Leita í fréttum mbl.is

Segðu af þér, kerlíng, ásamt lóðarakka þínum

Johanna-og-Gudlaugur-Thor_1091123689Það væri áreiðanlega mikið nær fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að segja af sér ráðherradómi og þingmennsku en að blaðra um að Lilja Mósesdóttir verði að gera einhverja hluti upp við sig, eins og t.d. að styðja fjárlagafrumvarpið sem nú liggur fyrir þinginu. Jóhanna hefur, ásamt lóðarakka sínum, Steingrími J., gerst sek um stórkostleg afglöp hvað eftir annað varðandi Icesavesamninga, auk viðbjóðslegs undirlægjuháttar gagnvart auðvaldsstofnunuum á borð við ASG og ESB, - já og LÍÚ, ekki má gleyma því.

Og ekki bætir það orðstýr Jóhönnu og Steingríms að hafa vaðið áfram með hótunum og djöfulskap gegn vinstriarmi VG, það á eftir að verða þeim dýrt spaug þegar upp verður staðið. Þessi þokkahjú eiga auðvitað að segja skilyrðislaust af sér, við viljum ekki svona lýð lengur í æðstu valdastöðum þjóðarinnar.

Við skulum hafa það hugfast að hótanir eru tegund af ofbeldi, sem getur orðið mjög svæsið, og á auðvelt með að breytast í einelti. Og einelti er glæpur, Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon.


mbl.is Hvetur Lilju til að samþykkja fjárlögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Jói heldur þú að Lilja sé einhver sérstakur vinstri maður? Hún er á móti öllu og öllum, meira að segja sjálfri sér. Þessir popúlistar Ásmundur Einar, Ögmundur, Lilja og fleiri eru ekki sérstakir vinstri menn, eiga bara erfitt með að axla ábyrgð og taka erfiðar og óvinsælar ákvarðanir.

Eggert Hjelm Herbertsson, 10.12.2010 kl. 13:21

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held ekkert, Eggert minn, ég veit. Hvernig þú færð það út að Ásmundur Einar, Ögmundur og Lilja séu popúlistar veit ég ekki, en ég veit að þeim er ekkert um það gefið að ljúgja að kjósendum sínum og svíkja þá, eins og ruslahaugarnair Jóhanna Sigurðardóttir, Steingrímur J. og Gutti af Skaganum, ásamt fleiri pólitískum viðrinum og skoffínum, hafa gerst sek um.

Jóhannes Ragnarsson, 10.12.2010 kl. 13:36

3 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Guði sé lof og prís fyrir Jóhönnu og Steingrím J. Ekki held ég að nei liðið í VG yrði okkur til gæfu eða menn eins og Jón Valur og fleiri æsingamenn sem tjá sig hér á síðum.  Steingrímur og Jóhanna hafa lyft Grettistaki til bjargar þessari þjóð og hljóta lítið annað en skítkast og vanþakklæti að launum. Þau eru hetjur og hugsa ekkert um eigin hag eða vinsældir. Verst að nei liðið í VG skuli ekki stofna eigin flokk sem þeir geta kúrt í í leiðindum sínum.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 10.12.2010 kl. 13:40

4 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Þeir sem geta ekki tekið óvinsælar og erfiðar ákvarðanir eiga bara að vera heima hjá sér.

Eggert Hjelm Herbertsson, 10.12.2010 kl. 13:41

5 identicon

Hví er verið að draga Guðlaug Þór inn í þetta með myndbirtinguna?

H.T. Bjarnason (IP-tala skráð) 10.12.2010 kl. 13:50

6 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þeir sem taka fyrst og fremst ákvarðanir fyrir fjármagnseigendur, vinsælar jafnt sem óvinsælar, eiga að láta það vera að kalla sig ,,vinstri" í stjórnmálum.

Jóhanna og Steingrímur hafa ekki lyft neinum grettistökum, fjarri því. Hinvegar hafa þau verið afburða handgengin alskyns auðvaldi.

Jóhannes Ragnarsson, 10.12.2010 kl. 13:56

7 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Því er verið að draga Guðlaug Þór inní myndbirtinguna með Jóhönnu er sú að það er sama ófyrirleitna auðvaldsrassgatið undir þeim báðum.

Jóhannes Ragnarsson, 10.12.2010 kl. 14:07

8 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Nágrímur var á móti síðustu atk´æðagreiðslu.... skyldi hann veraí mót-sögn nú?

Óskar Guðmundsson, 10.12.2010 kl. 14:10

9 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Jóhannes: Þvílíkt endemis bull.  Eina sem þau gera er að reyna að snúa þjóðfélaginu í gang, sem er að takast þrátt fyrir dragbítana í ríkisstjórninni og í stjórnarandstöðunni.  Held að neiliðarnir og rugludallarnir sem þú dásamar svo mjög ættu bara að drífa sig í sjálfstæðisflokkinn eða hreyfinguna og gefa smá vinnufrið þeim sem hugsa af viti, hafa kjark til að vera óvinsælir og gera það sem þarf.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 10.12.2010 kl. 14:17

10 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég hefi lengi velt fyrir mér af hverju kratarassarnir eru svo óheiðarlegir að hafa ekki fyrir löngu gengið formlega í Sjálfstæðisflokkinn.

Það er Framsóknarkrataíhaldið sem fyrst og fremst er að þvælast fyrir endurreisn Íslands en ekki sósíalistarnir í VG eða Hreyfingarliðar. Framsóknaríhaldskratían berst við, með hnúum og hnefum, að endurreisa gamla Ísland á grundvelli gömlu borgaralegu og glæpsamlegu samtryggingarinnar.

Jóhannes Ragnarsson, 10.12.2010 kl. 14:31

11 Smámynd: Eggert Hjelm Herbertsson

Ég er greinilega óheiðarlegur krati, það verður bara svo að vera

Eggert Hjelm Herbertsson, 10.12.2010 kl. 15:23

12 Smámynd: Árni Karl Ellertsson

Hver er þessi Þórdís Bára ???????   Það hýtur að vera ferlegt að vera með svona rosalegt Jóhönnu og Steingríms sindrom.

Árni Karl Ellertsson, 10.12.2010 kl. 16:06

13 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hef verið að undra mig á þessari "tísku" bloggara að tala um fólk og skoðanir þess með eins ömurlegu orðafari og blóti. Held að þetta hjálpi mönnum ekkert í því að koma sínum málstað á framfæri. Og eins þegar talað um pólitískar skoðanir annarra og halda að það sé flott að reyna að tala eins niðrandi um þá og með sem flottustu blótsyrðum.

Síðan bið ég síðu eiganda að muna það að hér voru kosningar í apríl 2009 þ.e. fyrir 18 mánuðum eða eitthvað svoleiðis. Og skoða hvernig ástandið var þá í apríl 2009 og svo hvernig það er í dag. Þar sem allar hagtölur eru á uppleið eins og spáð var. Og svo að ýmynda sér hvernig hér væri ef að sjálfstæðismenn, framsókn og hreyfingin væru búin að vera þennan tíma. Miðað vð hugmyndir þeirra væru tekjur ríkisins enn lægri því stjáfstæðismenn vilja skattalækkanir, skuldir ríkisins væru að aukasta og síðan kæmi þá eðlilega næsta hrun innan skamms. Hreyfingin stakk upp á að við lýstum okkur gjaldþrota. Og Framsókn vildi að allar skuldir á landinu yrðu skornar niður um 20% sem þýddi hækkun á skuldum ríkisins.

Held að það hafi líka fáir áhuga á að taka völdin af Jóhönnu og Steingrími og standa í þeirra sporum. Ekki viss um að margir hefðu bein í að stýra landi sem er að vinna sig úr svona djúpri kreppu og með alla gargandi á sig alla daga. Finnst alveg makalaust hvað þu hafa þó haldið stefnu í flestum málum án þess að láta beygja sig.

Magnús Helgi Björgvinsson, 10.12.2010 kl. 20:08

14 identicon

Heill og sæll Jóhannes; æfinlega - og svo, aðrir gestir þínir !

Það er hálf kúnstugt; þegar pjattrófur, eins og Magnús Helgi / Eggert Herbertsson / Þórdís Bára Hannesdóttir;; pjattrófur segi ég, þegar þetta ágæta fólk vill fylla raðir ESB krata liðsins, í hjákátlegum orðhengilshætti gagnvart þér Jóhannes - ókrýndum I. Beitninga meistara Snæfellinga, og einum fremsta sjósóknara, þar um slóðir.

Vitaskuld; finna þau þér allt til foráttu - um leið og þau bera blak, af þeim Jóhönnu kerlingu, svo og Steingrími Þistilfirzka, þar sem þau þrjú : MHB - EH og ÞBH láta, eins og sjálfgefið sé, að halda skuli uppi kerfis bákni, sem mætti ætla, að þjónustaði 3; eða þá 30 Milljónir manna - en ekki; innan við 300 Þúsundir (sem ört fer fækkandi, reyndar).

Kostulegastur er Magnús Helgi; með æfintýra frásögur sínar, af meintum hækkandi hagtölum, til dæmis.

Magnús Helgi / Eggert og Þórdís Bára !

Farið nú að viðurkenna; fyrir ykkur sjálfum - sem öðrum, að liðónýt stjórnmála ræksnin (allra flokkanna 4ra : B - D - S og V lista), ásamt viðskipta svindlurunum, vinum þeirra, eiga höfuð sök á, hversu komið er málum, hér á landi.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi 

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.12.2010 kl. 01:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband