fyrir viðkomandi, en að verðlauna sig fyrir hrákasmíði, sem trauðla verður að veruleika, er svo út úr korti vitsmuna, að ekki er einusinni hægt að brosa að slíkri fásinnu og óhæfu. Þetta er sambærilegt við það að borgmeistarinn æddi á hvurjum degi úr Ráðhúsinu og upp í Bankastræti og pissaði þar miðja götuna, eða leysti jafnvel buxur sínar það fyrir allra augum og skildi eftir sig verksummerki sem vegfarendur hefðu hvorki géð né lyst að að leiða augun að, - og stöðva að sjálfsögðu alla umferð um strætið á meðan.
En það er ekkert nýtt á Íslandi að oddvitar og sveitarstjórar verði brjálaðir og fremji hin afkáralegustu axarsköft, sem þeir þurfa aldrei að svara til saka fyrir, enda eru þeir ábyrgðarlausir eins og aðrir brjálaðir menn, hvað þá að nokkrum komi til hugar að færa þá í óðsmannsskyrtu og koma þeim fyrir í rimlastíu á viðeigandi heimili. Það er allt svo frjálslegt í svona alvarlegum málum á Íslandi, að sagt er að líbérísmi þessu tagi sé að kalla óþekktur með öðrum þjóðum. Ef sveitarstjóri, segjum í Namibíu, færi að verðlauna sig fyrir verk sem ekki væri búið að vinna væri honum óðar komið fyrir á samherjatogara þar ytra og fengi ekki að koma í land fyrr en eftir hálft annað ár. En í Reykjavík mega Dagurinn Béé, Heiðaleiða og Holukarlinn stunda krataeðlisfávisku að vild án þess að nokkur geti rönd við reist.
Veitti sér verðlaun fyrir hálfklárað verk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Búist er við tímabæru andáti þeirrar gömlu á hverri stundu
- ,,Skipulögð starfsemi" Flokks
- Sú á nú eftir að fá sína sálumessu yfir sig eins og Birgitta ...
- Aðför að lýðræðinu og saga af ferð á hvalaslóðir
- Mun alvarlegri atburður en ætlað var í fyrstu
- Erlendur njósnari settur á Nonnýboy til að kanna hvalablæti hans
- Gunter Sachs var glaumgosi en þó var Indriði Handreður honum ...
- Af óviðunadi afvegaleiðingu ungmenna
- Vinn ei það fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans
- Heimska og dómgreindarleysi villuráfandi þjóðar staðfest
Bloggvinir
- Níels A. Ársælsson.
- Vésteinn Valgarðsson
- Sveinn Elías Hansson
- Guðbergur Egill Eyjólfsson
- Þórbergur Torfason
- Guðfríður Lilja
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Bjarki Steingrímsson
- Pálmi Gunnarsson
- Grétar Mar Jónsson
- Ásdís Helga Jóhannesdóttir
- Rúnar Sveinbjörnsson
- Þorvaldur Þorvaldsson
- Rauður vettvangur
- Björgvin R. Leifsson
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Einar Ólafsson
- Baldur Hermannsson
- Dætur og synir Íslands.
- hilmar jónsson
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Þórdís Bára Hannesdóttir
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Hulda Haraldsdóttir
- Óskar Helgi Helgason
- Heiða Þórðar
- Helgi Guðmundsson
- Sigurður Sigurðsson
- Baldur Fjölnisson
- Birgitta Jónsdóttir
- Ísleifur Egill Hjaltason
- Reynir Andri
- Rúnar Karvel Guðmundsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Auðun Gíslason
- Jón Snæbjörnsson
- Rannveig H
- Magnús Jónsson
- Steingrímur Helgason
- Hallgrímur Guðmundsson
- Ársæll Níelsson
- Brynja Hjaltadóttir
- Fríða Eyland
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Ólafur Þórðarson
- Eygló Sara
- Lúðvík Lúðvíksson
- Þorsteinn Briem
- Ester Júlía
- Svava frá Strandbergi
- Björn Grétar Sveinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Sigurbjörn Friðriksson
- Ragnar Páll Ólafsson
- Páll Ingi Kvaran
- Jakob Jörunds Jónsson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Jóhann Elíasson
- Óskar Arnórsson
- Bergur Thorberg
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Sæþór Helgi Jensson
- Eyjólfur Jónsson
- gudni.is
- Sigurður Sigurðsson
- Alma Lísa Jóhannsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Guðni Ólason
- ThoR-E
- Arnar Guðmundsson
- Þór Jóhannesson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Himmalingur
- Guðjón Baldursson
- halkatla
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Einar Sigurjón Oddsson
- Haukur Nikulásson
- Félag Ungra Frjálslyndra
- Heiða
- Jakob Falur Kristinsson
- Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
- Steingrímur Ólafsson
- Magnús Þór Hafsteinsson
- Sigurbjörn Svavarsson
- Landrover
- Valla
- Vilmundur Aðalsteinn Árnason
- Vefritid
- Sigríður B Sigurðardóttir
- Ónefnd
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Þórarinn Eldjárn
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Jón Ragnar Björnsson
- Hlédís
- Einar B Bragason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Árni Karl Ellertsson
- Hamarinn
- Hamarinn
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hörður B Hjartarson
- Jack Daniel's
- Jón Bjarnason
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Kristján P. Gudmundsson
- Linda
- Rauða Ljónið
- Sigurður Haraldsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 58
- Sl. sólarhring: 132
- Sl. viku: 216
- Frá upphafi: 1539499
Annað
- Innlit í dag: 50
- Innlit sl. viku: 184
- Gestir í dag: 50
- IP-tölur í dag: 49
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007