Þar eð Íslendingar eru afburða menningarlega sinnaðir kemur ekki á óvart að þeim hafi tekist fljótt og vel að bera apabóluveiruna hingað. Við fyrstu sýn er ekki annað hægt en að fagna þessum merka áfanga, sem svo sannarlega mun veita birtu og yl í menningarþyrst hjörtu landsmanna. En ef málið er skoðað nánar kemur í ljós að vér Íslendingar eigum í okkar röðum allmarga apaketti, sem að vísu eru taldir til manna og hafa kennitölu og svokölluð borgaraleg réttindi. Apakettina þekkjum vér helst úr stjórnmálalífi voru, en á því sviði hafa þeir verið furðu áberandi. Þessum apaköttum er mikil hætta búin af apabólunni og ekki viljum vér sýna útlendingum ráðherra sem allur er útbíaður af bólum og kaunum.
Nú kann einhver að segja, að aunginn í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur og Bjarnaben sé apaköttur og því sé ímyndarhætta Íslands útávið á lægsta hættustigi. En það er nú eitthvað annað. Minnsta kosti einn af ráðherrunum er apaköttur, svo hjálpi mér Guð, meira að segja með skott og hvaðeina ef tekið væri niðrum hann. Ástandið er sem sé mun alvarlegra en margir töldu. Hvernig haldið þér það væri fyrir þjóðina ef fjölmargir frammámenn hennar mundu smitast af viðbjóðslegri vírúsbaktéríu úr óþrifalegu aparassgati? Já, drengir mínir, það lítur illa út núna fyrir ímynd Íslands meðal siðmenntaðra þjóða, því í sannleika sagt er virkur möguleiki á að ríkisstjórn Íslands verði á svipstundu að fráhrindandi hrúgu af bólusóttargemlingum, sem gjöra sér að leik að ota kaunum sínum framan í sendimenn annarra þjóða, sem og ferðimenn. Þetta gæti þýtt að ferðimenn færu að forðast landið og ferðimannaiðnaðurinn færi í rúst. Þér getið rétt ímyndað yður hvernig ráðherrarnir munu bera sig að við að láta smitast af apabólunni. Það verður líklega heldur óhrjáleg sjón að verða vitni að þessháttar drulluskap.
![]() |
Fyrstu tilfelli apabólu greind á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2022 | 22:09
Hvaða innblástur var það Þórhildur mín Sunna?
Með leyfi að spyrja: Hvenær hefir Katrín Jakobsdóttir haldið innblásnar ræður? Því miður hefi ég aldrei heyrt neitt í þá áttina frá þessum kynduga uppvakningi Flokkseigendafélags VG, og er ég þó búinn að fylgjast grannt með ræðubrögðum hennar frá því hún villtist fram á sjónarsvið stjórnmálanna. Allra síst hefir þessi prinsessa tómleikans og sýndarmennskunnar skolfið af innblæstri í ræðustólum landsins fyrir hönd þeirra sem minnst eiga og erfiðast eiga um vik. Hins vegar hefir hún lagst þegjandi á árar með valdinu, auðvaldinu, samherjunum, svikurunum í hinni sósíalísku hreyfingu á Íslandi, það er nú allur innblásturinn sem bærst hefir í hjarta forsætisráðherra okkar, sem slær lengst til hægri í brjósti hennar.
Hvernig var það annars þegar vinstri armi VG leist ekki á blikuna í þegar flokkurinn var í ríkisstjórn með Samfylkingunni og Steingrímur og Jóhanna lögðu alla áherslu á að þóknast hinu vestræna auðvaldi í smáu og stóru og krataeðlisfinngálknin reyndu að ljúga hvað þau máttu um að hjálpræðið fælist í auðvaldsbákninu ESB? Allt reddaðist ef þjóðin væri svipt sjálfstæði sínu og fullveldi og legðist eins og lúbarinn hundur undir ofurvald stórauðvalds og heimsvaldasinna. Jú, Katrín Jakobsdóttir, þá varaformaður VG, var ekki innblásnari í þann tíð en að fylgja Stenngrimi, Swbbóskektinu og Álfheiði athugasemdalaust og hunds af tryggð. Hún, varaformaðurinn sem átti að vinna að sáttum innan flokksins, tók einarða afstöðu gegn sósíalistunum í VG; talaði ekki einusinni við þá og sýndi þeim fullt tómlæti og þögn. Ja, þvílíkur vesalingur.
Já, þvílíkur vesalingur og þvílíkir vesalingar þetta hrafl af hugsjónalausum taðálfum sem enn hjara innan vébanda VG. Svo heyrði ég Swandeesý samherjaráðherra tala um sjálfa sig sem sósíalista fyrir fáeinum dögum í útvarpinu! Hvern andskotann var konugarmurinn að meina? Átti hún kannski bæði við sig og flokkstætinginn sinn að þau væru sósíalistar? Það skiptir svo sem litlu máli hvað sú kloflanga mýrarfrenja lýgur og bullar; hún og VG eru jafn víðsfjarri sósíalisma og Pétur Ottesen og Hákon í Haga voru á þeirra velmektardögum. Hvað var þessi giljagrýla og flokkseigandi að bendla sjálfa sig við sósíalisma? Tók hún ekki fullan þátt í með Stenngrimi, Álfheiði og hinu undanrennuhyskinu, gera sósíalisma að bannorði innan VG, sem alls ekki mætti heyrast úr munni flokksmanna? Ekki man ég betur. En nú liggur ljóst fyrir af hverju þetta ólánsfólk lagði bann við sósíalisma innan VG og vildi engin tengsl við verkalýðshreyfinguna, en kjaftaði þess í stað upp heilmikla langhunda um umhverfismál, mistrúverðuga, misrökrétt og misþokukennda, og æi annan stað upp háborgaralegan dólgafémínísmus, ætlaðan strangtrúðum grilluföngurum og geðrugluðum aftaníossum. Jú, án sósíalisma og verkalýðshreyfingar var leið Flokkseigenda greið í fangið á auðvaldinu og onum nærbuxnastrenginn hjá Framsókn og Sjálfstæðisflokki. Því hjalið um yfirborðsleg umhverfismál, sem sum hver eru engin umhverfismál, og einhvern kynferðislegan fémíkaþólisma, skiptir Íhaldið og Framsóknarmaddömuna nákvæmlega engu máli, þeir geta notað VG, ef þannig verkast, til allra spillingar- og auðvaldsverka sem þeim sýnist þrátt fyrir þessháttar munnræpu.
![]() |
Skaut föstum skotum á forsætisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2022 | 16:46
Á hernaðarvagninum mjúkum
Það er mikill hernaðarskriður á telpunni með langa nafnið, sem spaugsömum íhaldsdrengjum hugkvæmdist að gera að utanríkisráðherra og þar með hermálaráðherra. Vissulega er undur gaman að fylgjast með litlu fröken Reykfjörð sveima milli geniraloffíséra og hermálahauka Vesturlanda eins og afturgenginn gagaoggúgúfugl aftan úr forneskju, gersamlega gaddfrosna í framan með ósvikinn stríðsglampa í augum. Enda hefir hún nú þegar í hyggju að gjöra Gorg Lauritsson að yfirmarskálki hins íslenska hers, sem nú er í burðarliðnum og okkar ágætu stríðshaukar hafa stofnað á bak við tjöldin.
Brátt verður varð-herskipið Þór þyrlu sent á vettvang í Úkraínu til að salla djöflastóð Pútíns niður eins og flugur. Og þó Reykingafjörðtelpan sé herská þá eru Katrín Jakobs og Swandeesý Sendiherrans það ekki síður; það bókstaflega bullar á þeim að hefjast handa gegn óvinum vestrisins austan Kirjálabotna og æra þá með vígvélagný og sprengjudrunum. Það er sem sem alveg komið í ljós að Katrín og Swandeesý eru aðeins samherjar Samherjanna og Stenngrims, heldur eru þær og ekki síðri samherjar Björnsbjarna og Nató-Mánga í andanum. Og VG-skessurnar knáu ætla í stríð áður en kjósendur kveða þær niður og sópa þeim eins og pöddum út af vettvangi stjórnmálanna í næstu kosningum.
Já, skelfilega er gott að eiga svona góðar stríðskonur, blóðugar um tönnurnar og til í harðan leik og hlífa aungvum. Það er svo göfugt, Katrín og Swandeesý, að fórna þreki sínu, kröftum, mannorði og kjósendum fyrir þá göfugu kapítalista og heimsvaldasinna Vesturlanda. Já, það er nú eitthvað til að falla fyrir.
Reykfjörðs-telpan dansar dátt,
og djöflast meður styrjar kúkum.
Katrín með henni hoppar hátt,
og huppurinn á Swandeesý hossast brátt
á hernaðarvagninum mjúkum.
![]() |
Munum deila eftirlitsgögnum á milli landanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2022 | 15:19
Það er siður ljótra karla að ljúga upp á prinsessur og drottningar
Æ, voru ljótu karlarnir að skrökva upp á drottninguna af Kjörís. Segja að hún hafi svikist um að kaupa dúk og logið blákalt framan í kjósendur í Hverigerði, því íhaldsmenn og konur ljúga allaf blákalt, að hún væri búin að panta og borga dúkinn. Þeir báru meira að segja þau ósannindi upp á frú Kjörís í Sambandi íslenskra sveitarfélaga að þú hefði lýst yfir á bæjarstjórnarfundi að hún hefði af góðmennskusökum og rausnarskap borgað dúkinn sjálf úr sínum eigin vasa.
Svo kemur upp úr dúnum, að ljótu karlarnir sem nú herja á fyrrum bæjarstjóru Hverigerðis, hafa frá upphafi verið á móti íþróttahúsi í Hverigerði, íþróttum og íþróttafélaginu Hamri og vildu þar af leiðandi hvorki dúk né disk á íþróttahússgrunninn sem hefir verið illa nakinn og umkomulaus síðan fellibylurinn reið yfir í vetur leið. Sennilega eru hin andmenningarsinnuðu finngálkn í nýja íhalds- og Kjöríslausa meirihlutanum, bæði antísportistar og hatursmenn góðra siða og hollustu. Það verður að skoða þessa ljótu karla ofan í kjölinn til að komast hvort þeir séu hrein, bölvuð ógeð, ófær um að stjórna Hverigerði.
Það var víst dálagaleg sjón, þegar vondi meirihlutinn, sem tók við taumunum í Hveragerði á dögunum, leiddi blessaða Kjörísfraukuna út af bæjarskrifstofunum, og sendu hana austur í annan hrepp í strigapoka; þeir lögðu hana þvert yfir beislin aftan á dráttavél og létu götustrák skrölta með hana á nýja heimilið þar sem tekið var við henni af varúð. Það var mesta guðsmildi að ljótu körlunum skuli ekki hafa hugkvæmst að binda hana aftan í traktorinn og láta hana hlaupa á eftir honum eins og kálf. Þessar óhugnanlega aðfarir nýja meirihlutans í Hverigerði, sem er vondur eins og erfðasyndin, minna um margt á fólskan og heimskan bóndakurf, sem leiðir bestu mjólkurkúna sína úr fjósi frá munnum vannærðra barnanna, slaktar henni og selur af henni kétið og kaupir sér brennivín í staðinn, ráfar svo um heimilið dauðadrukkinn og misþyrmir fólkinu sínu. Að svona voðalegir hlutir gerist í siðmenntuðu landi árið 2022 er ótrúlegra en orð fá nokkru sinni lýst.
Þeir sem vaða villu og kúk
og vonda siði stunda,
hata bæði D og dúk,
Drotinn vorn og Munda.
![]() |
Skýtur skökku við að gráta dúk sem þau vildu ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2022 | 00:07
Ekki eru þær densilegar fréttirnar af stráknum Tuma í Kjörísnum
Þar komst heldur en ekki upp um strákinn Tuma. Og ekki eru þær densilegar fréttirnar af fyrrum bæjarstjóru Sjálfstæðisflokksins í Hverigerði. Ónei. Fyrrum bæjarstjóra Sjálfstæðisflokkins í Hverigerði er sem kunnugt er ein veleðla Kjörísfrauka, formaður Samtaka íslenskra sveitarfélaga, auk þess elskuð og dáð af harðlínuhægrinu á Íslandi og auðvaldi öllu. En nú hefir sem sé komið á daginn, að þessi ástkæri og Kjörísétandi fyrrum bæjarstjóri hefir látið sig hafa að svíkjast um að panta nýjan dúk á íþróttahús Hverigérðínga í stað þess sem fauk út í hafsauga í vetur leið í nýfrjálshyggjubylnum mikla og látið við sitja að ljúga því upp að hafa pantað og keypt téðan dúk frá útlöndum.
En það var sem Hveigéðíngar finndu svik og fláttskap bæjarstjórunnar og Íhaldsins á sér fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar, því þeir kusu kérlínguna af höndum sér og og ráku Íhaldið harðri hendi í minnihluta bæjarstjórnar þar sem það fær að trénast upp næstu árin og verða að sinustráum. En Kjörísdrottninguna fluttu þeir hreppaflutningi austur i hreppa, hvar hún var sett niður hjá vandalausum. Eftir situr grunnurinn af íþróttaaðstöðunni, húslaus og berrassaður fyrir veðri og vindum, sem óyggjandi sönnunargagn og minnisvarði fyrir lygar, svik og fals Sjálfstæðisflokksins.Þessi ljóta saga af Sjálfstæðisflokkshetjunum í Hverigerði vekur upp áleitnar spurningar um hvort víðar sé pottur brotinn í sveitarfélögum það sem þessi illræðisflokkur hefir fengið að valsa um einn og eftirlitslaus í meirihluta. Þarf að krefjast lögreglurannsóknar á framferði Sjálfstæðisflokksins í þeim sveitarfélögum sem hafa verið svo óheppin hafa hann einn í meirihluta, eins og þann viðbjóð sem telur og trúir að hann eigi allt og megi allt af því að hann nýtur sérstakrar velvildar Mammons og Andskotans? Er máske tímabært að ráðast í stækkun fangelsa landsins vegna hugsanlegrar rannsóknar á þessum ískyggilegu samtökum, sem eiga að flestu leyti meira sameiginlegt með frægum félögum á Ítalíu og Bandaríkjunum en öðrum saklausum stjórnmálaflokkum hér á landi? Það væri aldrei að sveitarstjórnarmeðlimir Sjálfstæðisflokksins eigi efir að sprengja öll bönd og gjarðir utan af fangahúsum landsins?
![]() |
Nýr dúkur hafi aldrei verið pantaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2022 | 22:26
Hin einkennilegi brennuvargur á Stað og fall hans
Í gamla daga þegar gamli Kolbeinn var kaupfélagsstjóri á Stað reyndi Kolbeinn yngri, þá æskupiltur, fyrir sér sem brennuvargur. Fyrst kveikti hann í veiðarfærageymslu Gunnólfs útvegsbónda. Þar næst lá leiðin að íverukofa Gullu Bjöllu; þegar logarnir voru farnir að leika um hreysið sást Gulla Bjalla koma í loftköstum út um eina gluggann á húsinu, það þókti sótfengleg sjón. Svo gjörðist það örskömmu síðar, að barnaskólinn stóð í ljósum logum eina nóttina. Nú fór Staðaríbúar að ókyrrast sem vonlegt var.
Næst var hoggið fullnærri gamla Kolbeini kaupfélagsstjóra, því óskiljanlegur ekdur komm upp í vörugeymslu félagsins. Þá, en fyrr ekki, settist Kolbeinn eldir niður og lagði saman tvo og tvo og fékk óvéfengjanlega út hver brennuvargurinn væri. Það var ekki um nema einn að ræða sem tæki sér á hendur svo fráhrindandi óþrifaverk. Morguninn eftir varð uppi fótur og fit á Stað, því árla mjög berst sú frétt yfir þorpið að Eyvindur verkstjóri hjá stórútgerð Magnúsar Kristfinnssonar hefði fundist skotinn í rúmi sínu klukkan hálfsex þennan sama morgun. Hafði útidyrahurðinni á heimili hans verið sparkað upp af heljarafli, kona Eyvinds eitins dauðrotuð á ganginum, en hún virtist hafa stokkið upp úr rúminu við umbrotin. Að svo búnu hafði Eyvindur verið tekinn af lífi með skotvopni.
Þegar talað var um, svo Kolbeinn kaupfélagsstjóri heyrði, að Eyvindur verkstjóri hefði fallið fyrir morðingjahendi, svaraði hann því ætíð til að hann hefði verið veginn. Hins vegar vildi kaupfélagsstjórinn ekkert úttala sig um hverjum stæði næst að greiða bætur fyrir vígið, heldur lét sér nægja að vitna í fornsögur Íslendinga og greina mönnum frá því, að mörg víg hefði Víga-Styrr vegið og aldreigi bætt nokkurn þann er hann vó. Var þetta látið gott heita á Stað, en eftir því var tekið, að upp úr vígi Eyvindar lögðust íkveikjur af þar um slóðir og var það talið sanna að Eyvindur verkstjóri hefði verið hinn atorkusami brennuvargur.
![]() |
Kviknaði í yfirgefnu húsi í Úlfarsárdal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2022 | 21:23
Svipleg örlög Jónasar skálds, er orkti ljóðið um Borurnar
Þá Borurnar bárust að landi
var báturinn sokkinn í mar.
En aumingja kvendin vóru illa farin
og ein þeirra mesta skar.
Þeir drógu þær upp og demdu í bað,
því daunillar voru þær þá
og grenjuðu af íllsku og góluðu af kennd;
glenntar með kjaptinn á ská.
Sjá Borurnar hvæsa og byltast við strönd
bláar af kulda og drukk.
Allar fengu þær ærlegan skell
og allar þráðu sinn kukk.Svona orkti skáldið Jónas um Borurnar, sem hann þekkti persónulega, og voru honum sannur innblástur og áhrifavaldar í skáldskap hans. Sem kunnugt er fannst skáld þetta loks dautt í fjörunni undir Faxabótarkletti. Var talið að Borurnar hefði villt honum sýn, lokkað hann til undir klettinn og misþyrmt honum meðal annars með kynjuðu ofbeldi. Ekki vildu þó allir trúa þessari skýringu á fyrirvaralausu andláti Jónasar. Einn þeirra var síra Baldvin, prestur og prófastur til Gemsufallaþinga. Síra Baldvin vildi meina að skáldið hefði komist í kast við útsel þar í fjörunni, ef ekki hreinlega rosmhval. Síðar vöknuðu grunsemdir með síra Baldvini um að skáldið Jónas hefði verið myrtur á lúalegan hátt. Af því tilefni varð hinum stórbrotna kirkjuhöfðingja að orði:
Hvur myrðir skáld um myrka nátt
á morknum þarahaug?
Var þat Hálfdán eður Handreður?
Eða helvítið Kolbeinn sem saug?
![]() |
Bárurnar komnar í land |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 17.8.2023 kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það mátti búast við þessu. Hún skítti í rúmið hjá honum, rífði kjaft og skítti aftur í bólið. Einhver sagði oss að kveld nokkuð hafi Jonni Depill, allsendis hrekklaus, gengið til hvílu, smeygt sér undir sæng og hafnað í klístrandi taðbeðju, ættaðri frá ektakærustu hans. Það sér hver maður að við slíkan djöfulskap er íllt að búa, og Depill auminginn velti sér upp úr hroðanum án þess að geta rönd við reist, enda vissi hann ekki hvers kyns var fyrr enn allt of seint og kukkurinn kominn upp í handarkríka.
Trúlega verður bið á því að frúin Amber, dregið af nafnorðinu amboð, nái sér í karlmann til búskapar og ugglaust mun aunginn heldur hætta sér út í einnar nætur ,,gaman" með þessu óhreinláta kvendi. Svo einkennilegt sem það nú er, þá hefir værðarklerkurinn Atgeir p. Fjallabakssen fylgst af áfergju með málaferlum Depils og Amboðs. Og þegar þar að kom að sagt var frá saurnum í sænginni, dró sálnahirðirinn djúpt að sér andann, sló sér á lær og sagði stundar hátt: - Gott gott! Upp á síðkastið hafa messur séra Atgeirs orðið æ undarlegri og torskildari. En þessi kyndugheit karlsins fóru að vekja áhuga og messusókn hjá honum jókst svo um munaði og nú er sóknarnefndin farin að tala um að stækka helgidóminn.Þegar síra Bandvin heyrði af því að séra Atgeir talaði um fátt annað í stólræðum sínum en einhverja kvikmyndaleikara, sem eru síra Baldvini með öllu ókunnir, fór hann að leggja betur við hlustirnar. Hann varð þess vís, að séra Atgeir væri orðinn rúmlega hálfbrjálaður, lagstur í geðrof, eins og það heitir, og byrjaður að væta rúmið að hætti blautbarna, þá var presti og prófasti þeirra í Gemsufallaþingum nóg boðið og hann hraðaði sér suður til að taka í taumana. Síra Baldvin kom að stéttarbróður sínum í áköfum faðmlögum eina af súlunum í kirkjunni. Nú, síra Baldvin greip aftan í hálsmálið á hinum geggjaða manni og skók hann til og frá svo annað slagið vissu iljar séra Atgeirs p. Fjallabakssen upp. En þegar síra Baldvin sleppti takinu á séra Atgeiri, leit sá síðarnefndi raunarmæddur upp á velgjörðamann sinn og mælti með kjökurhreimi röddinni: - En hún taddi í rúmið hjá honum og hann skeit sig allan út! Það getur Guð aldrei fyrirgefið.
![]() |
Dómurinn féll Depp í vil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það skal upplýst að maðurinn sem gekk berserksgang við hotél í Reykjavík í nótt heitir Brynjar Vondalykt og ástæðan fyrir géðvonsku hans og stjórnleysi var áfengisnautn og brundíllska á lokastigi. Áður en tókst að yfirbuga Brynjar hafði hann kastað grjóti í höfuð friðsams borgara og núið andlitinu á öðrum borgara upp úr hlandpolli á gangstéttinni. Hann var færður af starfsmönnum Hálfdáns Varðstjóra til vistar í fangaklefa við hliðina á skrifstofu Varðstjórans. Upp úr hádegi er búist við að Hálfdán mismuni Brynjari úr húsum sínum og út á strætið, það er að segja ef fyrrgreindur krankleiki Vondulyktarinnar hafi linast til muna frá því nótt. Í morgun þókti mönnum auðsýnt að Hálfdán Varðstjóri væri með glóðarauga eftir annir næturinnar og er líklegt að Vondulyktinni hafi tekist að koma höggi á Varðstjórann er þeir áttust við í fangaklefanum.
Undir morgun hringdi Hálfdán í frú Ingveldi og fór fram á að hún sækti fangann Brynjar Vondulykt og líknaði honum. Þá kom upp úr dúrnum að skapsmunir frúarinnar voru ekki í sem bestu lagi og þolinmæðin upp á fáa fiska. Hún sagði Hálfdáni sem sé að gæti haft sína aumingja og öfugugga sjálfur til síns eigin brúks, Brynjar Vondulykt sækti hún ekki að sinni. Svo bætti hún því við að hún hefði haft tvo ráðherra ríkisstjórnarinnar uppí hjá sér og Kolbeini í nótt og hún væri örþreytt eftir atganginn, því ráðherrarnir hefðu verið þurftafrekir en þó linjulegir og væmnir í hvílubrögðum.
Staðan í augnablikinu er því þannig að Brynjar Vonalykt liggur í járnum á gólfi fangaklefans, froðufellandi af geðtryllingi sem brjálæði er líkast. Þá er ástandið á Máríu Borgargagni ekki sem best þessa stundina, en hún lýsti því yfir við blaðamann, að henni liði eins og reyttri hænu að neðan eftir að hafa farið í kviðskeggsnyrtingu á föstudag síðasta. Annan eins djöfuls fant og fávita hefði hún ekki fyrirhitt lengi eins og þennan bölvaðan snyrti og hárskera. Maður Borgargagnsins, Indriði Handreður, lögfræðingur og veraldaraumingi, hefir og átt í mesta stappi við konu sínu og er nú svo illa komið að hann er farinn að hugleiða að selja Borgargagn sinn alfarið í höndur frú Ingveldar og Kolbeins, eða jafnvel Brynjars Vondulyktar. Af þessu öllu sést að víða er óáran og vandamál hjá yfir- og efrimillistétt þjóðfélagsins og ekki ólíklegt að ríkisstjórnin falli innan skamms vegna kerfislægrar ónáttúru hennar og hraksmánarlegs eðlis.
![]() |
Gekk berserksgang við hótel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2022 | 15:30
Nú hefur hún kallað biskupinn yfir Íslandi á sinn fund til örvunar og hughreystingar
Ekki er minnsta ástæða fyrir síra Davíð að láta fræðimenn og farísea af nöðrukyni stöðva sig. Og hvort sem í hlut á fyrrum heitkona eða biskup, þá er farísei farísei og naðra naðra. En Helvíti er hinumegin, hræðilegra en nokkur veit. Það að halda hlífiskildi yfir ódæðismönnum, fjárglæframönnum og bófum er illur gjörningur og Guði óboðlegur. Aftur á móti er Djöflinum, sem einnig heitir Sathan, ljúft að horfa upp á þegar illhryssingum er dillað og þeim gefið ríkisstjórnarlegt leyfi til að fá útrás fyrir græðgi sína og íllsku.
Svo hefir nú frú Ingveldur boðað biskupinn yfir Íslandi á sinn fund til að stappa í hana stálinu og hvetja hana til að gjöra aðra og áhrifaríkari aðför að Laugarnesklerki. Í rafbréfi sem frú Ingveldur sendi biskupi fyrir stundu, rifjar hún upp söguna af Jóni Gerrekssyni biskupi og hvernig sannir Íslendingar settu hann í strigapoka, bundu fyrir og köstuðu í Brúará. En segja má að með þeim aðgerðum bænda hafi umsvifum herra Jóns Gerrekssonar verið lokið. Frú Ingveldur tók þó fram, að með þessari dæmisögu væri ekki þar með sagt að hún væri að leggja til við biskup að hún pokaði Davíð Þór og færi með hann inn til Elliðaár eða niður að Tjörn. Nei nei, hún væri ekki leggja það til, hitt væri það, að biskup ætti að sýna á sér embættislegt rögg og slíta hempuduluna af manninum og reka hann úr starfi.
Síðast liðið fimmtudagskveld hvarf Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, eiginmaður frú Ingveldar, og gaf sig ekki fram fyrr en að mánudagsmorgni. Þá sást á honum að hann var orðinn sturlaður af trúarofstæki. Þegar betur varð að gáð, þá var greinilegt að hann var kominn með Skrauthólaveikina, því hann lét heldur dólgslega, var hálfberrassaður og hafði með sér sveppakakó á brúsa. Gottfreð læknir var kallaður til að líta á sjúklinginn og staðfesti hann að um Skrauthólaveiki væri að ræða og upplýsti frú Ingveldi um leið að slík veiki væri ekkert skárri en hjarðsveinasjúkdómur. Síðan sprautaði Gottfreð Kolbein í rot og tók honum blóð til skimunar. En Kolbeinn lá eins og fordæmdur syndaselur í dái í einn og hálfan sólarhring af hinni vænu innspýtingu læknisins.
![]() |
Lætur tiltalið ekki stöðva sig og gagnrýnir áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Í steininn með íhöld og viðreisnarvembla
- Brennuvargur í Hafnarfirði - og sögur af andstyggilegum brenn...
- Afglöp séra Atgeirs og klámhögg utangarðs Sælendinga
- Kvikuprinsessan þjónustar auðvaldið af stílíséruðu krataeðli
- Í því ungdæmi vildi æskulýðurinn samræði frekar en samráð
- Jegeravdelingen i Norges Blindeforbund með lásboga í Haukadalsá
- Brátt verður hin fræga, en skilvirka, rassskellingavél Jón Læ...
- Konunglegur pervertus og sexúalkrimínali gjörir sig gildandi ...
- Náfrændum Kolbeins og Vondulyktarinnar sparkað út í Stafangri
- Fáránlegur ferill hennar hefir tekið á sig draugslega mynd óh...
Bloggvinir
-
Níels A. Ársælsson.
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Sveinn Elías Hansson
-
Guðbergur Egill Eyjólfsson
-
Þórbergur Torfason
-
Guðfríður Lilja
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Bjarki Steingrímsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Grétar Mar Jónsson
-
Ásdís Helga Jóhannesdóttir
-
Rúnar Sveinbjörnsson
-
Þorvaldur Þorvaldsson
-
Rauður vettvangur
-
Björgvin R. Leifsson
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Einar Ólafsson
-
Baldur Hermannsson
-
Dætur og synir Íslands.
-
hilmar jónsson
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Þórdís Bára Hannesdóttir
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Hulda Haraldsdóttir
-
Óskar Helgi Helgason
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Guðmundsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Baldur Fjölnisson
-
Birgitta Jónsdóttir
-
Ísleifur Egill Hjaltason
-
Reynir Andri
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Auðun Gíslason
-
Jón Snæbjörnsson
-
Rannveig H
-
Magnús Jónsson
-
Steingrímur Helgason
-
Hallgrímur Guðmundsson
-
Ársæll Níelsson
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Fríða Eyland
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Ólafur Þórðarson
-
Eygló Sara
-
Lúðvík Lúðvíksson
-
Þorsteinn Briem
-
Ester Júlía
-
Svava frá Strandbergi
-
Björn Grétar Sveinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Sigurbjörn Friðriksson
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Páll Ingi Kvaran
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Jóhann Elíasson
-
Óskar Arnórsson
-
Bergur Thorberg
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Eyjólfur Jónsson
-
gudni.is
-
Sigurður Sigurðsson
-
Alma Lísa Jóhannsdóttir
-
Alfreð Símonarson
-
Guðni Ólason
-
ThoR-E
-
Arnar Guðmundsson
-
Þór Jóhannesson
-
Georg P Sveinbjörnsson
-
Himmalingur
-
Guðjón Baldursson
-
halkatla
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Einar Sigurjón Oddsson
-
Haukur Nikulásson
-
Félag Ungra Frjálslyndra
-
Heiða
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi
-
Steingrímur Ólafsson
-
Magnús Þór Hafsteinsson
-
Sigurbjörn Svavarsson
-
Landrover
-
Valla
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
Vefritid
-
Sigríður B Sigurðardóttir
-
Ónefnd
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Þórarinn Eldjárn
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Jón Ragnar Björnsson
-
Hlédís
-
Einar B Bragason
-
Þorsteinn Helgi Steinarsson
-
Árni Karl Ellertsson
-
Hamarinn
-
Hamarinn
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Hörður B Hjartarson
-
Jack Daniel's
-
Jón Bjarnason
-
Kristján Jón Sveinbjörnsson
-
Kristján P. Gudmundsson
-
Linda
-
Rauða Ljónið
-
Sigurður Haraldsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Vináttufélag Íslands og Kúbu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 1
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 212
- Frá upphafi: 1553869
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 187
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007