Leita í fréttum mbl.is

SÚS ekki samkvæmt sjálfu sér, sem er að vísu skiljanlegt

AuðvaldskrakkiÞað er mikið undrunarefni, svo ekki sé meira sagt, að Samband ungra sjálfstæðismanna, SÚS, skuli leggja til að Jóhanna Sig. og Steingrímur J. segi af sér embættum.

En fyrst að hinir ungu íhaldsböðlar vilja að Jóhanna og Steingrímur segi af sér útaf Icesave samningunum, þá er enn meira undrunarefni að þeir skuli ekki ganga alla leið og heimta að Sjálfstæðisflokkurinn, sem svo sannarlega er holdlegt foreldri Icesave-glæpsins, verði þegar í stað bannaður með lögum eins og hver önnur hættuleg glæpasamtök sem almenningi stafar hætta af.

Þá væri full átæða fyrir ungu auðvaldssinnafíflin að krefjast afsagnar allra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem sæti áttu á Alþingi 2008 og sitja þar enn sem fastast. En það er víst ekki, af skiljanlegum ástæðum, hægt að krefjast þess að SÚS sé samkvæmt sjálfu sér þegar stjórnmál eru annars vegar.

En mest er ég þó hissa á mbl.is að éta upp og birta hið illa innrætta skítbuxnakjaftæði sem lekur eins og viðurstyggileg forarvilpa frá Samtökum ungra sjálfstæðismanna, SÚS.


mbl.is Vilja að Jóhanna og Steingrímur víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félagi Fídel er ódrepandi ekki síður en félagi Jesús

byltingAuðvitað er það mikil Guðs blessun að við skulum enn hafa félaga Fídel á enn meðal vor og jafnframt er  hver dagur sem hann lifir jarðnesku lífi Guðs blessun og styrkur okkur hinum sem enn hjörum ofan moldu.

En þegar félagi Fídel kveður hið líkamlega líf mun andi hans aftur upp rísa þegar í stað, líkt og hjá félaga Jesú forðum tíð. Og báðir munu þeir félagar, Fídel og Jesús, sitja við hægri hönd Drottins Almáttugs á Hymmnum hátt, þar til að þeir stíg aftur til jarðar þegar jarðarbúar hafa þroskast svo mikið að á jörðinni verður risið hið óhjákvæmilega sæluríki kommúnismans sem oss hefir verið lofað.

Lengi lifi félagi Fídel og félagi Chaves og félagi Jesús.


mbl.is Kastró var við dauðans dyr 2006
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Syfjaði draugurinn

draugar1.jpgÞað er alltaf hóflega geðfellt þegar vart verður reimleika og sumir verða blátt áfram skelfingu lostnir þegar þeim verður ljóst að draugur er kominn á stjá. Og ekki eru allir draugar meinlausir, fjarri því, því sumir þeirra eru blóðþyrstir og girnast að slíta hold frá beini. Svo eru aðrir draugar, öðruvísi hættulegri, en hvimleiðir engu að síður, afspyrnu leiðinlegir og syfjaðir svo af ber. Undir síðast töldu draugategundina flokkast formaður Eflingar; óþolandi leiðindadraugur með margföld verkamannalaun. Þessi vafasami verkalýðsforstjóri með krónísku stýrurnar í augunum hefur staðið eins og klettur að hinni krónísku samtryggingu ASÍ-forystukrypplingastóðsins og stórkapítalistanna í samtökum atvinnurekenda. Þar fyrir utan hefur eflingarformaðurinn stundað marglofaða klofningsiðju innan samtaka verkafólks með Kristjáni úr Keflavík; þessa klofningsiðju kalla þeir félagarnir ,,Flóabandalag," og gegnir svipuðu hlutverki og þegar vígtennurnar eru dregnar úr hundi til að hann bíti ekki húsbændur sína í SA.
mbl.is Óþolandi þversagnir ráðamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frú Ingveldur kærð fyrir kynvillu

fleng2_1048187.jpgSiðastliðin sunnudag kærði Kolbeinn Kolbeinnson skrifstofustjóri eiginkonu sína, frú Ingveldi, fyrir kynvillu og hórdómsbrot til lögregluembættisins í Reykjavík. Lögreglan brást við kærunni með því að loka Kolbein inni í fangaklefa í tæpan sólarhring. Þegar Kolbeini var hleypt út, ítrekaði hann kæru sína og kvaðst ekki una því að frú Ingveldur kæmist upp með glæpsamleg skírlífisbrest sem byggður væri á ósóma eins og kynvillu. Þegar lögreglan rannsakaði málið komst hún að því að þeim hjónum, Kolbeini og frú Ingveldi, hafði lent heiftarlega saman snemma að morgni síðasta sunnudags vegna konunnar Máríu borgargagns, eftir að maður hennar, Indriði handreður, hafði lognast útaf undir stofuborði. Í átökunum hafði Kolbeinn farið mjög halloka fyrir eiginkonu sinni, sem lúbarði hann af innblásnum ruddaskap, fleygði honum klæðlitlum á dyr og læsti hann úti. Að svo búnu, fullyrðir Kolbeinn, að frú Ingveldur hafði farið með Máríu borgargagn í sjálft hjónarúm heimilisins til að svala svívirðilegum fýsnum sínum. 

Og þar við situr þegar þetta er ritað, klukkan 21:10 þriðjudaginn 14. nóvember 2010.    


mbl.is Mikil harka í mótmælum í Róm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gyltan Kristján

esbÉg legg til að félagi Aðalsteinn gefi, að augljósri verkalýðsástæðu, gyltunni nafnið Kristján. Ef Aðalsteinn hefur ekki kjark til að nefna kvensvínið kallmannsnafni getur hann nefnt það eftir varaforseta ASÍ, en sá merkilegi varaforseti er nægilega samdauna skepnunum sem rænt hafa alþýðsamtökunum af alþýðunni.
mbl.is Fékk svín í afmælisgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf enga úttekt á fíflslegum einkavæðingarórum

lady2_1047970.jpgÞað er hvort tveggja í senn tímaeyðsla og skrípamennska að setja á opinbera úttekt á einkaskólum. Einkaskólunum svokölluðu ber að eyða þegar í stað. Eitt hið hlálegasta af mörgu útúrfríkuðu í menntamálabransanum eru pungaprófsháskólarnir mikli, einkum þessir sem kenndir eru við Reykjavík og Bifröst, á eftir þeim í fáránleika, en þó skammt á eftir, koma Keilir og Hraðbraut. Allar þessar úreltu og óbrúklegu ,,menntastofnanir" eru dæmdar úr leik og voru það reyndar áður en leikurinn hófst. 

Það má vel vera að ríkisborgaðir einkaskólar hafi verið sniðug fíflska og bráðnauðsynleg á dögum græðgisvæðingarinnar og frjálshyggjunnar, en í dag á svona drulludjók að heyra sögunni til ásamt hugmyndafræðinni sem að baki lá. 

Þeir sem stóðu fyrir einkaskólafárinu verða að skilja að dagar slíkrar aumingjavæðingar eru taldir og þeim væri hollast að fá sér heiðarlega vinnu í stað þess að flækjast fyrir í þjóðfélaginu með úrelta einkavæðingaróra í höfðinu.


mbl.is Vilja úttekt á einkareknum skólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar vilja endurheimta sinn góða kommúnisma

stal1.jpgSamkvæmt mínum heimildum í Moskvu og Leningrad, vilja Rússar endurheimta sinn gamla góða kommúnisma og ennfremur telja þeir að nú sé illa úr heimi hallur félagi Jósef Stalín. Málið er nefilega það, að þegar vesalingurinn Gorbatsjoff og hans heilalausu liðleskjur gáfust upp og létu kaupa sig til að svíkja hinar sósíalísku hugsjónir Rússa, opnuðu þeir í leiðinni á kapítalískan glæpafögnuð eins og hann gerist fegurstur á Vesturlöndum. Moskva breyttist úr friðsömustu og öruggustu stórborg heims í þá hættulegustu á undra stuttum tíma. Og annað hefur verið í þeim dúr síðan þjófseðli kapítalismans var hleypt inn í Rússland.

Og nú fullyrða Rússar að nú vanti þá sálega félaga Stalín til að berja glæpagengi á vegum Sjálfstæðisflokka heimsins útúr lögsögu Rússlands og til þess úrkynjaða hluta heimsins sem þau eiga uppruna sinn í. Sem betur fer eru Rússar vongóðir um að brátt rísi upp sá raunverulegi arftaki félaga Stalíns sem muni leiða þá styrkri hendi útúr ógöngum kapítalismans. 


mbl.is Kröfðust afsagnar Pútíns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klofningsruslið í VG

flokkseigendur_786424.jpgVinstrihreyfingin grænt framboð hefur verið klofinn flokkur frá því fljótlega eftir fyrstu alþingiskosningarnar sem flokkurinn fór í gegnum. En verulegur skriður komst þó ekki á klofninginn fyrr en farið var að Svavarsvæða flokkinn svo um munaði. Eftir það hefur pólitískum og siðferðilegum grundvelli VG hrakað jafnt og þétt og er nú svo komið að einungis er tímaspursmál, sennilega uppá fáeina mánuði, hvenær flokkurinn skiptist formlega í tvö stjórnmálasamtök. 

Það er hálf hlálegt að það skuli vera formaður flokksins, Steingrímur J. Sigfússon, sem farið hefur fremstur í klofningsiðjunni innan VG með því meðal annars að safna kringum sig, Álfheiði Inga og Svavarsfjölskylduna, lítilþægum búrtíkum og dekurdýrum, sem eru svo illa haldin af pólitísku rugli að þau halda að það sé afskaplega til vinstri, gott ef ekki sósíalískt, að elta foringja og flokkseigendur í blindni, gagnrýnislaust.

En fyrst og fremst gengur klofnigsprógramm Steingríms og hans klíkusystkyna útá að sveigja og teygja stjórnmálaflokkinn VG að eigin persónulegum hagsmunum og hégómaskap, svo sem eins og til dæmis að selja flokkinn, og þá flokksmenn og málefni þeirra í leiðinni, fyrir ráðherrastóla í ríkisstjórnum sem grundvalla tilveru sína á samtryggingu auðvalds og borgarastéttar.    


mbl.is Fréttaskýring: Landið tekið að rísa þrátt fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segðu af þér, kerlíng, ásamt lóðarakka þínum

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Það væri áreiðanlega mikið nær fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að segja af sér ráðherradómi og þingmennsku en að blaðra um að Lilja Mósesdóttir verði að gera einhverja hluti upp við sig, eins og t.d. að styðja fjárlagafrumvarpið sem nú liggur fyrir þinginu. Jóhanna hefur, ásamt lóðarakka sínum, Steingrími J., gerst sek um stórkostleg afglöp hvað eftir annað varðandi Icesavesamninga, auk viðbjóðslegs undirlægjuháttar gagnvart auðvaldsstofnunuum á borð við ASG og ESB, - já og LÍÚ, ekki má gleyma því.

Og ekki bætir það orðstýr Jóhönnu og Steingríms að hafa vaðið áfram með hótunum og djöfulskap gegn vinstriarmi VG, það á eftir að verða þeim dýrt spaug þegar upp verður staðið. Þessi þokkahjú eiga auðvitað að segja skilyrðislaust af sér, við viljum ekki svona lýð lengur í æðstu valdastöðum þjóðarinnar.

Við skulum hafa það hugfast að hótanir eru tegund af ofbeldi, sem getur orðið mjög svæsið, og á auðvelt með að breytast í einelti. Og einelti er glæpur, Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon.


mbl.is Hvetur Lilju til að samþykkja fjárlögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íseif Sjálfstæðisflokksdóttir

jol3_1047284.jpgEnn og aftur er húsdraugurinn Íseif, holdgetin dóttir Sjálfstæðisflokksins, komin á ról öllum til ama nema kerfisskoffínum hinnar pólitísku samtryggingar kapítalismans. Ég held að það þýði ekkert fyrir Steingrím J. og hans klofningshóp innan VG og auðvaldsgleðigyltur og gelti samfylkingarinnar að bjóða landsmönnum aftur uppá helvítis dýrið hana Íseifi á jólaföstunni, hún verður óðar skotin niður af alþýðu landsins eins og í fyrra.

Það er auðvelt að umbera Grýlu, Leppalúða og Jólaköttinn á aðventunni, en Íseifi nei takk, fari hún til fjandans ásamt velgjörðarmönnum sínum.


mbl.is Fundum um Icesave lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband