Leita í fréttum mbl.is

Vindþurrkaður HR-prófessor og miðstöð hinna refsiverðu þráða

gamblerÞað þarf nú engann vindþurkaðan prófessor til að sjá, að hér fór fram umfangsmikil refsiverð háttsemi. Það þurfti heldur ekki 3000 blaðsíðna skýrslu til að sjá hvernig í pottinn var búið.

lady2Hinsvegar skortir heilmikið uppá, að prófessorar og önnur gáfnaljós sjái, að allir þræðir hinnar refsiverðu háttsemi liggja beint til Sjálfstæðisflokksins. Þar var (og er) miðstöð græðgisvæðingarinnar, nýfrjálshyggjukokteilsins banvæna og Hrunsins mikla.

Það er svo sem ágætt, útaf fyrir sig, að gera hróp að heimilum nokkurra auðvirðilegra pólitískra spillingargerpa. En margfalt nauðsynlegra er að efna til fjöldamótmæla gegn Sjálfstæðisflokknum og linna ekki látum fyrr en þau umfangsmiklu vargasamtök heyra sögunni til. Það er engin ástæða til að láta þennan skuggalega flokk sleppa eins auðveldlega með skrekkinn eins og útlit er fyrir þessa dagana.


mbl.is Vísbendingar um refsiverða háttsemi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andvaraleysi og mistök eða einbeittur brotavilji?

finnur2.jpgHvort voru það andvaraleysi og mistök eða einbeittur brotavilji Sjálfstæðisflokks og Framasóknarflokks, sem orsökuðu Hrunið mikla og varð þjóðinni að falli í fleiri en einum skilningi?

Það þýrir akkúrat ekkert fyrir strengjabrúðuna Sigmund Davíð að umla um afsakanir og ætlast til að þjóðin fyrirgefi Framsóknarflokknum meðan flokksmenn láta undir höfuð leggjast að víkja Halldóri Ásgrímssyni úr flokknum ásamt Finni Ingólfssyni, Valgerði Sverrisdóttur, Alfreð Þorsteinssyni, kaupfélagsstjórnanum á Sauðárkróki og Siv Friðleifsdóttur, svo nokkur eintök úr haughúsi Framsóknarmaddömunnar séu nefnd.

Enn fremur verður Framsóknarflokkurinn að berjast fyrir því að þjóðinni verði skilað ríkiseignum sem framsóknarmenn nældu sér í á misjafnlega þokkafullan hátt meðan þeir voru í ríkisstjórn á árunum 1995-2007, auk fiskeiðiauðlindarinnar sem Framsóknarflokkurinn hafði á ýmsan hátt forgöngu um að stela af þjóðinni. 


mbl.is Framsóknarflokkur biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunadansarar eiga að læra að skammast sín

judas.jpgÞað liggur fyrir, að Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók við eins miklum peningum og í boði voru til að freista þess að geta troðið sér fram fyrir aðra í prófkjörum. Af einhverjum ástæðum voru umsvifamenstu kapítalistarnir rausnarlegri við Steinunni Valdísi í þessum peningaprófkjörum en flesta aðra. Og æ sér gjöf til gjalda.

Nú, þegar peningaborgir velgjörðamanna kosningasjóðs Steinunnar Valdísar, eru hrundar til grunna með skelfilegum afleiðingum fyrir þjóðina og velgjörðamennirnir flúnir á braut með allt sitt úldna mjöl í pokahornunum sínum, er ekki nema eðlilegt að landslýður setji upp spurningarmerki fyrir framan trúverðugleika stjórnmálamanna, sem tóku við háum fjárhæðum út lúkunum á fjárglæframönnunum. Steinunn Valdís keypti sig fram fyrir aðra félaga sína í prófkjörum með peningum, sem komu beint uppúr óhreinustu forarvilpum frjálshyggju- og einkavæðingarspillingarinnar. Þeir sem tryggðu sér áframhaldandi pólitíkst líf á þann hátt eftir síðustu aldamót, eiga ekki nema um eitt að velja: Hverfa alfarið af vettvangi stjórnmálanna, því þeir eru öllu trausti rúnir í augum almennings, - og læra skammast sín í stað þess að rífa kjaft.    


mbl.is Segir ásakanir á hendur sér rangar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim sem Herrann refsar, er hyggilega refsað

god2Það gefur augaleið, að hin heilaga refsing, sem eldsumbrotin í Eyjafjallajökli svo sannarlega eru, er refsing fyrir alla helvíska frjálshyggjuglæpina sem framdir hafa verið, en þó einkum og sér í lagi er Herrann, sem Hymmnaveldi stjórnar, að refsa Íslandi fyrir hafa alið Sjálfstæðisflokkinn sér við brjóst áratugum saman. Þetta veit Gaddafi og þetta vita Davíð og Halldór líka. Sömuleiðis er öskumökkurinn úr Eyjafjallajökli áminning til Jóhönnu Sig. um að hunskast til að víkja þegar í stað af vegi kapítalismans og leyndar- og pukurstjórnmála, annars fái hún og Kvóta-Steingrímur eitt krassandi Kötlugos beint framaní sig.

Það skulu menn og konur hafa hugfast, að þeim sem Herrann refsar, er hyggilega refsað.


mbl.is Öskuskýið var heilög refsing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryllingsóperan Finnur í græðgislandi

GlæpamennMikið er nú viðkunnanlegt að Framsóknarflokkurinn í Reykjavík sé að opna kosningaskrifstofu í dag með ræðuhöldum og skemmtidagskrá. Það verður áreiðanlega ósköp notalegt að hlýða á rokkarana úr Borgarholtsskóla flytja nokkur númer úr söngleiknum um Lísu í Undralandi. Þá verður ekki síður upplífgandi að heyra sjálfann Framsóknarkórinn syngja valdar aríur úr hryllingsóperunni,, Finnur í græðgislandi", sem fór eins og menn muna, frægðarför um Ísland fyrir fáeinum árum.

Nú, svo verða frambjóðendur Framsóknaflokksins á svæðinu með blöðrudýr, en það munu vera fyrrverandi ráðherrar flokksins. Hinsvegar ku næsta erfitt orðið að halda lofti í umræddum frafsóknarráðherra-blöðrudýrum sökum þess hve götótt þau eru orðin og músétin og sum þeirra auk þess þung á sér af offylli eftir græðgisvæðinguna miklu þegar Halldór og Finnur léku aðalhlutverkin fyrir hönd Framsóknarmaddömunnar heitinnar.

Að öllu samanlögðu er eitthvað óhugnarlega móðuharðindalegt við að Framsóknarflokkurinn skuli enn þann dag í dag, á þí herrans ári 2010, vera að opna kosningaskrifstofur.  


mbl.is Framsókn opnar kosningaskrifstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fémínískar systur slái skjaldborg um Steinunni Valdísi

femmaIlla trúi ég því að efri-millistéttarfémínístarnir bregðist ekki til varnar vinkonu sinni Steinunni Valdísi, sem á undir högg að sækja um þessar mundir. Engann skyldi undra, þó hinar fémínísku systur Steinunnar, með Sóleyju Tomm og Ingibjörgu Sólrúnu í fararbroddi, hysji uppum sig brækurnar annað kvöld og slái skjaldborg um heimili hennar til að bægja frá kumrandi karlasvínum í mótmælahug. Enda eiga þessir groddalegu karlrembubelgir ekkert með að abbast uppá fémíníska stjórnmálaskörunga af kvenkyni, þó svo að þær hafi þegið myndarlega styrki frá auðvaldinu.
mbl.is Mótmælt við heimili þingmanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni fær ekki hvaða umboð sem er

xd5Það hlýtur að era hægt að láta Bjarna fá eitthvert andskotans umboð. Hann gæti, trúi ég, orðið þokkalegur umboðsmaður hljómsveita, t.d. Ljótu Hálfvitanna. Nú, bílaumboð færi Bjarna ekki vel, en umboð til að flytja inn sárabindi og aðra slíka vafninga kæmi til greina. Ekki kemur til mála að gera þennan hrunasvein Sjálfstæðisflokksins að umboðsmanni byskubs, því hann væri vís með að flækja Þjóðkirkjuna í einhver háskaleg krosseignatengsl og veðsetja byskubinn fyrir skuldabréf frá Fons eða Wernersbrothers með veði í bréfunum sjálfum.

En ef Bjarni óskar eftir umboði til að leggja Sjálfstæðisflokkinn niður, er það alveg sjálfsagt. Enda eru landsmenn unnvörpum að komast á þá skoðun, að umræddur flokkur sé endalaus uppspretta sjónhverfinga, spillingar og glæpa og þar með sú hægdrepandi meinsemd sem þjóðarlíkaminn verður að losna við sem fyrst ef hann á ekki að andast fyrir aldur fram.


mbl.is Bjarni vill fá nýtt umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalískt þjóðfélag er það sem koma skal

revÞað er hárrétt hjá Steingrími, að Bjarni Benediktsson ætti að rifja upp hernig Icesave er tilkomið. Og það eru fleiri en Bjarni sem ættu að hressa uppá heilasellurnar hvað varðar icsave-glæpinn og aðra stigamennsku sem fékk að vaða uppi á frjálshyggjutímabilinu 1991 til 2009. Eins og komið hefur fram, þá er skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis einn alsherjar áfellisdómur yfir Sjálfstæðisflokknum og liðsmönnum hans. Í því ljósi væri eðlilegt, að Sjálfstæðisflokkurinn og kjósendur hans væru látnir borga skaðann af umræddu frjálshyggjutímabili. Og auðvitað tækju auðvirðilegu hækjurnar, Framsókn og Kratar, þátt í að greiða glæpinn á einhvern hátt.

En þó að Rannsóknarskýrsla Alþingis felli alvarlegan dóm yfir Sjálfstæðisflokknum, láist henni alveg að geta þess, að grunnurinn að Hruninu mikla, rótin að óförunum, er ekki minni ismi en sjálfur kapítalisminn. Sem segir okkur, að skýrslan er þrátt fyrir allt borgaralegur samsetningur og okkur ber að umgangast hana sem slíka.

Ef þjóðinni er mjög umhugað að gera Hrunið rækilega upp og ganga svo frá hnútunum, að slíkir hlutir endurtaki sig aldrei, verður hún að skipta algjörlega um þjóðfélagskerfi, afsegja kapítalismann og fleygja honum útí hafsauga og taka upp sósíalískt þjóðfélagskerfi í staðinn. Það er hið eina eðlilega svar við Hruninu, Sjálfstæðisflokknum, Framsókn og Krataselskapnum.     


mbl.is Engin fyrirheit gefin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausaganga sjálfstæðismanna ólíðandi

hannez5_897707.jpgÞó að lausaganga grimmra hunda sé hvimleið þá er lausaganga ágjarnra sjálfstæðismanna mikið ámælisverðari. Það er vitað að búrtíkur auðaldsins hafa um áratugaskeið smogið eins og rottur um banka, lífeyrissjóði og aðrar fjárhirslur landsmanna og étið og nagað allt sem fyrir þeim hefur orðið. Hæstum hæðum náði þessi plága í október 2008, þegar í ljós kom að helvítis ófétin voru búin að éta þjóðina svo gott sem útá gaddinn. Þá kom semsé í ljós og lausaganga þessara óféta hafði orsakað gjaldþrot fjölda banka, sparsjóða, seðlabankans og ríkissjóðs auk aragrúa einstaklinga og heimila. Hefur, samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, annar eins óþverri ekki gengið yfir landið síðan í móðuharðindunum miklu á átjándu öld.  Af því má sjá, að lausaganga venjulegra hunda með fjóra fætur og eitt skott er ekki neitt neitt miðað við háskalega lausagöngu óseðjandi sjálfstæðismanna og búrtíka þeirra. 
mbl.is Kvartað yfir lausagangi hunda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkurinn lagður niður á aukalandsfundi

hogg.jpgÞað er gleðilegt að höfuðpaurar Sjálfstæðisflokksins skuli ætla að sjá að sér og leggja til við aukalandsfund, að Flokkusinn verði lagður niður, áður en til þess kemur að hann verði bannaður með lögum frá Alþingi, sem félagi Ólafur Ragnar Grímsson myndi staðfesta með ánægju.

Vitanlega sjá allir, sem á annað borð eru með fullu viti, að leikur Sjálfstæðisflokksins er gjörtapaður; það komst nefnilega uppum strákinn Tuma því þegar allt kom til alls var Sjálfstæðisflokkurinn ekki stjórnmálaflokkur í þeirri merkingu sem fólk leggur almennt í það orð, heldur sóðaleg peninga- og valdagræðgissamtök, fleytifull af hættulegum gallagripum á bæði borð. En það ar ekki fyrr en auðaldsmafían var komin upp að vegg og öll spjót stóðu á henni, að fór að rofa til milli eyrnanna á höfuðpaurum Flokksins og þeir sáu að þeim voru allar bjargir bannaðar.

Það verður mikið um dýrðir þegar Sjálfstæðisflokkurinn verður lagður niður í sumar, eða öllu heldur lógað, og hræið af honum urðað í sorpeyðingarstöðinni að Fíflholtum á Mýrum. 


mbl.is Boða til aukalandsfundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband